Morgunblaðið - 19.10.2010, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2010
Í kvöld klukkan 21:00 heldur Skúli
mennski tónleika á Café Rosenberg
við Klapparstíg. Skúli kemur fram
með kassagítar en nýtur aðstoðar
fiðluleikarans Unu Sveinbjarnar-
dóttur og bassaleikarans Valdimars
Olgeirssonar og munu þau spila
blúsa, örlagavísur og ástarljóð.
Ástarljóð á Cafe
Rosenberg
Fólk
Nú standa yfir viðræður við fjöl-
miðla um birtingarmyndir Hljóm-
grunns. En vefsíðan hljomgrunn-
ur.is var opnuð nýlega og þar er
hægt að fylgjast með íslenskri tón-
list. Eins og kunnugt er hafa verið
gefin út sérblöð með Fréttablaðinu
í tengslum við Íslensku tónlistar-
verðlaunin, Dag íslenskrar tónlist-
ar og ýmislegt annað. Á vefnum
segir; „Hljómgrunnur er opinn
vettvangur þar sem listamenn setja
sjálfir inn viðburði sína en hlutverk
okkar er að kynna vefinn og freista
þess að gera hann að áreiðanlegum
upplýsingavef um tónlistarlífið.“
Nýr tónlistarvefur opn-
aður
Félagið Ísland-Palestína sýnir pal-
estínsku bíómyndina Paradise Now
í MÍR-salnum á Hverfisgötunni en
MÍR var áður vinafélag hins komm-
úníska Sovétlýðveldis og Íslendinga
sem vildu eiga vini í því ríki. Bíó-
myndin verður sýnd fimmtudags-
kvöldið klukkan 20.00. Kvikmyndin
er 90 mínútur og verður sýnd með
enskum texta.
Bíómynd í MÍR
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Mummi, sem stuðningsmenn KR
klöppuðu áfram hjá meistara-
flokknum í sumar þar sem hann sýndi
takta sína með knöttinn, er nú búinn
að gefa út sína fyrstu plötu. Mummi,
Guðmundur Reynir Gunnarsson, er
nefnilega með hæfileika á mörgum
sviðum lífsins. Þessi rúmlega tvítugi
hagfræðinemi í Háskóla Íslands hef-
ur unnið til bronsverðlauna á Ólymp-
íumótinu í stærðfræði, komist í lands-
liðið í knattspyrnu og lauk sjöunda
stigi í klassískum píanóleik aðeins 15
ára gamall. Auk þess varð hann Ís-
landsmeistari í samkvæmisdönsum.
Hvernig veturinn verður hjá honum
er óvíst en hann er samningsbundinn
hjá sænska úrvalsdeildarliðinu GAIS.
En eitt er ljóst, hann mun halda út-
gáfuveislu vegna útkomu sinnar
fyrstu plötu núna í október. Um ein-
hverskonar píanó-rokkpoppplötu er
að ræða sem heitir Various Times in
Johnnýs life. Þetta er þemaplata sem
fjallar um atburði í lífi Johnnys. Að-
spurður hver Johnny sé svarar
Mummi að Johnny sé hann sjálfur í
fyrra lífi. „Þegar ég settist niður og
samdi textana, pældi ég í því hvernig
fyrra líf mitt hafði verið og samdi
textana út frá því,“ segir Mummi.
-Og hvernig var fyrra líf þitt?
„Ég var uppi á tuttugustu öld og
var bandarískur. Ég upplifði ýmis
ævintýri, til dæmis fór ég í seinni
heimsstyrjöldina og verð að viður-
kenna að stríðið var mér erfitt. En
svo var heilmikið af ástarævintýrum
heima í Bandaríkjunum. En menn
verða bara að hlusta á plötuna til að
komast að einhverju meira um Jo-
hnny,“ segir hann.
Aðspurður hvað hann ætli að
leggja fyrir sig fyrst hann hafi farið
svona víða segist hann bara ætla að
sjá til. „Ég veit ekki hvað ég ætla að
leggja fyrir mig. Ég ætla bara að
leika mér og sjá til.“
Fótboltastrákur og listamaður
Morgunblaðið/Eggert
Tónlist Mummi með boltann í höndunum þótt hugur hans sé hjá píanóinu.
Stærðfræðingurinn, fótboltastrákurinn, píanóleikarinn
og samkvæmisdansarinn gefur út plötu
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Páll Haukur Björnsson vakti fyrst
heimsathygli þegar hann notaði sex
mánuði á síðasta ári í það að spranga
allan daginn um í Feneyjum á
Speedo-sundskýlu einni fata, drekka
bjór og reykja sígarettur. „Þetta leit
út fyrir að vera góð hugmynd að
vera á fullum launum í hálft ár við að
drekka bjór og reykja,“ segir Páll
Haukur. Fleiri voru á því að þetta
væri góð hugmynd. Rölt Páls Hauks
í Feneyjum var hluti af innsetningu
Ragnars Kjartanssonar á Bínalinum
í Feneyjum í fyrra. Innsetningin var
einstaklega velheppnuð og hefur ís-
lenska svæðið aldrei verið jafn vel
sótt á sýningunni. Páll Haukur hafði
samt fyrir löngu vakið athygli áður
en Ragnar fékk hann með sér í þetta
verk. Innsetningar hans hafa oftast
sprottið úr samtímanum.
Hugsjónaleysið
Fyrir efnahagshrun Íslands náði
hann anda samfélagsins árið 2006 í
flottri innsetningu sem kallaðist
Dear Bob en persóna verksins gekk
eiginlega aftur í innsetningunni I
sink - Hugsjónin flýtur árið 2007.
Þar fæst hann við þá löngun manns-
ins að láta gott af sér leiða, berjast
fyrir góðum málstað í samfélagi alls-
nægta þar sem enginn er málstað-
urinn né hugsjónin. Þráin fær útrás í
absúrd „martyr“-dauðdögum á göt-
um Reykjavíkur þar sem persónan
fellur með plastbyssu sína. „Ég
reyni að búa til persónur úr sam-
félaginu,“ segir Páll Haukur. „Það
hefur verið rauður þráður í gegnum
verkin mín. Ég sé einhverja áhuga-
verða þætti í samfélaginu eða hlið
þess sem ég síðan eigna einhverri
persónu. Svo reyni ég að láta per-
sónuna vera uppsprettu verksins.
Hugmyndin að þessu verki spratt af
vangaveltum mínum um hvernig
einstaklingurinn er skilgreindur í
gegnum neyslu sína. Þá verður ein-
staklingurinn svolítið tilgangslaus.
Þess er einungis krafist af honum að
hann kaupi eitthvað. Síðan er það
þessi þrá til að skipta raunverulega
einhverju máli.“
Eftir efnahagshrunið breytast
verk hans þótt áfram sé fjallað um
hugsjónaþrána. Eftirminnilegt er
verk hans Sannviskan sem er frá því
í fyrra og sett var upp í Háskóla Ís-
lands. Það verk kallast á við verk
Delacroix frá 18. öld sem nefnist
Frelsið leiðir fólkið og sýnir konu
halda á byltingarfána Frakka og
leiða þá til átaka. Hjá Páli Hauki
kemur byltingin eins og úr rusla-
tunnu, svartklædd ung persóna með
andlitið hulið rís upp úr litríku rusl-
inu og inn í grámyglulegan heiminn
með svartan byltingarfána í hönd.
Salurinn fjarlægður úr salnum
Núna sýnir hann í Crymo verkið
Elephant sem einnig er sprottið úr
samfélagslegum vangaveltum. „Ég
vinn mikið út frá rýmunum sem ég
fæ í hendurnar,“ segir Páll Haukur.
„Verkið í Háskólanum með bylting-
arfánanum er einmitt sett upp þarna
yfir matsalnum þar sem allir sitja í
hægindum sínum og matast. Það var
mikil kvöð á fólki á þessum tíma að
taka þátt í byltingunni, gera eitt-
hvað. Hún var svo mikil að hún virt-
ist valda meltingartruflunum. Fólk
í háskólanum stofnaði samtökin
Öskra sem áttu að vera bylting-
arkennd samtök en síðan
gerðist ekki neitt. Vaka
vann kosningarnar að
ég held út á það að
lofa lægri stöðumæla-
gjaldtöku við skól-
ann,“ segir hann og
hlær. „Verkið mitt í
Crymo er byggt út
frá vangaveltum
um að það sé ein-
hver frumvilla í
samfélagsgerð-
inni. Það sé verið
að reyna að byggja
eitthvað á grunni sem er í raun ónýt-
ur. Pólitíkin er einhvern veginn
þannig að hún fær mann til að
skammast sín. Stjórnarandstaðan er
fyrirbæri sem er absúrd, þetta er
bara svona lið sem virðist vera þarna
til þess eins að tefja fyrir. Maður fær
það á tilfinninguna að það sé allt
grunnsamfélagslega og siðferðislega
bogið. Við einblínum á sértæk prakt-
ísk vandamál. En kannski er það
lífsmynstrið og samfélagsgerðin sem
þarf að breytast. Það er enginn
klettur í samfélaginu þar sem kirkj-
an var áður. Hvaðan eiga hugmynd-
irnar að koma ef það er enginn klett-
ur til að byggja á? Ef maður lítur til
hrunsins þá virðist sem lögin hafi
verið farin að ákvarða siðferði fólks
en ekki öfugt. Ef það var leyfilegt þá
var það gert. Verkið mitt í Crymo
heitir Elephant og er bara einn
skúlptúr. Þetta er tilraun til að fjar-
lægja salinn úr salnum, þannig að
það er enginn salur eftir. Þetta er
eitthvað stórt sem er mjög auðvelt
að líta framhjá. Maður labbar bara í
kringum verkið og getur sloppið án
þess að taka eftir því. En það er
þarna og það er stórt.“
Sýningin verður aðeins opin í eina
viku.
Frumvilla í samfélagsgerðinni
Páll Haukur opnaði sýningu í Crymo um helgina Er Páll Haukur Delacroix
Íslands? Páli er samtíminn hugleikinn, byltingarkvöðin og efnahagshrunið
Morgunblaðið/Golli
Myndlistarsýning Páll Haukur Björnsson er með pólitíska sýningu í Crymo sem lýkur um næstu helgi.
Eftir að Páll Haukur kom frá
Feneyjum hefur hann verið
mjög athafnasamur og haldið
einar fimm sýningar á einu ári.
Aðspurður hvort bjórinn og
reykingarnar hafi verið
svona inspírerandi eða
hvort spjallið við Ragn-
ar Kjartansson hafi
verið sem spark í rass-
inn á honum segir hann
að þessar sýningar hafi
nú flestar legið fyrir áður
en að Feneyjainn-
setningunni kom.
Auk þess að sýna nú
í Crymo er Páll
Haukur í stjórn
Nýlistasafnsins
og er nú að und-
irbúa Sequence
sýninguna sem
verður haldin í
apríl.
Páll Haukur
LISTAMAÐURINN
Páll Haukur
Björnsson