Morgunblaðið - 19.10.2010, Page 28
28 MENNINGFréttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2010
Start Art-hópurinn, listakonur
sem stóðu fyrir samnefndu gall-
eríi við Laugaveg, kynna bók
sem nefnist Laugavegurinn á
Kjarvalsstöðum í hádeginu í
dag, þriðjudaginn 19. október.
Dagskráin hefst klukkan 12.30.
Í bókinni er fjallað um sögu
þvottalauganna og listaverk
sem gerð voru út frá laugunum
og sýnd í Start Art vorið 2009, í
tengslum við Listahátíð í
Reykjavík. Þá var líka farin gangan Lauga Veg-
urinn, með fjölmörgum gjörningum og listrænum
uppákomum, en göngunni eru gerð glæsileg skil í
bókinni í myndum kunnra ljósmyndara.
Bókin verður til sölu á kynningarverði.
Bækur
Kynna bókina
Laugavegurinn
Einn gjörninganna
í bókinni.
Út er komin á ný bókin Mann-
líf við Sund - býlin, byggðin og
borgin, eftir Þorgrím Gests-
son. Hún kom upphaflega út
árið 1998 en hefur verið ófáan-
leg í nokkur ár.
Í Mannlífi við Sund er sögð
saga hinnar fornu Laugarnes-
jarðar frá landnámi til ársins
1930. Laugarnes var í upphafi
næsta jörð fyrir austan hina
fornu Reykjavík, eða Vík, og
náði þvert yfir Seltjarnarnes, milli Viðeyjarsunds
og Fossvogs.
Mannlíf við Sund er til sölu í bókabúð Hins ís-
lenska bókmenntafélags, hjá Sögufélaginu í Fisc-
hersundi og hjá höfundi.
Bækur
Mannlíf við Sund
endurútgefin
Þorgrímur
Gestsson
Borgarskipulagshópur Sam-
taka um bíllausan lífsstíl held-
ur sitt sjöunda kvikmyndasýn-
ingarkvöld á Kaffibarnum,
Bergstaðastræti 1, í kvöld,
þriðjudaginn 19. október.
Hefst sýningin klukkan 20.30.
Að þessu sinni verður sýnd
kvikmyndin The End of Sub-
urbia - Oil Depletion and The
Collapse of the American
Dream. Leikstjóri er Gregory
Greene. Myndin hefur unnið til fjölda viðurkenn-
inga. Sýningarstjóri er Orri Gunnarsson skipu-
lagsfræðingur.
Aðgangur að kvikmyndasýningunni er ókeypis
og allir boðnir velkomnir.
Kvikmyndir
Bíllaus lífsstíll
og bíósýning
Myndin er sýnd á
Kaffibarnum.
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Síðustu mánuði hefur Steinunn Þórarinsdóttir
myndhöggvari verið uppteknari en nokkurn tím-
ann fyrr, við sýningahald, skipulagningu sýninga
og uppsetningu útilistaverka. Steinunn hefur tek-
ið þátt í samsýningu og tveimur listkaupstefnum á
vesturströnd Bandaríkjanna, sýning með verkum
hennar hefur verið á flakki um Bandaríkin og var
opnuð á austurströndinni í haust, auk sýningar
sem hún heldur um sköpunarferli útiverka, og
hún tók þátt í athyglisverðri sýningu í Svíþjóð. Þá
er framundan þátttaka í listkaupstefnu í Istanbul,
afhjúpun á verki í Skotlandi og uppsetning á
stórri innsetningu í hjarta New York-borgar.
„Síðustu árin hafa verið annasöm, og ekki síst
þetta ár. Þetta er eins og snjóbolti sem hleður ut-
an á sig,“ segir Steinunn þegar hún er spurð út í
allt þetta sýningahald ytra. Eftir að hafa starfað í
15 ár með virtu galleríi í London, Osborne Samu-
el, er hún nú einnig komin á mála hjá Scott White
Contemporary, kunnu galleríi í Bandaríkjunum
og sýndi hjá því í sumar, í San Diego.
„Svo hefur heil útiverkasýning frá mér verið á
flandri um Bandaríkin síðustu þrjú ár, Horizons
kallast hún. Á henni eru tólf verk. Hún var opnuð í
safni í New York-ríki sumarið 2007, fór þaðan til
Tennessee, þaðan til Texas, þá í skúlptúrgarð suð-
ur af Chicago og nú er hún í Pennsylvaníu. Næst
fer sýningin til Georgia Art Museum, en verið er
að enduropna það safn eftir stækkun og verður
þetta fyrsta sýningin í nýjum skúlptúrgarði safns-
ins,“ segir Steinunn.
Hún segir að það fari talsvert mikill tími í skrif-
stofuvinnu hjá sér, eins og skipulagningu þess að
senda verkin frá sér til annarra landa, auk þess
sem tími fari í ferðalög sem tengjast sýningum.
„Stundum er erfitt að finna tíma til að einbeita
sér að nýjum verkum en ég verð bara að gera það.
Það væri ekkert mjög gaman að þessu ef ég næði
ekki að halda áfram að skapa og þróa ný verk.“
Steinunn segir að mikil handavinna og tími liggi
að baki hverju verki.
„Þetta er langt ferli. Ég bý sjálf til frummynd-
ina, oftast úr gipsi. Frummyndirnar fara í málm-
steypu sem aðrir sjá um en síðan er heilmikil eft-
irvinnsla, því ég vinn iðulega eitthvað í verkin eftir
að þau eru steypt. Hvert verk er iðulega margra
mánaða ferli.“
28 fígúrur á Dag Hammarskjöld Plaza
Steinunn var einn átta skúlptúrista sem sýndu
á eynni Tjörn skammt frá Gautaborg í Svíþjóð í
sumar, ásamt m.a. þeim Tony Cragg, Ursulu van
Rydingsvard og Jitish Kallat. Þar sýndi hún verk-
ið Landamæri, þar sem fjórtán fígúrur úr járni og
áli kölluðust á yfir fornar grafir sem þar eru.
„Í mars verður sú innsetning, í stærri mynd,
alls líklega 28 fígúrur, settar upp á Dag Hamm-
arskjöld Plaza skammt frá höfuðstöðvum Samein-
uðu þjóðanna í New York,“ segir Steinunn. „Það
er mjög spennandi verkefni, unnið í samvinnu við
almenningsgarða borgarinnar. Það er mikil fram-
kvæmd en ég var þar úti fyrir viku og nú er
búið að negla þetta nánast allt niður.“
Hver telur Steinunn að sé ástæða þess að
Bandaríkjamenn falla svo rækilega fyrir
verkunum?
„Ég veit það nú ekki alveg en sumir
þeirra segja að bandarískir listamenn
myndu aldrei gera verk eins og þessi,
þeim finnst vera í þeim sérstakur
norrænn þráður sem þeir hrífast af.
Svo eru þetta fígúratíf verk og
mörgum finnst það spennandi, en í
fígúratífri list er nauðsynlegt að
hafa skáldskapinn með sér.“
Ljósmynd/Mike Boatman
Fylgst með sjóndeildarhringnum Hluti af sýningu Steinunnar Þórarinsdóttur, Horizons, við Muhlenberg College í Pennsylvaniu.
Setur upp verk nærri húsi
Sameinuðu þjóðanna
Steinunn Þórarinsdóttir myndhöggvari er önnum kafin við sýningahald
Mannanöfn og örnefni verða skrif-
uð með íslenskri stafsetningu í
nýrri þýðingu á þýsku á Íslend-
ingasögunum, sem gefa á út í til-
efni af því að Ísland verður í önd-
vegi á bókamessunni í Frankfurt á
næsta ári.
Fjallað var um hinar nýju þýð-
ingar undir fyrirsögninni „Heims-
bókmenntir frá eldfjallaeyjunni“ á
heilli opnu í sunnudagsblaði
Frankfurter Allgemeine Zeitung
fyrir viku. Þar er fjallað um hina
íslensku menningararfleifð og seg-
ir höfundurinn, Tilman Spreckel-
sen, að án hennar væru bæði óp-
erur Richards Wagners og
Hringadróttinssaga J.R.R. Tolki-
ens óhugsandi.
Rætt er við Klaus Böldl, pró-
fessor í skandinavískum miðalda-
fræðum og einn af umsjónar-
mönnum nýju sagnaþýðinganna.
Þar segir hann að ákveðnar hafi
verið reglur um ritun nafna: „Okk-
ar útgáfa er sú fyrsta, sem heldur
hinum sérstöku íslensku táknum –
það gengur á okkar dögum vegna
þess að íslenskar bækur eru nú
orðnar svo útbreiddar að lesendur
láta slík tákn ekki lengur fara í
taugarnar á sér.“
Stafsett á
íslensku
Nöfn halda sér í
þýskri þýðingu
Uppsláttur Sagnaarfur á opnu.
Hvað getur maður
gert þegar maður fær
þriðju plötu snillingsins Ró-
berts Arnar Hjálmtýssonar
31
»
Steinunn fær talsvert af pöntunum á verkum
fyrir tiltekna staði og hefur einnig sigrað í
mörgum samkeppnum um útilistaverk.
„Þannig verður í nóvember afhjúpað úti-
listaverk í Aberdeen í Skotlandi sem var
pantað hjá mér af háskólanum þar í borg en
undirbúningur fyrir það hefur staðið síðan
2008,“ segir Steinunn.
Mér finnst mjög gaman að fá slíkan pant-
anir, því þær opna oft nýja glugga fyrir mig,
en þá er verið að vinna inn í ákveðin rými; það
er ljúf skylda að takast á við það. Stundum
hef ég gert innsetningar sem ég hef dreift
um stærra svæði með nokkrum verk-
um. Það hefur verið mjög áhuga-
vert.“
Steinunn er með í ráðum þeg-
ar útilistaverk hennar eru sett
upp, enda fer það mikið eftir
umhverfinu hvernig verkin taka
sig út.
„Horizons-sýningin sem
ferðast nú um Bandaríkin er
mjög mismunandi eftir
sýningarstöðum. Við Chicago
urðu fígúrurnar viðkvæmnis-
legar í opnum garði en í Texas
voru þær í grasagarði og
leituðu í skuggann.“
„Opna oft nýja
glugga fyrir mig“
TALSVERT UM AÐ VERK SÉU PÖNTUÐ
Steinunn
Þórarinsdóttir
myndhöggvari.
Þau mistök urðu við birtingu á um-
sögn Guðmundar Brynjólfssonar um
leiksýninguna Finnska hestinn í
Þjóðleikhúsinu í gær, að fyrirsögn
breyttist. Rétt fyrirsögn átti að
vera: „Fimm stjörnu Ólafía Hrönn í
brokkgengum finnskum hesti“.
Beðist er velvirðingar á mistök-
unum.
LEIÐRÉTT
Fimm stjörnu
Ólafía Hrönn …