Morgunblaðið - 19.10.2010, Side 36
Brúðkaup, töfrakvöld og tónleikar
eru á meðal þess sem verður í Saln-
um í þessari viku. Þorsteinn Eggerts-
son ríður á vaðið á morgun með
skemmtikvöldi og ætlar hann að nota
tækifærið og gifta sig í leiðinni.
Góðar stundir í
Salnum í vikunni
ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 292. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218
1. „Þau bara keyrðu ofan í holu“
2. Segir Jagger vel vaxinn niður
3. Settu upp hindranir
4. „Ég ætla að kaupa hús á Íslandi“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Á morgun hefst
miðasala á Frost-
rósir, sem heill-
uðu ríflega 22
þúsund tónleika-
gesti víða um land
í fyrra. Tónleikum
hefur nú verið
fjölgað til að
mæta gríðarlegri
eftirspurn.
Á síðasta ári seldist upp á þrenna
tónleika í Reykjavík og á tíu tónleika
úti á landi á innan við tveimur sólar-
hringum.
Miðasala á Frostrósir
hefst á morgun
Kvikmyndasafnið sýnir Birds eftir
Alfred Hitchcock í kvöld kl. 20 og
laugardag 23. okt. kl. 16.
Fuglarnir, eða The Birds, eru eitt af
óskoruðum meistaraverkum Hitch-
cocks og mark-
aði myndin
margvísleg
kvikmynda-
söguleg tíma-
mót, einkum
hvað við-
kemur
tæknimálum.
Kvikmyndasafnið
sýnir Birds
Á miðvikudag Norðvestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og víða bjartviðri, en vaxandi
vindur og él úti við A-ströndina. Hiti 0-6 stig en vægt frost inn til landsins.
Á fimmtudag og föstudag Norðlæg átt 5-13 m/s, hvassast austantil. Dálítil él norðantil
á landinu, en léttskýjað að mestu syðra. Hiti um og yfir frostmarki.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestan og norðvestan 5-10 m/s og sums staðar skúrir eða él, en
bjartviðri suðaustantil. Hiti 0 til 7 stig yfir daginn, en frost 0 til 5 stig víðast hvar í nótt.
VEÐUR
Þórunn Helga Jónsdóttir
varð Suður-Ameríku-
meistari í fótbolta með
Santos frá Brasilíu ann-
að árið í röð. Þórunn fór
meidd af leikvelli í hálf-
leik en sigurmark San-
tos gegn Everton frá
Síle var skorað á 89.
mínútu. „Sigurmarkið
kætti mig svo sannar-
lega,“ sagði Þórunn
Helga við Morgunblaðið í
gær. »2.
Þórunn Suður-
Ameríkumeistari
Ísfirðingar unnu upp 20 stiga forskot
ÍR-inga og tryggðu sér sigur í ævin-
týralegum leik. Fjölnir vann Hamar
naumlega en Stjarnan sýndi styrk
sinn gegn máttlitlum Keflvíkingum í
þriðju umferð úrvalsdeildar karla í
körfuknattleik. »4
Ótrúlegar sveiflur í leik
KFÍ og ÍR á Ísafirði
Fjórar sveitir frá Íslandi taka þátt í
Evrópumeistaramótinu í hópfim-
leikum sem hefst í Malmö í Svíþjóð
á fimmtudag og lýkur á sunnudag-
inn. Um er að ræða kvennasveitir
frá Gerplu og Ármanni sem keppa í
flokki fullorðinna, 16 ára og eldri,
blandaða karlasveit frá Ármanni
og Gerplu og unglingalandslið
stúlkna. »3
Fjórar íslenskar sveitir
á EM í hópfimleikum
ÍÞRÓTTIR
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þrír ungir Íslendingar voru í sviðs-
ljósinu í handriðakeppninni Front-
line Railjam 2010, sem fram fór í
miðborg Stokkhólms um helgina.
Eiríkur Helgason sigraði í saman-
lögðu, Halldór Helgason, bróðir
hans, var með bestu kúnstirnar eða
trikkin í annarri handriðakeppninni
og Guðlaugur Guðmundsson í hinni.
Tóku öll verðlaunin
„Þetta er með stærri alþjóð-
legu mótunum á snjóbrettum í Evr-
ópu ár hvert, þrenn verðlaun í boði
og við tókum þau öll,“ segir Guð-
enda þar eru meðal annars strákar
frá Bandaríkjunum og Kanada auk
Evrópu.
Guðlaugur segir að góður ár-
angur þýði boð á fleiri mót og það
komi sér ekki síst vel fyrir
styrktarfyrirtækin. Annars vinni
þeir mest við það að gera snjó-
brettamyndbönd. Tökur fari fram á
veturna, önnur vinna fari fram á
sumrin og myndböndin séu síðan
frumsýnd á haustin með sölu í
huga. En mótin séu samt ákveðið
krydd í tilveruna.
„Það er skemmtilegast að
vinna til verðlauna á þessu móti
vegna þess að þetta er besta keppn-
in í þessari grein,“ segir hann.
laugur, sem er 24 ára. Eiríkur er
ári yngri og Halldór 19 ára en allir
eru þeir atvinnumenn á snjóbrett-
um. Um 30 keppendur tóku þátt í
mótinu og fylgdist fjöldi manns með
keppendum sýna listir sínar. Þre-
menningarnir eru frá Akureyri og
hafa leikið sér á brettum í áratug.
Þeir hafa vakið heimsathygli og er
skemmst að minnast sigurs Hall-
dórs í svonefndri „Big Air“-keppni
á árlegu vetraríþróttahátíðinni Win-
ter X-Games í Aspen í Bandaríkj-
unum í byrjun ársins. Um er að
ræða fjölmennasta jaðaríþróttamót
heims í vetraríþróttum. Þeir hafa
áður unnið til verðlauna í Stokk-
hólmskeppninni, en á meðal kepp-
Skemmtilegt í Stokkhólmi
Þrír Íslendingar skiptu með sér öllum verðlaununum
Renna sér á handriðum og brydda upp á nýjungum
Sigurvegarar Halldór, Guðlaugur og Eiríkur á Sergels-torginu í Stokkhólmi að loknum sigri.
Guðmundur
Reynir Guð-
mundsson,
Mummi, leikur
fótbolta, leysir
stærðfræðiþraut-
ir, spilar á píanó
og dansar sam-
kvæmisdans. Og
býr líka til plötur
svona í framhjá-
hlaupi. Fyrir
stuttu kom út fyrsta breiðskífan en
um einhverskonar píanó-rokkpopp-
plötu er að ræða sem heitir Various
Times in Johnny’s life. Morgun-
blaðið ræddi við hann. » 30
Mörg járn
í eldinum
Popparinn Mummi.
Stærðfræði, dans,
fótbolti og tónlist
Steinunn Þórarinsdóttir mynd-
höggvari hefur haft í nógu að snúast
undanfarið og framundan er þátt-
taka í listkaupstefnu í Istanbúl, af-
hjúpun á verki í Skotlandi og upp-
setning á stórri innsetningu í hjarta
New York-borgar. Þar verður inn-
setningin Landamæri sett upp á
Dag Hammarskjöld Plaza skammt
frá höfuðstöðvum Sameinuðu þjóð-
anna. Verkið mun líklega innihalda
alls 28 fígúrur og er unnið í sam-
vinnu við almenningsgarða borg-
arinnar.
Steinunn hefur starfað í 15 ár með
virtu galleríi í London, en nú er hún
einnig komin inn á gafl hjá Scott
White Contemporary. »28
Steinunn Þórarinsdóttir
Innsetning
í New York