Fréttablaðið - 22.12.2011, Blaðsíða 70
22. desember 2011 FIMMTUDAGUR54
> NEW YEAR‘S EVE
verður frumsýnd um helgina en
hún skartar ansi mörgum stórstjörn-
um, svo sem Robert De Niro, Mich-
elle Pfeiffer og Zac Efron. Hún
hefur hins vegar fengið af-
leita dóma og er til að
mynda aðeins með
7 prósent á rotten-
tomatoes.com.
Kvikmyndin The Girl with
the Dragon Tattoo verður
loks frumsýnd um helgina.
Hennar hefur verið beðið
með mikilli eftirvæntingu
enda byggð á einni bestu
spennusögu seinni tíma.
Margir, sérstaklega í norðan-
verðri Evrópu, supu hveljur þegar
fréttist af því að Ameríkanarnir
ætluðu að gera sína eigin útgáfu af
fyrstu bók Stiegs Larsson, Karlar
sem hata konur. Noomi Rapace,
sem hafði stigið sín fyrstu skref
í kvikmyndaleik undir verndar-
væng Hrafns Gunnlaugssonar,
tókst með undra verðum hætti
að skapa hina andfélagslegu Lis-
beth Salander og gera hana að
sinni. Einhverjir róuðust tölu-
vert þegar nafn Davids Fincher
skaut upp kollinum, hann hafði
jú kvikmyndir á borð við Se7en
og Fight Club á ferilskránni og
virtist hafa nægjan lega þekk-
ingu á hinum drungalega heimi
sem kvikmyndin á að gerast í.
Enn voru hins vegar margir á
nálum og óttuðust að Hollywood-
stjarna yrði dubbuð upp í hlutverk
Salander. Og það kom á daginn,
stærstu stjörnurnar börðust um
hlutverkið, Scarlett Johansson,
Natalie Portman, listinn var nán-
ast endalaus.
En Fincher tók áhættu, valdi
hina óreyndu Rooney Mara fram
yfir allar hinar en hinar. Nafnið
hringdi engum bjöllum þótt ein-
hverjir fíklar í ameríska ruðn-
ingnum könnuðust við nafna-
samhengið. Móðurafi hennar, Art
Rooney, stofnaði stórliðið Pitts-
burgh Steel ers en föðurafi hennar,
Tim Mara, á heiðurinn af stofnun
New York Giants. Fincher hafði
unnið með Rooney Mara í Social
Network þar sem hlutverk hennar
var lítið – hún lék kærustu Marks
Zuckerberg. Þar áður hafði hún
leikið í endurgerð á hryllings-
myndinni Nightmare on Elmstreet
og svo rómantísku gamanmynd-
inni Youth in Revolt. Mara hefur
hins vegar blásið á allar efasemda-
raddir, hún nálgast Salander á
nýjan hátt og virðist hafa tekist
vel upp, allavega er hún tilnefnd
til Golden Globe-verðlauna.
En þá var komið að hinu stóra
hlutverkinu, Mikael Blomkvist,
rannsóknarblaðamanninum á
tímaritinu Millennium sem gilj-
ar konur og flettir ofan af auð-
jöfrum þess á milli. Ólíkt Rapace
voru skiptar skoðanir um Micha-
el Nykvist í hlutverki Blomkvists.
Sumum fannst hann ekki nógu
heillandi fyrir hlutverk kvenna-
ljómans. Líkt og með Salander-
hlutverkið börðust stærstu stjörn-
urnar um Blomkvist, George
Clooney og Brad Pitt þar á meðal.
En Fincher fékk óvænta gjöf
þegar Skyfall, nýjustu James
Bond-myndinni, var frestað um
óákveðinn tíma og Daniel Craig,
einn helsti töffari hvíta tjaldsins,
var óvænt á lausu. „Hlutverkið
var fullkomið fyrir mig, ég er frá
Norður-Englandi þar sem er kalt
og dimmt, fólk drekkur og syng-
ur og elskar að hræða líftóruna
úr hvort öðru,“ hefur breska blað-
ið The Sun eftir honum.
The Girl with the Dragon Tattoo
hefur fengið afbragðs dóma í
Ameríku, samkvæmt rotten-
tomatoes.com eru 86 prósent
gagnrýnenda sáttir. Metacritic,
sem vinnur eftir svipaðri hug-
myndafræði, gefur henni 73 pró-
sent og hún fær 7,4 í einkunn hjá
notendum imdb.com. Fincher er
sjálfur það sáttur við myndina
að samkvæmt síðustu fréttum að
vestan íhugar hann nú alvarlega
að leikstýra næstu tveimur mynd-
um sjálfur. „Ég myndi þá gera þær
samtímis,“ sagði Fincher í samtali
við vefsíðuna collider.com.
freyrgigja@frettabladid.is
AMERÍKA GEGN SVÍÞJÓÐ
SALANDER
Rooney Mara hefði varla getað fengið erfiðara
hlutverk þegar David Fincher ákvað að velja hana
sem Lisbeth Salander. Noomi Rapace hafði tekist
að gera andfélagslega tölvuhakkarann að sínum
og margir voru efins um að hinni bandarísku
leikkonu tækist að feta í fótspor hennar.
BLOMKVIST
David Fincher stökk á Daniel Craig þegar
í ljós kom að Skyfall, nýjustu Bond-
myndinni, var frestað um óákveðinn
tíma. Hann tekur við keflinu af Michael
Nykvist sem var umdeildur í hlutverki
blaðamannsins Blomkvist.
Framleiðendur Hangover 2 losnuðu í vikunni við
tvær málsóknir sem höfðu verið í gangi. Handrits-
höfundurinn Michael Alan Rubin höfðaði mál á
hendur höfundum myndarinnar fyrir að hafa stolið
söguþræði myndarinnar úr sjálfsævisögu sinni,
Mickey and Kirin. Rubin hætti sjálfviljugur við
málsóknina.
Áhættuleikarinn Scott McLean, sem lék í áhættu-
atriði fyrir Ed Helms, er einnig hættur við að sækja
framleiðendur myndarinnar til saka fyrir slys sem
hann varð fyrir á tökustað. McLean fór fram á
bætur vegna slyssins. Þar með hafa þrjú dómsmál
verið til lykta leidd í tengslum við myndina. Eins og
frægt er orðið ákvað húðflúrameistarinn S. Victor
Whitmil að fara í mál við aðstandendur myndarinn-
ar vegna meints þjófnaðar á „höfundarverki“ sínu.
Í myndinni skartar persóna Ed Helms ansi myndar-
legu húðflúri í andlitinu sem var nákvæmlega eins
og það sem Whitmil flúraði á andlit Mike Tyson.
Húðflúrið fékk að standa óáreitt í myndinni en máls-
aðilar náðu sáttum þótt sú niðurstaða sé trúnaðar-
mál. Hafa ber í huga að Hangover 2 var fjórða mest
sótta mynd ársins og malaði gull í miðasölu. - fgg
Lausir við timburmennina
MÁLSÓKNAFLÓÐ Framleiðendur Hangover 2 hafa þurft að
standa í þrennum málaferlum vegna myndarinnar. Þau mál
hafa hins vegar verið leyst farsællega.
Viðtal Erlings Grétars Einarssonar við Rid-
ley Scott hefur farið eins og eldur í sinu um
kvikmyndaheiminn eftir að það birtist á
kvikmyndavefsíðu hans, filmophilia.com.
Erlingur var meðal blaðamanna á blaða-
mannafundi Scotts á 101 Hótel skömmu
áður en tökur á geimverumyndinni Pro-
metheus hófust hér á landi. Vefsíðurnar
Empireonline.com og contactmusic.com
eru meðal þeirra sem hafa vitnað í viðtal
Erlings, sem sjálfur er forfallinn Alien-
aðdáandi.
Aðalfréttin, að mati erlendu miðlanna, er
sú að geimveruskrímslið Xenomorph verði
ekki í myndinni. Eins og komið hefur fram
er Prometheus einhvers konar forleikur að
Alien-myndaflokknum fræga og aðdáendur
þeirra mynda hoppuðu hæð sína af kæti
þegar fréttist af því að Scott væri snúinn
aftur á þær slóðir. Þeir vonuðust jafnvel til
að fá að sjá Xenomorph í þrívídd. En þeim
verður ekki að ósk sinni. „Xenomorph er
kominn í Disney-garðinn í Orlando, ég veit
ekki hvernig hann endaði þar en hann er
sem sagt í Disney-garðinum.“
Tökurnar á Prometheus hér á landi voru
gríðarlega umfangsmiklar, en þær fóru að
mestu leyti fram við rætur Heklu og svo
Dettifoss. Fyrsta stiklan kom á netið í gær
og fékk afbragðs viðtökur en með aðalhlut-
verkin í myndinni fara þau Noomi Rapace,
Michael Fassbender og Charlize Theron.
Myndin verður frumsýnd í júní á næsta ári.
- fgg
Íslenskt viðtal slær í gegn
FLOTT STIKLA Myndarinnar Prometheus
er beðið með mikilli eftirvæntingu en
þar snýr leikstjórinn Ridley Scott aftur á
slóðir vísindaskáldskapar.
Bryant Moore er handritshöfund-
ur sem sérhæfir sig í vísindaskáld-
skap. Moore hlýtur að vera ákaf-
lega hugrakkur því hann hefur
höfðað mál á hendur James Came-
ron og 20th Century Fox fyrir
kvikmyndina Avatar. Eins og búast
mátti við fer Moore ekki fram á
neinar smáupphæðir heldur tvo og
hálfan milljarð, í dollurum talið.
Moore er þess handviss um að
Cameron hafi stolið hugmyndinni
sinni úr handriti sínu Aquatica and
Descendants: The Pollination. Lög-
maður Camerons vísar þessu al-
farið á bug. „Hr. Cameron skrifaði
handritið að myndinni einn og við
höfum haldbærar sannanir fyrir
því eins og við munum sýna fyrir
dómi,“ segir Bert Fields lögmað-
ur, sem telur að ásakanirnar séu
úr lausu lofti gripnar. Talsmaður
Fox tók undir hvert orð, sagði lög-
sóknina eiga sér enga stoð í raun-
veruleikanum.
Þetta er ekki fyrsta lögsóknin
sem Cameron þarf að verjast því
fyrr í mánuðinum skaut maður að
nafni Eric Ryder upp kollinum og
krafði Cameron um svimandi háar
upphæðir fyrir svipaðar sakir.
Ryder heldur því fram að Cameron
hafi notað hugmyndir sínar í leyfis-
leysi sem hann hafi kynnt fyrir
framleiðslufyrirtæki leikstjórans,
Lightstorm Entertainment. - fgg
Cameron lögsóttur
RÁÐIST Á AVATAR Tveir menn hafa höfðað mál á hendur James Cameron fyrir
kvikmyndina Avatar.
bio@frettabladid.is
o.fl. o.fl.
sögur
uppskriftir
leikir
gjafir