Morgunblaðið - 18.09.2010, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 2010
Í dag, laugardag, kl. 13 verður Ís-
landsmeistarakeppni í ökuleikni
2010 haldin á svæði Ökukennara-
félags Íslands við Kirkjusand. Um
er að ræða opna keppni og er öllum
með ökuréttindi heimil þátttaka.
Ekið verður í gegnum fjögur þraut-
arplön á VW Polo auk þess sem
keppendur þurfa að svara umferð-
arspurningum sem teljast til stiga.
Keppt er í karlariðli og kvennariðli
og verða verðlaun veitt fyrir þrjú
efstu sætin.
Ökuleikni 2010
Klak, Nýsköpunarmiðstöð atvinnu-
lífsins opnar nýtt sprotasetur í O2-
Ofanleiti 2 í dag. Opnunin er hluti
af ráðstefnunni Driving Sustainabi-
lity sem haldin er dagana 16.-18.
september. Ráðstefnan hefur það
hlutverk að vekja athygli á mögu-
leikum Íslands á að verða leiðandi í
orkumálum og samgöngumálum í
heiminum. Í lok ráðstefnunnar
verður opið hús í Ofanleiti 2 í dag,
laugardag, kl. 9-17. Opnunin á
tækniþróunarsetrinu verður kl. 16.
Opið hús verður hjá þeim sprota-
fyrirtækjum sem eru í setrinu. Með-
al fyrirtækja eru Amivox sem býð-
ur upp á ódýrari og einfaldari
samskipti, Eff2 sem sérhæfir sig í
myndgreiningu á netinu, T1 hug-
búnaðarhús sem þróar lausnir á
heilbrigðissviði, Vitver sem þróar
leikjavél byggða á gervigreind,
Fafu sem hannar leikföng og leiki
fyrir börn, 4x4 sem þróar upplýs-
ingar- og samskiptavef fyrir jeppa-
fólk, og Unimaze sem þróar lausnir
á rafrænum viðskiptum. Léttar
veitingar verða í boði.
Morgunblaðið/Þorkell
Tæknisprotasetur
opnað í dag
Norræna sakfræðiráðið hefur flutt aðsetur sitt til Ís-
lands og verður skrifstofa þess í Háskóla Íslands næstu
þrjú árin. „Aðsetur þess við háskólann er mikil viður-
kenning á því starfi sem þar hefur verið unnið á sviði
refsiréttar og afbrotafræði og styrkir stöðu Háskóla Ís-
lands á alþjóðavettvangi,“ segir í tilkynningu.
Ráðið var stofnað árið 1962 af dómsmálaráðuneytum
Norðurlandanna. Markmið ráðsins er að efla rannsóknir
á sviði afbrotafræði, refsiréttar og skyldra greina og
veita stjórnvöldum upplýsingar til að byggja á stefnu í
löggjöf og afbrotavörnum. Ráðið stendur fyrir sam-
norrænum rannsóknum, gefur út skýrslur og tímarit á
fræðasviðinu, veitir styrki til rannsókna og stendur fyrir ráðstefnum. Loks
heldur það úti heimasíðu á www.nsfk.org. Formaður ráðsins er Ragnheið-
ur Bragadóttir prófessor en skrifstofustjóri er Íris Björg Kristjánsdóttir
mannfræðingur.
Norræna sakfræðiráðið flyst til Íslands
Ragnheiður Braga-
dóttir
Í dag, laugardag, kl. 14-16 verður
keppt í akstursspyrnu. Að keppn-
inni standa Bílabúð Benna, Kvart-
míluklúbburinn og Shell V-Power.
Keppnin fer fram á kvartmílu-
brautinni í Kapelluhrauni, eftir
svokölluðu AUTO-X fyrirkomulagi.
Þá er keyrt á milli keila og tíminn
tekinn á hverjum bíl fyrir sig. Það
mun því fyrst og fremst reyna á
fjöðrun, snerpu og akstureigin-
leika bíls og færni ökumanns.
Keppt er í tveim flokkum, bíla- og
mótorhjólaflokki. Einnig verður
keppt í hefðbundinni 1⁄8 mílu í hef-
bundnum flokkum kvartmílunnar.
Boðið verður upp á grillaðar pyls-
ur og kók á keppninni. Aðgangs-
eyrir er 1.000 krónur. Frítt er fyrir
börn 12 ára og yngri.
Aksturskeppni
STUTT
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Jón Gnarr borgarstjóri hyggst út-
rýma ofbeldi úr miðbæ Reykjavík-
ur.
Þetta kom fram í máli borgar-
stjóra á blaðamannafundi sem hann
efndi til í gær vegna tillagna starfs-
hóps um öryggismál á skemmtistöð-
um og við þá.
Á fundinum talaði Jón Gnarr um
ofbeldi en einnig gerði Halldór
Nikulás Lárusson, verkefnisstjóri á
mannréttindaskrifstofu Reykjavík-
urborgar, grein fyrir úttekt á
skemmtistöðum í Reykjavík.
Í niðurstöðum úttektarinnar
kemur fram að flestir skemmtistað-
ir í Reykjavík eru búnir öryggis-
myndavélum og eru þær í flestum
tilfellum nægilega margar ef tekið
er mið af stærð staðanna. Staðsetn-
ingar eru hins vegar ekki alltaf eins
og best verður á kosið til að tryggja
öryggi gesta. Skortur er á vöktun á
göngum framan við salernisaðstöðu,
en 46% skemmtistaðanna eru með
salernisaðstöðu úr augsýn starfs-
fólks, þ.e. á efri hæð, í kjallara eða
annars konar afkima. Þá segir að
þáttur dyravarðanna verði seint of-
metinn. „Þeir eru augu og eyru ör-
yggisins og það eru þeir sem þurfa
að bregðast við ef öryggi gestanna
er ógnað,“ segir í úttekt starfshóps-
ins.
Á fundinum sagði Birgir Páll
Hjartarson dyravörður frá reynslu
sinni af dyravörslu. Hann kvað
ástandið í miðbænum hafa breyst
eftir hrun efnahagskerfisins. Færri
stunduðu næturlífið en ofbeldi hefði
engu að síður færst í aukana. Birgir
Páll kvað upplifun almennings á við-
brögðum stjórnvalda og fjármála-
fyrirtækja í kjölfar efnahagshruns-
ins hafa skapað „siðferðiskreppu“.
Margt fólk væri reitt yfirvöldum en
sú reiði gæti oft bitnað á lögreglu-
mönnum og dyravörðum sem
reyndu að gæta öryggis almennings
á skemmtistöðum borgarinnar.
„Það vitlausasta sem við getum gert
í kreppu er því að skera niður í lög-
gæslu,“ segir Birgir Páll.
Aldrei beitt ofbeldi
Jón Gnarr segist ætla að beita
sér gegn vaxandi ofbeldi í miðbæn-
um. „Reykvíkingar og aðrir eiga að
geta farið niður í miðbæ Reykjavík-
ur hvenær sem þeim sýnist án þess
að óttast um líf sitt, heilsu eða ör-
yggi. Þarna hef ég mörg úrræði sem
borgarstjóri. Ég get sett í gang alls
konar aðgerðir. Krafist þess að eft-
irlit verði aukið og gæsla verði auk-
in,“ segir Jón sem kveðst aldrei hafa
ráðist á nokkurn mann.
„Ég hef aldrei á ævinni kýlt mann.
Mér myndi aldrei detta það í hug að
kýla eða sparka í annan mann nema
ég dytti á hann í jarðskjálfta eða eitt-
hvað svoleiðis, eða ef hann hlypi á
mig. Mér finnst það svo klikkað að
beita ofbeldi. Það er svo tilgangs-
laust en hefur meitt svo marga, og
skaðað svo marga.“
Þá kveðst borgarstjórinn ekki ætla
að gefa þeim grið sem beita ofbeldi.
„Ég vil „zero tolerance“ gagnvart of-
beldi. Ef við segjum að markmiðið
væri að ofbeldi yrði helmingi minna í
miðbænum væri það óviðunandi. Það
væri samt of mikið ofbeldi. Þarna eru
líkamsárásir, kynferðisbrot og and-
legt ofbeldi eins og hótanir og ógn-
anir. Allt er þetta ofbeldi. Burt með
ofbeldi.“
Alls konar gegn ofbeldi í miðbænum
Jón Gnarr vill allt ofbeldi burt úr miðbæ Reykjavíkur Dyravörður á skemmtistað segir ástandið
aldrei hafa verið verra Starfshópur um málið vill auka vöktun á göngum við salernisaðstöðu
Morgunblaðið/Ernir
Á Hressó Jón Gnarr á blaðamannafundi um ofbeldi í miðbæ Reykjavíkur.
„Mér mundi aldrei
detta það í hug að
kýla eða sparka í
annan mann.“
Jón Gnarr
Tryggðu þér miða á www.hhi.is, í síma 8OO 6611 eða hjá næsta umboðsmanni.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
10
22
61
Vá, hvenær?!
Nú, það er
ekkert annað!
Drögum
24. sep
tembe
r,
vertu
með!
Kl. 16.OO
á föstudaginn.
Og það er bara
dregið úr seldum
miðum!
1O manns
fá milljón!