Morgunblaðið - 19.10.2010, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 9. O K T Ó B E R 2 0 1 0
Stofnað 1913 244. tölublað 98. árgangur
BYLTINGARKVÖÐ,
HUGSJÓNAÞRÁ
OG HRUNIÐ
AIRWAVES-
PARTÍ Í
BLÁA LÓNINU
FJÖR Í FULLORÐINS-
FIMLEIKUM
HLÝJA SÉR EFTIR VOLK ENGINN OF GAMALL 10SÝNING PÁLS HAUKS 30
Þorbjörg Gísladóttir yfirþjálfari
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Vinna við undirbúning fjárhagsáætl-
unar Reykjavíkurborgar fyrir árið
2011 er skemmra á veg komin en
verið hefur á þessum tíma á undan-
förnum árum. Borgarstjóri hefur tví-
vegis óskað eftir fresti til að leggja
frumvarpið fram. Sveitarstjórnum
er skylt að ganga frá fjárhagsáætlun
fyrir lok árs og nú er stefnt að síðari
umræðu á aukafundi 14. desember.
Jón Gnarr borgarstjóri var vant
við látinn í gær en aðstoðarmaður
hans, S. Björn Blöndal, nefnir sem
skýringu á seinkun á vinnunni að
fulltrúar Besta flokksins séu að
koma að slíkri vinnu í fyrsta skipti.
„Þetta er erfiðasta fjárhagsáætlun-
argerð sem hér hefur verið unnin, í
langan tíma, þriðja árið í röð með
sparnaði og efnahagslífið blómstrar
ekki beint,“ segir hann. Hann tekur
fram að vinnan gangi vel, þrátt fyrir
allt.
Borgarstjóri lagði fyrir sviðs-
stjóra borgarinnar að meta hvernig
þeir gætu unnið úr allt að 10% sparn-
aði. Í framhaldinu fól hann þeim að
vinna áfram ákveðnar hugmyndir
sem eiga að mynda grunn að fjár-
hagsáætlun sviðanna.
Þessi bréf borgarstjóra hafa ekki
verið lögð fram í borgarráði sem
hingað til hefur úthlutað útgjalda-
römmum. Aðgerðahópur um fjármál
borgarinnar fékk upplýsingarnar
með eftirgangsmunum og eru þær
bundnar trúnaði.
Samkvæmt verk- og tímaáætlun
sem gerð var í maí átti þessi vinna að
fara fram í september og frumdrög
fjárhagsáætlunar að liggja fyrir í
byrjun október. Borgarstjóri hefur
óskað eftir því að leggja frumvarpið
fyrir borgarráð 18. nóvember og fyr-
ir borgarstjórn 30. nóvember. »2
Vinnan vikum á eftir áætlun
Borgarstjóri hefur tvisvar óskað eftir fresti til að leggja fram frumvarp að fjár-
hagsáætlun Borgarráð hefur ekki verið haft með í ráðum við undirbúninginn
Veturinn byrjaði að láta fyrir sér finna í borginni í gær eftir óvenjulega
hlýtt haust. Snjóföl var í Esjunni þegar borgarbúar vöknuðu og heldur
napurlegt um að litast. Sólin er þó ekki horfin með öllu og náði að ylja
göngufólki í Árbænum í gærdag þrátt fyrir kulda í lofti.
Síðdegisganga á stíflunni
Morgunblaðið/Golli
Launafólk á höfuðborgarsvæðinu og
Suðurnesjum hefur skorið niður út-
gjöld í stórum stíl á umliðnum mán-
uðum og hefur miklar fjárhags-
áhyggjur. Ný könnun Gallup meðal
22 þúsund félagsmanna Flóafélag-
anna, sýnir að mun fleiri hafa dregið
úr útgjöldum vegna heilbrigðisþjón-
ustu nú en í sambærilegri könnun í
fyrra. Rúmur fjórðungur félags-
manna hefur skorið niður útgjöld til
heilbrigðisþjónustu samanborið við
19,3% í fyrra.
60% kvenna segjast hafa dregið úr
matarinnkaupum og 69% karla hafa
skorið niður útgjöld vegna ferða-
laga.
„Það er bara allt skorið, það er allt
skorið sem menn geta verið án og
svo reyna menn að halda haus gagn-
vart skuldunum,“ segir Kristján
Gunnarsson, formaður Verkalýðs-
og sjómannafélags Keflavíkur og
formaður Starfsgreinasambandsins.
Meginástæða fjárhagsáhyggna
fólks eru lág laun. 40% kvenna og
28% karla segja meginástæðu fjár-
hagsáhyggna vera að launin dugi
ekki til. Næststærsti hópurinn nefn-
ir verðbólgu og vexti. Rúmur fjórð-
ungur fólks segir hins vegar skuldir
og hækkun lána aðalástæðu þess að
það hefur áhyggjur af fjárhagnum.
Kristján segir þetta benda til að
fólk leggi áherslu á að standa í skil-
um, þrátt fyrir þröngan fjárhag.
Þetta megi líka glögglega sjá hjá líf-
eyrissjóði félagsmanna þar sem ekki
hefur orðið vart við aukin vanskil.
„Þetta eru allt saman merki um að
greiðsluvandinn er gríðarlega mik-
ill,“ segir Kristján um könnunina.
Færri búa í eigin húsnæði
Athygli vekur að sífellt stærri
hluti félagsmanna býr í leiguhús-
næði eða foreldrahúsum. Fyrir
tveimur árum bjuggu um 75% í eigin
húsnæði, hlutfallið var komið undir
70% í fyrra. Núna segjast 59,9% búa
í eigin húsnæði og meðal fé-
lagsmanna Eflingar stéttarfélags,
sem í eru um 18.500 félagsmenn, eru
í dag 54,2% í eigin húsnæði. »6
„Það er bara
allt skorið sem
menn geta“
Mestar áhyggjur af lágum launum
27,8% nefna skuldir og hækkun lána
Byr sparisjóð-
ur og netbankinn
s24, sem er í eigu
Byrs, hafa und-
anfarna tólf
mánuði boðið
hærri innlánsvexti en aðrir bankar
hér á landi og hefur munurinn í
ákveðnum tilvikum og á ákveðnum
tímapunktum verið umtalsverður.
Munurinn á vöxtum s24 og vöxt-
um stóru bankanna þriggja hefur
verið vel yfir heilu prósentustigi á
tímum. Ekki eru til nýjar tölur um
innlán í Byr og s24, en á hrunárinu
2008 tvöfölduðust innlán í samstæð-
unni og fóru úr 81 milljarði í 151
milljarð króna. Ríkið hefur nú
ákveðið að lána Byr 5 milljarða
króna. » 14
Söfnuðu innlánum
með hærri vöxtum
Maður slas-
aðist alvarlega í
sprengingu í
heimahúsi á
Siglufirði í gær-
kvöldi. Hann var
fluttur með
sjúkrabíl á Fjórð-
ungssjúkrahúsið
á Akureyri.
Sprengingin
varð í þvottahúsi eða geymslu á
neðri hæð tvílyfts timburhúss upp
úr klukkan átján. Sprengingin var
svo öflug að útihurð á herberginu
og tveir gluggar þeyttust út. Mað-
urinn var staddur í herberginu.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
var hann allur sótugur, skrámaður
og heyrði ekkert.
Ekki er vitað um ástæður spreng-
ingarinnar. Menn frá rannsóknar-
deild lögreglunnar á Akureyri
koma í dag til að rannsaka málið.
Slasaðist í spreng-
ingu á Siglufirði
Frá Siglufirði.
Fyrstu kröfur stéttarfélaga vegna endurnýjunar
kjarasamninga eru farnar að líta dagsins ljós. Eining-
Iðja á Akureyri hefur skilað Starfsgreinasambandinu
kröfum sínum á hendur SA, ríki og sveitarfélögum.
Krefst félagið aukins kaupmáttar, að samið verði um
kauphækkanir í krónutölu og að lægstu taxtar hækki
umfram önnur laun. Gerðar eru þær kröfur á ríkið að
skattleysismörk verði hækkuð og skattprósenta á
laun undir 250 þús. kr. lækki. Félagið vill gera kjara-
samning til skamms tíma.
Hækkun taxta og skattalækkun
EINING-IÐJA HEFUR SETT FRAM KRÖFUR SÍNAR
Sr. Bjarni
Karlsson, vara-
borgarfulltrúi
Samfylking-
arinnar, segir það
ábyrgðarlaust af
mannréttindaráði
að leggja til að
jaðarsetja æsku-
lýðsstarf kirkj-
unnar í borginni
og hafna fagþjón-
ustu presta þegar áföll verða. „Það
sem núna þarf að gerast, í stað þess
að skipun komi að ofan eins og núna
er verið að gera skóna, þurfa skóla-
stjórnendur og prestar í borginni að
tala saman. Það þarf að fara fram
samtal á milli skólasamfélagsins og
kirkjusamfélagsins og mannrétt-
indaráð þarf að taka þátt í því sam-
tali en má ekki taka að sér sam-
talið.“ Bjarni telur tillögurnar ekki í
anda þess samstarfs sem Besti flokk-
ur og Samfylking mótuðu. „Þar eru
mjög skýrar áherslur á valddreif-
ingu og hverfisvæðingu. Þannig
ganga þessar tillögur alveg þvert á
það sem hefur verið talað um. Þær
skjóta skökku við.“ »4
Gengur þvert á anda
meirihlutasamstarfs
Sr. Bjarni
Karlsson
32