Fréttablaðið - 19.12.2011, Blaðsíða 58
19. desember 2011 MÁNUDAGUR42
FÖNIX Raftækjaverslun . Hátúni 6a . Sími 552 4420 . fonix@fonix.is . www.fonix.is
Enska úrvalsdeildin
QPR - MAN. UTD 0-2
0-1 Wayne Rooney (1.), 0-2 Michael Carrick (56.)
ASTON VILLA - LIVERPOOL 0-2
0-1 Craig Bellamy (11.), 0-2 Martin Skrtel (15.).
TOTTENHAM - SUNDERLAND 1-0
1-0 Roman Pavlyuchenko (61.).
MAN. CITY - ARSENAL 1-0
1-0 David Silva (53.).
BLACKBURN - WBA 1-2
0-1 James Morrison (51.), 1-1 Scott Dann (71.),
1-2 Peter Odemwingie (88.).
EVERTON - NORWICH CITY 1-1
0-1 Grant Holt (27.), 1-1 Leon Osman (80.).
FULHAM - BOLTON WANDERERS 2-0
1-0 Clint Dempsey (31.), 2-0 Bryan Ruiz (33.).
WIGAN ATHLETIC - CHELSEA 1-1
0-1 Daniel Sturridge (58.), 1-1 Jordi Gomez (87.).
WOLVES - STOKE CITY 1-2
1-0 Stephen Hunt (16.), 1-2 Peter Crouch (69.)
NEWCASTLE - SWANSEA 0-0
STAÐAN:
Man. City 16 13 2 1 50-15 41
Man. United 16 12 3 1 37-14 39
Tottenham 15 11 1 3 31-18 34
Chelsea 16 10 2 4 34-19 32
Arsenal 15 9 2 4 31-23 29
Liverpool 16 8 5 3 20-13 29
Newcastle 16 7 6 3 21-19 27
Stoke City 16 7 3 6 18-25 24
Norwich City 16 5 5 6 25-29 20
Aston Villa 16 4 7 5 18-21 19
Fulham 16 4 6 6 18-18 18
Swansea City 16 4 6 6 16-20 18
WBA 16 5 3 8 16-24 18
Everton 15 5 2 8 16-19 17
QPR 16 4 4 8 15-28 16
Sunderland 16 3 5 8 18-19 14
Wolves 16 4 2 10 17-30 14
Wigan Athletic 16 3 4 9 15-30 13
Blackburn 16 2 4 10 23-36 10
Bolton 16 3 0 13 20-38 9
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Eftir að hafa spilað
hundleiðinlegan fótbolta í marg-
ar vikur sýndi Man. Utd loksins
í gær hvað í liðinu býr. Það spil-
aði hraðan og leiftrandi sóknar-
fótbolta.
Reyndar vann liðið aðeins 2-0
sigur en mörkin hefðu hæglega
getað verið mikið fleiri enda óð
United í færum og skaut meðal
annars í þrígang í markstangir
QPR-liðsins.
Fyrra mark leiksins kom eftir
aðeins 51 sekúndu. Rooney og
Valencia léku vel sín í milli. Val-
encia gaf fyrir og Rooney stang-
aði knöttinn í netið.
Michael Carrick átti síðan
sjaldséðan sprett upp allan vall-
arhelming QPR og skoraði með
slöku skoti sem markvörður QPR
hefði átt að verja. Reyndar var
þetta ekki mikill sprettur. Meira
gott hlaup en markið taldi.
„Mér fannst frammistaða liðs-
ins góð en ég var ekki ánægður
með nýtinguna á færunum,“ sagði
Sir Alex Ferguson, stjóri Man.
Utd, eftir leikinn.
„Við hefðum í raun átt að klára
leikinn á fyrsta hálftímanum. Við
óðum hreinlega í færum. Í heild
var þetta samt flott frammi-
staða.“
Ferguson hrósaði Michael Carr-
ick sem var að skora sitt fyrsta
mark í 70 leikjum.
„Carrick klárar leikinn fyrir
okkur og hann stóð sig frábær-
lega. Hann er kominn í virkilega
gott form og ég er verulega sátt-
ur við hans frammistöðu. Hann og
Phil Jones réðu algjörlega miðj-
unni.“
- hbg
Manchester United sýndi loksins flottan fótbolta er liðið sótti Heiðar Helguson og félaga í QPR heim:
Stórskotahríð hjá United en aðeins tvö mörk
FLJÓTUR AÐ SKORA Rooney kom
Man. Utd yfir eftir aðeins 51
sekúndu með góðu skallamarki.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Jólin komu snemma hjá
Wigan um helgina. Petr Cech,
markvörður Chelsea, brá sér þá í
gervi jólasveinsins og gaf Wigan
mark sem skilaði þeim einu stigi
gegn Chelsea. Hann hélt ekki
frekar lausu skoti, Wigan náði
frákastinu og skoraði.
Andre Villas-Boas, stjóri Chel-
sea, vildi ekki kenna markverð-
inum alfarið um markið.
„Það var röð mistaka sem
leiddi til marksins. Wigan nýtti
sér einbeitingarleysi okkar til
þess að skora,“ sagði Villas-Boas
sem vildi augljóslega ekki brjóta
markvörðinn meira niður. - hbg
Chelsea missteig sig:
Cech gaf Wigan
jólagjöf
SVEKKTUR Cech gaf Wigan mark sem
kostaði Chelsea tvö stig.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Liverpool vann mjög auð-
veldan sigur á Aston Villa á Villa
Park í gær. Liverpool réði lögum
og lofum frá upphafi og 0-2 sigur
ekki í neinni hættu.
Mörkin hefðu hæglega getað
orðið fleiri en líkt og áður í vetur
voru markstangirnar að þvælast
fyrir leikmönnum liðsins.
Sigurinn engu að síður góður
og bæði mörkin komu eftir horn-
spyrnur.
„Mér fannst þetta vera afar
verðskuldaður sigur. Ekki bara
skoruðum við mörk heldur vorum
við einnig að láta markstangirnar
hafa fyrir því eins og venjulega,“
sagði Kenny Dalglish, stjóri Liver-
pool, eftir leikinn.
„Hjá okkur snýst allt um liðs-
heild. Við sækjum saman og verj-
umst saman. Það vinnst ekkert
með því að annaðhvort vörn eða
sókn sé góð. Við gerum allt saman
hjá þessu liði.“ Stewart Down-
ing, leikmaður Liverpool, lék sinn
fyrsta leik gegn sínu gamla félagi
og fékk heldur kaldar móttökur.
„Það sem fór aðallega í taugarn-
ar á þeim er hvað hann var góður.
Stewart er frábær leikmaður.“
- hbg
Aston Villa veitti Liverpool afar litla mótstöðu á heimavelli sínum í gær:
Markstangirnar fyrir en samt sigur
BENSÍNIÐ EKKI BÚIÐ Bellamy átti fínan leik með Liverpool í gær og skoraði annað
marka liðsins. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Man. City var búið að
hrista af sér tapleikinn gegn Chel-
sea í gær er það tók á móti sjóð-
heitu liði Arsenal. Skytturnar frá
Lundúnaborg hafa verið í miklu
stuði síðustu vikur en mark Davids
Silva slökkti á þeim.
Leikurinn var mjög líflegur og
bæði lið sóttu af miklum krafti.
Þrátt fyrir nokkur álitleg færi
tókst liðunum ekki að skora mark
í fyrri hálfleik.
Snemma í síðari hálfleik kom
síðan markið sem réði úrslitum
leiksins. Mario Balotelli átti fínt
skot að marki sem Szczesny náði
ekki að halda. Hann varði boltann
út í teiginn og eftir smá hark um
boltann féll hann fyrir fætur Silva
sem mokaði honum yfir línuna af
stuttu færi.
Arsenal lagði allt undir til þess
að jafna í lokin og þeir áttu klár-
lega að fá vítaspyrnu þegar bolt-
inn fór í hönd Micah Richards inni
í teig. Phil Dowd dómari var full-
komlega staðsettur en hann virt-
ist skorta kjark til þess að dæma
vítið.
Í uppbótartíma átti Thomas Ver-
maelen þrumuskot að marki City
en Joe Hart varði vel. Þá var orðið
ljóst að Arsenal myndi ekki skora
í leiknum og það varð líka raunin.
„Þetta er risasigur fyrir okkur.
Við vanmátum ekki mikilvægi
þessa leiks og erum gríðarlega
sáttir við sigurinn,“ sagði Vincent
Kompany, hinn sterki varnarmað-
ur Man. City. „Við erum vanir að
sækja mikið og skora mikið en
það gekk ekkert að klára færin að
þessu sinni. Við vörðumst líka vel
og það var ánægjulegt að halda
hreinu.“
Joe Hart, markvörður Man.
City, hefur leikið vel með City í
vetur og hann stóð svo sannarlega
fyrir sínu í gær.
„Það var pressa á okkur þar sem
hið frábæra lið Man. Utd vann
fyrr um daginn. Við náðum að ýta
vonbrigðunum gegn Chelsea og
í Meistaradeildinni til hliðar og
náðum að komast aftur á toppinn.
Þetta var mjög góður dagur,“ sagði
brosmildur Hart eftir leik.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
var að vonum svekktur yfir að fá
ekkert úr leiknum en hans menn
voru ansi nálægt því.
„Það er erfitt að sætta sig við
tap eftir mikla sigurhrinu. Sér-
staklega þar sem við fengum tæki-
færin til þess að skora. Við getum
huggað okkur við að það voru
mikil gæði í okkar leik að þessu
sinni,“ sagði Wenger.
„Það er gríðarlega svekkjandi að
tapa svona leik en við megum ekki
tapa trúnni á okkur sjálfa. Liðið
sýndi framúrskarandi baráttu-
anda í þessum leik og við verðum
að halda áfram á sömu braut. Það
er ekkert annað í boði.“
Roberto Mancini, stjóri Man.
City, sagði sigurinn hafa verið afar
mikilvægan.
„Eftir tapið gegn Chelsea mátti
þessi leikur ekki tapast. Þetta var
frábær leikur fyrir alla sem sáu
og ég tel að sigur okkar hafi verið
verðskuldaður.“ henry@frettabladid.is
David Silva slökkti á skyttunum
Spánverjinn David Silva skoraði eina mark leiks Man. City og Arsenal í gær. Leikurinn var hraður og
skemmtilegur. Arsenal hefði hæglega getað fengið eitthvað úr leiknum. Arsenal átti að fá víti.
ENDURKOMA SVEFNPOKANS Arsene
Wenger, stjóri Arsenal, dró svefnpokann
fram á nýjan leik en það skilaði ekki
neinu. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
HETJAN FAGNAR David Silva leyfði sér að fagna sigurmarkinu innilega í gær.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES