Fréttablaðið - 22.12.2011, Qupperneq 25
FIMMTUDAGUR 22. desember 2011 25
um göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaárósa
Hugmyndasamkeppni
Reykjavíkurborg og Vegagerðin í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og
Verkfræðingafélag Íslands efna til tveggja þrepa samkeppni um göngu-
og hjólabrýr yfir Elliðaárósa, ásamt stígum að þeim og yfir Geirsnef.
Tilgangur samkeppninnar er að fá fram frjóar og áhugaverðar en jafnframt
raunhæfar hugmyndir um nýja göngu- og hjólaleið yfir Elliðaárósa. Eftir fyrra
þrep samkeppninnar verða valdar þrjár tillögur til nánari útfærslu í seinna þrepi.
Gert er ráð fyrir að samið verði við höfunda fyrstu verðlaunatillögu um áfram-
haldandi hönnun á verkefninu til útboðs.
Markmið hjólreiðaáætlunar Reykjavíkurborgar er að skapa umhverfi sem hvetur
til hjólreiða. Umferð hjólandi og gangandi yfir Elliðaár er mikil og mun aukast
með tilkomu fyrirhugaðra brúa. Brýrnar verða áberandi í borgarlandinu og því
mikilvægt að þær falli vel að nánasta umhverfi.
Skilafrestur tillagna í fyrra þrepi samkeppninnar er til og með 13. febrúar 2012
Nánari upplýsingar er að finna í keppnislýsingunni,
sem er aðgengileg á vefsíðum Reykjavíkurborgar
http://gongu-og-hjolabryr.reykjavik.is
Ítargögn fá þeir sem skrá sig til þátttöku og greiða
þátttökugjald kr. 5000.
FR
A
1
21
1-
2
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur staðfest ákvörðun
skiptastjóra Stoða, áður FL
Group, að rifta skuli 657 millj-
óna króna greiðslu til Teymis frá
sumrinu 2008.
Stjórnendur Teymis hugðust
afskrá félagið af markaði og
þurftu að geta gert upp við hlut-
hafa sína. Til þess sömdu þeir við
Stoðir um kaup á hlut í Alfesca á
ríflegum afslætti gegn víkjandi
kúluláni til fimm ára frá Stoðum.
Alfesca-hlutirnir runnu svo til
hluthafanna.
Dómurinn kemst að þeirri
niðurstöðu að samningurinn hafi
verið æði sérstakur og í raun
gjöf í skilningi gjaldþrotalaga,
enda stjórnendum beggja félaga
mátt vera ljóst að staða félaganna
væri slík að skuldin fengist aldrei
endur greidd. - sh
Víkjandi lán þykir sérstakt:
Gjöf Stoða til
Teymis rift
VIÐSKIPTI Málum sem fara í lög-
fræðiinnheimtu hjá Íslands-
banka hefur fækkað talsvert
á þessu ári. Málunum fjölgaði
mikið árin eftir hrun en mála-
fjöldi er nú farinn að nálgast
það sem tíðkaðist áður. Sértæk
úrræði, svo sem greiðsluaðlögun
og 110 prósenta leiðin, eru helstu
skýring fækkunarinnar.
Það sem af er ári hefur
nýskráningum á innheimtu-
málum hjá Íslandsbanka fækkað
um 22 prósent frá sama tímabili
í fyrra og 58 prósent frá árinu
2009, samkvæmt upplýsingum
frá bankanum. Á þessu ári hafa
innheimtumál hins vegar verið
11 prósent fleiri en þau voru árið
2007.
Þá hefur sá tími sem líður frá
vanskilum þar til mál eru sett
í innheimtu einnig lengst. Ekki
er óalgengt að nú líði 120 til
160 dagar frá vanskilum þar til
málin eru sett í innheimtu. Til
samanburðar hefur venjan verið
60 til 90 dagar.
Að auki hefur tíminn frá því
að mál eru sett í innheimtu þar
til nauðungarsala fer fram tvö-
faldast síðustu misseri. Áður
liðu tíu til tólf mánuðir en nú er
ekki óalgengt að 24 mánuðir líði.
Um 15 prósent innheimtu-
mála Íslandsbanka á árinu eru
tilkomin fyrir hrun. Í fyrra voru
30 prósent málanna frá því fyrir
hrun og á árinu 2009 voru það 75
prósent mála. - mþl
Sértæk úrræði fyrir skuldara hafa fækkað innheimtumálum hjá Íslandsbanka:
Innheimtumálum fækkað nokkuð
ÍSLANDSBANKI Fjöldi innheimtu-
mála hjá Íslandsbanka er farinn að
nálgast það sem var algengt fyrir hrun
íslensku viðskiptabankanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
EFNAHAGSMÁL Allir nefndarmenn
í peningastefnunefnd Seðlabanka
Íslands voru sammála um að
núverandi
vaxtastig væri
„um það bil við
hæfi á komandi
mánuðum í ljósi
efnahagshorfa
og hugsanlega
óhagstæðrar
alþjóðlegrar
efnahags-
þróunar“. Þetta
kemur fram
í fundargerð
peningastefnunefndarinnar vegna
vaxtaákvörðunar fyrr í mánuð-
inum. Fundargerðin var gerð
opinber í gær. Stýrivextir eru
4,75% í dag og héldust óbreyttir
við síðustu vaxtaákvörðun.
Í henni segir einnig að væri
„horft lengra fram á veginn yrði
hins vegar að mati nefndarmanna
nauðsynlegt að draga úr núver-
andi slaka peningastefnunnar
eftir því sem efnahagsbatanum
vindur fram og dregur úr slaka í
þjóðarbúskapnum. Að hve miklu
leyti þessi aðlögun ætti sér stað
með hærri nafnvöxtum færi þó
eftir framvindu verðbólgunnar“.
- þsj
Peningastefnunefnd:
Allir sammála
um vaxtastig
VIÐSKIPTI Gengi hlutabréfa í
Högum lækkaði um 0,88% í gær
í 14,6 milljóna króna viðskiptum.
Lokagengi dagsins var 16,8
krónur á hlut. Þetta er í fyrsta
sinn sem hlutabréfin lækka síðan
félagið var skráð á markað síðast-
liðinn föstudag.
Skráningin fór fram að undan-
gengnu útboði þar sem 30%
hlutur í Högum var seldur til fag-
fjárfesta og almennings. Útboðs-
gengið var 13,5 krónur á hlut
og því hafa þeir sem keyptu sér
bréf þegar ávaxtað hlut sinn um
24,4%, eða rétt tæpan fjórðung.
Heildarvirði bréfa Haga hafa
hækkað úr 16,4 milljörðum króna
í 20,5 milljarða króna, eða um
rúma fjóra milljarða króna, frá
því að þau voru tekin til við-
skipta. - þsj
Kauphöll Íslands:
Bréf í Högum
lækkuðu í gær
HAGAR Finnur Árnason, forstjóri Haga,
og Páll Harðarson, forstjóri Kaup-
hallarinnar, við upphaf viðskipta með
bréf í félaginu.
MÁR GUÐ-
MUNDSSON