Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.12.2011, Qupperneq 64

Fréttablaðið - 22.12.2011, Qupperneq 64
22. desember 2011 FIMMTUDAGUR48 … allt sem þú þarft www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 30. n óvember 2011 | 18 . tölublað | 7. árgan gur Búið er að sto ehf.. Félagið v efni var nafni ehf. FAD 1830 Íslands (Olís) hafa átt í við Landsbankan nda heingu e ns. Gatækisi gu Gíser í ei iktsBened so ngi frreikni Eigendur Erfitt að mæla ar ðsemi einstakra virkjana Arion banki þarf hlut sinn í Högum yrða sem Samkep (FME) settu eign þýðir að sá 21 1-3, halda eftir í Hö g ur sett á ma rkað þurfa að sel jast l um að 20-30% h bankans v, erði s Arion ekki staði f riy r fullnægja ingu viðbótar fr viður lögum, da til að knýja á u Þarf að sel á h júkavirkjun ➜ Kröfluvirkjun og Laxárvirkj- f ll lega ódýrasta r mtán þFim Alþinfyrir hrif þum á 0 til 2um 1 nuð vekön yris lífe sjó ðalánaÍbú vilja þeir lífeyris al niður fær a kaVilj uðshöf Myndlist ★★★★★ Song Ragnar Kjartansson i8 Gallery Í mars 2011 stóð yfir gjörningur í Carnegie Museum of Art í Pitts- burgh, þrjár ungar frænkur Ragn- ars Kjartanssonar dvöldu í sýn- ingarsal safnsins á opnunartíma, í um það bil þrjár vikur, og sungu. Myndband af gjörningnum er nú meginuppistaða sýningar Ragnars í i8, ásamt vatnslitamyndum sem gerðar voru í Kanada. Á sýningunni koma saman þeir þættir sem einkennt hafa list Ragn- ars allt frá upphafi ferils hans. Gjörningur er í miðpunkti, gjörn- ingur sem í framkvæmd sinni minnir að hluta til á úthaldsgjörn- inga frá áttunda og níunda áratug síðustu aldar, upphafstíma gjörn- ingalistarinnar. Þessi gjörningur krefst einnig úthalds og þær Ragn- heiður Harpa, Rakel Mjöll og Íris María Leifsdætur eiga hrós skilið fyrir frammistöðu sína. Endurtekning og vísun til list- sköpunar og andrúms fyrri alda birtist í búningum stúlknanna. Sviðsetningin er vel útfærð og Ragnari tekst eins og endranær að skapa einlæga vísun í rómantík og fortíðarþrá. Verkið sjálft felur einnig í sér gagnrýni á innantóma virðingu fyrir hefðinni og ber með sér nútímalegan andblæ síbylju og endurtekningar. Sviðsetningin er jafn kaldhæðin og hún er ljúflega útfærð og húmorinn aldrei langt undan. Allt þetta er einkar vel unnið, tæknileg útfærsla hnökra- laus, myndbandið er á rauntíma og því nokkrir klukkutímar að lengd. Margvísleg hugrenningatengsl vakna við áhorf þess, kvenímynd fyrri tíma er endursköpuð þar sem mýktin er í fyrirrúmi, og orðin sem sungin eru enduróma þetta: „The weight of the world is love.“ Eins og endranær tekst Ragnari að skapa eitthvað áhugavert úr klisju. Þessi mjúkradda mýkt er mátt- laus og kraftlítil en fyndin í senn, og vekur upp áleitnar spurningar um kvenímyndir samtímans. Lifa ungar stúlkur sig enn inn í slíka mjálmandi mýkt? Helst væri ósk- andi að þessi rómantíska kven- ímynd liði endanlega undir lok, en þess er líklega langt að bíða. Ef til vill þurfa allar ungar stúlkur að ganga í gegnum og skilja síðan að baki sér, slíkt tímabil. Andi rómantíkur svífur einnig yfir vötnum í vatnslitamyndum á fremra gangi, þar sem málað er á staðnum í kanadískum skógi sem er brunarústir einar. Hér reik- ar listamaðurinn einn í auðn og eyðileggingu og málar úti undir beru lofti. Ímynd listamanns- ins er rauður þráður í list Kjart- ans, ekki síst klisjurnar. Málverk hans eiga meira skylt við gjörn- ingalist en málaralist en hér eru margar myndir ágætlega unnar. Gildi þeirra og verðgildi felst þó frekar í áritun listamannsins en tökum hans á vatnslitamiðlinum, og er það í samræmi við list hans að öðru leyti. Vatnslitamyndirnar eru hér líkt og inngangur að gjörningnum, rómantísk nóta er slegin um leið og stigið er inn fyrir dyrnar. Ragna Sigurðardóttir Niðurstaða: Ragnar Kjartansson sannar enn einu sinni að hann er einn áhugaverðasti samtímalistamað- ur okkar. List hans tekur áhættu, sam- einar marga þætti, vísar til fortíðar og er skapandi innan síns samtíma. Ekki síst eru verk hans ætíð heillandi. Heillandi rómantík og kaldhæðni Hlynur Pálmason opnar sýningu sína Hvítblindu í Skotinu í Ljós- myndasafni Reykjavíkur í dag, 22. desember og stendur hún yfir til 7. febrúar næstkomandi. „Hvítblinda er skuggalaus birta á alhvítum svæð- um sem verður til vegna endur- kasts ljóss fram og aftur þannig að engan mun sér himins og jarðar,“ segir í lýsingu á sýningunni, sem tengir saman hljóð og mynd og leitast þannig eftir að skapa kröftugt andrúms- loft. Ljósmyndirnar eru teknar á árunum 2008 til 2011. Hlynur Pálmason hefur fengist talsvert við stuttmyndagerð, en hann stundar nám í leikstjórn við danska kvikmyndaskólann. Hljóð- verkin eru unnin af Ásgeiri Aðal- steinssyni sem stundar masters- nám í tónsmíðum í Amsterdam. Aðgangur er ókeypis að sýning- unni og allir velkomnir. Hvítblinda í Skotinu HVÍTBLINDA Sýningin tengir saman hljóð og mynd. MYND/HLYNUR PÁLMASON HLYNUR PÁLMASON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.