Fréttablaðið - 19.12.2011, Qupperneq 54
19. desember 2011 MÁNUDAGUR38
sport@frettabladid.is
NOREGUR varð í gær heimsmeistari í handbolta kvenna. Noregur lagði þá Frakkland, 32-24, í úrslita-
leiknum. Þjálfari norska liðsins er Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson sem er að gera frábæra hluti með
norska liðið. Spánn fékk bronsið á mótinu en Spánn vann öruggan sigur á Dönum í bronsleiknum.
IE-deild karla:
Stjarnan-Keflavík 107-91
Stig Stjörnunnar: Marvin Valdimarsson 23, Keith
Cothran 23, Sigurjón Örn Lárusson 20, Justin
Shouse 15, Guðjón H. Lárusson 10, Fannar,
Helgason 8, Dagur Kár Jónsson 8
Stig Keflavíkur: Charlie Parker 27, Steven Gerard
26, Jarryd Cole 18, Valur O. Valsson 7, Gunnar
Stefánsson 6, Almar Guðbrandsson 4, Halldór
Halldórsson 3.
KR-Valur 85-83
KR: Emil Þór Jóhannsson 20/5 fráköst, Hregg-
viður Magnússon 13/8 fráköst, Ólafur Már
Ægisson 12, Martin Hermannsson 9/4 fráköst,
Björn Kristjánsson 9, Skarphéðinn Freyr Ingason
8/5 fráköst, Finnur Atli Magnusson 7/13 fráköst,
Páll Fannar Helgason 4, Jón Orri Kristjánsson
3/6 fráköst.
Valur: Garrison Johnson 24/7 fráköst, Ragnar
Gylfason 21, Igor Tratnik 19/17 fráköst, Birgir
Björn Pétursson 10, Austin Magnus Bracey 4,
Benedikt Blöndal 4/4 fráköst, Hamid Dicko 1.
Þór Þ.-Tindastóll 74-78
Þór Þorlákshöfn: Guðmundur Jónsson 19/8
stolnir, Darrin Govens 18/8 fráköst/5 stoðsend-
ingar, Baldur Þór Ragnarsson 11/6 stoðsendingar,
Grétar Ingi Erlendsson 9, Darri Hilmarsson 8/4
fráköst, Marko Latinovic 5, Michael Ringgold 4/8
fráköst.
Tindastóll: Þröstur Leó Jóhannsson 18/5 fráköst,
Maurice Miller 18/11 fráköst/7 stoðsendingar,
Svavar Atli Birgisson 14/7 fráköst, Curtis Allen
9, Helgi Freyr Margeirsson 7/4 fráköst, Helgi
Rafn Viggósson 6/5 fráköst, Friðrik Hreinsson 3,
Hreinn Gunnar Birgisson 3.
Snæfell-Grindavík 105-110
Snæfell: Marquis Sheldon Hall 26/5 fráköst,
Quincy Hankins-Cole 23/20 fráköst, Jón Ólafur
Jónsson 19/6 fráköst, Sveinn Arnar Davidsson 17,
Pálmi Freyr Sigurgeirsson 8, Ólafur Torfason 5,
Hafþór Ingi Gunnarsson 3, Egill Egilsson 2, Daníel
A. Kazmi 2.
Grindavík: Giordan Watson 35/4 fráköst/7
stoðsendingar, J’Nathan Bullock 28/15 fráköst/3
varin skot, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 11, Ólaf-
ur Ólafsson 10/7 fráköst, Ómar Örn Sævarsson
10/9 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 10/5 fráköst,
Þorleifur Ólafsson 6.
Njarðvík-Fjölnir 79-82
Njarðvík: Cameron Echols 24/10 fráköst, Elvar
Már Friðriksson 21/4 fráköst, Travis Holmes 15/7
fráköst/5 stolnir, Maciej Stanislav Baginski 9,
Ólafur Helgi Jónsson 6/4 fráköst, Oddur Birnir
Pétursson 4.
Fjölnir: Nathan Walkup 23/5 fráköst, Calvin
O’Neal 16/6 stoðsendingar, Jón Sverrisson
13/10 fráköst, Árni Ragnarsson 11, Arnþór Freyr
Guðmundsson 10/6 fráköst, Björgvin Hafþór Rík-
harðsson 5, Trausti Eiríksson 4.
Haukar-ÍR 82-84
Haukar: Hayward Fain 31/11 fráköst/7 stoðsend-
ingar, Christopher Smith 12/13 fráköst/5 varin
skot, Davíð Páll Hermannsson 12, Emil Barja 9/7
fráköst/3 varin skot, Sævar Ingi Haraldsson 7/8
stoðsendingar, Haukur Óskarsson 6, Helgi Björn
Einarsson 5/9 fráköst.
ÍR: Robert Jarvis 32, Nemanja Sovic 21/8 fráköst,
James Bartolotta 15, Hjalti Friðriksson 12/6
fráköst, Húni Húnfjörð 2, Ellert Arnarson 1/5
fráköst/7 stoðsendingar, Eiríkur Önundarson 1
ÚRSLIT
N1-deild karla:
Valur-Akureyri 23-30
Valur - Mörk (skot): Sturla Ásgeirsson 9/3 (17/4),
Anton Rúnarsson 6 (12), Finnur Ingi Stefánsson 4
(5), Magnús Einarsson 2 (5), Atli Már Báruson 1
(1), Arnar Daði Arnarsson 1 (2).
Varin skot: Hlynur Morthens 6 (29/1, 21%),
Ingvar K. Guðmundsson 2 (9, 22%),
Hraðaupphlaup: 3 (Sturla, Finnur, Arnar)
Fiskuð víti: 3 ( Anton 2, Gunnar )
Akureyri - Mörk (skot): Bjarni Fritzsson 10/1
(10/1), Guðmundur H. Helgason 6 (13), Oddur
Gretarsson 4 (5), Geir Guðmundsson 4 (7),
Hörður Fannar Sigþórsson 3 (3), Heiðar Þór Aðal-
steinsson 2 (4), Guðlaugur Arnarsson 1 (1).
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 10 (29/2, 34%),
Stefán Guðnason 3 (7/1, 43%),
Hraðaupphlaup: 8 (Bjarni 2, Oddur 2, Heiðar 2,
Guðlaugur, Guðmundur)
Fiskuð víti: 1 ( Oddur)
HANDBOLTI Akureyri vann öruggan
sigur á Val, 30-23, í Vodafone-höll-
inni í síðasta leik liðanna fyrir frí
frá deildarkeppninni fram í byrjun
febrúar. Eftir jafnan fyrri hálfleik
hafði Akureyri yfirhöndina allan
síðari hálfleikinn og sigurinn í
raun aldrei í hættu.
Leikurinn hófst rólega og áttu
liðin erfitt með að finna taktinn.
Sóknarleikur beggja liða var ekki
upp á marga fiska og þurftu leik-
menn heldur betur að hafa fyrir
hverju einasta marki. Fyrri hálf-
leikurinn var jafn og munaði
aldrei miklu á liðunum. Sturla
Ásgeirsson, leikmaður Vals, var
frábær í hálfleiknum en hann
gerði sjö mörk á fyrstu 30 mínút-
um leiksins.
Akureyri byrjaði síðari hálfleik-
inn miklu betur en heimamenn og
voru mun ákveðnari í öllum sínum
aðgerðum. Fljótlega voru þeir
komnir sjö mörkum yfir, 23-16.
Þá komu Valsmenn örlítið til baka
og skoruðu fjögur mörk í röð en
lengra komust heimamenn ekki og
Akureyri vann öruggan sjö marka
sigur 30-23.
„Þetta var frábær sigur hjá
okkur og við erum að bæta okkur
jafnt og þétt með hverjum leik,“
sagði Atli Hilmarsson, þjálfari
Akureyrar, eftir sigurinn í gær.
„Sóknarlega var liðið eilítið
hikandi í fyrri hálfleiknum og við
vorum að spila bara allt of hægt en
það small allt í seinni hálfleiknum.
Ég er virkilega feginn að komast í
smá pásu núna og fá tækifæri til
að hvíla leikmenn og koma hópn-
um í almennilegt stand. Við erum
með frábært lið og þegar allir eru
heilir þá ráða fáir við okkur.“
„Þetta var mjög súrt tap,“ sagði
Sturla Ásgeirsson, fyrirliði Vals,
eftir tapið í gær.
„Leiðinlegt að fara inn í fríið
með tap á bakinu og einnig erum
við komnir þremur stigum á eftir
Akureyri eftir þennan leik sem er
mjög slæmt. Ég var ánægður með
fyrri hálfleikinn og við vorum alls
ekki síðri aðilinn þá. Síðan hryn-
ur bara okkar leikur í síðari hálf-
leiknum hvort sem það er vörn,
sókn eða markvarsla. Það verður
nóg að gera hjá okkur í þessu svo-
kallaða fríi.“ - sáp
Akureyri á stöðugri uppleið um þessar mundir og sótti bæði stigin í Vodafone-höllinni gegn Val í gær:
Ráða fáir við okkur þegar allir eru heilir
HVERT ERT ÞÚ AÐ FARA? Valsmaðurinn Gunnar Harðarson fær hér óblíðar móttökur
frá varnarmönnum Akureyrarliðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HANDBOLTI Það var sannkallaður
stórslagur í Meistaradeildinni í
gær þegar Íslendingaliðin Kiel og
AG Köbenhavn mættust í Kiel.
Danska ofurliðið kom nokkuð á
óvart með því að standa í Kiel og
rúmlega það því liðið leiddi í leik-
hléi með tveimur mörkum, 12-14.
Í síðari hálfleik hélt AG áfram
að spila vel og náði þriggja marka
forskoti, 17-20. Þá hrökk allt í
baklás hjá AG og Kiel skoraði
fimm mörk í röð. Eftir það leit
liðið aldrei til baka og landaði
afar sætum tveggja marka sigri,
28-26.
Kiel komst með sigrinum í
efsta sæti riðilsins þar sem það
hefur stigi meira en AG.
Athygli vakti að Ólafur Stef-
ánsson lék allan leikinn fyrir AG
þó svo hann sé nýstiginn upp úr
erfiðum meiðslum. Guðjón Valur
Sigurðsson lék einnig allan leik-
inn fyrir AG og Snorri Steinn
Guðjónsson spilaði mestan hluta
leiksins. Aron Pálmarsson lék svo
vel í liði Kiel. - hbg
Meistaradeildin í handbolta:
Kiel hafði betur
gegn AG
FÖGNUÐUR Alfreð gat leyft sér að fagna
eftir dramatískan sigur sinna manna.
NORDIC PHOTOS/BONGARTS
KÖRFUBOLTI Stjarnan skellti Kefla-
vík 107-91 í Iceland Express deild
karla í körfubolta í gær í uppgjöri
liðanna í öðru og þriðja sæti.
Jafnræði var með liðun-
um allan fyrsta leikhlutann en
Stjarnan var þó fjórum stigum
yfir þegar annar leikhluti hófst
32-28.
Stjarnan byrjaði annan leik-
hluta með látum og þegar hann
var hálfnaður var munurinn ell-
efu stig, 49-38. Stjarnan náði
mest 16 stiga forystu í öðrum
leikhluta en munurinn í hálfleik
var fjórtán stig 61-47.
Allt annað var að sjá til Kefla-
víkur í upphafi þriðja leikhluta.
Liðið fór að berjast fyrir hverjum
einasta bolta og bjóða upp á varn-
arleik. Keflavík tókst að minnka
muninn niður í sex stig á fjórum
mínútum 66-60 en þá féll Kefla-
vík aftur í gamla farið. Stjarnan
var sjö stigum yfir fyrir fjórða
leikhluta 78-71 og stjórnaði ferð-
inni án nokkurra vandræða út
leikinn og vann að lokum örugg-
an 16 stiga sigur 107-91.
„Liðsheildin var frábær í dag.
Það voru allir í liðinu tilbúnir í
slaginn og allir á sömu línunni.
Það voru allir tilbúnir að leggja
á sig fyrir félagana í liðinu og þá
erum við mjög sterkir og góðir
og þetta var líklega besti leikur-
inn okkar í vetur,“ sagði Teitur
Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar,
í leikslok.
„Við fengum mörg stig á okkur
framan af. Keflavík hitti mjög vel
í byrjun, fékk fimm þrista. Venju-
lega dettur þriggja stiga prósent-
an niður er líður á leikina og það
var raunin núna. Við náðum líka
að stíga upp og laga okkur að því
sem þeir voru að gera og mér
fannst það ganga mjög vel,“ sagði
Teitur en lið hans lék frábærlega
allan leikinn fyrir utan fyrstu
mínútur þriðja leikhluta.
„Við finnum aftur okkar jafn-
vægi og þá fannst mér þetta ekki
vera spurning. Það voru allir til-
búnir í að berjast. Við hefðum
unnið alla í dag, það skipti ekki
máli hvort það var Grindavík,
Keflavík eða hvaða lið sem er.
Ég held að við hefðum unnið alla
í dag. Það er virkilega gaman að
fara með svona góða tilfinningu
inn í jólin og með sjálfstraust.
Það líður öllum vel eftir þetta og
menn geta borðar mat með góðri
samvisku,“ sagði Teitur að lokum.
Sigurður Ingimundarson, þjálf-
ari Keflavíkur, var ekki eins upp-
litsdjarfur og kollegi hans hjá
Stjörnunni.
„Við gátum ekkert. Við spiluð-
um enga vörn og vorum ömurleg-
ir,“ sagði Sigurður en Keflavík
réði ekkert við hæð Stjörnunnar
í teignum en Stjarnan tók 40 frá-
köst gegn aðeins 18 hjá Keflavík.
„Við fráköstum mjög illa í þess-
um leik og vorum lélegir. Við
náðum þessu niður en svo falla
menn aftur í sama farið og verða
týndir, þetta var mjög skrítið,“
sagði Sigurður.
„Við spiluðum ágætis vörn í
nokkrar mínútur í byrjun seinni
hálfleiks og náðum þessu niður
í leik eins og við viljum en svo
duttum við niður. Ég veit ekki
hvað kom fyrir mína menn. Við
erum ekki með mikla breidd og
þegar það leika ekki allir á fullu
og gera þetta saman sem lið þá
getum við ekki neitt,“ sagði Sig-
urður en fyrir utan útlendingana
þrjá, Gerrard, Parker og Cole
skiluðu fáir framlagi í stigaskor-
un og ætti það að valda Keflvík-
ingum áhyggjum. - gmi
Jólastjarnan skein skært
Uppgjör liðanna í öðru og þriðja sæti stóðst aldrei væntingar um spennu.
Stjarnan lék við hvern sinn fingur gegn slöku liði Keflavíkur og vann.
BARÁTTUHUNDUR Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, var ánægður með strákana
sína í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM