Morgunblaðið - 19.10.2010, Blaðsíða 12
ÚR BÆJARLÍFINU
Óli Már Aronsson
Hella
Fiskás sf. er nýtt fyrirtæki sem
hefur verið sett á fót á Hellu. Þótt
engin höfn sé á Hellu og fiskvinnsla
því ekki svo augljós á staðnum, þá
er þetta samt staðreynd.
Upphaflega hugmyndin að fyr-
irtækinu var sú að setja upp vinnslu
og reykingu á laxfiski úr Rangánum,
en þar er mikil eftirspurn eftir að fá
lax reyktan eftir veiðiferðir þar sem
hver stöng er jafnvel með tugi fiska.
Þess má geta að ekki er talið æski-
legt að nota veiða/sleppa-aðferðina í
Rangánum, þar sem náttúrulegt
klak ber ekki árangur þar.
Nýlokið er við að byggja 300
fermetra hús yfir starfsemi Fiskáss
og vinnsla og reyking komin í gang.
Fréttaritari getur vottað gæði fram-
leiðslunnar eftir að hafa bragðað á
henni.
Forsvarsmenn fyrirtækisins
segja að farið verði út fyrir upphaf-
legar hugmyndir um vinnslu á lax-
fiski og verið er að vinna að mark-
aðssetningu á fleiri tegundum, t.d.
bleikju og makríl ásamt því að unn-
inn verður allur almennur fiskur hjá
fyrirtækinu. Fiskás mun kaupa fisk
á mörkuðum og einnig má geta þess
að fyrirtækið gerir út bát frá Ólafs-
vík til strandveiða. Að auki er hug-
myndin að bjóða upp á vinnslu og
reykingu á villibráð, t.d. anda- og
gæsabringum.
Nú starfa 2-3 í vinnslunni, en ef
samningar og vonir um útflutning
verða að veruleika, mun starfsemin
geta borið allt að 10 manns.
Ný tengibygging á Suðurlands-
vegi 1-3 á Hellu er ekki enn komin í
gagnið. Erfiðleikar við fjármögnun
valda því aðallega. Að auki kom í
ljós að deiliskipulag við húsið var
ekki samþykkt og lóðaframkvæmdir
hafa því stöðvast um sinn. En ljóst
er að í húsinu er glæsileg aðstaða til
framtíðar fyrir ýmiss konar verslun
og þjónustustarfsemi.
Áfengis- og tóbaksverslun
rikisins hefur enn ekki tekið ákvörð-
un um opnun vínbúðar á ný, eftir
svokallaða bráðabirgðalokun vegna
framkvæmda við tengibygginguna.
Auglýst var eftir húsnæði og komu
nokkur tilboð frá aðilum. ÁTVR hef-
ur nú hafnað þeim öllum og segir að
ekkert af því húsnæði hafi uppfyllt
kröfur að fullu og ekki hafi verið
tekin ákvörðun um framhaldið.
Hrunið fyrir 2 árum virðist ekki
hafa haft mjög alvarlegar afleið-
ingar enn þá á fyrirtækjarekstur í
héraðinu að því er virðist, með ein-
staka undantekningum.
Verktakar hafa þokkalega
verkefnastöðu, þó svo hún nái ekki
langt fram í tímann. Glerverk-
smiðjan Samverk hefur bærilega
stöðu í sinni framleiðslu, þó svo
mannafli hjá fyrirtækinu hafi dreg-
ist saman um ca. 30% frá því fyrir
hrun. Þrátt fyrir að bygging-
arframkvæmdir hafi dregist veru-
lega saman, þá kemur á móti að inn-
flutningur á tilbúnu gleri hefur
nánast lagst af.
Morgunblaðið/Óli Már Aronsson
Nýtt fyrirtæki Í nýjum vinnslusal Fiskáss, frá v.: Pálmi Jónsson, starfs-
maður, ásamt Helga Einarssyni og Torfa Sigurðssyni sem eru eigendur
ásamt Ólafi E. Júlíussyni.
Fiskvinnslufyrir-
tæki af stað á Hellu
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2010
Á morgun, miðvikudag kl. 8:30-20,
verður opið hús í Austurbæjarskóla
í tilefni af 80 ára afmæli skólans.
Boðið verður upp á gönguferðir um
skólann með leiðsögn. Í leikfimi-
salnum verða til sýnis gömul náms-
gögn, kort, bækur og fleiri munir.
Hollvinafélag Austurbæjarskóla
tekur á móti gestum og kynnir
starfsemi sína í stofu 202 allan dag-
inn.
Á annarri hæðinni verður starf-
rækt Kaffihús Helgu Sigurðar-
dóttur og er upplagt að staldra þar
við, kaupa kaffi og rifja upp gamlar
minningar. Foreldrafélagið verður
með bás á staðnum. Nemendur í 10.
bekk selja boli og yngsta stig verð-
ur með föndurvörur til sölu. Allir
eru velkomnir.
Morgunblaðið/Þorkell
Afmæli Margt verður í boði á morgun.
Opið hús á afmæli
Félag lýðheilsufræðinga stendur
fyrir málþingi í tilefni af samein-
ingu Lýðheilsustöðvar og land-
læknisembættisins þar sem ýmsir
fletir sameiningarinnar verða til
umræðu. Þeir sem munu flytja er-
indi á málþinginu eru: Kathleen M.
Roe prófessor, Geir Gunnlaugsson,
landlæknir og Þórólfur Þórlinds-
son, fyrrverandi forstjóri Lýð-
heilsustöðvar.
Málþingið verður haldið á morg-
un, miðvikudag kl. 13:00-16:00 í
salnum Bellatrix í Háskólanum í
Reykjavík, Menntavegi. Aðgangur
er ókeypis en skráning fer fram í
gegnum netfangið
lydheilsa@gmail.com.
Málþing um framtíð
lýðheilsu á Íslandi
Miðvikudaginn 20. október boða
Sterkara Ísland og Alþjóða-
málastofnun til fundar með Pat Cox
í hátíðarsal Háskóla Íslands frá kl.
13 til 14:30
Pat Cox er forseti European
Movement International. Hann sat
á írska þinginu 1989-1994 og síðar
á Evrópuþinginu 1989-2004 þar
sem hann var forseti 2002-2004.
Hann stýrði já-hreyfingunni á Ír-
landi þegar Lissabon-sáttmálinn
var samþykktur. Fundurinn er öll-
um opinn.
Ræðir um ESB
Nýtt tímarit,
Heilsan, er að
hefja göngu
sína. Heilsan
mun koma út
annan hvern
mánuð og vera
fríblað sem
dreift verður í
allar helstu
verslanir á landinu og líkamsrækt-
arstöðvar. Í tímaritinu verður
fjallað um allskonar líkamsrækt
og fleira sem er hollt fyrir líkam-
ann, hárið, húðina og sálina. Hug-
myndin er að koma með blað sem
er skemmtilegt og jákvætt, fjalla
um málefni sem varðar alla og
benda á lausnir við daglegum
vandræðum, að sögn Halldóru
Önnu Hagalín, ritstjóra. Útgefandi
er Birtingur.
Nýtt heilsutímarit
hefur göngu sína
STUTT
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Stjórn Lögreglufélags Suðurlands
(LFS) mótmælir harðlega boðuðum
niðurskurði í fjárlögum 2011 og telur
að með honum sé stórlega vegið að
öryggi íbúa og lögreglumanna. „Mið-
að við þann mannafla sem stendur
vaktir og sinnir almennri löggæslu
daglega á Suðurlandi nú, telur stjórn
LFS að löggæsla á svæðinu sé komin
niður fyrir lágmarks-öryggiskröfur
sem gera á til lögreglu,“ segir meðal
annars í ályktun félagsins.
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu-
maður á Selfossi, segir að ekki megi
draga meira saman, því þá þurfi að
fara að forgangsraða. Hins vegar
áréttar hann að sem betur fer hafi
lögreglan á Suðurlandi staðið sig
mjög vel og starfsmenn verið ótrú-
lega seigir við að takast á við nið-
urskurð og sinna því sem þurft hafi
að sinna.
Stórt svæði
Umdæmi lögreglunnar á Selfossi
nær frá Litlu kaffistofunni að Þjórsá.
Á svæðinu eru mörg sumarbústaða-
hverfi, þéttbýliskjarnar eins og Þor-
lákshöfn, Hveragerði, Eyrarbakki,
Stokkseyri, Flúðir, Laugarvatn og
Laugarás og auk þess ferðamanna-
staðirnir Þingvellir, Gullfoss og
Geysir. Umdæmi lögreglunnar á
Hvolsvelli nær frá Þjórsá að Gígju-
kvísl auk hálendisins þar á milli þar
sem eru t.d. Þórsmörk, Landmanna-
laugar og Vatnajökulsþjóðgarður.
Í yfirlýsingunni kemur fram að
vegna niðurskurðar hafi þurft að
fækka almennum lögreglumönnum
og skera niður í akstri. Á næsta ári
sé fyrirhugað að fækka lögreglubif-
reiðum.
Ólafur Helgi segir að 5,5% niður-
skurður þýði að lögreglumönnum
myndi fækka úr 27 til 28 í 24 eða
færri. Þegar væri búið að draga sam-
an þannig að á fimm manna vöktum
væru að hámarki fjórir menn. Um
helgar væru mest 6-7 menn í stað 8-9
manna. Mótmæli LFS væru skiljan-
leg. Hafa bæri í huga að lögreglan
þyrfti að gæta öryggis almennings
og líka öryggis lögreglunnar á vett-
vangi. Lögreglumenn hefðu verið
viljugir til þess að takast á við
ástandið og vonandi yrði ekki reynt
að fara í frekari niðurskurð heldur
stefnt að því að færa mál í fyrra horf.
Löggæsla
niður fyrir
öryggiskröfur
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Aðstoð Lögreglan þarf oft að
hjálpa vegfarendum.
Mótmæla boðuðum niðurskurði
Mikill niðurskurður
» Samkvæmt ályktun LFS var
gríðarlegur niðurskurður á
fjárframlögum til lögreglunnar
2009 og enn frekari á líðandi
ári.
» LFS skorar á dómsmála- og
mannréttindaráðherra sem og
alþingis- og sveitarstjórnar-
menn á Suðurlandi að sjá til
þess að löggæslan á svæðinu
verði þannig að öryggi íbúa og
lögreglumanna sé tryggt.
Haustverkin kalla víða og margir vilja koma þeim frá áður en vetur tekur
völd. Hugsanlega hefur það hvarflað að þessum málurum við Hverfisgöt-
una. Í kortunum eru norðlægar áttir með stöku skúrum eða éljum norð-
austanlands, en bjartviðri suðaustantil.
Morgunblaðið/Golli
Norðlægar áttir í kortunum