Morgunblaðið - 19.10.2010, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2010
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Stærðir
42-56
Sparitoppar
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Litir;
svart og rautt.
Str. 36 - 56.
Kíkið á heimasíðuna okkar
rita.is
- nýr auglýsingamiðill
Finnur.is er nýr miðill fyrir þá sem eru að leita
að vinnu, húsnæði, bíl og nánast hverju sem er.
KYNNINGARTILBOÐ
Smáauglýsing
án myndar: 990 kr.
Smáauglýsing
með mynd: 1.500 kr.
–– Meira fyrir lesendur
- nýr auglýsingamiðill
Eftir mikil fundarhöld í viðræðum
ríkisins og lífeyrissjóða um fjár-
mögnun stórframkvæmda í vega-
gerð, liggur nú fyrir samkomulag
um meginforsendur verkefnanna.
Enn er þó ólokið samningum um
vaxtakjör, tryggingar og skilmála
væntanlegra samninga við lífeyris-
sjóðina, sem myndu þá fjármagna
verkefnin með láni til opinbers
hlutafélags um verkin. Upphæð
veggjalda ræðst af þeirri nið-
urstöðu.
Fundað stíft síðustu vikur
„Það hefur verið fundað stíft og
við höfum komist nokkuð áleiðis,“
segir Kristján L. Möller, sem stýr-
ir viðræðunum fyrir hönd sam-
gönguráðherra. „Við höfum náð
samkomulagi um meginforsendur
þessa verkefnis. Við vitum hvert
umfang þess er og höfum for-
skriftina að því hvernig við ætlum
að gera þetta með því að taka upp
einhvers konar notendagjöld.
Núna eru í gangi viðræður um
kaup og kjör,“ segir hann.
Þær forsendur sem viðræðu-
nefndirnar hafa orðið ásáttar um
eru m.a. umferðarspá og kostn-
aður við viðkomandi verk. „Menn
eru sammála um þessi meg-
inatriði,“ segir Kristján.
Verkefnin sem um ræðir eru
breikkun Suðurlandsvegar frá
Reykjavík og austur fyrir Selfoss
ásamt byggingu brúar yfir Ölfusá.
Breikkun Vesturlandsvegar í þrjár
akreinar (2+1 vegur), tvöföldun
Reykjanesbrautar suður fyrir
Straum og gerð Vaðlaheiðarganga.
„Það hefur verið unnið að marg-
víslegum undirbúningi, þannig að
menn telja að ef við náum saman
um þetta, þurfi ekki að líða langur
tími þar til við getum farið að
bjóða út verk,“ segir Kristján.
Viðkvæmasti þátturinn
„Umræðurnar undir það síðasta
hafa snúist um skilmála og vexti
og fleira. Við vonumst til þess að
fyrr en síðar förum við að sjá til
lands. Við höfum miðað við að nið-
urstaða liggi fyrir ekki síðar en í
byrjun desember,“ segir Arnar
Sigurmundsson, formaður Lands-
samtaka lífeyrissjóða.
Arnar segir viðfangsefnið
gríðarlega flókið en viðræðurnar
hafi samt gengið vel. „Nú erum við
komnir að þeim þætti sem er
einna viðkvæmastur, sem er að
semja um vaxtakjör, tryggingar og
fleira.“
Samkomulag um for-
sendur framkvæmdanna
Stefna á að niðurstöður liggi fyrir í byrjun desember
Morgunblaðið/Ómar
Þokast Umferðarspár og kostn-
aðarmat liggja fyrir í viðræðunum.
„Þau bara keyrðu ofan í holu og við
það kom högg á bílinn sem varð til
þess að loftpúðinn sprakk út,“ segir
Sigrún Davíðsdóttir, en dóttir
hennar og tengdasonur urðu fyrir
því um helgina, að loftpúði sprakk
út í bíl þeirra þegar þau óku um
holóttan veg í Kjálkafirði í Barða-
strandarsýslu.
„Sem betur fer gerðist þetta far-
þegamegin, en ekki bílstjóramegin
því þá hefðu þau getað stórslasast.
Dóttir mín var í farþegasætinu og
það sér á henni eftir loftpúðann.
Hún er aum og marin á handlegg
og læri þar sem púðinn skall á
henni,“ sagði Sigrún.
Bíllinn er talsvert skemmdur eft-
ir að loftpúðinn sprakk út. Þegar
loftpúði springur drepst á bílnum
og ekki er hægt að koma honum í
gang nema með því að tengja
framhjá. Maður Sigrúnar fór á öðr-
um bíl og aðstoðaði dóttur sína við
að komast áfram.
Haft var samband við lögregluna
á Patreksfirði til þess að gera
skýrslu um málið, en talsverður
kostnaður fylgir svona óhappi. Sig-
rún sagði að lögreglan hefði gefið
þau svör að ökumaður yrði að koma
til Patreksfjarðar til að gefa
skýrslu. Það leist fjölskyldunni ekki
á, hún hafði ekki áhuga á að aka
áfram langa leið eftir þessum hol-
ótta vegi til að gefa skýrslu, en um
25 km eru frá þeim stað þar sem
óhappið átti sér stað að malbik-
uðum vegi og þaðan eru líklega um
70 km til Patreksfjarðar.
Þau spurðu hvort hægt væri að
gefa skýrslu hjá lögreglunni í
Stykkishólmi og fengu þau svör að
það ætti að vera í lagi. Þegar þang-
að var komið var þeim bent á að
gefa skýrslu í Reykjavík, þar sem
ferðinni var heitið suður, en tekið
fram að ef óskað væri sérstaklega
eftir því að klára málið í Stykk-
ishólmi væri sá möguleiki fyrir
hendi.
Ekki fyrsta tjónið á veginum
„Ég veit að þetta er ekki í fyrsta
skipti sem það verður tjón á bílum
á þessum vegi. Við höfum ekið fram
á bíla í sumar og haust sem hafa
misst undan sér pústkerfi. Ég skil
ekki í Vestfirðingum að láta bjóða
sér þetta,“ sagði Sigrún, en hún og
fjölskylda hennar eiga sumarbústað
á Barðaströndinni.
Sigrún sagði í gær að hún hefði
frétt af því að byrjað væri að hefla
veginn þar sem óhappið átti sér
stað.
Loftpúðinn sprakk á holóttum veginum
„Þau bara
keyrðu ofan í holu“
Hossingur Hvort holurnar á veginum í Kjálkafirði eru jafn margar og eyjarnar á Breiðafirði skal ósagt látið, en víst er að þær eru margar. Loftpúði sprakk
þegar bíl var ekið um holóttan veg í Kjálkafirði, skammt frá Skiptá, sem skiptir Barðastrandarsýslum í austur- og vestursýslu.
Stórfréttir
í tölvupósti
Hæstiréttur hefur komist að þeirri
niðurstöðu, að ákvæði laga um
skiptaverðmæti og greiðslumiðlun
innan sjávarútvegsins séu andstæð
stjórnarskrá. Um er að ræða
ákvæði um að hluti af gjaldi, sem
framleiðendum sjávarafurða er gert
að greiða af samanlögðu hráefn-
isverði afla renni til Lands-
sambands smábátaeigenda.
Samkvæmt lögunum eru 8,4% af
samanlögðu hráefnisverði afla
greidd inn á sérstakan greiðslu-
miðlunarreikning smábáta hjá Gildi
lífeyrissjóði. 37,7 prósentur af
þessu fé renna til Lífeyrissjóðs sjó-
manna, 56,5 prósentum er varið til
greiðslu iðgjalda af slysa- og ör-
orkutryggingu skipverja og af vá-
tryggingu báts. Loks renna 6 pró-
sentur af fjárhæðinni til
Landssambands smábátaeigenda.
Víkurver er ekki aðili
að landssambandinu
Félagið Víkurver, sem gerir út
smábáta, neitaði að greiða þann
hluta gjaldsins, sem átti að renna
til Landssambands smábátaeigenda
en félagið er ekki aðili að
landssambandinu. Taldi Víkurver
lagaákvæðið brjóta gegn stjórn-
arskrá.
Hæstiréttur féllst á það með fé-
laginu, að lagaákvæðið væri and-
stætt stjórnarskrá og félaginu væri
því ekki skylt að greiða fé til
Landssambands smábátaeigenda.
Víkurver krafðist þess jafnframt
að Gildi og Landsamband smábáta-
eigenda endurgreiddi 143.237 þús-
und krónur.
Tveir af þremur hæstarétt-
ardómurum, sem dæmdu í málinu,
sýknuðu Gildi og landssambandið
af þessari kröfu á þeirri forsendu
að kröfugerð Víkurvers væri veru-
lega áfátt. Einn dómari vildi hins
vegar dæma Gildi og Lands-
samband smábátaeigenda til að
endurgreiða upphæðina.
Lagaákvæði andstæð stjórnarskrá
Neituðu að greiða til Landssambands smábátaeigenda
Hæstiréttur féllst á sjónarmið félagsmanna í Víkurveri