Fréttablaðið - 22.12.2011, Qupperneq 60
22. desember 2011 FIMMTUDAGUR44
10
9
8
7
6
5
4
3
2
1
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
14.12.11 - 20.12.11
Þóra - heklbók - Tinna Þórudóttir Þorvaldsdóttir
Sómamenn og fleira fólk - Bragi Kristjónsson
Konan við 1000˚ - Hallgrímur Helgason
Hjarta mannsins - Jón Kalman Stefánsson
Gamlinginn sem skreið út ... innbundin - Jonas Jonasson
Holl ráð Hugos - Hugo Þórisson
Málverkið - Ólafur Jóhann Ólafsson
Gamlinginn sem skreið út ... kilja - Jonas Jonasson
Einvígið - Arnaldur Indriðason
Brakið - Yrsa Sigurðardóttir
SAMKVÆMT BÓKSÖLU
Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
44
menning@frettabladid.is
Tónlist ★★★
Heilög stund á jörð
Kristinn Sigmundsson og Mótettu-
kór Hallgrímskirkju
Stef
Það er margt verra en að fara í
messu í Hallgrímskirkju um jólin.
Burtséð frá því hvernig trúar-
boðskapurinn fer í mann, þá er tón-
listin í kirkjunni óvanalega vönd-
uð og metnaðarfull. Og það er ekki
bara á aðfangadagskvöld. Á nýút-
komnum geisladiski má hlýða á
upptöku frá tónleikum sem voru
haldnir í kirkjunni 29. desember
í fyrra. Hann ber öll merki þessa
frábæra tónlistarstarfs.
Lögin eru gömul og góð, Sjá, him-
ins opnast hlið; Hin fegursta rósin
er fundin; Það aldin út er sprungið
og fleira í þeim dúr. Einnig eru
nokkur ný lög eftir Sigurð Flosa-
son, og líka eitt lag eftir Sigurð
Sævarsson.
Lögin eftir þann fyrrnefnda
eru falleg. Þau eru blátt áfram og
einlæg, laglínurnar hjartnæm-
ar og grípandi. Lagið eftir Sigurð
Sævars son minnir hinsvegar helst
á tónlist úr einhverjum vestra, þótt
flutningurinn sé í höndum kórs og
orgelleikara. Það kemur skringi-
lega út í samanburði við annað á
diskinum.
Einsöngvari er einn af okkar
ágætustu söngvurum, Kristinn
Sigmundsson. Hann syngur af
réttu tilfinningunni. Og Mótettu-
kór kirkjunnar er með sitt á hreinu,
hljómurinn er þéttur og í góðu jafn-
vægi.
Þetta er í sjálfu sér ekki merki-
leg útgáfa. Það er ekkert á disk-
inum sem maður myndi kalla
öskrandi snilld. En tónlistin rennur
ljúflega niður og megnið af henni
ætti að smellpassa inn í jólastemn-
inguna á hverju heimili. Jónas Sen
Niðurstaða: Þægilega flutt jólatónlist
í hátíðlegri kantinum.
SÁ YNGRI OG ELDRI Björn Thors og Hilmir Snær Guðnason eru ánægðir með samstarfið sín á milli. Árið 1989 var það Helgi
Björnsson sem lék Ólaf Kárason.
Heimsljós Halldórs Lax-
ness er jólasýning Þjóðleik-
hússins í ár. Ný leikgerð
Kjartans Ragnarssonar
verður frumsýnd 26. des-
ember á Stóra sviðinu.
Björn Thors og Hilmir
Snær Guðnason fara sam-
tímis með hlutverk Ólafs
Kárasonar Ljósvíkings.
„Það er mjög forvitnilegt að vinna
svona,“ segir Björn Thors, sem fer
með hlutverk Ólafs Kára sonar
Ljósvíkings ásamt Hilmi Snæ
Guðnasyni, en þeir túlka persón-
una á ólíkum æviskeiðum sam-
tímis á sviðinu. Björn segir þá til-
högun hafa verið áhugaverða og
ánægjulega.
„Við vorum ekki alveg viss-
ir í upphafi hvernig þetta yrði,
hvernig myndi ganga að leika
hálfa persónu. Þegar á hólminn
er komið virkar þetta mjög vel og
er mjög skemmtilegt.“
Björn segir sjónarhorn leikar-
ans á persónuna vissulega verða
annað þegar tveir leikarar deila
með sér sköpun einnar persónu.
„Það þarf að skoða hlutina í
stærra samhengi til að fá heildar-
yfirsýnina. Maður stendur fyrir
ákveðna eiginleika í fari Ólafs
Kárasonar. Ég leik persónuna á
yngri árum en Hilmir á eldri, og
við sýnum í raun ólíkar hliðar á
sömu manneskjunni. Í gegnum allt
verkið eigum við í innra samtali.“
Leikararnir tveir eru saman á
sviðinu nær alla sýninguna, en
sagan er að sögn Björns sögð út
frá sjónarhorni Ólafs hins eldri
sem lítur til baka yfir ævi
sína.
Halldór Laxness gerir
hina miklu fegurðarþrá
Ólafs Kárasonar Ljós-
víkings, niðursetnings
og alþýðuskálds, að
umfjöllunar efni sínu í
Heimsljósi, sem er ein ást-
sælasta saga Nóbelskálds-
ins. Hún kom út í fjórum
bindum á árunum 1937-
40 og áður hafði Kjart-
an Ragnarsson leikgert
tvö fyrri bindin og frum-
sýnt við opnun Borgar-
leikhússins 1989. Í þetta
skiptið byggir leikgerð-
in á skáldsögunni í heild
sinni, og Björn segir lín-
una sem Kjartan leggur
nú vera fegurðina og leitina eftir
hinu fagra.
„Það sem er svo sérstakt og
fallegt við bæði söguna og pers-
ónu Ólafs Kárasonar er þessi feg-
urð sem hann eltist við alla ævi
sína. Það hefur mikil áhrif á mann
um leið og maður rýnir aðeins í
textann í verkinu. Allt sem Ólafur
Kárason gerir er einhvers konar
leitun eftir fegurð í umhverfi sem
býður ekki upp á það, í fátækt,
hungri og barnmissi. Hann segist
geta verið svangur og kaldur en
fegurðin sé það sem hvetji hann
áfram í lífinu. Það hreyfir við
manni og stendur manni nærri
þegar við leikum þessa sýningu.“
Björn hefur að
undan förnu eytt mikl-
um tíma með Laxness,
því síðustu þrjú leik-
ár hefur hann tekið
þátt í uppsetningum
verka hans. Hann lék
í Íslandsklukkunni,
Gerplu og nú í Heims-
ljósi, og segir tímann
hafa verið lærdóms-
ríkan.
„Halldór Laxness
var ótrúlegur maður.
Hann er í raun eins og
sálfræðingur heillar
þjóðar. Það er nóg að
taka upp skáldsögu
eftir hann og lesa, til
þess að fá ofboðslega
sterka tilfinningu fyrir
sjálfsmynd þjóðar. Fyrir tíma sem
er liðinn, sem er ritunartími bók-
anna, tíma sem er löngu liðinn,
sem er sögusviðið sem hann velur
sér og fyrir nútímanum. Á þann
hátt eru bækur hans ótrú legur
aldarspegill og Halldór gefur
okkur furðulega skýra innsýn í
þjóðarkarakter Íslendinga, eins
og hann var þá og er í dag.“
bergthora@frettabladid.is
Ljósvíkingur í leit að fegurð
Notaleg og hátíðleg stemning
Jólahefti Þjóðmála er komið út.
Meðal efnis er úttekt á áformum
Kínverjans Huangs Nubo um kaup
á Grímsstöðum á Fjöllum, grein
Ragnars F. Ólafssonar um galla
innstæðutryggingakerfis Evrópu
og jólahugleiðing Karls Sigur-
björnssonar biskups.
Þá skrifar Óli Björn Kárason
um atvinnustefnu vinstri stjórn-
arinnar, Björn Bjarnason fjallar
um Evrópusambandið á kross-
götum og Sigrún G. Þormar spyr:
Hvað er í ESB-pakkanum? Heið-
ar Guðjóns son fjallar um skulda-
vanda heimsins og sjálfstæðar
myntir. Gunnar Rögnvaldsson
tekur til varna fyrir krónuna og
telur hana sverð og skjöld full-
veldisins. Gunnar Þórðarson og
Indriði Indriðason skrifa um
John Maynard Keynes og fræg-
asta verk hans. Jón Þ. Þór segir
frá byrgi Stalíns í Samara.
Þjóðmál komin út
ERRÓ Á RÚV UM JÓLIN Rætt verður við myndlistarmanninn Erró á vinnustofu hans í París í tveimur útvarpsþáttum á
jóladag og annan dag jóla á Rás 1 klukkan 16.05. Guðni Tómasson, umsjónarmaður þáttanna, heimsótti listamanninn í september
síðastliðnum. Enn fremur er rætt við vini Errós, gallerista hans og íslenska og franska listfræðinga sem þekkja vel til verka hans.
Allt sem
Ólafur
Kárason gerir
er einhvers
konar leitun
eftir fegurð í
umhverfi sem
býður ekki
upp á það, í
fátækt, hungri
og barnmissi.