Morgunblaðið - 18.09.2010, Síða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 2010
Frændi minn Hjalti
Bjarnason var um
margt óvanalegur
maður. Hár vexti,
þreklegur og ekki laus
við að vera ögn stirð-
busalegur sem algengt er meðal okk-
ar sem ættaðir erum frá Eystri-
Garðsauka í Hvolhreppi. Mér er í
barnsminni þegar ég heyrði þessa
frænda míns fyrst getið þjóðhátíðar-
árið 1974. Afi minn og faðir Hjalta
var þá nýlátinn og þá fyrst komst í
hámæli í stórfjölskyldunni að auk
systkinanna sjö úr Bláfelli ætti móðir
mín eldri bróður í Landeyjunum, ógn
stóran og mikinn á velli. Rámar í
samtöl heima í Tungunum þar sem
haft var í flimtingum að stærri og
meiri á velli gerðust bændur á Suður-
landi ekki. Veltum við krakkaskamm-
irnar fyrir okkur hvort karl þessi
væri þá meiri um sig en sæðingamað-
urinn í sveitinni, Gísli í Kjarnholtum.
Undir vor var farið í heimsókn að
Hólmahjáleigu og sjálfum var mér
það nokkur upphefð að eiga frænda
sem var alvöru bóndi, verandi sjálfur
af hálfgildings grashúsfólki í Tung-
unum. Og þá sannfærðist ég ung-
lingsbarnið um að frændi minn væri
ólíkt meiri Gísla í Kjarnholtum, þó að
sá síðarnefndi væri gildari, svo miklu
hærri var frændi minn. Aðeins hafði
tognað úr mér þegar ég næst kom á
heimili frænda míns sem þá var flutt-
Hjalti Bjarnason
✝ Hjalti Bjarnasonfæddist á Strönd í
Vestur-Landeyjum
hinn 26. október
1928. Hann lést
sunnudaginn 8. ágúst
2010.
Útför Hjalta fór
fram 21. ágúst 2010.
ur á Hvolsvöll. Þá eftir
ball í Hvolnum var ég
vegalaus og hafði hálf-
vegis sofið af mér næt-
urferðir allar vestur í
mína heimasveit. Fékk
ég að lúra til morguns á
heimili þeirra heiðurs-
hjóna Hjalta og Guð-
rúnar Sigurðardóttur í
Litlagerði á Hvolsvelli.
Þangað átti ég eftir að
koma nokkrum sinnum
löngu síðar og átti jafn-
an góðu að mæta, bæði
frændrækni og hrein-
skilni. Í tali var Hjalti hreinn og
beinn og sagði refjalaust það sem
honum bjó í brjósti án þess að skeyta
því alltaf hvað viðhlæjendum þætti.
En nær er þó að kenna Hjalta við
bæinn Strönd og síðar Hólmahjá-
leigu, þar sem hann bjó blönduðu og
snotru búi í rúma tvo áratugi. Hjalti
var fæddur á Strönd 1928, sonur eldri
heimasætunnar þar, Önnu Guðna-
dóttur og bóndasonar frá Garðsauka,
Bjarna Sæmundssonar, sem lengst
átti heima í Hveragerði. Anna móðir
Hjalta giftist síðar í Hafnarfjörð en
uppeldismóðir Hjalta var móðursystir
hans, Guðríður Guðnadóttir sem
fædd var 1913 og giftist ekki. Aðeins
er nú rúmt ár milli þeirra fóstur-
mæðgina Hjalta og Guðríðar, en hún
lést í hárri elli í apríl á síðasta ári.
Einkar kært var alla tíð með þeim og
heitir yngsta barn Hjalta og Guð-
rúnar í höfuðið á þessari heiðurskonu.
Í ættir fram var Hjalti kominn af
bændafólki í Rangárþingi. Afi hans
og fóstri var Guðni Einarsson, bóndi
á Strönd, sem var eins og margir
Rangæingar af ætt Presta-Högna.
Kona Guðna var Guðrún, dóttir Ein-
ars smiðs í Kofanum í Holtum sem
var þekktur maður fyrir hagleik,
greiðvikni og einstaka nægjusemi.
Bjarni faðir Hjalta var sonur Sæ-
mundar, bónda og sparisjóðsstjóra í
Eystri-Garðsauka og Rannveigar
Bjarnadóttur, vinnukonu á Efstu-
Grund undir Eyjafjöllum. Rannveig
sú var komin af Magnúsi ríka í
Skaftárdal en faðir Sæmundar var
Oddur ríki á Sámsstöðum þó heldur
hafi auðsæld þeirra kappa erfst lak-
lega.
Bjarni Harðarson.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Kveðja,
púðarnir þínir,
Sighvatur Bjarki og
Gabriel Brynjar.
✝ Þórunn Björns-dóttir fæddist 15.
ágúst 1911 í Svínadal í
Skaftártungu. Hún
lést 10. september
2010.
Hún var dóttir
hjónanna Björns Ei-
ríkssonar, f. 1861, d.
1922, og Vigdísar Sæ-
mundsdóttur, f. 1872,
d. 1955. Þórunn ólst
upp í stórum systk-
inahópi, en alls voru
þau 13 alsystkini og
einn hálfbróðir sam-
feðra, Björn, f. 1887, d. 1984. Hin
voru Valmundur, f. 1897, d. 1898.
Valmundur, f. 1898, d. 1973. Eiríkur,
f. 1900, d. 1998. Kjartan, f. 1901, d.
1997. Kristín, f. 1903, d. 1981. Sum-
arliði, f. 1906, d. 1996. Sæmundur, f.
1907, d. 1999. Sveinn, f. 1908, d. 1993.
Sigurjón, f. 1909, d. 1995. Jón, f. 1912,
d. 2006, Jón, f. 1914, d. 2009. Yngst
og eftirlifandi er Sigurlaug, f. 1919.
grét, f. 2003. 3) Sigríður Margrét, f.
1969. Maki Helgi Júníus Jóhanns-
son, f. 1968. Börn þeirra: Þórunn
Ásta, f. 1992, Jóhann Valgeir, f.
1995, Oddur Heiðar, f. 2003. 4) Sól-
rún Erla, f. 1972. Maki Gylfi Viðar
Guðmundsson, f. 1964. Börn þeirra:
Sigrún Bryndís, f. 1992. Sóldís Eva,
f. 1999. Ingi Gunnar, f. 2008.
Þórunn ólst upp í Svínadal í Skaft-
ártungu. Tvívegis fór hún í vinnu-
mennsku í Reykjavík, annars vegar
18 ára gömul og hins vegar 22 ára
og vann þá við ýmis heimilisstörf.
Árið 1937, þá 26 ára gömul, flutti
Þórunn að Búlandi í Skaftártungu
til Ólafs þar sem hann var vinnu-
maður en þau höfðu kynnst nokkru
áður. Þau hófu sinn búskap á Bú-
landi. Árið 1943 fluttu hjónin að
Giljum í Mýrdal, héldu áfram bú-
skap þar og keyptu jörðina skömmu
síðar. Þórunn vann við heimilið og
búskapinn. Þau voru búsett á Giljum
alla tíð síðan en hættu búskap árið
1987 þegar dóttursonur þeirra tók
við.
Útför Þórunnar fer fram frá Vík-
urkirkju í dag, 18. september 2010,
kl. 14.
Þórunn giftist 14.
maí 1938 eftirlifandi
eiginmanni sínum
Ólafi Árna Jóhanni
Péturssyni, f. 12.6.
1909 í Vík í Mýrdal.
Ólafur er sonur
hjónanna Péturs Han-
sen, f. 1874, d. 1956 og
Ólafíu Árnadóttur, f.
1882, d. 1950. Þórunn
og Ólafur fögnuðu 72
ára brúðkaupsafmæli
í maí sl.
Einkadóttir Þór-
unnar og Ólafs er Sig-
rún Bryndís Ólafsdóttir, f. 5. október
1941. Maki Gunnar Þorsteinsson, f.
17.3. 1923, d. 13.1. 2006. Barnabörn
Þórunnar eru 1) Ólafur Þorsteinn, f.
1965, maki Birna Kristín Péturs-
dóttir, f. 1962, börn þeirra María, f.
1988, Gunnar, f. 1993, Kristín, f.
2002. 2) Þórir Auðunn, f. 1967. Börn
hans Silja Embla, f. 1994, Margrét
Klara, f. 2003, og Hrafnhildur Mar-
Mig langar að minnast ömmu minn-
ar í fáum orðum. Amma var hetja
hversdagslífsins. Nær aldargömul
manneskja er manneskja sem býr yfir
mikilli visku og fróðleik. Amma ólst
upp í torfkofa og gekk í gegnum ótrú-
legar samfélagsbreytingar á sinni ævi.
Eftir að byrjaði að gjósa í Eyjafjalla-
jökli var hún ein af þeim fáu sem
mundu eftir Kötlugosinu 1918 og var
mikið að gera hjá henni og afa síðustu
mánuði við að fræða fjölmiðlamenn frá
hinum ýmsu fjölmiðlum í heiminum
um hvernig upplifunin af því gosi var.
Hún sagði þó að hún vildi ekki upplifa
annað Kötlugos og henni varð að þeirri
ósk sinni. Öll þau viðtöl og upptökur er
nú enn mikilvægara fyrir fjölskylduna
að eiga til minningar. Amma var dug-
leg kona sem vildi hafa allt á hreinu í
kringum sig og vita allt um sína nán-
ustu. Amma tók þá ákvörðun fyrir
mörgum árum að hún ætlaði aldrei á
elliheimili, hún gat staðið við það með
dyggri aðstoð frá afa og fleirum. Hún
var alltaf ákveðin í að dvelja heima hjá
sér sem lengst þótt leikmönnum hafi á
stundum fundist sem það væri vart
framkvæmanlegt. En það voru alltaf
fundnar lausnir og það var alltaf stefnt
áfram og upp úr þeim vanda sem upp
kom. Amma var bundin í hjólastól sein-
ustu árin en alltaf talaði hún um að hún
væri alveg að fara að geta gengið aftur.
Minnug var hún og skýrari í hugsun
en margir sem eru tugum árum yngri.
Það var oft eins og maður væri frekar
að tala við vinkonu sína en aldraða
ömmu sína.
Alltaf var lifað í þeirri hugsun að
aldrei væri neitt of seint, hún hætti til
dæmis að reykja 75 ára og hefði trúleg-
ast ekki náð svona háum aldri nema
fyrir þá ákvörðun. Það er skrýtin og
leiðinleg tilhugsun að hún sé ekki leng-
ur til staðar, en á móti kemur þakklæti
fyrir að hafa fengið að njóta góð-
mennsku hennar og gæsku í öll þessi
ár.
Sólrún.
Það er erfitt að sætta sig við þá stað-
reynd að langamma sé dáin. Við systk-
inin kölluðum hana alltaf ömmu Þór-
unni. Amma Þórunn og afi Óli tóku
alltaf vel á móti okkur og því var gott
að koma í sveitina. Það var alltaf pass-
að upp á að enginn væri svangur og að
vel færi um alla.
Amma Þórunn hafði gaman af að
segja sögur frá liðinni tíð. Ekki fyrir
löngu átti ég að gera verkefni í skól-
anum og taka viðtal við eldri mann-
eskju. Ég tók viðtal við ömmu Þórunni
og eru þær upplýsingar sem ég fékk,
mér mjög dýrmætar í dag. Hún sagði
mér meðal annars frá því að þegar hún
var 18 ára gömul fór hún að heiman í
vinnu. Hún fór til Reykjavíkur að þéna
eins og hún orðaði það. Í dag er ég á
sama aldri og í sumar fór ég að vinna
fjarri heimili mínu. Ég var svo heppin
að vinnan mín var rétt hjá sveitinni
minni, Giljum, og kom ég því oft við
hjá ömmu Þórunni og afa Óla í sumar
og spjallaði við þau og rétti þeim hjálp-
arhönd. Amma Þórunn var alltaf mjög
glöð að sjá mig og sagðist alltaf hlakka
til að sjá mig næst þegar ég kæmi.
Þetta þótti mér vænt um.
Sveitin verður ekki söm án ömmu
Þórunnar, en amma verður alltaf í
hjarta mínu. Ég er stolt af að hafa átt
svona góða langömmu og að bera
nafnið hennar.
Þórunn Ásta Helgadóttir
Þórunn Björnsdóttir
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
ÓLÖF HELGADÓTTIR,
Austvaðsholti,
Landssveit,
verður jarðsungin frá Lágafellskirkju mánudaginn
20. september kl. 14.00.
Ólafur Grétar Óskarsson, Steinunn Thorarensen,
Sveinbjörn Benediktsson,
Helgi Benediktsson, Regula Verena Rudin,
Jón Gunnar Benediktsson, Nicole Chene,
Hjörtur Már Benediktsson, Björg Hilmisdóttir
og fjölskyldur.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
REYNIR GUNNARSSON,
Ekru,
Reyðarfirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað
þriðjudaginn 14. september.
Útförin fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju miðviku-
daginn 22. september og hefst athöfnin kl. 14.00.
Þórdís Pála Reynisdóttir,
Margrét Brynja Reynisdóttir,
Kristbjörg Sunna Reynisdóttir,
Gunnar Örnólfur Reynisson
og fjölskyldur.
✝
Móðursystir okkar,
ELÍN PJET. BJARNASON
myndlistarkona í Kaupmannahöfn,
er látin.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Pjetur Hafstein Lárusson,
Svavar Hrafn Svavarsson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
GUNNAR NÍELS GUÐMUNDSSON
fyrrv. bóndi og veitingamaður
í Fornahvammi,
Kleppsvegi 118,
Reykjavík,
sem lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
13. september, verður jarðsunginn frá Áskirkju
þriðjudaginn 21. september kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
Gunnars er bent á Minningarsjóð FAAS (Félags áhugafólks og
aðstandenda Alzheimerssjúklinga) sem hægt er að nálgast á
alzheimer.is eða í síma 533-1088.
Lilja Guðrún Pálsdóttir,
Hafdís Pálrún Gunnarsdóttir,
María Björg Gunnarsdóttir, Sigurgeir Sigurgeirsson,
Árni Gunnarsson, Kristín Ástþórsdóttir,
Gunnar Austmann Kristinsson, Alda Lovísa Tryggvadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
JÓN ÞÓRÐARSON,
Stekkjargötu 17,
Njarðvík,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
þriðjudaginn 14. september, verður jarðsunginn frá
Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 22. september
kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
Jóns er bent á Styrktarfélag Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Þórunn Gottliebsdóttir,
Brimhildur Jónsdóttir, Anton Pálsson,
Ríkharður Jónsson, Hugrún Helgadóttir,
Hrafn Jónsson, Hulda Sveinsdóttir,
Margrét Jónsdóttir, Tobías Brynleifsson
og fjölskyldur.