Fréttablaðið - 19.12.2011, Side 44

Fréttablaðið - 19.12.2011, Side 44
19. desember 2011 MÁNUDAGUR28 28 menning@frettabladid.is 1:1 000 000 FRÁBÆRT Í BÚSTAÐINN Í bókinni Án vegabréfs – Ferðasögur rifjar blaða- maðurinn og ljósmyndarinn Einar Falur Ingólfsson upp ferðir sínar um heiminn síð- ustu tvo áratugina í orðum og myndum. „Ég hef lengi verið áhugasamur um ferðasögur. Þær voru vinsælar hér á landi eftir seinna stríð þótt minna hafi farið fyrir þeim hér á seinni árum, en eru þó sprelllifandi form víða, til dæmis í hinum vestræna heimi. Þetta eru sannar sögur, en hægt að beita í þeim öllum brögð- um skáldskaparins,“ segir Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari og blaðamaður, um nýútkomna bók sína Án vegabréfs – Ferðasögur. Bókin inniheldur ferðaþætti frá fjarlægum deildum jarðar yfir tveggja áratuga tímabil eða svo. Víða er drepið niður fæti og á margvíslegum stöðum, köldum sem heitum og fjölmennum sem fámennum. „Ég hef ferðast mikið í gegnum árin, stundum í tengslum við vinnuna en þó oftar af eigin hvötum og þá fyrst og fremst til að taka ljós- myndir,“ segir Einar Falur. „Á þessum ferðum mínum, til Suð- ur-Ameríku, Kína, Indlands, norðurpólsins, Kanada, Fær- eyja og víðar, hef ég haldið ítarlegar dagbækur og skráð í þær upplifanir, atburði og samtöl. Þegar ég lagðist í dag- bækurnar fyrir ári þótti mér svo gaman að vinna úr þeim að úr varð þetta samtal sagna og ljósmynda. Þótt bókin sé samvinna margra þátta er grunnhugmyndin alltaf sú sama, að segja sögur af fólki og stöðum. Hvort sem maður er stadd- ur meðal þrjátíu milljón manna á fjölmennustu samkomu allra tíma í Indlandi eða í fámenninu á norð- urpólnum, er mannlegt eðli alltaf samt við sig.“ Höfundurinn segir sögurnar í bókinni afar ólíkar innbyrðis en allar mjög persónulegar. „Sum ferðalögin voru bein viðbrögð við einhverju sem ég var að upplifa hér heima. Í janúar 2000, þegar umræður um Kárahnjúkavirkjun voru hvað heitastar hér, fór ég til dæmis til Kína að skoða Þriggja gljúfra stífluna við Jangtze-fljót í Kína. Lónið sem þar var búið til næði frá Reykjavík til Egilsstaða. Kannski gerir bakgrunnur minn sem blaðamaður að verkum að ég reyni að setja slíka hluti í sam- hengi. Einnig bjó ég í New York í nokkur ár og það var ógleymanlegt að snúa aftur til gömlu heimaborg- arinnar nokkrum dögum eftir árás- irnar á tvíburaturnana, sjá rústirn- ar og tala við íbúa borgarinnar,“ nefnir Einar Falur sem dæmi. Auk Án vegabréfs kemur Einar Falur að þremur öðrum bókum fyrir jólin, en hann þýddi Íslensk- ar veiðiár eftir Robert Neil Stew- art og á ljósmyndir í Veiðisögum Bubba Morthens og bók um Grímsá og Tunguá eftir Guðmund Guðjóns- son. „Oft hef ég verið upptekinn en þetta ár hefur líklega verið það hressilegasta,“ segir Einar Falur og hlær. „En bækurnar eru allar komnar út og ég er mjög sáttur.“ kjartan@frettabladid.is Mannlegt eðli samt við sig LÍKVAKA „Þetta er fjölskylda í kirkjugarði í námaborginni Potósí á hásléttu Bólivíu. Daginn áður var amman jörðuð og um nóttina grófu þau upp bein afans, sem lést átta árum fyrr. Nú átti að sameina gömlu hjónin í einni gröf.“ MYND/EINAR FALUR INGÓLFSSON Tónlist ★★ Jóhann Sebastian Bach: Hljómsveitarsvítur Kammersveit Reykjavíkur Smekkleysa Daufleg kammersveit Út er kominn geisladiskur með Kammersveit Reykjavíkur. Þar flytur hún hljóm- sveitarsvítur Bachs undir stjórn Reinhard Goebel. Maður spyr sjálfan sig af hverju. Svíturnar eru til á ótal upptökum, og þessi útgáfa bætir litlu við. Spila- mennskan er að vísu ágæt, hún er nákvæm og stílhrein. En hvar er andagiftin? Upptökurnar voru gerðar fyrir heilum ellefu árum, eftir að Kammersveitin hafði flutt svíturnar á jólatónleikum. Það er eitthvað þreytulegt við túlkunina. Kannski var sveitin bara lúin eftir tónleikana. Tæknilega séð er ekki hægt að finna að neinu, en það vantar leikgleðina. Flutningurinn er vélrænn og andlaus. Martial Nardeau leikur einleik á flautu. Hann gerir það ágætlega, svo langt sem það nær. Spilamennskan er öguð og rétt. En það dugir ekki til. Það vantar tilfinninguna. Hinn dillandi lokakafli svítu nr. 2 er t.d. einkennilega kuldalegur. Og flautan er of aftarlega í upptökunni. Útkoman er hvorki fugl né fiskur Upptakan í heild, sem var í höndum Páls S. Guðmundssonar, er ekki nógu góð. Hún er þurr og grunn, og fer tónlistinni illa. Hér hefði mátt gera betur. Kammersveitin, sem er óneitanlega einn af máttarstólpum tónlistarlífsins á Íslandi, á ekkert annað skilið. Jónas Sen Niðurstaða: Nákvæm en andlaus spilamennska, og upptakan er ekki nógu góð. AKRÝLMÁLVERK Á HRAFNISTU Björg Atla sýnir nítján akrýlmálverk í Menningarsal Hrafnistu, DAS, að Hraun- brún 7 í Hafnarfirði. Sýningin stendur til 3. janúar og er öllum opin frá klukkan 14.30 til 19 daglega. Málverk Bjargar eru í óhlutbundnum expressionískum stíl, litrík og ljóðræn. Björg útskrifaðist úr málaradeild Myndlista- og handíðaskólans 1982, og kenndi málun á námskeiðum við Myndlistaskólann í Reykjavík 1982-1987. Bækur ★★★★ Í klóm dalalæðunnar Sindri Freysson Veröld Að strjúka nýspunnið silki Sindri Freysson hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guð- mundssonar 2011 fyrir ljóðabókina Í klóm dalalæðunnar og án þess að hafa séð önnur handrit sem send voru inn er auðvelt að skilja hvers vegna. Í klóm dalalæðunnar er óvenju heilsteypt ljóðabók og vel unnin, heillandi ferðalag um fortíð og nútíð í norðlenskri sveit, óður til fólks og nátt- úru, full af óvæntum tengingum, hugmyndum og listilega dregnum myndum. Sveitin, Aðaldalurinn þingeyski, er í aðalhlutverki, taugin frá kynslóð til kynslóðar sterk og náttúran, fólkið og dýrin ein órofa heild sem ekkert raskar þótt ár og aldir líði. Bókin hefst á ferðalagi norður í dalinn, ljóðmælandinn einn á ferð yfir landið, „bestu ferðafélagarnir fjarverandi“ og áfangastaðurinn í senn æska hans og ættarsaga, draumur og veruleiki. Afi og amma innrömmuð á veggnum aðalleikendur í fyrsta þætti, stofninn sem framtíðin vex af. Ég er kominn Ég er hér Ófæddur flesta daga Óuppalinn alla daga Ófeiminn ferðalangur Ekki lengur myndasögur í farteskinu aðeins myndir í eigin sögu (bls. 34) Sindri leiðir lesandann listavel í gegnum þá sögu. Raðar brotum, byggir brýr yfir gljúfur fortíðarinnar, bregður upp myndum af fólki og draugum, skapar heim fullan af bláhvítu ljósi, næturhljóðum, sólþungum sumardögum og nístandi frosti. Það er ekki sársaukalaust að ferðast um eigin sögu, undir liggur þungur tregi, ljóðmælandinn í senn þátttakandi og gestur og „að leikslokum er náttúran eini sigurvegarinn“. (bls. 50) Ef þú slæst í svefnför með mér heyrirðu hringla í klakadrönglum einsog í dauðu klukknaspili þegar þeir rekast saman Tónlist Drauma minna (bls. 90) Stíll Sindra er meitlaður og fáorður, hvert orð hefur vægi, örmyndir endurspegla stærri veruleika, hið hálfsagða og ósagða kraumar undir og eykur spennuna, ferðalagið um leið hið eilífa ferðalag frá vöggu til grafar, „glerhöfuð eru ekki gerð til að endast“ (bls. 74). Sveitin er heimurinn allur, fullur af hættum og óuppgötvuðum undrum. Saga ein- staklingsins, saga mannsins í fortíð, samtíð og framtíð. Í klóm dalalæðunnar er ekki stór bók í orðum og blað- síðum talið, en þær eru vandfundnar ljóðabækurnar sem spanna stærra svið eða segja stærri sögu. Og allt unnið af næmni og listfengi sem á sér fáar samsvaranir í ljóðagerð samtímans. Tvímælalaust ein besta ljóðabók síðari ára. Friðrika Benónýsdóttir Niðurstaða: Heilsteypt og fantavel unnin ljóðabók. Spenn- andi ferðalag um fortíð og samtíð. EINAR FALUR INGÓLFSSON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.