Morgunblaðið - 19.10.2010, Blaðsíða 32
og hefur eitthvert ótrúlegt lag á að
rífa alla tónleikagesti með sér í stuð.
Eftir örlitla upphitun, sem hann kall-
aði hljóðprufu sem var í raun hallær-
isleg tónlist frá tíunda áratugnum,
bað hann alla tónleikagesti um að
rétta hendur upp í loft og benda til
jarðar. Næst bað hann alla um að
beygja sig niður í þá átt sem þau
bentu . Þá bað hann alla um að benda
á hvern þann sem ekki beygði sig, til
að tryggja þátttöku allra tónleika-
gesta enda vildi enginn sæta þeirri
niðurlægingu að vera sá sem allir
bentu á.
Dan Deacon talaði nánast meira en
hann spilaði tónlist enda tókst honum
að fá allan salinn til að dansa þrátt
fyrir að hver einasta manneskja í
salnum væri örmagna eftir fjögurra
daga átök Airwaves hátíðarinnar.
Keppt í dansi
Eftir stórskemmtilega byrjun, sem
ég hélt að væri bara til að koma fólki í
gírinn, tók Dan Deacon upp á því að
efna til danskeppni. Hann skoraði
fyrst á tvo gesti salarins í danseinvígi
áður en hann valdi fleira fólk af
handahófi, sem flest virtist til í að láta
FRÁ AIRWAVES
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Fjórir dagar liðnir af taumlausu tóna-
flóði og stanslausu stuði. Flestallir
hátíðargestirnir úrvinda eftir vel
heppnaða hátíð.
Engu að síður var mikil stemmning
á lokakvöldi Airwaves á sunnudag.
Sunnudagskvöldið var ekki jafn
umfangsmikið og hin kvöldin en tón-
leikarnir voru haldnir á tveimur
skemmtistöðum.
Ég mætti klukkan tíu á Nösu. Hinn
bandaríski Dan Deacon var að byrja.
Hann virtist vera öllu frjálslyndari en
aðrar stjörnur sem spiluðu á Airwa-
ves hátíðinni. Þó svo að Nasa væri
troðfull af fólki kom hann sér ekki
fyrir á sviðinu heldur á miðju gólfi.
Hann vildi greinilega vera innan um
tónleikagesti enda eflaust öllu
skemmtilegra að standa sjálfur í
þvögunni en að hírast einn uppi á
sviði.
Örmagna en í miklu stuði
Ég held mikið upp á Dan Deacon.
Hann er fullur af orku og útgeislun
hafa sig að fífli, til að dansa hvað gegn
öðru. Ég held að ég hafi alveg örugg-
lega skilið hann rétt þegar hann bað
einn gestinn um að dansa „eins og þú
vildir að bíómyndin Avatar hefði ver-
ið gerð“.
Stórfurðulegt en mjög skemmti-
legt. Ég hlakka til að sjá Dan Deacon
aftur.
Næst leit ég við á Venue en þar
spiluðu Borko, Búdrýgindi og Hjal-
talín. Reyndar skildist mér síðar að
þeir tónleikar væru ekki á vegum
Airwaves en þeir voru engu að síður
mjög skemmtilegir. Það vita líka allir
sem hafa séð Búdrýgindi á tónleikum
að þegar þeir stíga af sviði má ekki
finna þurran þráð í húsinu. Þeir eru
alveg ótrúlega þéttir enda var hljóm-
sveitin stofnuð þegar þeir útskrif-
uðust úr leikskóla.
Kröftugur eftirskjálfti Airwaves
Morgunblaðið/Ernir
Niður Dan Deacon fékk alla til að beygja sig niður í gólf til að hita tónleikagesti upp fyrir tónleika sína á Nösu.
Dan Deacon heillaði salinn og hélt
uppi miklu stuði á Nösu með mjög
frumlegum uppátækjum sínum
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2010
„GEÐVEIKISLEGA
FYNDIN“
- SHAWN EDWARDS,
FOX-TV
FRÁ LEIKSTJÓRA MEET THE PARENTS
7
Steve Carrell og Paul Rudd
fara á kostum ásamt Zach
Galifianakis sem sló
eftirminnilega í gegn
í “The Hangover”
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
HHHH
- SJÁÐU/STÖÐ 2
HHHH
„BESTA MYND SINNAR TEGUNDAR
Á KLAKANUM OG HIKLAUST EIN AF
BETRI ÍSLENSKUM MYNDUM SEM
ÉG HEF SÉÐ.“
- T.V. - KVIKMYNDIR.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIRÞRIÐJUDAGSBÍÓ Í DAG - KR. 650
650 kr.
Tilboðil
HHHH
- H.S. MBL
HHHH
„FRAMVINDAN SVO ÁREYNSLU-
LAUS OG SKEMMTILEG AÐ
ÁHORFANDINN GLEYMIR SÉR.“
- R.E. FBL
BESTA SKEMMTUNIN
ÓRÓI kl.5:50-8-10:20 10 FURRYVENGEANCE kl.6 -8 L
THETOWN kl.6 -8-10:40 16 DINNERFORSCHMUCKS kl.5:40-8-10:20 7
THETOWN kl.8 -10:40 VIP-LÚXUS GOINGTHEDISTANCE kl.8:30-10:40 L
SOLOMONKANE kl.10:20 16 ALGJÖRSVEPPIOGDULARFULLA... kl.63D L
SOLOMONKANE kl.5:40 VIP-LÚXUS
/ ÁLFABAKKA
ÓRÓI kl. 5:50 - 8 - 10:20 10
THE TOWN kl. 8 - 10:40 16
FURRY VENGEANCE kl. 6 L
ALGJÖR SVEPPI OG DULARFULLA... kl. 63D L
STEP UP 3 kl. 8 7
INCEPTION kl. 10:10 Sýnd í síðasta sinn 21. okt. 12
/ KRINGLUNNI
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Það hefur verið til siðs á Iceland Airwaves-
hátíðinni að halda svokallað Bláa lóns „tsjill“-
partí á laugardögum. Viðburðurinn er ætlaður
allra framlægstu gestunum, veitir þeim færi á
að hrista allra mesta volkið úr sér áður en lagt
er í lokakvöld hátíðarinnar með tilheyrandi
glaumi og gleðskap. Engin breyting var á
þessari góðu venju í ár og fylltist lónið af mis-
húðflúruðum tónlistaráhugamönnum með mis-
mikla bauga undir augum. Eins og nærri má
geta býður Lónið upp á einstaka upplifun; töfr-
um slegið umhverfið, saman með hvítleiruðu
fólki og dynjandi teknótónum byggði undir
ljúfa og allsérstaka stemningu. Að vanda var
það DJ Margeir sem stýrði teitinu en honum
til halds og trausts var Daníel Ágúst sem söng
nokkrar vel valdar nótur í hljóðnemann.
Ljósmynd/Halldór Kolbeinsson
Söngfugl Daníel Ágúst lét sig ekki vanta enda sundmaður mikill.
Ljósmynd/Halldór Kolbeinsson
Leirgyðja Margt býr í Lóninu einsog til dæmis þessi þokkagyðja.
Loftbylgjur í Lóninu