Fréttablaðið - 22.12.2011, Page 86

Fréttablaðið - 22.12.2011, Page 86
22. desember 2011 FIMMTUDAGUR70 sport@frettabladid.is GUÐJÓN BALDVINSSON gæti gengið í raðir Halmstad í Svíþjóð í dag eða á allra næstu dögum. Þetta hefur Fréttablaðið eftir sínum heimildum. Stutt er í að félagið komist að samkomulagi við KR um kaup á kapp- anum og þá á Guðjón sjálfur eftir að semja um kaup og kjör. FÓTBOLTI Hallbera Guðný Gísla- dóttir hefur fengið tilboð frá þremur liðum í sænsku úrvals- deildinni og ætlar að taka næstu vikuna til að fara yfir þau. Hún á von á því að taka ákvörðun fyrir áramót og segir að það liggi nokk- uð ljóst fyrir að hún sé á leið frá Val. Hún æfði fyrr í mánuðinum með Örebro, sem Edda Garðars- dóttir og Ólína G. Viðarsdóttir hafa spilað með síðastliðin ár. Hallbera Guðný er þó með tilboð frá tveimur liðum til viðbótar en vill eins og málin standa nú ekki greina frá því hvaða lið um er að ræða. „Ég tel það nokkuð ljóst að ég er á leiðinni út en ég veit ekki enn hvar ég enda,“ segir hún. Hallbera Guðný er 25 ára gamall leikmaður sem getur bæði spilað á vinstri kantinum eða sem vinstri bakvörður. Hún hefur fest sig í sessi í íslenska landslið- inu sem bakvörður og býst við að spila fyrst og fremst sem varnar- maður í Svíþjóð. „Liðin hafa fyrst og fremst verið að skoða mig sem varnar- mann en samt með þeim mögu- leika að geta spilað líka á kantin- um. Þetta er staða sem ég er enn að læra en ég kann vel við hana, sérstaklega ef ég fæ að spila sem sóknarbakvörður. Ég hef mjög gaman af því,“ segir Hallbera. Hún segist handviss um að þetta sé rétt skref. „Ég hef verið að gera sama hlutinn í nokkur ár í röð og það verður mikill munur að fara í deild þar sem hver leikur er jafn og spennandi.“ - esá Landsliðskonan Hallbera Guðný Gísladóttir hefur úr þremur tilboðum að velja í sænsku úrvalsdeildinni: Hallbera Guðný spilar í Svíþjóð næsta sumar Á ÚTLEIÐ Fjölmargar íslenskar knattspyrnukonur hafa spilað í Svíþjóð síðustu ár og Hallbera Guðný er að bætast í þann hóp. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Enska úrvalsdeildin Aston Villa - Arsenal 1-2 0-1 Robin van Persie (16.), 1-1 Marc Albrighton (53.), 1-2 Yossi Benayoun (86.). Manchester City - Stoke 3-0 1-0 Sergio Agüero (28.), 2-0 Adam Johnson (35.), 3-0 Sergio Agüero (53.). Newcastle - West Brom 2-3 0-1 Peter Odemwingie (19.), 1-1 Demba Ba (33.), 1-2 Gareth McAuley (43.), 2-2 Demba Ba (80.), 2-3 Paul Scharner (84.). QPR - Sunderland 2-3 0-1 Nicklas Bendtner (18.), 0-2 Stephane Ses- segnon (52.), 1-2 Heiðar Helguson (62.), 2-2 Jamie Mackie (66.), 2-3 Wes Brown (88.) Everton - Swansea 1-0 1-0 Leon Osman (59.). Fulham - Manchester United 0-5 0-1 Danny Welbeck (4.), 0-2 Nani (27.), 0-3 Ryan Giggs (42.), 0-4 Wayne Rooney (87.), 0-5 Dimitar Berbatov (89.). Wigan - Liverpool 0-0 STAÐAN Man. City 17 14 2 1 53-15 44 Man. United 17 13 3 1 42-14 42 Tottenham 15 11 1 3 31-18 34 Chelsea 16 10 2 4 34-19 32 Arsenal 17 10 2 5 33-25 32 Liverpool 17 8 6 3 20-13 30 Newcastle 17 7 6 4 23-22 27 Stoke City 17 7 3 7 18-28 24 Norwich City 17 5 6 6 27-31 21 West Brom 17 6 3 8 19-26 21 Everton 16 6 2 8 17-19 20 Aston Villa 17 4 7 6 19-23 19 Fulham 17 4 6 7 18-23 18 Swansea City 17 4 6 7 16-21 18 Sunderland 17 4 5 8 21-21 17 QPR 17 4 4 9 17-31 16 Wolves 17 4 3 10 19-32 15 Wigan 17 3 5 9 15-30 14 Bolton 17 4 0 13 22-39 12 Blackburn 17 2 4 11 24-38 10 Ítalska úrvalsdeildin Udinese - Juventus 0-0 Napoli - Genoa 6-1 Atalanta - Cesena 4-1 Bologna - Roma 0-2 Inter - Lecce 4-1 Lazio - Chievo 0-0 Novara - Palermo 2-2 Parma - Catania 3-3 STAÐA EFSTU LIÐA AC Milan 16 10 4 2 35-16 34 Juventus 16 9 7 0 27-11 34 Udinese 16 9 5 2 20-9 32 Lazio 16 8 6 2 24-13 30 Inter 16 8 2 6 22-19 26 Hollenska bikarkeppnin Ajax - AZ Alkmaar (1-0) Jóhann Berg Guðmundsson var á meðal vara- manna AZ en leiknum var hætt á 37. mínútu eftir að markvörður AZ sparkaði niður áhorfanda sem réðst á hann. Markvörðurinn fékk rautt fyrir og þjálfari AZ ákvað þá að kippa liði sínu af velli í mótmælaskyni. ÚRSLIT Danska úrvalsdeildin AG - Mors-Thy 27-23 Guðjón Valur Sigurðsson og Snorri Steinn Guðjónsson skoruðu þrjú hvor fyrir AG. Ólafur Stefánsson skoraði eitt mark en Arnór Atlason var hvíldur vegna meiðsla. Einar Ingi Hrafnsson leikur með Mors-Thy. Álaborg - Bjerringbro/Silkeborg 26-31 Guðmundur Árni Ólafsson skoraði ekki fyrir Bjerr ingbro/Silkeborg. Viborg - Nordsjælland 25-21 Ólafur Guðmundsson leikur með Nordsjælland. STAÐA EFSTU LIÐA AG 16 14 1 1 +91 29 Kolding 16 12 2 2 +35 26 Bjerringbro/S. 16 11 1 4 +53 23 Skjern 16 9 2 5 -2 20 Team Tvis 16 8 3 5 +40 19 Álaborg 16 8 1 7 +40 17 Skanderborg 16 7 0 9 -29 14 Þýska úrvalsdeildin Hamburg - Magdeburg 32-23 Björgvin Páll Gústavsson stóð í marki Magdeburg í fimmtán mínútur í leiknum. Kiel - Eintracht Hildesheim 31-22 Aron Pálmarsson skoraði ekki fyrir Kiel í leiknum. Alfreð Gíslason er þjálfari liðsins. Rhein-Neckar Löwen - Hüttenberg 30-26 Róbert Gunnarsson skoraði tvö mörk fyrir Löwen. Guðmundur Guðmundsson er þjálfari liðsins. Grosswallstadt - Göppingen 23-21 Sverre Jakobsson lék í vörn Grosswallstadt. Wetzlar - Gummersbach 35-27 Kári Kristján Kristjánsson skoraði átta mörk fyrir Wetzlar í leiknum. Hannover-Burgdorf - Flensburg 29-31 Hannes Jón Jónsson skoraði fimm mörk fyrir Hannover-Burgdorf, Vignir Svavarsson þrjú og Ásgeir Örn Hallgrímsson eitt. Melsungen - Lübbecke 24-24 STAÐAN Kiel 17 17 0 0 +146 34 Füchse Berlin 17 14 1 2 +57 29 Hamburg 17 13 0 4 +74 26 Flensburg 17 13 0 4 +47 26 RN Löwen 17 11 1 5 +45 23 Magdeburg 17 10 0 7 +26 20 Lübbecke 17 9 1 7 +6 19 Lemgo 17 9 0 8 -7 18 Göppingen 17 8 0 9 -7 16 Melsungen 17 5 4 8 -10 14 Wetzlar 17 6 2 9 -12 14 Balingen 16 6 1 9 -35 13 Grosswallst. 17 6 1 10 -28 13 Hannover 17 5 2 10 -32 12 Bergischer 16 5 0 11 -38 10 Gummersb. 17 3 2 12 -74 8 Hüttenberg 17 3 1 13 -76 7 Hildesheim 17 1 0 16 -82 2 Þýska B-deildin Eisenach - Emsdetten 25-22 Fannar Friðgeirsson skoraði fjögur mörk fyrir Emsdetten en Aðalsteinn Eyjólfsson er þjálfari Eisenach. Korschenbroich - Düsseldorf 30-28 Ernir Hrafn Arnarson skoraði þrjú mörk fyrir Düsseldorf. Bad Schwartau - DHC Rheinland 26-22 Björgvin Hólmgeirsson skoraði sjö mörk fyrir DHC Rheinland. Leipzig - Bittenfeld 31-32 Arnór Gunnarsson skoraði tólf mörk fyrir Bittenfeld, þar af sjö af vítalínunni. Árni Þór Sig- tryggsson skoraði eitt mark fyrir liðið. ÚRSLIT HANDBOLTI Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel unnu auðveldan sigur á botnliði Eintracht Hildes heim í þýsku úrvalsdeildinni í gær, 31-22. Sigur inn kom ekki á óvart en hann var engu að síður sögulegur. Með sigrinum hefur Kiel unnið fyrstu sautján leiki sína á tímabili í þýsku úrvals- deildinni, sem er metjöfnun. Lemgo gerði slíkt hið sama árið 2003. Yfirburðir Kiel á leiktíðinni hafa verið með ólíkindum og ljóst er að mikið þarf að gerast svo að liðið endur heimti ekki þýska meistaratitilinn frá Hamburg í vor. Kiel hefur fimm stiga forystu á næsta lið, Füchse Berlin. Kiel getur svo bætt umrætt met með sigri á Gummersbach á útivelli á öðrum degi jóla. Fjölmargir leikir fóru fram í þýsku úrvals- deildinni í gær. Kári Kristján Kristjánsson fór mikinn í góðum sigri Wetzlar á Gummers- bach, 35-27, og skoraði átta mörk. Frekari upplýsingar um þátttöku Íslendinganna í leikjum gærkvöldsins má finna hér til hliðar á síðunni, sem og stöðuna í deildinni. - esá Fjölmargir leikir í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær: Alfreð og Kiel í sögubækurnar ALFREÐ GÍSLASON Hefur náð frábærum árangri með Kiel í þýsku úrvalsdeildinni. FÓTBOLTI Manchester-liðin City og United eru á góðri leið með að stinga önnur lið af í ensku úrvals- deildinni, en bæði unnu þægilega sigra á andstæðingum sínum í gær. Arsenal hafði betur gegn Aston Villa á útivelli en Liverpool missteig sig þegar liðið gerði jafn- tefli gegn Wigan á útivelli. Newcastle er enn á niðurleið í ensku úrvalsdeildinni en Heiðar Helguson gerði sér lítið fyrir og skoraði eitt og lagði upp annað er QPR tapaði reyndar fyrir Sunder- land á heimavelli, 3-2. City er nú með 44 stig á toppi deildarinnar, en liðið vann Stoke á heimavelli í gær, 3-0. Sergio Agüero skoraði tvö marka City- manna og Adam Johnson eitt. United vann sömuleiðis þægileg- an sigur í gær er liðið mætti Ful- ham á Craven Cottage og vann, 5-0. Liðið komst í 3-0 forystu strax í fyrri hálfleik en heimamenn léku þó ágætlega í þeim síðari, án þess þó að láta mikið að sér kveða. Wayne Rooney og varamaðurinn Dimitar Berbatov innsigluðu svo sigurinn með fjórða og fimmta marki United í lok leiksins. „Við höfum verið að spila vel að undanförnu en ekki skorað mikið af mörkum. Því var mjög ánægju- legt hvað okkur tókst að skora mörg í kvöld,“ sagði hinn marg- reyndi Ryan Giggs, sem skoraði eitt marka United í gær. Charlie Adam var sjálfsagt ekki sá vinsælasti hjá stuðningsmönn- um Liverpool í gær eftir að Ali Al- Habsi, markvörður Wigan, varði vítaspyrnu hans. Leiknum lauk með markalausu jafntefli, en þetta var sjötta jafntefli liðsins á tíma- bilinu í vetur. Yossi Benayoun tryggði Arsenal 2-1 sigur á Aston Villa með marki undir lok leiksins eftir að hafa komið inn á sem varmaður. Marc Albrighton skoraði mark Aston Villa í upphafi seinni hálfleiks, en það reyndist vera 20 þúsund- asta markið í sögu ensku úrvals- deildarinnar. Newcastle, sem byrjaði svo vel á tímabilinu í haust, tapaði á heima- velli fyrir West Brom, 3-2. New- castle hefur nú leikið sex leiki í röð án sigurs, en liðið vann síðast Everton í byrjun nóvember. Heiðar Helguson skoraði sitt sjöunda mark á tímabilinu er QPR mætti Sunderland í gær. Sunder- land komst reyndar 2-0 yfir en Heiðar skoraði fyrra mark sinna manna á 63. mínútu og lagði svo það síðara upp fyrir Jamie Mackie aðeins fjórum mínútum síðar. Var það þriðja markið sem Heiðar leggur upp í vetur og hefur hann því átt beinan þátt í tíu af sautj- án mörkum liðsins á tímabilinu til þessa. Wes Brown var svo hetja Sunder land og tryggði liðinu sigur með skallamarki í lok leiksins. Var það annar sigur þess síðan Martin O‘Neill tók við því í byrjun mánað- arins. eirikur@frettabladid.is City og United að stinga af Manchester City og Manchester United unnu nokkuð þægilega sigra í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Heiðar Helguson skoraði eitt og lagði upp annað í 2-2 jafntefli QPR gegn Sunderland. Liverpool gerði jafntefli við Wigan á útivelli. SKORAÐI Ryan Giggs fagnar marki sínu gegn Fulham í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.