Fréttablaðið - 22.12.2011, Síða 50
6 •
REZNOR TILNEFNDUR
AFTUR TIL GOLDEN GLOBE
Trent Reznor, sem er þekktastur
fyrir hljómsveit sína Nine Inch
Nails, hefur verið tilnefndur til
Golden Globe-verðlauna fyrir
tónlistina í kvikmyndinni The
Girl with the Dragon Tattoo, eftir
David Fincher.
Reznor vann tónlistina ásamt
Atticus Ross, en þeir unnu einnig
tónlistina við kvikmyndina The
Social Network, einnig eftir David
Fincher. Þeir fengu bæði Golden
Globe- og Óskarsverðlaunin fyrir
þá vinnu og virðast því vera í
miklu stuði.
Reznor og Ross endurgerðu
lagið Immigrant Song fyrir
kvikmyndina, en lagið er byrjað að
hljóma á öldum ljósvakans. Karen
O, söngkona New York-sveitarinn-
ar Yeah Yeah Yeah‘s, syngur lagið,
sem er talsvert frábrugðið upp-
runalegri útgáfu hljómsveitarinnar
Led Zeppelin.
Páll Óskar og Sinfó er örugglega
stærsta verkefni
sem poppkóng-
urinn Páll Óskar
hefur tekið
þátt í. Útgáfan
er gríðarlega
vegleg og
pældu í að þú
gætir eignast
hana án þess
að borga
krónu fyrir.
Hvernig
ferðu að
því? Jú, þú
ferð bara inn á Facebook, leitar
að Poppinu og smellir á „like“.
Punktur. Þetta er ekki flóknara.
Þú þarft ekki að dreifa neinum
myndum eða
bjóða vinum
þínum neitt.
Bara ýta á
„like“.
Í næstu viku
drögum við
svo út heppna
lesendur Popps
sem fá Pál
Óskar og Sinfó.
Þeir geta svo
annaðhvort
hlustað sjálfir
eða hreinlega
gefið einhverjum
öðrum hana síðbúna í jólagjöf. Til
dæmis einhverjum sem gleymdist.
LANGAR ÞIG Í NÝJU
PALLAPLÖTUNA?
Páll Óskar gefur lesendum Popps fallegar jólagjafir í formi tónlistar.
POPP/VALLI
POPPARAR ROKKPRÓFIÐ
01. HEFURÐU AFLÝST TÓNLEIKUM VEGNA EYMSLA Í
HÁLSI? 02. HLJÓMSVEITARRÚTAN BILAR Á FERÐ UM MIÐ-
EVRÓPU. HVAÐ GERIR ÞÚ? 03. HVENÆR VARSTU SÍÐAST
HANDTEKINN? 04. ÁTTU ÓSKILGETIN AFKVÆMI Í FLEIRI EN FIMM
SÝSLUM Á ÍSLANDI? 05. ERTU MEÐ NAFN FYRRVERANDI ELSK-
HUGA HÚÐFLÚRAÐ Á ÞIG? 06. ALLIR EIGA LEÐURJAKKA
EN ÁTT ÞÚ LEÐURBUXUR? 07. ERTU MEÐ NÚMERIÐ HJÁ
HELGA BJÖRNS Í SÍMANUM ÞÍNUM? 08. MYNDIRÐU
SEMJA LAG FYRIR ÍMYNDARAUGLÝSINGU NATÓ
GEGN RÍFLEGRI GREIÐSLU? 09. Í KVIKMYND
UM LÍF ÞITT, HVAÐA LEIKSTJÓRI VÆRI
RÉTTI MAÐURINN Í STARFIÐ? 10. BJÖRN
JÖRUNDUR SPLÆSIR Á BARNUM, HVAÐ
FÆRÐU ÞÉR?
DANÍEL ÁGÚST SÖNGVARI GUSGUS
1. Nei. 1
2. Það fer nú eftir því í hvaða landi maður verður
strand. Ég held ég myndi setjast niður einhvers
staðar og fá mér drykk. 1
3. Man það ekki. 1
4. Nei. 0
5. Nei, ekki með neitt tattú. 0
6. Ég á leðurfrakka. 1
7. Já. 1
8. Já. 0
9. Jim Jarmusch. 1
10. Eitthvað gott viskí. 1
LAY LOW TÓNLISTARKONA
1. Mér finnst það líklegt, en ég hef pínt mig. Tekið gigg og verið rammfölsk og asnaleg. 1
2. Ég er með bílstjóra sem reddar þessu. 1
3. Ég hef aldrei verið handtekin, en var einu sinni tekin fyrir að bakka upp Norðurstíginn. 0
4. Það fer eftir hvað þú kallar afkvæmi. 0
5. Nei, en ég er með ör sem er á upphandleggnum, sem er eins og ég hafi skorið tattú af. Ég
hef stundum logið að það hafi verið nafn þarna. 1
6.Nei. Ég á ekkert leður að neðan. Nema skó. 0
7. Nei. 0
8. Nei. 1
9. Magnús Øder upptökustjóri. Hann er alltaf að reyna að stjórna mér, þó honum takist það
ekki alltaf. Það yrði mjög súr mynd. 1
10. Ég er ósköp dönnuð þegar fólk splæsir, þannig að ég fæ mér bara bjór. 1
7
STIG
6
STIG