Morgunblaðið - 18.09.2010, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 18.09.2010, Blaðsíða 20
VIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is Japanski iðnrisinn Mitsubishi hefur undanfarin misseri unnið að undir- búningi umfangsmikillar framleiðslu á dímetýl-eter (DME) á Íslandi og víðar og gæti framleiðsla í nýrri verk- smiðju við Járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga hafist þegar árið 2014. Ichiro Fukue, aðstoðarforstjóri Mitsubishi Heavy Industries, móður- félags Mitsubishi-bílasmiðjanna, staðfesti þetta í samtali við Morgun- blaðið, en hann er hér gestur vegna ráðstefnunnar Driving Sustainability. Eldsneytið, dímetýl-eter, er svo- nefnt gervieldsneyti, en sökum þess að auðvelt er að fanga aðalhráefnið, koldíoxíð, við Járnblendið er talið fýsilegt að reisa verksmiðjuna þar. Fukue er bjartsýnn en hann áætlar kostnaðinn við verksmiðjuna á sem svarar 58 milljarða króna. Njóta góðs af kolefnisgjaldi Kemur þannig fram í máli hans að fyrirhugað gjald á losun koldíoxíðs í Evrópu, samhliða innleiðingu kol- efniskvótakerfisins 2012, muni auka hagkvæmni slíkrar framleiðslu. Miðað við óbreyttar forsendur geti íslenskir aðilar fengið greidda 10 bandaríkjadali á tonnið af koldíoxíði sem nýtt yrði í framleiðsluna. Samkvæmt þessari sviðsmynd gæti til dæmis koldíoxíð frá rússnesk- um álverum farið inn í nýja hringrás er það er nýtt við framleiðslu á DME. Með því yrði þekktustu gróðurhúsa- lofttegundinni, koldíoxíði, umbreytt í eldsneyti á ný, sem aftur kemur mengunarvöldum vel. Í stað þess að greiða kolefnisgjald fyrir losun koldíoxíðs getur rússneska álverið, eða hvaða viðskiptavinur sem er, greitt DME-verksmiðjunni á Ís- landi lægra verð fyrir urðunina og lágmarkað kostnað af menguninni. Ódýr raforka forsenda Aðspurður hvort Ísland sé til- raunavettvangur fyrir umfangsmeiri framleiðslu Mitsubishi og samstarfs- aðila á DME á heimsvísu svarar Fukue því til að gnægð ódýrrar, endurnýjanlegrar raforku sé for- senda viðskiptalíkansins. Hún komi því víðast hvar ekki til greina, þar með talið í Japan. Ísland flytji út eldsneyti  Einn stjórnenda Mitsubishi segir undirbúning að framleiðslu dímetýl-eter á Íslandi langt kominn  Framleiðsla gæti hafist 2014  Markmiðið að flytja út eldsneyti  Verksmiðja reist á Grundartanga Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Borhola á Reykjanesi Hugsanlegt er að síðar meir verði talið hagkvæmt að fanga koldíoxíð frá jarðvarmavirkjunum. Byrjað verður á Járnblendinu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Áhrifamaður Fukue er áhrifamað- ur í japönsku viðskiptalífi. 20 FRÉTTIRinnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 2010 Sú spurning vaknar hversu mikið magn af DME hægt væri að fram- leiða hér á landi. Að því gefnu að framleiðsl- an sé hagkvæm og aðrar for- sendur standist er stutta útgáf- an af svarinu sú að magnið tak- markast af fáanlegu magni koldíox- íðs. Íslendingar búa við slíka vatns- auðlind að hreint vatn verður lík- lega aldrei takmarkandi þáttur. Nóg framboð af koldíoxíði Fram kemur í svari umhverfis- ráðherra við fyrirspurn Önnu Pálu Sverrisdóttur, varaþingmanns Samfylkingar, að gangi áætlanir um fyrirhugaðar álversfram- kvæmdir eftir muni árleg losun kol- díoxíðs fara í 6,16 milljónir tonna og er þá miðað við koldíoxíðsígildi. Stækkun álversins í Straumsvík í 460.000 tonn og ný álver við Helgu- vík og Bakka eru talin með. Losun og binding gróðurhúsalofttegunda vegna landnotkunar, breyttrar landnotkunar og skógræktar er hins vegar ekki meðtalin. 500 tonn af DME á dag Samkvæmt Ágústu Loftsdóttur, sérfræðingi hjá Orkustofnun, mið- ast áætlanir við að DME-verk- smiðjan rísi við hlið Járnblendi- verksmiðjunnar á Grundartanga. Framleiðslan verði um 500 tonn á dag eða næg til að anna samgöng- um á sjó og ríflega það. Ber að hafa í huga að Járnblendið losar aðeins brot af heildarlosuninni. Til að setja framleiðslugetu væntanlegrar DME-verksmiðju í samhengi er jafnan miðað við að eldsneytisnotkun sé nokkuð jafnt skipt á milli samgangna á láði, lofti og legi. Útblástur úr járnblendinu verður leiddur yfir í nýja verk- smiðjubyggingu. Gasið verður geymt undir þrýstingi og það síðan flutt yfir á fiskiskipin, til dæmis með sérútbúnum tankskipum. Hvað er hægt að framleiða mikið? Frá Grundartanga. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Litínjónarafhlöður í bifreiðar kost- uðu í ársbyrjun um 1.000 banda- ríkjadali á hverja kílówattstund en hafa síðan hríðlækkað í verði og kosta nú um það bil helmingi minna. Þetta kom fram á fundi blaða- manns með Hiroaki Takatsu, fram- kvæmdastjóra verkfræði- og þróun- ardeildar japanska rafhlöðufyrir- tækisins Tepco og aðstoðarmanni hans, Hiroyuki Aoki, stjórnanda í al- mannatengsladeild fyrirtækisins. Fóru samskiptin þannig fram að Aoki, sem talar ensku, svaraði spurningum fyrir hönd Takatsu. Talið barst fljótt að kostnaðar- hlið litínjóna- rafhlaðna og svaraði Aoki því þá til að aukin samkeppni fyrir- tækja í Japan, Suður-Kóreu og Bandaríkjunum á rafhlöðumark- aðnum hefði leitt til mikillar verð- lækkunar. Aoki taldi kínversk fyrir- tæki standa að baki keppinautum sínum í löndunum þremur, greining sem vekur athygli í ljósi mikilla fjár- festinga Kínverja á þessu sviði á undanförnum misserum. Önnur hlið sem talin hefur verið standa innleiðingu rafmagnsbíla fyr- ir þrifum varðar þá staðreynd að það tekur tíma að hlaða rafhlöðurnar. Nokkrar mínútur í hleðslu Fram kom í máli tvímenning- anna að breyting sé að verða þar á með tilkomu nýrrar kynslóðar litín- jónarafhlaðna sem aðeins taki fimm mínútur að hlaða fyrir 40 km akstur. Það er engu að síður talsvert lengri tími en dæling eldsneytis á tank fyr- ir sömu drægni útheimtir og svarar Aoki því til að á næstu tveimur til þremur árum muni koma fram á sjónarsviðið rafhlöður sem taki enn skemmri tíma í hleðslu. Þá beri að hafa í huga að við innleiðingu rafbíla sé í upphafi gert ráð fyrir notkun í borgum þar sem miðað sé við að raf- hlöðurnar séu settar í hleðslu við heimili eða vinnustað ökumanns. Skyndihleðsla á þar til gerðum hleðslustöðvum sé hugsuð sem við- bót ef meiri drægni er þörf. Aðspurðir um nauðsynlegan fjölda hleðslustöðva segja þeir miðað við að þörfin sé ein stöð á hverja 200 rafbíla. Eftir því sem rafbílum fjölgi verði þörfin fyrir hleðslustöðvar meiri sem aftur hraði innleiðingunni. Rafhlöður í bíla hrynja í verði  Hafa lækkað um helming á árinu  Fljótlegt að hlaða nýju kynslóðina Ódýrara » Aðgangur að rafmagni í Japan er ekki vandamál þegar rafbílar eru annars vegar. » Rafmagn er ódýrara en eldsneyti og akstur rafbíla því ódýrari en hefðbundinna bíla. » Tvímenningarnir telja að rafbílar muni hafa vinningin yf- ir vetnisrafbíla í borgum. Kominn Rafbíllinn Nissan Leaf kostar á þriðju milljón í Kaliforníu með skattaafslætti. Verðið mun lækka enda fer verð á rafhlöðum lækkandi. Innstungan Drægni Nissan-Leaf er 160 km. Rafhlöðurnar eru í stöðugri þróun. Hiroaki Takatsu Dímetýl-eter (DME) má mynda úr blöndu koldíox- íðs og vetnis. Koldíoxíð, CO2, streymir frá álver- um landsins og raunar allstaðar þar sem bruni jarðefnaeldsneytis fer fram, hvort sem það er í bílvél eða í mörg þúsund hestafla skipsvél. Það þarf hins vegar að vera hægt að fanga CO2 í nægj- anlegu magni og er Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga því talin henta vel. Vetnið sem hér verður notað er fengið með rafgreiningu á hreinu vatni en í því ferli er raf- straumur notaður til að kljúfa vatnssameind, H2O, þannig að úr verði vetni, yfirleitt umritað H2, og súrefni, O. Með blöndun koldíoxíðs og vetnis er því komið hráefni í dímetýl-eter sem hefur efnaformúluna CH3OCH3. Framsetn- ingin hér er vitaskuld einföldun, en úr verður gas sem er þrýst niður í fljót- andi form með þrýstikúti. Því er svo dælt í fljótandi formi á dísilvélar. Blanda vetnis og koldíoxíðs HRÁEFNIÐ ER ÞEGAR TIL STAÐAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.