Morgunblaðið - 19.10.2010, Side 11
Morgunblaðið/Ómar
Skemmtilegt Þorbjörg æfir fullorðinsfimleika en hún er yfirþjálfari hjá fimleikadeild Glímufélagsins Ármanns.
styrktaræfingum, þar sem er unnið
með eigin þyngd og miðjustyrkingu,
og svo er mikið teygt á.
Þeir sem æfa fimleika
verða léttari á sér og
liðugri. Fullorð-
insfimleikar eru við
allra hæfi, sumir eru
að vinna í sínum koll-
hnís og aðrir í helj-
arstökki. Það er ótrú-
legt hvað fólk nær
miklum framförum í
kollhnísnum. Það
eru unnir miklir sigr-
ar í tímum,“ segir
Þorbjörg og hlær.
„Þetta er líka mjög
fínn félagsskapur
og mikið hlegið í
tímum. Maður er
svolítið hallær-
islegur stundum
og það er bara
gaman. Það er líka svo gaman að
vera í hóp og með þjálfara.
Það er enginn of gamall eða of
lélegur til að æfa fullorðinsfimleika
og það þarf ekki að kunna neitt til að
byrja,“ segir Þorbjörg hvetjandi að
lokum.
DAGLEGT LÍF 11Hreyfing og útivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2010
n o a t u n . i s
900 G
Fljótlegt
og gott
í Nóatúni
ÝSA Í RASPI
KR./KG
1199
FRÖNSK
SMÁBRAUÐ
179
KR./PK.
CAVENDISH
FRANSKAR
3 TEGUNDIR
549
KR./PK.
HUNT’S
TÓMATSÓSA
SQUEEZE
KR./STK.
299
Ö
ll
ve
rð
er
u
bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
u
og
/e
ða
m
yn
da
br
en
gl
30%
afsláttur
25%
afsláttur
1598
F
ÚRFISKBOR
ÐI
ÚR
FISKBORÐI
FERSKIR
Í FISKI
ALI BJÚGU
KR./KG
539
773
Það er ekki nýr sannleikur að hollt
mataræði hefur mikið að segja, bæði
til að halda sér í ágætis formi en líka
bara til að vera heilbrigður og líða
vel. Auðvitað er misjafnt hvað hentar
hverjum og einum en yfirleitt er
mælt með því að borða frekar minna
og oftar yfir daginn. Fá sér t.d. stað-
góðan morgunverð og svo smá
morgunhressingu áður en kemur að
hádegismatnum. Á þennan hátt helst
blóðsykurinn í jafnvægi og það getur
líka dregið úr vöðvabólgu að borða
reglulega og hreyfa sig til að blóðið
komist á hreyfingu og allt kerfið fari
ekki í einn hnút. Það er líka mjög
vont að vera orðinn glorsoltinn
seinnipartinn þegar komið er heim
úr vinnu. Þá er nefnilega stundum of
freistandi að seilast í eitthvað sætt.
Sterkt en ekki of salt
Þó þú ætlir að borða hollan mat er
ekkert sem segir að hann þurfi að
vera óspennandi eða bragðlaus.
Reyndu að krydda matinn frekar
með ferskum jurtum og góðu, salt-
lausu kryddi og halda þig frá því að
salta matinn of mikið. Þetta er líka
bara spurning um vana því bragð-
laukarnir venjast mjög fljótt á saltan
mat. Þannig getur manni smám sam-
an fundist minna saltur matur
óspennandi og bragðlaus. Í dag nota
margar þjóðir allt að tvisvar sinnum
meira af salti en mælt er með á
hverjum degi. Miðað er við fimm
grömm af salti á dag en í flestum
osti, skyndibita, snakki og fleiru er
nokkuð mikið salt. Þá daga sem slíkt
er borðað er því gott að fá sér mjólk-
urvörur, ávexti og grænmeti til að
vega upp á móti.
Best að fara sér hægt
Ef þú ætlar að skipta yfir í hollara
mataræði er mikilvægt að fara hægt
af stað. Líttu á morgun- og hádegis-
verðinn sem nauðsynlega uppfyll-
ingu fyrir líkamann sem gefur þér
kraft út í daginn. Njóttu þess svo
frekar að borða kvöldmatinn, enda er
hann oft samfélagsleg athöfn sem
vert er að njóta. Reyndu samt að
borða frekar hollan mat á kvöldin og
elda helst sjálf/ur. Þannig veistu
betur hvað er í máltíðinni. Reyndu
eins og þú getur að borða hrátt
grænmeti og ávexti og hafa alltaf
nóg af salati á disknum. Síðan má
ekki gleyma því að leyfa sér öðru
hverju nammidag. Ef þú borðar
nammi á hverjum degi er best að
trappa sig niður smám saman og
leyfa sér kannski nammi einu sinni í
viku og svo um helgi. Að endingu er
best að hafa bara einn nammidag í
viku og velja vel það sem maður fær
sér. Bakaðu uppáhaldskökuna þína
eða kauptu dýra súkkulaðið sem þú
kaupir sjaldan. Það munar um að
gera vel við sig á nammideginum og
verðlauna sig svolítið.
maria@mbl.is
Misjafnt hvað hentar hverjum og einum
Hollusta Ávaxta- og grænmetishristingur er tilvalinn á milli mála.
Mataræði sem hentar þér
„Við sem æfðum fullorðinsfimleika hjá Ármanni í fyrra
kepptum okkar á milli, á Grafalvarlega heimsmeistara-
mótinu, og við stefnum á að vera með annað slíkt mót með
vorinu.
Það var aðeins keppt í eigin getu. Ég varð heimsmeistari
í í sjötta þrepi þrjátíu ára og eldri. Það er fyrsta keppn-
isþrepið hjá krökkunum, venjulega keppa 6-7 ára í því, en
við vorum aðeins eldri. Svo voru veitt verðlaun fyrir besta
búninginn og slík.
Ármenningar voru einir á þessu móti í fyrra en
fullorðinshópar annarra fimleikadeilda hafa sýnt áhuga
á að vera með næst,“ segir Þorbjörg.
Grafalvarlega
heimsmeistaramótið
FULLORÐINSFIMLEIKAR
Fimleikar
Það þarf ekki
alltaf að taka
þá alvarlega.
„Snæddu morg-
unverð eins og
konungur, hádeg-
isverð eins og
prins og kvöld-
verð eins og betl-
ari.“
Svo hljóðar ein
ráðleggingin úr
bókinni Mataræði:
Handbók um holl-
ustu sem kom nýverið út hjá Sölku.
Höfundur bókarinnar er Michael
Pollan, baráttumaður fyrir hollu mat-
aræði. Bókin inniheldur mikinn fróð-
leik um innihaldsefni og samsetningu
fæðunnar og hvernig hún hefur
breyst í tímans rás. Pollan setur fram
einfaldar og skýrar reglur um hvað
ber að varast ef við viljum huga að
heilsunni.
Heilsa
Handbók
um hollustu
Þeir sem vilja kynna sér fullorð-
insfimleikana hjá Ármanni geta
fundið upplýsingar á heimasíðu fé-
lagsins: www.armenningar.is.