Morgunblaðið - 18.09.2010, Blaðsíða 46
46 MENNINGFréttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 2010
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Árni Sveinsson reið feitumhesti frá seinustuSkjaldborgarhátíð þvítónlistarmynd hans
Backyard hlaut þar áhorfenda-
verðlaun. Hún er einnig fyrsta
myndin í sýningum í hinu nýja
kvikmyndahúsi Bíó Paradís, sem
var opnað í fyrradag í húsinu sem
áður hýsti Regnbogann. Þá verður
nýjasta heimildarmynd Árna í
fullri lengd, Með hangandi hendi,
frumsýnd á Alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í Reykjavík, RIFF,
29. september n.k. en í henni er
fjallað um hinn ástsæla söngvara
Ragnar Bjarnason, Ragga Bjarna.
„Ég hef alltaf tengst tónlist
mikið, ég hef verið mjög lengi
plötusnúður og var mjög mikill
plötusafnari, hef þrátt fyrir ungan
aldur örugglega safnað plötum í
20 ár. Og ég er búinn að viður-
kenna þessa fíkn mína og er búinn
að taka í taumana eftir að hafa
fyllt allar geymslur skyldmenna,“
segir Árni sposkur.
– Þú ert í góðum bata?
„Ég vona það. En spyrjum að
leikslokum,“ segir Árni og hlær.
Átti ekki að halda tónleika
Í Backyard er fylgst með liðs-
manni hljómsveitarinnar FM Bel-
fast, Árna Rúnari Hlöðverssyni,
sem jafnan er nefndur Árni plús-
einn, og mikilli upptökutörn sem
hann stóð fyrir í bakgarði við
heimili sitt í miðbæ Reykjavíkur,
við Frakkastíg, á Menningarnótt í
fyrra. „Það er fyndið að segja frá
þessu, í raun og veru var þetta
aldrei hugsað sem tónleikar en
endaði sem tónleikar, í rauninni.
Fyrst og fremst var þetta hugsað
sem upptökusessjón, ekkert aug-
lýst. Eina auglýsingin í rauninni
var sú að hann gerði öllum ná-
grönnum sínum viðvart með bréfi
og bauð þeim um leið að kíkja við
og hlusta á tónlistina ef þeir vildu.
Síðan spyrst það út og á endanum
var komið heilmikið af fólki
þarna,“ útskýrir Árni. Villuráfandi
ferðamenn hafi runnið á hljóðið og
kynnt sér hljómsveitirnar, þ.e. FM
Belfast, Retro Stefson, Hjaltalín,
múm, Borko, Sin fan bous og
Reykjavík!. Árni segist hafa
stungið upp á því við nafna sinn
að taka viðburðinn upp á mynd-
band og hann hafi tekið vel í það.
Hann hafi þá farið að mynda Árna
við undirbúninginn og í rauninni
gabbað hann, sagt honum að hann
væri að taka þetta upp sem auka-
efni tengt viðburðinum sem væri
t.d. hægt að setja á netið.
– Hvenær komst hann svo að
því að þetta væri orðin mynd í
fullri lengd?
„Bara þegar ég sýndi honum
fyrsta klipp,“ segir Árni kíminn.
Og með því að segja ekki tónlist-
armönnunum að verið væri að
taka efni í tónlistarmynd, hafi
andrúmsloftið orðið afslappaðra en
annars hefði verið. „Ég held það
skili sér í myndinni, það eru allir
mjög afslappaðir. Stundum þegar
eru kamerur er fólk að setja sig í
stellingar og hlutverk,“ segir Árni.
Heimildarmyndagerðarmenn þurfi
oft að eiga í slíkri glímu, að fá fólk
til að slaka á þegar upptökuvél sé
beint að því.
Þorgeir átti frumkvæðið
– Þessi mynd um Ragga Bjarna,
hver er forsagan að henni?
„Þorgeiri Ástvaldssyni, sem hef-
ur verið að vinna svolítið með
Ragga Bjarna í gegnum tíðina og
mikið síðastliðin ár, fannst nauð-
synlegt að gera eitthvað um karl-
inn og talaði við dóttur sína, Evu,
og hún fór að garfa í þessu og við
þekkjumst í gegnum eiginmann
hennar sem er góður vinur minn.
Hún kom að máli við mig og
spurði hvort ég vildi skoða þetta
og ég fór í einar tvær ferðir með
þeim félögum út á land að spila,“
segir Árni. Hann hafi tekið upp
myndefni í þeim ferðum og kynnst
Ragga og Þorgeiri og í kjölfarið
hafi hann skrifað handrit að
myndinni. „Það var almenn
ánægja með það og þá var bara
hafist handa.“
Árni segir Ragga hafa séð
myndina ásamt eiginkonu sinni, þó
ekki í endanlegri útgáfu, og þau
hjónin hafi verið sátt við hana.
Höndin Raggi Bjarna syngur gjarnan með hangandi hendi en þó ekki hér. Árnar Árni Sveinsson vinstra megin með nafna sínum Árna plúseinum sem stóð í ströngu fyrir bakgarðsveislu.
Í bakgarðinum með hangandi hendi
Nýjasta heimildarmynd Árna Sveinssonar, Með hangandi hendi, verður frumsýnd á RIFF
Árni segir best að fólk viti ekki af því að verið sé að gera heimildarmynd, þá verði allir afslappaðir
Árni er ekki lærður kvikmynda-
gerðarmaður en þó margreyndur.
Hann var m.a. einn umsjónar-
manna sjónvarps-
þáttanna Kol-
krabbinn í Sjón-
varpinu en þar
þurfti hann að
ganga í ýmis
störf auk
dag-
skrár-
gerðar,
m.a.
mynda og klippa. Hann hefur gert
þrjár heimildarmyndir í fullri
lengd, Í skóm drekans, Backyard
og Með hangandi hendi.
Fyrsta heimildarmynd Árna í
fullri lengd, Í skóm drekans, olli
miklu fjaðrafoki hjá skipuleggj-
endum fegurðarkeppninnar
Ungfrú Ísland en í henni skráði
systir Árna, Hrönn, sig í keppnina
og er fylgst með öllu ferlinu í
kringum hana í myndinni. Myndin
hlaut Edduna árið 2002 sem heim-
ildarmynd ársins.
Tannhvass dreki
EDDUVERÐLAUNAMYNDIN Í SKÓM DREKANS
Í skóm
drekans.
www.riff.is
www.krummafilms.com
Eins árs nám í Flórens, Milanó, eða Róm
Istituto Europeo di Design hefur í rúm 40 ár verið í fremstu röð
Evrópskra hönnunarskóla. Nám hjá IED hentar nemum sem lokið
hafa grunnnámi á hönnunar- og listasviði eða í viðskiptum.
Eins árs nám hjá IED hefst í janúar 2011 og er kennt á ensku.
Námið er lánshæft hjá LÍN.
H Ö N N U N • M I Ð L U N & T Í Z K A