Fréttablaðið - 22.12.2011, Síða 62
22. desember 2011 FIMMTUDAGUR
Metal
Íslensk hönnun
Íslenskt handverk
Stefán Bogi gullsmiður
Metal design • Skólavörðustígur 2 • sími 552 5445
NÝ
KILJA
Rósalind Gísladóttir óperu-
söngkona sigraði í söng-
keppninni Barry Alexander
International Vocal Com-
petition á dögunum. Í sigur-
laun fær hún að syngja ein-
söng í Carnegie Hall í New
York í janúar.
„Þetta er ótrúlega spennandi, enda
ekki á hverjum degi sem maður
fær að koma fram í einu fræg-
asta tónlistarhúsi í heimi,“ segir
Rósalind Gísladóttir, óperusöng-
kona og nýbakaður sigurvegari í
söngkeppninni Barry Alexander
Vocal International Competition
(BAVIC) í New York. Í sigurlaun
fær hún að syngja einsöng í hinu
víðfræga tónlistarhúsi Carnegie
Hall í New York 29. janúar næst-
komandi.
BAVIC-keppnin skiptist í fjóra
flokka og keppti Rósalind í flokki
atvinnumanna. Hver keppandi
sendir inn hljóð- og myndupptök-
ur af sér og eru úrslitin ákveðin á
grundvelli þeirra.
„Dómnefndin leitast við að meta
hvernig söngvarar standa sig
undir eðlilegum aðstæðum frekar
en undir keppnispressu og reyna
að taka inn í reikninginn allt sem
góður söngvari þarf til brunns að
bera,“ segir Rósalind. „Ég sendi til
dæmis fimm mismunandi lög sem
flutt voru við ólíkar aðstæður.“
Alls hlutu sex söngvarar frá
fimm löndum fyrstu verðlaun í
flokki atvinnumanna í keppninni
í ár og koma þeir allir fram á tón-
leikum í Carnegie Hall í janúar.
Rósalind segist vera byrjuð að
vinna úr efnisskránni fyrir tón-
leikana. „Ég er með aðeins of
margar aríur og þarf að grisja þær
aðeins niður áður en ég tek endan-
lega ákvörðun.“
Rósalind Gísladóttir er þaul-
reynd söngkona. Hún lauk 8. stigi
frá Söngskólanum í Reykjavík árið
1999 og hélt til framhaldsnáms á
Spáni, auk þess að hafa sótt mast-
erklassa og söngtíma hjá virtum
söngvurum og söngkennurum.
Hún hefur sungið með ýmsum
kórum og tekið þátt í ýmsum
óperuuppfærslum, nú síðast Töfra-
flautunni í Hörpu.
Rósalind syngur með sönghópn-
um Orfeus og söngkvartettinum
Opus og er líka líka félagi í Óp-
hópnum.
Hún er nýkomin frá New York
þar sem hún tók þátt í gjörningi
Ragnars Kjartanssonar, Bliss,
á listahátíðinni Performa 2011.
Hann gekk út á að tíu söngvarar
sungu lokaaríuna úr Brúðkaupi
Fígarós í í tólf klukkustundir sam-
fleytt. Rósalind segir það hafa
verið mikið ævintýri.
„Það er eiginlega ekki hægt að
lýsa þessari upplifun. Þetta var
auðvitað erfitt meðan á þessu
stóð, stundum flaug tíminn áfram
en síðan var eins og hann stæði í
stað. Undir lokin var kominn mik-
ill fjöldi manns sem hvatti okkur
áfram með lófaklappi og hrópum,
þetta var mjög geggjuð stemning.
Ég hugsa að enginn söngkenn-
ari mæli með því að syngja í tólf
klukkustundir samfleytt og geri
ekki ráð fyrir að endurtaka leik-
inn – en ég hefði ekki viljað missa
af þessu heldur.“
bergsteinn@frettabladid.is
SYNGUR Í CARNEGIE HALL
Skagfirskar skemmtisögur komu
nýverið út en það var Björn
Jóhann Björnsson blaðamaður og
Skagfirðingur sem safnaði sög-
unum saman. „Tilurð bókarinnar
var sú að bókaútgáfan Hólar hafði
samband við mig. Þeir höfðu verið
með í bígerð að gefa út svona bók
um hríð,“ segir Björn Jóhann sem
sló til og hóf að safna sögunum.
„Í bókinni eru annars vegar sögur
sem til eru í skriflegum heimild-
um og svo fór ég á stúfana og hitti
menn sem ég vissi að kynnu hinar
ýmsu munnmælasögur, skemmti-
sögur sem hafa ekki endilega
ratað á prent.“
Björn Jóhann segir það hafa
verið ánægjulegt og verðugt
verkefni að safna þessum sögum
saman. „Þeir sem kunna þessar
sögur eru sumir komnir á efri
ár þannig að það má segja að það
hafi verið áríðandi að ná þeim á
blað.“
Viðbrögðin við bókinni hafa
verið góð. „Ég reyndi að skrifa
bókina þannig að menn hefðu
gaman að sögunum án þess að
þekkja til söguhetjanna, húmor er
auðvitað ekki bundinn við lands-
hluta,“ segir Björn Jóhann sem
segir Skagfirðinga standa undir
því orðspori að vera menn gleð-
innar og hestanna. „Það kemur vel
fram í bókinni en sögurnar eru
fjölbreyttar, ég lagði upp úr því,“
segir Björn Jóhann sem stefnir á
að gefa út fleiri bækur með skag-
firskum skemmtisögum. „Af nógu
er að taka, svo mikið er víst.“
Skagfirskur húmor festur á blað
BJÖRN JÓHANN Hefur fengið góð viðbrögð við skagfirskum skemmtisögum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
■ Björn Daníelsson var lengi kennari
og skólastjóri Barnaskólans á
Sauðárkróki. Hann hafði gaman af
því að segja sögur og kenna jafn-
framt sagnfræði og fleiri greinar. Eitt
sinn er kenna átti Biblíusögurnar var
hann að taka upp bækur úr tösku
sinni, og ávarpar þá einn nemand-
ann með nafni og spyr:
,,Hver braut niður múra Jeríkó-
borgar?“
Nemandinn var ekki alveg búinn
undir þessa spurningu, líklega van-
lesinn að heiman og taldi að auki
kennsluna vart byrjaða. Hann braut
þó heilann og minnugur þess að á
Króknum voru hús er hétu Rússland
og Þýskaland, og hélt að þetta hefði
gerst nýlega, svaraði hann:
,,Ja, ég gerði það ekki.“ Björn átti
ekkert svar við þessu og tók til við
kennsluna eins og ekkert hefði í
skorist. Næst þegar hann hittir föður
þessa drengs segir hann honum
alla söguna; um spurninguna og
svar drengsins. Eftir því sem líður
á söguna kemur svipur á föðurinn
og loks segir hann með nokkrum
þunga:
,,Ég vil bara segja þér það, Björn,
að ef drengurinn hefur sagt að hann
hafi ekki gert það, þá hefur hann
ekki gert það.“
Björn lét kyrrt liggja við þetta
svar og einhverjum dögum síðar er
hann kominn á fund bæjarstjórnar,
sem hann átti lengi sæti í. Á meðan
beðið var eftir bæjarstjóranum segir
hann félögum sínum í bæjarstjórn
þessa sögu af svari nemandans
og viðbrögðum föðurins. Að sögu
lokinni segir einn bæjarfulltrúinn,
alvarlegur í bragði, orðinn eitthvað
viðkvæmur þar sem skammt var til
kosninga:
,,Ég verð nú að segja það, að
þessi múr getur nú ekki hafa verið
merkilegur. Ef þetta er eitthvað mál,
og enginn veit hver hefur gert þetta,
þá finnst mér nú að bæjarsjóður geti
bara borgað þetta!“
■ Einhverju sinni sátu þeir að spjalli
félagarnir undir Nöfunum, Jósef
Sigfússon og Björn Ásgrímsson, en
Bjössi var þá farinn að tapa heyrn.
Kunnugir segja þó að Bjössi heyri
það sem hann vilji heyra.
Hafði Jobbi tekið eftir því að bíll-
inn hans Bjössa hafði undanfarnar
vikur oft verið fyrir utan heimili
ónefndra systra á Króknum. Hugði
Jobbi yfirheyra félaga sinn um þetta
og spurði hvort hann væri farinn að
halda við þær.
,,Ha,“ sagði Bjössi, ,,þær baka
góðar lummur!“
Úr bókinni
Skagfirskar skemmtisögur
HVER BRAUT NIÐUR MÚRA JERÍKÓBORGAR?
RÓSALIND Var ekki fyrr komin frá New York, þar sem hún tók þátt í gjörningi Ragnars
Kjartanssonar, en hún fékk þær fréttir að hún hefði sigrað í virtri söngkeppni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA