Morgunblaðið - 18.09.2010, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 18.09.2010, Qupperneq 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 2010 Í undirbúningi er ákæra á hendur ráð- herrum sem sátu í Þingvallastjórninni, þeirri ríkisstjórn sem var við völd í aðdrag- anda efnahagshrunsins haustið 2008. Ákveðið hefur verið að ákæra einhverja ráðherra, en þegar þetta er ritað er ekki vitað hvor allir ráð- herrarnir verða dregnir fyrir Lands- dóm, eða einungis fáeinir. Ekki eru allir sáttir við slíkar ákærur og hafa jafnvel heyrst raddir um að dómar yf- ir ráðherrum geti skapað ríkinu skaðabótaábyrgð og jafnvel valdið þriðju efnahagskreppunni. Þótt skaðabótaskylda ríkissjóðs vegna þjóðnýtingar bankanna liggi ljós fyr- ir, verður að telja fráleitt, að rík- issjóður verði skaðabótaskyldur þótt ráðherrar verði dæmdir af Lands- rétti. Lög um ráðherraábyrgð (lög 4/ 1963) segja þetta skýrum orðum: Lög um ráðherraábyrgð. 2. gr. Ráðherra má krefja ábyrgðar samkvæmt því, sem nánar er fyrir mælt í lögum þess- um, fyrir sérhver störf eða vanrækt starfa, er hann hefur orðið sekur um, ef málið er svo vax- ið, að hann hefur ann- aðhvort af ásetningi eða stórkostlegu hirðuleysi farið í bága við stjórn- arskrá lýðveldisins, önnur landslög eða að öðru leyti stofnað hags- munum ríkisins í fyr- irsjáanlega hættu. 13. gr. Hafi ráðherra bakað almenningi eða ein- staklingi fjártjón með framkvæmd eða vanrækslu, sem refsiverð er eftir lögum þessum, skal og þegar þess er krafist, jafnframt hegningunni dæma hann til að greiða skaðabætur, en um skaðabótaskyldu hans fer eftir al- mennum reglum. Af þessu má ráða, að ráðherrar eru persónulega ábyrgir, samkvæmt al- mennum hegningarlögum, ef almenn- ingi eða einstaklingi er bakað fjár- tjón. Ákærur fyrir Landsdómi snúast því ekki um bótaábyrgð ríkissjóðs, heldur einungis um ábyrgð ráð- herranna. Að reynt verður að láta ráðherra Þingvallastjórnarinnar sæta ábyrgð er frumforsenda fyrir sátt í þjóðfélaginu. Fyrir alþing- ismenn er mikilvægt að skilja, að án opinna réttarhalda fyrir Landsdómi yfir öllum ráðherrum þessarar rík- isstjórnar, er tómt mál að tala um þjóðarsátt og siðferðilega endurreisn. Ráðherrar ríkisstjórnar fara sameig- inlega með framkvæmdavaldið og þótt sumir geri núna lítið úr sameig- inlegri ábyrgð þá er það Landsdóms að fella dóma yfir ráðherrum og dóm- urinn verður að vera algerlega óháð- ur utanaðkomandi mönnum. Óeðli- legt verður að telja, að fram komi spádómar um niðurstöðu dómsins og það veikir dómsferlið að fjallað sé op- inberlega um efnisatriði málsins, eða að settar séu fram hrakspár um hugs- anlegar afleiðingar dóma. Menn ættu einnig að hafa í huga, að ekki er síður mikilvægt að fá úrskurð um sýknu ráðherra en sekt. Landsdómur má ekki fá þröngt umboð frá Alþingi, heldur verður það að vera til þess fall- ið að skapa trúverðugleika. Alþingi má alls ekki skilgreina viðfangsefni dómstólsins svo þröngt að niðurstaða hans sé gefin fyrirfram. Almenningur mun ekki sætta sig við hálfkák og því verður saksóknari Alþingis að hafa fullkomlega frjálsar hendur. Umboð hans er víðtækt eins og segir í Lögum um Landsdóm (lög 3/1963): Lög um Landsdóm. 16. gr. Það er skylda saksóknara Alþingis að leita allra fáanlegra sann- ana fyrir kæruatriðum, hann und- irbýr gagnasöfnun og rannsókn í mál- inu og gerir tillögur til landsdóms um viðeigandi ráðstafanir til að leiða hið sanna í ljós. Hann hefur um starf sitt samráð við saksóknarnefnd Alþingis. Skipan Landsdóms, umboð hans og úrskurður er prófsteinn á vilja Al- þingis til að upplýsa um orsakir efna- hagshrunsins. Verkefni Landsdóms er ekki bara að fella dóma, heldur einnig að upplýsa málið og þá sér- staklega aðkomu stjórnmála- stéttarinnar. Kalla þarf fyrir alla þá sem sátu Alþingi í aðdraganda hruns- ins. Nú er komið að því að velta við hverjum steini og setja allan ósóm- ann upp á borð, eða hreinsa menn ella af ósönnum áburði. Í skýrslu Rann- sóknarnefndar Alþingis var gerð góð grein fyrir mistökunum sem gerð voru með inngöngu landsins í Evr- ópska efnahagssvæðið, en ástæður efnahagshrunsins voru fleirri. Von- andi dettur engum í hug að Rann- sóknarnefnd Alþingis hafi tæmt mál- ið með sínum skýrslum – því fer fjarri. Til dæmis er ekkert fjallað þar um sjálfa peningastefnuna, sem var meginorsök hrunsins. Við búum ennþá við torgreinda peningastefnu og því eru allar forsendur fyrir áframhaldandi verðbólgu og nærsta hruni. Nú er komið að útfærslu mik- ilvægra ákvæða Stjórnarskrárinnar um ábyrgð ráðherra. Um þetta segir þar: Stjórnarskráin. 14. gr. Ráðherrar bera ábyrgð á stjórnarframkvæmdum öllum. Ráð- herraábyrgð er ákveðin með lögum. Alþingi getur kært ráðherra fyrir embættisrekstur þeirra. Lands- dómur dæmir þau mál. Þeir sem halda því fram að Stjórn- arskráin sé gölluð og henni beri að gjörbreyta ættu að hugsa sitt ráð. Stjórnarskrá á að vera gagnorð og það er okkar stjórnarskrá um ráð- herraábyrgð. Stjórnarskráin reynd- ist vel þegar kom að hinu sögulega þjóðaratkvæði 6. marz 2010, um Ice- save-gjörning ríkisstjórnarinnar. Nú reynir á framkvæmd ákvæðis Stjórn- arskrárinnar um ráðherraábyrgð. Vonandi bregðast þeir ekki, sem falið verður að sjá um framkvæmd máls- ins. Landsdómur er forsenda sátta með þjóðinni Eftir Loft Altice Þorsteinsson »Nú reynir á fram- kvæmd ákvæðis Stjórnarskrárinnar um ráðherraábyrgð. Von- andi bregðast þeir ekki, sem falið verður að sjá um framkvæmd máls- ins. Loftur Altice Þorsteinsson Höfundur er verkfræðingur og vísindakennari. Sverrir Kristinsson, framkvæmdastjóri, lögg. fasteignasali Guðmundur Sigurjónsson, lögfræðingur, lögg. fasteignasali Þorleifur St. Guðmundsson, lögg. fasteignasali Kjartan Hallgeirsson, lögg. fasteignasali Geir Sigurðsson, lögg. fasteignasali Hilmar Þór Hafsteinsson, lögg. leigumiðlari, lögg. fasteignasali Magnús Geir Pálsson, sölumaður Þórarinn M. Friðgeirsson, lögg. fasteignasali Jóhanna Valdimarsdóttir, gjaldkeri Elín Þorleifsdóttir, ritari Reykjavík Frá 1957 Elsta starfandi fasteignasala landsins S : 5 8 8 9 0 9 0 • S í ð u m ú l a 2 1 • 1 0 8 R e y k j a v í k w w w. e i g n a m i d l u n . i s HÚSNÆÐI ÓSKAST Ekrusmári - falleg eign Fallegt og vel- skipulagt 172,7 fm einbýli á einni hæð með innbyggðum bílskúr og glæsilegum garði með útihúsi og geymsluskúr. Húsið hefur nýlega verið endurnýjað að innan m.a. böð og eld- hús. V. 56,0 m. 5985 Hlíðarvegur - með glæsilegu út- sýni Efri hæð og ris í tvíbýlishúsi ásamt 40 fm bílskúr. Hæðin skiptist í forstofu, geymsla, innra hol, baðherbergi, herbergi, tvær sam- liggjandi stofur og eldhús. Í risi er hol, baðher- bergi, og þrjú herbergi. V. 37 m. 5966 Sigtún - mikið endurnýjuð íbúð í risi. Vel skipulögð og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð í risi í fallegu endurnýjuðu þrí- býli á fínum stað í austurborginni . Góðar inn- réttingar, parket, endurnýjað baðherbergi og fl. Nýl. gluggar, þak og húsið nýlega endur- steinað að utan. Frábær staðsetning. Laus fljótlega. V. 17,9 m. 5913 Kleppsvegur - 60 ára og eldri Vönd- uð og vel umgengin 2ja herbergja 88,6 fm íbúð á jarðhæð fyrir 60 ára og eldri. Laus strax. Góð sameign í húsinu með samkomu- sal og fl. Íbúar í þessu húsnæði, sem er í einkaeign, geta sótt ýmsa þjónustu til Hrafn- istu og eru með neyðarhnappa tengda Hrafn- istu. V. 21,8 m. 6017 Skrifstofubygging óskast - staðgreiðsla Skrifstofubygging - 2000-3000 fm óskast til kaups. Staðgreiðsla. Traustur aðili hefur beðið okkur að útvega 2000-3000 fm skrifstofubyggingu í Reykja- vík. Staðgreiðsla í boði. Nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson í síma 861-8514 Einbýlis- og raðhús í Fossvogi óskast Höfum fjársterka kaupendur að góðum einbýlis- og raðhúsum í Fossvogi. Allar nánari upplýsingar veita Kjartan Hallgeirsson í síma 824-9093 eða Sverrir Kristinsson í síma 861-8514. 2ja herbergja íbúðir óskast Fjársterkur kaupandi óskar eftir nokkrum 2ja herbergja íbúðum í lyftuhúsum á Höfuð- borgarsvæðinu. Íbúðirnar verða staðgreiddar ef um semst. Allar nánari uppl. veitir Magnús Geir Pálsson sölumaður á Eignamiðlun. Óskum eftir 3ja- 4ra í hverfi 104 Höfum kaupanda að góðri 3ja- 4ra herbergja íbúð, helst í lyftuhúsi í hverfi 104 (Sundin, Heimar, Vogar eða nágrenni). Um staðgreiðslu yrði að ræða ef um semst. Nánari uppl. veitir Magnús Geir Pálsson í síma 892-3686 Vantar - sérbýli í Vesturbænum Ákveðinn kaupandi leitar að sérbýli í Vesturborginni eða nágrenni í skiptum fyrir 121 fm sérhæð ásamt 30 fm bílskúr í Vesturbænum. Þorleifur St. Guðmundsson veitir nánari upplýsingar 6015 3ja - 4ra óskast í 107 eða 101 Óskað er eftir er 3-4 herbergja íbúð í sölu í vesturbænum. Viðkomandi skoðar einnig í hverfi 101. Verð allt að 25 millj, helst með áhvílandi lánum. Nánari uppl. veitir Hilmar Þór Hafsteinsson. Íbúð óskast í Fossvogi Traustur kaupandi óskar eftir 100-120 fm íbúð í Fossvoginum. Útsýnisíbúð óskast - staðgreiðsla Traustur kaupandi óskar eftir 120-160 fm íbúð með sjávarútsýni. Æskileg staðsetning: Sjálandshverfið í Garðabæ eða Skuggahverfið. Fleiri staðir koma þó til greina. Nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson. Jörð í nágrenni Reykjavíkur óskast Traustur kaupandi óskar eftir jörð (ekki bújörð) í nágrenni Reykjavíkur, þó innan 30 mín. akstursfjarlægðar. Allar nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson. Einbýlishús í Vesturborginni óskast. Æskileg stærð 400-500 fm Traustur kaupandi óskar eftir 400-500 fm einbýlishúsi í Vesturborginni. Góðar greiðslur í boði. Einbýlishús í Þingholtunum óskast - staðgreiðsla Óskum eftir 300-400 fm einbýli í Þingholtunum. Verð mætti vera á bilinu 80-150 millj- ónir. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson. Einbýlishús í Vesturborginni óskast - staðgreiðsla Óskum eftir 250-350 fm einbýli í Vesturborginni. Verð mætti vera á bilinu 90-150 millj- ónir. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson. Falleg, vönduð, björt og opin 105 fm íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi í miðbænum. Stæði í bíla- geymslu .Gott útsýni er yfir höfnina og til vesturs. Íbúðin er hönnuð af Margréti Sigfúsdóttur arkitekt og er vönduð á allan hátt. Upphaflegar teikningar gerðu ráð fyrir að íbúðin væri 3ja herbergja. V. 37,0 m. 5999 KLAPPARSTÍGUR - VÖNDUÐ ÍBÚÐ Fallegt 193,7 fm einbýlishús á einni hæð með tvöföldum bílskúr. Húsið skiptist í: Forstofu, gestasnyrtingu, eldhús, þvottahús, borðstofu, stofu, þrjú svefnherbergi og innbyggðan bíl- skúr. Hús og þak er nýmálað auk þess sem skipt hefur verið um gler í gluggum. V. 53,0 m. 6013 HOFGARÐAR - SELTJARNARNES Glæsileg og mikið endurnýjað efri sér- hæð í þríbýlishúsi með sérbílastæði á lóð/bílskúrsrétti. Húsið lítur vel úr og hefur m.a. verið endur steinað að ut- an. Að innan hefur verið skipt um inn- réttingar og gólfefni á s.l. árum. V. 27,9 m. 5827 BARMAHLÍÐ 23 - SÉRHÆÐ - 4RA HERB. Fallegt 198 fm endaraðhús á fjórum pöllum ásamt 24 fm bílskúr. Gott aðgengi er að húsinu og hægt er að leggja við enda hússins ofan á bílskúrunum. Húsið er þó nokkuð endurnýjað m.a. eldhús, þak og fl. Útsýni er úr stofu og skjólgóður suðurgarður. V. 51,9 m. 6000 LOGALAND - FALLEGT RAÐHÚS OPIÐ HÚS OPIÐ HÚS MÁNUDAG FRÁ KL. 17:00 - 18:00

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.