Morgunblaðið - 18.09.2010, Side 43
Óttar Einarsson ávarpar ÓmarRagnarsson í tilefni af afmæl-
inu og spyr:
Þú ert okkar þjóðarlán.
Þú ert fylling vonar
því hvernig væri Ísland án
Ómars Ragnarssonar?
Davíð Hjálmar Jónsson kann að
meta náttúruna eins og Ómar og
yrkir um útiveruna síðsumars:
Menn um holt og hóla rápa;
heillar það sem markvert er.
Karlarnir í kíki glápa.
Kvennahópur tínir ber.
Einu sinni datt Hólmfríði Bjart-
marsdóttur, sem stundum er kölluð
Fía á Sandi, í hug:
Oft er vit í orðin lagt
oft er snilld að brúka kjaft.
En orðið sem var aldrei sagt
oft er lengst í minni haft.
„Vísnagerð til afþreyingar“ er
yfirskrift þessarar stöku úr fórum
hennar:
Tímann þétta viljum vér
vekja léttan anda.
Glíman rétta einatt er
orðfæð sléttubanda.
Þorgrímur Einarsson, sem átti
lengi og rak gróðrarstöðina Garðs-
horn í Fossvogi, orti á sínum tíma:
Nokkrir strákar standa og masa
starfa ekki par.
Er þá gott að eiga vasa
undir hendurnar.
Hér með leiðréttist fyrri vísa Ing-
ólfs Ómars Ármannssonar um Pét-
ur Stefánsson:
Strengi hörpu stilla kann
stökur margar semur
andagiftin yfir hann
öllum stundum kemur.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Ómari og kvennahópi
DAGBÓK 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 2010
Góð berjasaft
Halldóra Jónsdóttir á
Siglufirði hafði sam-
band við Velvakanda
og vildi vekja athygli á
uppskrift að mjög góðri
berjasaft sem birt var í
Morgunblaðinu 12.
september 1995. Hún
segist þó hafa aukið sí-
trónusafann aðeins og
segir best að blanda
saman bláberjum og
krækiberjum.
1 ltr berjasafi
safi úr tveim sí-
trónum
150 g sykur
Allt sett í pott, látið sjóða vel upp,
kælt og sett í hálfs lítra flöskur og
fryst. Tekið úr frysti eftir því sem
notað er og þá blandað til helminga
með vatni.
Halldóra Jónsdóttir Siglufirði.
Biblían segir
Í Kastljósþætti sjón-
varpsins síðastliðinn
miðvikudag ræddi
Helgi Seljan við Úlfar
Þormóðsson. Úlfar
sagði að guð Biblíunn-
ar væri hrotti og þar
væri mikið talað um
nauðganir. En Jesús
segir að hver sem lítur
konu með girndarhug
hafi drýgt hór. Á þess-
um orðum má sjá hvað
þetta er fjarri nauðg-
un. Eins og segir í
sálmi nr. 103: „Eins og
faðir sýnir miskunn
börnum sínum, eins sýnir guð mis-
kunn þeim sem óttast hann.“ Biblían
segir að Gamla testamentið sé skrif-
að okkur til viðvörunar.
Óla Sveinbjörg Jónsdóttir.
Ást er…
… að sætta sig við að
enginn er fullkominn.
Velvakandi
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
Morgunblaðið gefur
út glæsilegt sérblað
um fjölskyldubíla,
atvinnubíla, jeppa,
pallbíla o.fl.
föstudaginn
1. október.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 27. september.
Blaðið er góður kostur fyrir þá
sem vilja vekja athygi á vörum
sínum og þjónustu.
SÉ
RB
LA
Ð
Bílablað
Heimir Bergmann
heimir@mbl.is
Sími: 569-1145
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG HEF VERIÐ VAKANDI
Í 72 KLUKKUTÍMA
EKKI Í RÖÐ... EN ÞETTA
ER SAMT HELLINGUR
VEISTU
HVAÐ?
ÞAÐ ER ÁHUGAVERT MERKILEGT HVAÐ VIÐ
HÖFUM ÓLÍK ÁHUGASVIÐ
SÍÐASTA PÍANÓIÐ SEM
BEETHOVEN ÁTTI VAR SENT
Í VIÐGERÐ TIL NÜRNBERG
ÉG ER LEIÐ Á ÞVÍ AÐ ÞÚ
TAKIR ALDREI TIL EFTIR
ÞIG OG KOMIR ALLTAF
SEINT HEIM Á KVÖLDIN!
EKKI ÖSKRA
SVONA HÁTT,
HELGA...
NÁGRANNARNIR
GÆTU HALDIÐ AÐ
HJÓNABANDIÐ OKKAR
GANGI EKKI NÓGU VEL
BÍDDU
NÚ
HÆGUR...
ÞÚ ERT
BARA
BRÚÐA!
RAJIV, FRÆNDI ÞINN STÓÐ SIG MJÖG
VEL! NÝJA HEIMASÍÐAN ER MJÖG FLOTT!
VIÐ HEFÐUM ANNARS
ÞURFT AÐ BORGA MÖRG
HUNDRUÐ ÞÚSUND FYRIR
SAMBÆRILEGA HEIMASÍÐU
EN VIÐ ÞURFTUM BARA AÐ
KAUPA EINA XBOX 360
TAKK
KÆRLEGA FYRIR
VIÐSKIPTIN
Á MEÐAN...ELECTRO VERÐUR
AÐ FÁ AÐ BÍÐA...
Á MEÐAN ÉG FER OG
HEIMSÆKI MAY
FRÆNKU Á SPÍTALANN
EKKERT GETUR
HALDIÐ MÉR FRÁ
BORGARSTJÓRANUM
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Hlutavelta
Rakel Ösp,
Eyrún Embla,
Benedikta og
Heiðdís Erla
héldu tombólu í
Mosfellsbæ og
söfnuðu 4.021
kr. sem þær
færðu Rauða
krossinum.