Fréttablaðið - 22.12.2011, Page 68
22. desember 2011 FIMMTUDAGUR52
tonlist@frettabladid.is
www.belladonna.is
Flott föt fyrir
flottar konur,
Alltaf eitthvað nýtt
og spennandi
Stærðir
40-60.
Flott jólaföt
fyrir flottar konur
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
TÓNLISTINN
Vikuna 15. - 21. desember 2011
LAGALISTINN
Vikuna 15. - 21. desember 2011
Sæti Flytjandi Lag
1 Mugison ............................................................. Kletturinn
2 Gotye / Kimbra ................Somebody I Used to Know
3 Of Monsters and Men ..................King and Lionheart
4 Dikta...................................What Are You Waiting For?
5 Coldplay ...............................................................Paradise
6 Grafík .................................................................Bláir fuglar
7 Lana Del Ray ...............................................Video Games
8 Ed Sheeran .....................................................Lego House
9 Amy Winehouse ............................ Our Day Will Come
10 Stefán Hilmars. / Eyjólfur Kristjáns. ... Þín innsta þrá
Sæti Flytjandi Plata
1 Mugison ...................................................................Haglél
2 Páll Óskar & Sinfó .............................Páll Óskar & Sinfó
3 KK & Ellen .....................................................................Jólin
4 Of Monsters and Men ............My Head Is an Animal
5 Helgi Björnsson ........ Íslenskar dægurperlur í Hörpu
6 Sigurður Guðm. og Sigríður Thorlacius. ...Ásamt Sinfó
7 Stebbi og Eyfi ........................Fleiri notalegar ábreiður
8 Cortes feðgar ............................................................Ísland
9 Ingimar Eydal ................................................Allt fyrir alla
10 Björgvin Halldórsson ................................Gullvagninn
Nýlega bárust fréttir af því að sala á íslenskri tónlist hefði aukist um
30% á milli ára. Það hljóta að teljast flottar fréttir, sérstaklega í bransa
sem úti í hinum stóra heimi hefur undanfarið einkennst af illa skipu-
lögðu undanhaldi …
En þetta er ekki eina góða fréttin af
íslensku poppi á árinu. Tónleikahald var
mjög öflugt. Iceland Airwaves-hátíðin var
sú stærsta hingað til og pumpaði hellingi
af lífi og erlendum gjaldeyri inn í hjörtu
og efnahag höfuðborgarinnar. Það var
talið í út um allt land, allan ársins hring, á
Hemma og Valda og í Hörpunni og öllum
hinum stöðunum. Harpan kom þokkalega
undan sínu fyrsta starfsári. Þar voru
haldnir margir flottir tónleikar, bæði með
íslenskum og erlendum listamönnum. Ég
verð sérstaklega að hrósa skipuleggjendum tónleika raðarinnar Undir-
aldan, en á hennar vegum spila upprennandi listamenn í Kaldalóns-
salnum og aðgangur er ókeypis. Það er gaman að fara á tónleika í Hörpu
og markmiðið hlýtur að vera að fá sem flesta landsmenn þangað. Þeir
verða hvort sem er að borga af henni næstu árin …
Það komu líka góðar fréttir af íslensku veftónlistarveitunum. Gogo-
yoko vex og dafnar og hjá Tónlist.is eru menn duglegir að prófa nýj-
ungar og auka við þjónustuna. Báðar þessar veitur njóta góðs af því
að VSK-urinn af stafrænni tónlist var á árinu lækkaður niður í 7%, til
jafns við þann skatt sem er greiddur af geisladiskum.
Bestu fréttirnar eru samt augljóslega að það er fullt af íslensku tón-
listarfólki að gera góða hluti. Það sést vel bæði á verðlaunaplötum
Kraums og á tilnefningum til Íslensku tónlistarverðlaunanna hvað
þetta var gott tónlistarár. Margar frábærar plötur ekki komust að.
Og þá komum við aftur að upphafspunktinum. 30% söluaukning.
Stjórnvöldum bar gæfa til að fara ekki að tillögum Alþjóða gjaldeyris-
sjóðsins sem í fyrra lagði til hækkun virðisaukaskatts á tónlist. Sú
ákvörðun hefur styrkt plötuútgáfuna, sem minnkar atvinnuleysi og
gerir fjölda manns kleift að búa til flotta tónlist. Gott mál.
Öflugt íslenskt poppár
VINSÆL Of Monsters and Men er
ein af hljómsveitum ársins 2011.
> PLATA VIKUNNAR
Ragga Gröndal - Astrocat Lullaby
★★★★
„Afbragðspoppplata frá frábærri
söngkonu.“ - tj
> Í SPILARANUM
Drake - Take Care
Brother Grass - Brother Grass
Jónsi - We Bought a Zoo
Guided by Voices - Let‘s Go Eat The Factory
Dad Rocks! - Mount Modern
Dave Mustaine, forsprakki Megadeth,
segist hafa gengið í gegnum allan til-
finningaskalann þegar hann spilaði
með fyrrverandi félögum sínum í
Metallica á þrjátíu ára afmælistón-
leikum þeirra í San Francisco.
„Ég gekk í gegnum smá geðsveifl-
ur,“ sagði Mustaine við Powerline.
„Stundum var ég uppi og stundum
niðri. Ég varð mjög spenntur og vildi
drífa hlutina af stað. Þetta er bara
listamaðurinn í mér. Ég get verið dá-
lítið óþolinmóður,“ sagði hann. „Það
var gaman að spila með þeim. Ég
vildi samt óska að ég hefði haft meiri
tíma til að undirbúa mig með þeim
því ég er fullkomnunarsinni.“
Mustaine var fyrsti sólógítarleik-
ari Metallica og einn af aðallaga-
höfundum en var rekinn úr sveit-
inni árið 1983. Ástæðan
var óhófleg vímuefna-
neysla hans og rifrildi
við James Hetfield og
Lars Ulrich.
Tilfinningarík stund
ENDURFUNDIR
Dave Mustaine og
James Hetfield
á afmælistón-
leikunum í San
Francisco.
NORDIC PHOTOS/GETTY
Bandaríski rapparinn og
leikarinn Common hefur
gefið út sína níundu hljóð-
versplötu. Endurminningar
hans eru einnig nýkomnar
út þar sem hann skrifar um
sambandið við móður sína.
Níunda hljóðversplata hins silki-
mjúka bandaríska rappara og leik-
ara Common, The Dreamer, The
Believer, er komin út.
Common heitir réttu nafni
Lonnie Rashid Lynn Jr. og fædd-
ist í Chicago árið 1972. Pabbi
hans var kennari en spilaði áður
í ABA-deildinni í körfubolta sem
rann síðar meir saman við NBA-
deildina. Hann skildi við mömmu
Common þegar hann var sex ára
og ólst rapparinn því upp hjá
mömmu sinni.
Í skóla stofnaði Common tríóið
C.D.R. sem síðar meir hitaði upp
fyrir rappsveitina NWA og því
kom fáum á óvart þegar hann
ákvað að leggja tónlistina fyrir
sig. Sólóferillinn hófst undir nafn-
inu Common Sense með plötunni
Can I Borrow a Dollar? árið 1992.
Smáskífulagið Take It EZ náði vin-
sældum hjá rappáhugamönnum
og vegur hans jókst með útgáfu
næstu sólóplötu, Resurrection,
sem kom út tveimur árum síðar.
Common Sense þurfti að stytta
nafnið sitt í Common eftir að
reggíhljómsveit frá Los Angeles
með saman nafni kvartaði yfir
nafngiftinni. Fyrsta platan hans
undir nýja nafninu, One Day It´ll
All Make Sense, kom út 1997. Þar
voru Lauryn Hill, Erykah Badu og
De La Soul gestir og í þetta sinn
breytti Common um stefnu og
hætti í bófarappinu, enda orðinn
ábyrgðarfullur faðir.
Næst gekk Common til liðs
við Soulquarian ásamt J. Dilla,
D´Angelo og ?uestlove og átti þessi
rapphópur stóran þátt í næstu
tveimur plötum Common. Önnur
þeirra, Like Water for Chocolate,
náði gullsölu. Common breytti um
stíl fyrir næstu útgáfu, Electric
Circus, þar sem elektrónísk tón-
list og rokk kom við sögu og lagið
Love of My Live með Erykah Badu
vann Grammy-verðlaunin.
Eftir að hafa aðstoðað Kanye
West á fyrstu plötu hans endur-
galt West honum greiðann og
aðstoðaði Common við upptökur á
Be sem kom út 2005 og fékk fjórar
Grammy-tilnefningar. West kom
einnig við sögu á Finding Forever
frá 2007 sem fór beint í efsta sæti
Billboard-listans. Ári síðar kom út
Universal Mind Control þar sem
The Neptunes sáu um upptöku-
stjórn og teknóið var í fyrirrúmi.
Á nýju plötunni fékk Common
aðstoð frá upptökustjóranum No
I.D., og þar er meiri áhersla lögð
á hip hop af gamla skólanum. The
Independent gefur henni fullt hús,
eða fimm stjörnur, Paste Magazine
8,1 af 10 og Rolling Stone gefur
plötunni þrjár stjörnur af fimm.
Undanfarin ár Common hefur
verið að færa sig upp á skaftið í
leiklistinni og hefur undanfar-
in ár leikið í myndum á borð við
Smokin´ Aces, Wanted, Terminator
Salvation og Date Night.
Í september síðastliðnum gaf
hann svo út endurminningar sínar,
One Day It´ll All Make Sense. Þar
leggur hann áherslu á náið sam-
band sitt við móður sína.
freyr@frettabladid.is
SILKIMJÚKUR SÓLÓFERILL
COMMON Rapparinn hefur gefið út sína níundu plötu og nefnist hún The Dreamer, The Believer. NORDICPHOTOS/GETTY