Fréttablaðið - 22.12.2011, Síða 46
2 •
TÓNLEIKAR
„ÉG HELD ÉG
MYNDI SETJAST
NIÐUR EIN-
HVERS STAÐAR
OG FÁ MÉR
DRYKK.“
SÍÐA 6
ÍSLENSK / ERLEND
POPP er tónlistarblað og kemur
út annan hvern fimmtudag.
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf.
Umsjón: Atli Fannar Bjarkason
Forsíðumynd: Valli
Auglýsingar: Benedikt Freyr
Jónsson benediktj@365.is
Popp, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík,
sími 512 500
KORN
THE PATH OF TOTALITY ★★
Enginn skal
efast um áhrif
og árangur
Korn á tón-
listarsviðinu.
Hljómsveitin
var einu sinni
ein vinsælasta
ný-þungarokkhljómsveit heims og
hefur gefið út frábærar plötur á
borð við fyrstu plötuna, sem hét
einfaldlega Korn, og Life is Peachy.
En hvað er Korn að spá í dag?
Jú, Korn hefur stokkið á dubstep-
vagninn. Á nýjustu plötu sinni fær
hljómsveitin ýmsa tónlistarmenn
til að vinna með sér lögin sem eru
öll í takt við það sem er að gerast
í tónlistarheiminum í dag. Korn
kryddar svo blönduna með söng
Jonathans Davis og trommu- og
bassaleik sem við ættum að kan-
nast við.
Útkoman er ekkert meira en
sæmileg. Nokkur fín lög er að
finna á plötunni, fullt af grípandi
viðlögum, en manni finnst þó alltaf
eins og hér sé um endurgerð Korn-
lög að ræða, en ekki nýtt efni frá
hljómsveitinni.
Sem sagt: Fín plata, ekki mikið
meira en það. - afb
PÁLL
ÓSKAR
Í POPPSKÚRNUM Á VÍSI
HORFÐU Á PALLA
FLYTJA LÖGIN:
ÞÚ KOMST VIÐ HJARTAÐ Í MÉR
BETRA LÍF
ÞORLÁKSMESSUKVÖLD
ÚLFUR ÚLFUR
FÖSTUDAGURINN LANGI ★★★
Hljómsveitin
Úlfur úlfur var
stofnuð fyrr á
árinu upp úr
rústum Bróður
Svartúlfs sem
vann Músíktil-
raunir 2009.
Á Föstudeginum langa blanda
strákarnir saman rappi, poppi og
hugljúfu hipphoppi á áhugaverðan
hátt. Taktarnir eru ferskir og
rímurn ar flæða áreynslulaust áfram
þar sem skemmtanalífið og stelpur
eru helsta yrkisefnið.
Rapparinn Emmsjé Gauti er
gestur í fínu upphafslaginu Á
meðan ég er ungur og Þórarinn
Guðna úr Agent Fresco aðstoðar
við Úrið mitt er stopp, þar sem
seiðandi píanóstef blandast
listilega saman við hipphoppið.
Það er besta lag plötunnar ásamt
titillaginu, þar sem textabrot úr Þú
komst við hjartað í mér er föndrað
fagmannlega inn í rímurnar. Önnur
eftirtektarverð lög eru Svörtu
augun þín og Í nótt. Arnar Dan úr
Agent Fresco syngur svo í ágætu
lokalaginu Út, og gerir það vel.
Sem sagt: Fínn frumburður þar
sem vandað er til verka. - fb
HLJÓMSVEITIN DIKTA
VINNUR NÚ AÐ GERÐ
MYNDBANDS VIÐ
LAGIÐ CYCLES. HELGI
JÓHANNS SON LEIK-
STÝRIR MYNDBAND-
INU, SEM ER ANSI
BLÓÐUGT, BARDAGAKA-
PPARNIR SIGURJÓN
VIÐAR SVAVARSSON
OG BJARNI KRISTJÁNS-
SON ÚR MJÖLNI SJÁ UM
AÐ LEMJA LEIKARANA
ALEXANDER BRIEM
OG KJARTAN DARRA
KRISTJÁNSSON. FÉLAGI
ÞEIRRA HJÁ MJÖLNI,
JÓN VIÐAR ARNÞÓRS-
SON, SAMDI BARDAGA-
ATRIÐIN. LEIKARINN
GUNNAR HANSSON OG
BANDARÍSKI BARDAGA-
KAPPINN DEAN LISTER
KOMA EINNIG VIÐ SÖGU
Í MYNDBANDINU, SEM
VERÐUR FRUMSÝNT Á
NÆSTA ÁRI.
BLÓÐUGT MYNDBAND DIKTU
Í kvöld: Johnny and the Rest,
Beggi Smári, Ylja og Tríó Gumma
Jóns slá upp tónleikum á Gauki á
Stöng. Frítt er inn á tónleikana og
húsið opnar klukkan 21. Tónleik-
arnir hefjast svo klukkan 22. Um
að gera að skella sér á tónleika
eftir lokahnykkinn í jólaruglinu.
Á morgun: Of Monsters and Men
verður með skrímslamessu á
Þorláksmessu. Meðlimir hljóm-
sveitarinnar ætla að rölta
Laugaveginn frá klukkan 19 til 22
og stoppa á nokkrum vel völdum
stöðum og spila lög órafmagnað.
Hljómsveitin fer svo á Faktorý
klukkan 23, stingur hljóðfærunum
í samband og heldur tónleika.
Ekki á morgun heldur hinn: Farðu
í messu eða eitthvað. Gleðileg jól!
Alexander Briem sann-
færandi í hlutverki fórn-
arlambs. Ýmislegt gekk
á við tökurnar á mynd-
bandinu og blóðið þurfti
að vera á sínum stað.
POPP/VILHELM