Morgunblaðið - 18.09.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.09.2010, Blaðsíða 2
FRÉTTASKÝRING Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Eftir stuttan þingfund í gærmorgun varð fljótlega ljóst að djúpstæð gjá hefur myndast á milli VG og hluta Samfylkingarinnar. Ýmsir þingmenn sem rætt var við í gær telja að þessi gjá muni hafa alvarleg áhrif á stjórn- arsamstarfið. Aðalágreiningurinn á þingi var um það hvort þingmenn eigi að fá fullan aðgang að þeim lögfræðilegu sér- fræðiálitum sem unnin voru fyrir þingmannanefndina, sem fjallað hef- ur um ráðherraábyrgð ráðherra í rík- isstjórn Sjálfstæðisflokksins og Sam- fylkingarinnar 2007-2009 og hvort ákæra beri þrjá eða fjóra ráðherra. Mikill meirihluti þingmanna segist ekki geta tekið afstöðu til þingsálykt- unartillagnanna tveggja sem nú eru til umfjöllunar á Alþingi án þess að fá að kynna sér í þaula öll málsgögn. Allir sem tóku til máls fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins kröfðust fulls að- gangs að umræddum gögnum og at- hygli vakti að þingmenn Samfylking- arinnar, svo sem Kristján Möller og Sigmundur Ernir Rúnarsson, lýstu ofangreindri afstöðu. Forseti Alþingis frestaði fundi til kl. 13 og aftur til kl. 13.30 á meðan reynt var að ná sátt í málinu með þingflokksformönnum. Það tókst ekki og því frestaði forseti á nýjan leik kl. 13.30 og sagði að boðað yrði til næsta fundar með dagskrá. „Allt í klessu“ „Það er bara allt í klessu hérna. Það er rafmagnað andrúmsloft á milli VG og stórs hluta Samfylkingarinnar. Svo rafmagnað, að maður á eiginlega von á því að fá raflost þegar maður gengur á milli þessara ólíku fylkinga,“ sagði þingmaður á meðan fundarhlé varaði. Annar þingmaður bendir á að það hafi vakið sérstaka athygli þingheims að hvorki Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra né hinn nýi dóms- og mannréttindaráðherra, Ögmundur Jónasson, hafi verið viðstödd þing- fundinn í gærmorgun, og það segi sína sögu. Síðdegis í gær fékkst svo niðurstaða í þessu deilumáli, sem, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, ríkir lítil sátt um. Hún er sú að þingmenn fái að- gang að öllum gögnum, þar með talið sérfræðiálitum lögspekinganna, en sá aðgangur verði takmarkaður við það að þingmenn kynni sér á Alþingi gögn- in nú um helgina í lokuðum herbergj- um, en þau eru í sérstökum trúnaðar- möppum sem þeir fá ekki að taka með sér. Helsta gagnrýni þeirra sem telja þetta ekki lausn heldur framlengingu á yfirgengilegum vandræðagangi er sú, að almenningur á Íslandi eigi ekki að fá neinar upplýsingar um hvernig lögfræ- ðiálitin eru. Gjá á milli VG og Samfylkingarinnar  Þingsályktanir um landsdóm og ráðherraábyrgð virðast ætla að draga dilk á eftir sér  Þingstörf í uppnámi í gær, þingfundi óvænt slitið og óvíst hver framvindan verður á Alþingi eftir helgi Morgunblaðið/Árni Sæberg Alþingi Tekist var á um það hvort þingmenn ættu að fá aðgang að gögnum. Þingmenn spurðu hvar forsætisráð- herrann og mann- réttindaráðherr- ann væru. 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 2010 Opinn fundur um stöðuna í stjórnmálum með Bjarna Benediktssyni www.xd.is Í Valhöll, Háaleitisbraut 1, þriðjudaginn 21. september kl. 17.00. Samtök eldri sjálfstæðismanna boða til opins fundar um stjórnmálaviðhorfið með Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins. Allir velkomnir! Sjálfstæðisflokkurinn Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Íslensk stjórn- völd hafa enn ekki sent svör til ESA, Eftirlits- stofnunar EFTA, vegna áminning- arbréfs vegna Icesave-málsins. Í áminningar- bréfi ESA kom m.a. fram sú nið- urstaða stofn- unarinnar að með því að greiða ekki lágmarksinnistæðutryggingu til þeirra sem áttu fé inni á Icesave- reikningum í Bretlandi og Hollandi hefði Ísland brotið gegn jafnræðis- reglu EES-svæðisins. Svarfrestur var til 1. ágúst en síð- an var veittur framhaldsfrestur til 8. september. Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra sagði að ESA hefði gefið óformlegan frest fram eftir mánuðinum. ESA hefði ekki kallað sérstaklega eftir svarinu síð- an. „Það er oft ágætt að senda ekki hluti fyrr en maður þarf að gera það. Við erum að vinna að svarinu,“ sagði hann. Stjórnvöld ekki enn svarað ESA Árni Páll Árnason Unnið að svari Skákmeistararnir Jón L. Árnason og Héðinn Steingrímsson tóku upphafs- leikina á boðsmóti í skák sem Skáksamband Íslands stóð fyrir í Kringlunni í gær. Ólympíuskákmótið hefst austur í Rússlandi eftir helgina og sam- kvæmt venju senda Íslendingar þangað lið, bæði í opinn flokk sem og kvennaflokk, en rjómi íslenskra skákmanna skipar þau. Gamlar ólympíu- kempur Íslands tóku þátt í mótinu í gær, en meðal annarra má nefna liðs- menn frá Menntaskólanum í Reykjavík sem eru Norðurlandameistarar framhaldsskóla og Norðurlandameistara barnaskólasveita, sem koma úr Rimaskóla í Grafarvogi. Þá tóku liðsmenn Salaskóla í Kópavogi þátt, en þeir unnu silfrið á Norðurlandamóti grunnskólasveita. sbs@mbl.is Upphafsleikir og svo er stefnt á Ólympíumót Morgunblaðið/Eggert Jón Pétur Jónsson jonpetur@mbl.is „Ég er þeirrar skoðunar að í fram- haldi af þessu muni þurfi að herða mjög virðisaukaskattsframkvæmd- ina. Það er mikið álitamál hvort það þurfi að breyta ferlum þannig að framvegis verði alltaf tveir starfs- menn skattyfirvalda sem ræða við gjaldendur. Núna hefur það verið einn starfsmaður sem ræðir við gjaldendur,“ segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri um rann- sókn lögreglu á umfangsmiklu fjár- svikamáli sem tengist starfsmanni stofnunarinnar. Verði þessi breyting að veruleika kalli það á mjög breytta skattfram- kvæmd og hún yrði jafnframt töluvert dýrari. Skúli segist hafa fengið upp- lýsingar um rann- sókn málsins á mánudag. Á þriðjudag hafi svo hafist mikil grein- ingarvinna innan stofnunarinnar. „Það er ljóst að þessi árás, sem virðist vera þrautskipulögð, er veru- legt umhugsunarefni fyrir íslenska stjórnsýslu. Þarna er í fyrsta skipti, svo vitað sé, ráðist með mjög afger- andi hætti inn í fjárreiður ríkisins í því skyni að svíkja út fé.“ Upphæðin sem um er að ræða í málinu nemur 270 milljónum kr. Skúli bendir á að fjárhæðin í fyrri málum af þessum toga hafi verið mun lægri. „Þarna virðist vera þrautskipulagt ferli. Ég tala nú ekki um hvað það er alvarlegt ef í hlut á starfsmaður embættisins,“ segir hann en áréttar að málið sé til rann- sóknar. Hver maður sé saklaus uns sekt hans sé sönnuð. Skúli segir málið áfall fyrir starfs- menn almennt, en sérstaklega fyrir starfsmenn sem starfi í virðisauka- skattsframkvæmdinni. „Við höfum hlutast til um að þeir fái áfallahjálp og það hefur verið sérfræðingur að störfum, og mun verða næstu daga, að veita fólki nauðsynlega aðstoð.“ „Þrautskipulögð árás“  Ríkisskattstjóri er þeirrar skoðunar að þörf sé á hertri virðisaukaskattsframkvæmd í kjölfar fjársvikamáls Skúli Eggert Þórðarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.