Fréttablaðið - 19.12.2011, Qupperneq 26
en Helga vann við teiknimynda- og
auglýsingagerð í ein þrjátíu ár. Í
dag býr listakonan í Svíþjóð eftir
að hafa kvatt Bretland árið 2006.
„Það hefur alltaf verið draum-
ur að gera eitthvað fyrir hana
Dimma limm en það hefur ein-
faldlega ekki gefist tími fyrr en
nú. Fyrir tveimur árum fór ég að
fikta við myndirnar og reyna að
gera þær fínar í gegnum tölvuna.
Ég segi eins og er að ef ég hefði
vitað hvílík vinna beið mín held ég
að ég hefði jafnvel sleppt þessu,“
segir Helga og hlær. „En ég lærði
mikið af þessu.“
Stellið er úr postulíni, djúpir
diskar og bollar með þremur mis-
munandi myndum úr ævintýrinu.
Auk þess er ástartré á hverjum
bolla. Hnífapörin eru sömuleiðis
til í þremur útgáfum, með svani,
prinsi og Dimmalimm á skaftinu
en þau koma í sérpakkningum.
„Jú, þetta er mér mjög kært
verkefni. Dimma-
limm, Helga Egil-
son frænka mín, gaf
mér bókina þegar ég
eignaðist minn son
en ég átti náttúru-
lega eintak af bók-
inni sjálf þegar ég
var lítil,“ segir Helga
og bætir við að hún
þiggi gjarnan góð
ráð frá heimafólki
varðandi markaðs-
setningu á stellinu en hana langar
líka að koma því á markað erlend-
is. „Það væri gaman að fá hjálp
og góð ráð. Ég hef staðið í þessu
alein og myndi með glöðu geði taka
öllum ábendingum um út- og inn-
flutning.“
Stellið og hnífa pörin
fást núna í Safnbúð
Þjóðminjasafns-
ins og hjá Art
Form á Skóla-
vörðustíg. Þá
fást h n í fa -
pörin í Kokku,
hjá Kraumi og á
Amtsbókasafninu
á Akureyri.
juliam@frettabladid.is
Hnífapör, diskar og bollar með myndum úr bók Muggs um Dimmalimm.
Framhald af forsíðu
Glerlistakonan Sigrún Ólöf Einarsdóttir í Gler í Berg-
vík fékk viðurkenningu Handverks og hönnunar í vetur
fyrir hönnun sína á glermortelum. Skálin og stauturinn
eru munnblásin og handmótuð og geta mortélin stað-
ið á tvo vegu.
„Mortélin þola talsvert högg en þau eru þykk í
botninn, þung og stöðug. Það er þó nokkuð mál að
blása þau og ná þykktinni í botninn og svo slípa ég
skálarnar til í réttan halla,“ útskýrir Sigrún, en hún hefur
rekið glerblástursverkstæðið Gler í Bergvík á Kjalarnesi í
bráðum 30 ár.
Meðal nýrra vara
Sigrúnar er einnig
sushi-sett sem hún
hannaði úr þvotta-
brettisgleri sem flutt var
til landsins snemma á
fimmta áratugnum. „Það
átti að smíða úr þeim þvottabretti en svo skall stríðið
á og eftir það komu þvottavélarnar á heimilin. Glerið
endaði svo hjá mér fyrir mörgum árum,“ segir Sigrún, en
hún sagar glerið niður, slípar og sandblæs áður en hún
hitar plöturnar í móti. Rifflurnar í glerinu lætur hún njóta
sín. Nánar má forvitnast um muni Sigrúnar á www.gler-
ibergvik.is. - rat
Viðurkenning fyrir hönnun
GLERLISTAKONAN SIGRÚN ÓLÖF EINARSDÓTTIR Í GLER Í BERGVÍK FÉKK VIÐURKENNINGU HANDVERKS OG HÖNNUNAR Í
VETUR FYRIR HÖNNUN SÍNA Á GLERMORTÉLUM. SKÁLIN OG STAUTURINN ERU MUNNBLÁSIN OG HANDMÓTUÐ.
Hleðslutæki farsíma eru sjaldan til prýði. Nema maður eigi svona tæki
frá fyrirtækinu Absolument Design í Frakklandi sem er sérlega smart.
SNILLDARJÓLAGJÖF 15%
Jólafsláttur af
þessum frábæru
hleðslutækjum
Útsölustaðir:
Kokka, Dúka, Nordic Store, Pottar og Prik
Akureyri, Hús Handanna Egilstöðum, Póley
Vestmannaeyjum, Auntsdesign Hlíðasmára.
Eldheit íslensk hönnun
Svunta, hanski, kokkahúfa
www.auntsdesign.is
Yndislegar
dúnsængur
og koddar úr
100% hvítum
gæsadún
Sölufulltrúar:
Jóna María
jmh@365.is 512 5473
Brynja Dan
brynjadan@365.is 512 5465
Snorri
snorris@365.is 512 5457