Fréttablaðið - 22.12.2011, Side 94
22. desember 2011 FIMMTUDAGUR78
„Það er allavega vitað mál að það
verður fjör á næstu árshátíð,“ segir
Magnús Agnar Magnússon umboðs-
maður, sem hefur stofnað umboðs-
skrifstofuna Total Football ásamt
fótboltahetjunum Arnóri Guðjohn-
sen og Arnari og Bjarka Gunnlaugs-
sonum.
Total Football er umboðs-
skrifstofa fyrir íslenska fótbolta-
menn hérlendis sem erlendis, en
félagarnir leiddu saman hesta sína
fyrr í haust. „Við Arnór höfum verið
umboðsmenn í dágóðan tíma og svo
höfðu Arnar og Bjarki samband og
vildu að við sameinuðum krafta
okkar. Eftir viðræður í smá tíma
ákváðum við að kýla á þetta og búa
til alvöru íslenska umboðsskrifstofu
fyrir fótboltamenn. Það er betra að
vera saman en allir í sitthvoru lagi,“
segir Magnús Agnar, eða Aggi eins
og hann gjarnan er kallaður.
Total Football er með um 40 fót-
boltamenn á sínum snærum, gaml-
ar kempur í bland við unga og efni-
lega. Sem dæmi má nefna Theodór
Elmar Bjarnason, Alfreð Finn-
bogason, Bjarna Viðarsson, Hall-
grím Jónasson og síðast en ekki
síst Eið Smára Guðjohnsen. Aggi
segir að þeir leggi mikið upp úr
góðum samskiptum við strákana
og geta allir miðlað reynslu sinni
af íþróttaheiminum. Sjálfur hefur
Aggi starfað sem umboðsmaður
í þónokkur ár og hinir hafa allir
reynslu af atvinnumennsku.
„Við leggjum mikla áherslu á að
þjónusta strákana og þetta snýst
um svo miklu meira en að hjálpa
þeim að skipta um klúbba. Maður
veitir þeim ráðgjöf í ýmsum
málum, fylgir þeim eftir út í heim
og grípur inn í ef hlutirnir eru ekki
að ganga upp.“
Félagarnir eru búnir að koma sér
vel fyrir á skrifstofu í hjarta bæjar-
ins þar sem bikarasafnið er komið
á sinn stað og það er á viðræðu-
stigi að kaupa inn billjardborð. „Við
erum allavega komnir með ljósa-
skilti og Arnór, Arnar og Bjarki
eru búnir að drösla öllu bikara-
safninu sínu hingað og allt að verða
heimilislegt. Það er góður mórall í
vinnunni og gott að vinna saman,“
segir Aggi, sem er nýkominn heim
frá Englandi þar sem hann sá til
þess að fótbolta maðurinn ungi
Eggert Gunnþór Jónsson gekk til
liðs við enska úrvalsdeildarliðið
Wolves.
„Ljósmyndarinn Baldur Krist-
jánsson ætlar svo að leigja hjá
okkur herbergi á nýju ári og við
verðum því með okkar eigin hirð-
ljósmyndara. Það getur komið sér
vel í framtíðinni.“ alfrun@frettabladid.is
EFTIR HÖFUND
GULLGERÐARMANNSINS
OG TÖFRAMANNSINS
JÓLAMATURINN
Mæður Mugisons og hljómsveitarfélaga hans verða í
forsetastúkunni á ókeypis tónleikum þeirra í Hörpunni
í kvöld.
„Venjulega situr forsetinn í forsetastúkunni. Ég tók
miða frá fyrir mömmur okkar þannig að allar mömm-
urnar verða í forsetastúkunni,“ segir Örn Elías Guð-
mundsson, Mugison.
Hann hlakkar mikið til tónleikanna í kvöld, sem verða
þrennir talsins. „Þetta leggst rosalega vel í mig. Ég
hlakka til að heyra hvernig röddin verður á þriðju tón-
leikunum, hvort maður verður bara Rod Stewart allan
tímann,“ segir Mugison, sem lauk nýverið ókeypis tón-
leikaferð sinni um landið. „Það verður gaman að sjá
hvernig fílingurinn verður í salnum og hvort það eru
ekki allir komnir í jólafíling.“
Haglél, sem var kjörin plata ársins í Fréttablaðinu í
gær, hefur selst gríðarlega mikið að undanförnu, sér-
staklega eftir að Mugison tilkynnti um ókeypis tón-
leikana í Hörpu. Aðspurður segir hann að ætlunin með
tónleikunum hafi ekki verið sú að selja fleiri plötur. „Ég
skil að einhverjir skuli hugsa þannig en þegar þessi
ákvörðun var tekin var það ekki markaðsplott. Ég var
búinn að selja hátt yfir tíu þúsund plötur og það var vel
mánuður í jól. Mér fannst það bara algjört grín og líka
móttökurnar á túrnum. Fyrir mér fannst mér þetta vera
góð leið til að segja takk.“ - fb
Mömmurnar í forsetastúkunni
MÖMMURNAR MÆTA Mömmur Mugisons og félaga hans í
hljómsveitinni verða í forsetastúkunni í Hörpunni í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Trúbadorinn Elín Ey verður í föru-
neyti Bubba Morthens á Litla-Hraun
þegar árlegir tónleikar Bubba fara
þar fram á aðfangadag. Meðal annarra
sem fara með Bubba eru hljómsveit
hans Sólskuggarnir og uppi standarinn
Ari Eldjárn.
„Við Bubbi erum ágætis félagar,
hann talaði við mömmu á meðan ég
var úti í New York og mamma talaði
við mig þegar ég kom heim,“ segir
Elín, en hún er nýkomin heim eftir
tveggja mánaða dvöl í Stóra eplinu.
Þar var hún að spila og semja lög á
nýja plötu sem hún er með í vinnslu.
„Ég er mjög spennt fyrir henni þótt
þetta hafi allt gerst frekar hægt. En
góðir hlutir gerast þannig,“ segir Elín,
sem hefur ekki áður spilað á Litla-
Hrauni. „Ég held að þetta verði bara
fínt þótt það eigi náttúrulega eftir að
koma í ljós. Ég hef heyrt að þetta sé
ansi magnað,“ segir Elín og kveðst
ekkert smeyk við að spila fyrir hörð-
ustu glæpamenn þjóðarinnar.
Elín er af miklu tónlistarfólki
komin, foreldrar hennar eru Eyþór
Gunnarsson og Ellen Kristjáns dóttir.
Söngur Ellenar í jólalögum kemur
mörgum í mikið jólaskap en sjálf
segist Elín ekki vera mikið jólabarn.
„Jólaskapið kemur á Þorláksmessu, þá
fer maður að hlakka til, þetta er voða-
leg geðveiki þangað til.“ - fgg
Elín Ey með Bubba á Hraunið
Í STEININN Elín Ey spilar með Bubba Morthens á Litla-Hrauni á aðfangadag.
Meðal annarra gesta má nefna uppistandarann Ara Eldjárn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Ég fæ svínahamborgarhrygg
hjá mömmu með bestu sósu í
heimi. Í eftirrétt er síðan heima-
lagaður ís.“
Jóna Ottesen, eigandi vefverslunarinnar
Lakkalakk.com
MAGNÚS AGNAR MAGNÚSSON: ÞAÐ VERÐUR FJÖR Á ÁRSHÁTÍÐINNI
Íþróttahetjur leiða saman
hesta sína í Total Football
TOTAL FOOTBALL Þeir Arnar Gunnlaugsson, Magnús Agnar Magnússon, Arnór Guðjohnsen og Bjarki Gunnlaugsson hafa komið
sér vel fyrir í hjarta bæjarins og opnað umboðsskrifstofuna Total Football. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN