Fréttablaðið - 22.12.2011, Qupperneq 74
22. desember 2011 FIMMTUDAGUR58
Sjónvarpsstöðin E!, sem sérhæfir sig í fréttum af ríka og fræga fólkinu, hefur tekið
saman tíu helstu fréttir ársins af skjólstæðingum sínum. Konunglegt brúðkaup, andlát
dáðrar söngkonu og sakfelldur læknir eru meðal þeirra sem komast á listann.
TÍU STÆRSTU FRÉTTIRNAR
1. BRÚÐKAUP VILHJÁLMS OG KATRÍNAR Dagsetning: 29. apríl.
Nánast öll heimsbyggðin fylgdist með því þegar Vilhjálmur Bretaprins gekk að eiga Kate Middleton við hátíðlega athöfn.
Pippa Middleton stal senunni um stundarsakir þegar hún fylgdi systur sinni inn í kirkju, en kjóll hennar skildi lítið eftir
fyrir ímyndunaraflið. NORDIC PHOTOS/GETTY
2. HRUN CHARLIE
SHEEN
Dagsetning: 7. mars
Það var alltaf vitað að
Charlie Sheen ætti í
erfiðleikum með áfengi
og ólögleg fíkniefni. En
enginn gat ímyndað sér
þá atburðarás sem fór
af stað þegar Warner
Bros. og CBS ráku
leikarann úr sjónvarps-
þáttunum Two and a
Half Men. Sheen-sagan
virtist endalaus árið
2011 en leikarinn er nú
óðum að ná sér eftir
rússíbanareiðina.
3. ENDALOK
HARRY POTTER
Dagsetning: 7. júlí
Eftir að hafa rakað
inn milljörðum, selt
leikföng, boli, föt, leiki
og áfram mætti lengi
telja var loks komið að
endalokum töfra-
stráksins Harry Potter
og vina hans. Síðasta
myndin, Harry Potter
og dauðadjásnin II, olli
aðdáendum engum
vonbrigðum og halaði
inn rúma 1,3 milljarða
dollara í miðasölu á
heimsvísu.
4. HLIÐARSPOR
HASARHETJU
Dagsetning: 16. maí
Það þarf ekki að
koma á óvart þegar
kvikmyndastjarna skilur
og það gerðu þau
Maria Shriver og Arnold
Schwarzenegger hinn
9. maí. Hins vegar kom
það mörgum á óvart
þegar í ljós kom að
vöðvatröllið sjálft, sem
hefur lagt mikið upp úr
fjölskylduímynd sinni,
hafði barnað þernu
fjölskyldunnar.
5. CONRAD MURRAY
DÆMDUR
Dagsetning: 7. nóvember
Michael Jackson var
mörgum harmdauði og
það var snemma ljóst
að nokkrum spurn-
ingum var ósvarað um
það hvernig poppgoðið
dó. Snemma beindist
grunur að lækni
Jacksons, Conrad
Murray, sem síðar
var dæmdur í
fjögurra ára
fangelsi fyrir
manndráp af
gáleysi.
6. NEKTAR-
MYNDUM STOLIÐ
Dagsetning: 14. septem-
ber
Tölvuhakkarinn Christopher
Chaney er ekki hátt
skrifaður hjá leikkonunum
Milu Kunis og Scarlett
Johannsson. Hann hakk-
aði sig inn í síma þeirra
beggja, stal nokkrum
nektarmyndum af
þeim og lak þeim að
sjálfsögðu á netið,
aðdáendum þeirra
til mikillar gleði.
Málið er nú í
rannsókn hjá FBI.
7. KARDASHIAN-
HRINGEKJAN
Dagsetning: 31. október
Kim Kardashian og Kris Humphries
trúlofuðu sig í maí, giftu sig í ágúst
og skildu í lok október. Allt var þetta
kyrfilega fest á filmu fyrir raunveru-
leikaþáttaröð E!-sjónvarpsstöðvar-
innar og malaði að endingu gull.
8. WINEHOUSE
DEYR
Dagsetning: 23. júlí
Enska söngkonan Amy
Winehouse var ein besta
söngkona heims en hún
var jafnframt þjökuð af
áfengis- og vímuefna-
vanda. Því kom kannski
fáum á óvart þegar hún
andaðist á heimili sínu í
London fyrr á þessu ári.
9. EITTHVAÐ SKRÍTIÐ
Dagsetning: 20. maí
Doug Hutchinson var eflaust
flestum gleymdur eftir leik sinn í
The Green Mile, þar sem hann lék
bölvaðan hrotta. En hann dúkk-
aði aftur upp þegar hann giftist
Courtney Alexis Stodden, en
brúðurin var ekki nema sextán
ára. Hins vegar ákvað móðir
hennar að gefa dóttur sinni
leyfi til að giftast hinum 51 árs
leikara, en þau rembast nú
eins og rjúpan við staurinn
að komast í raunveruleika-
þáttaröð.
10. SKILDU EFTIR
FRAMHJÁHALD
Dagsetning: 17.
nóvember
Samband Demi Moore
og Ashton Kutcher
vakti mikla athygli, hún
nýskilin við harðhaus-
inn Bruce Willis, hann
stjarna úr sjónvarps-
þáttum. En hjóna-
bandið entist lengur
en margir höfðu spáð.
Hins vegar reyndist
Kutcher ekki einnar
konu maður, eins og
bandarískir fjölmiðlar
greindu skilmerkilega
frá. Hann leikur nú
aðalhlutverkið í Two
and a Half Men.