Fréttablaðið - 22.12.2011, Síða 64
22. desember 2011 FIMMTUDAGUR48
… allt sem þú þarft
www.visir.is
Sími: 512 5000 |
Miðvikudagur 30. n
óvember 2011 | 18
. tölublað | 7. árgan
gur
Búið er að sto
ehf.. Félagið v
efni var nafni
ehf. FAD 1830
Íslands (Olís)
hafa átt í við
Landsbankan
nda heingu e
ns. Gatækisi
gu Gíser í ei
iktsBened so
ngi frreikni
Eigendur
Erfitt að mæla ar
ðsemi
einstakra virkjana
Arion banki þarf
hlut sinn í Högum
yrða sem Samkep
(FME) settu eign
þýðir að sá 21 1-3,
halda eftir í Hö g
ur sett á ma rkað
þurfa að sel jast l
um að 20-30% h
bankans v, erði s
Arion ekki staði
f riy r fullnægja
ingu viðbótar fr
viður lögum, da
til að knýja á u
Þarf að sel
á h júkavirkjun
➜ Kröfluvirkjun
og Laxárvirkj-
f ll lega ódýrasta
r
mtán þFim
Alþinfyrir
hrif þum á
0 til 2um 1
nuð vekön
yris lífe sjó
ðalánaÍbú
vilja þeir
lífeyris al
niður fær
a kaVilj
uðshöf
Myndlist ★★★★★
Song
Ragnar Kjartansson
i8 Gallery
Í mars 2011 stóð yfir gjörningur
í Carnegie Museum of Art í Pitts-
burgh, þrjár ungar frænkur Ragn-
ars Kjartanssonar dvöldu í sýn-
ingarsal safnsins á opnunartíma, í
um það bil þrjár vikur, og sungu.
Myndband af gjörningnum er nú
meginuppistaða sýningar Ragnars
í i8, ásamt vatnslitamyndum sem
gerðar voru í Kanada.
Á sýningunni koma saman þeir
þættir sem einkennt hafa list Ragn-
ars allt frá upphafi ferils hans.
Gjörningur er í miðpunkti, gjörn-
ingur sem í framkvæmd sinni
minnir að hluta til á úthaldsgjörn-
inga frá áttunda og níunda áratug
síðustu aldar, upphafstíma gjörn-
ingalistarinnar. Þessi gjörningur
krefst einnig úthalds og þær Ragn-
heiður Harpa, Rakel Mjöll og Íris
María Leifsdætur eiga hrós skilið
fyrir frammistöðu sína.
Endurtekning og vísun til list-
sköpunar og andrúms fyrri alda
birtist í búningum stúlknanna.
Sviðsetningin er vel útfærð og
Ragnari tekst eins og endranær
að skapa einlæga vísun í rómantík
og fortíðarþrá. Verkið sjálft felur
einnig í sér gagnrýni á innantóma
virðingu fyrir hefðinni og ber með
sér nútímalegan andblæ síbylju og
endurtekningar. Sviðsetningin er
jafn kaldhæðin og hún er ljúflega
útfærð og húmorinn aldrei langt
undan. Allt þetta er einkar vel
unnið, tæknileg útfærsla hnökra-
laus, myndbandið er á rauntíma og
því nokkrir klukkutímar að lengd.
Margvísleg hugrenningatengsl
vakna við áhorf þess, kvenímynd
fyrri tíma er endursköpuð þar sem
mýktin er í fyrirrúmi, og orðin
sem sungin eru enduróma þetta:
„The weight of the world is love.“
Eins og endranær tekst Ragnari að
skapa eitthvað áhugavert úr klisju.
Þessi mjúkradda mýkt er mátt-
laus og kraftlítil en fyndin í senn,
og vekur upp áleitnar spurningar
um kvenímyndir samtímans. Lifa
ungar stúlkur sig enn inn í slíka
mjálmandi mýkt? Helst væri ósk-
andi að þessi rómantíska kven-
ímynd liði endanlega undir lok, en
þess er líklega langt að bíða. Ef til
vill þurfa allar ungar stúlkur að
ganga í gegnum og skilja síðan að
baki sér, slíkt tímabil.
Andi rómantíkur svífur einnig
yfir vötnum í vatnslitamyndum á
fremra gangi, þar sem málað er á
staðnum í kanadískum skógi sem
er brunarústir einar. Hér reik-
ar listamaðurinn einn í auðn og
eyðileggingu og málar úti undir
beru lofti. Ímynd listamanns-
ins er rauður þráður í list Kjart-
ans, ekki síst klisjurnar. Málverk
hans eiga meira skylt við gjörn-
ingalist en málaralist en hér eru
margar myndir ágætlega unnar.
Gildi þeirra og verðgildi felst þó
frekar í áritun listamannsins en
tökum hans á vatnslitamiðlinum,
og er það í samræmi við list hans
að öðru leyti.
Vatnslitamyndirnar eru hér líkt
og inngangur að gjörningnum,
rómantísk nóta er slegin um leið
og stigið er inn fyrir dyrnar.
Ragna Sigurðardóttir
Niðurstaða: Ragnar Kjartansson
sannar enn einu sinni að hann er
einn áhugaverðasti samtímalistamað-
ur okkar. List hans tekur áhættu, sam-
einar marga þætti, vísar til fortíðar og
er skapandi innan síns samtíma. Ekki
síst eru verk hans ætíð heillandi.
Heillandi rómantík og kaldhæðni
Hlynur Pálmason opnar sýningu
sína Hvítblindu í Skotinu í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur í dag,
22. desember og stendur hún yfir
til 7. febrúar
næstkomandi.
„Hvítblinda er
skuggalaus birta
á alhvítum svæð-
um sem verður
til vegna endur-
kasts ljóss fram
og aftur þannig
að engan mun sér
himins og jarðar,“ segir í lýsingu
á sýningunni, sem tengir saman
hljóð og mynd og leitast þannig
eftir að skapa kröftugt andrúms-
loft. Ljósmyndirnar eru teknar á
árunum 2008 til 2011.
Hlynur Pálmason hefur fengist
talsvert við stuttmyndagerð, en
hann stundar nám í leikstjórn við
danska kvikmyndaskólann. Hljóð-
verkin eru unnin af Ásgeiri Aðal-
steinssyni sem stundar masters-
nám í tónsmíðum í Amsterdam.
Aðgangur er ókeypis að sýning-
unni og allir velkomnir.
Hvítblinda í
Skotinu
HVÍTBLINDA Sýningin tengir saman
hljóð og mynd. MYND/HLYNUR PÁLMASON
HLYNUR
PÁLMASON