Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 39
DAGBÓK 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2010 Sudoku Frumstig 7 9 3 6 1 8 2 5 2 3 1 8 7 1 7 3 9 2 9 3 5 2 8 1 7 5 6 7 1 5 2 7 4 5 3 2 1 2 3 6 9 1 2 9 5 3 4 9 1 6 2 3 5 9 2 8 5 8 7 2 9 6 3 2 1 4 4 5 9 8 8 7 2 3 3 8 7 4 9 6 1 5 2 6 2 1 5 8 7 9 3 4 5 9 4 3 1 2 8 7 6 8 5 9 7 4 3 6 2 1 2 1 3 6 5 8 7 4 9 7 4 6 1 2 9 5 8 3 4 3 8 9 6 5 2 1 7 9 7 5 2 3 1 4 6 8 1 6 2 8 7 4 3 9 5 3 9 8 5 7 6 2 1 4 5 4 1 9 2 3 6 7 8 7 2 6 8 4 1 3 9 5 4 8 2 6 1 9 7 5 3 9 3 5 4 8 7 1 2 6 1 6 7 3 5 2 4 8 9 6 7 3 1 9 8 5 4 2 8 1 4 2 3 5 9 6 7 2 5 9 7 6 4 8 3 1 4 1 3 2 5 6 9 7 8 7 2 8 9 1 4 3 6 5 9 6 5 7 3 8 2 1 4 8 7 1 4 6 2 5 3 9 6 5 2 1 9 3 8 4 7 3 4 9 5 8 7 1 2 6 2 9 6 8 7 1 4 5 3 1 8 7 3 4 5 6 9 2 5 3 4 6 2 9 7 8 1 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 24. desember, 358. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Hann stendur mér við hlið til þess að veita mér lið og vernd. (Daníel 11, 1.) Töluverð umræða hefur spunnist íkjölfar ummæla um dýrahald og smölun villikatta í meirihluta- samstarfi Samfylkingar og Vinstri grænna á Alþingi. Það kom því varla á óvart þegar Umferðarstofa sendi frá sér tilkynningu í fyrradag og varaði ökumenn við hundahaldi enda fyndist lögreglunni ástæða til þess að undirstrika hættuna sem því fylgdi. x x x Samkvæmt stjórnarliðum eruvillidýr í þeirra hópi en Víkverji hefur hvorki séð boð né bönn við þeim. Hvers eiga hundar að gjalda, spyr hann eftir morgunhugvekju Umferðarstofu á miðvikudag. Þar segir að það sé furðu algengt að öku- menn aki með hunda í fanginu. Tek- ið sé fram í umferðarlögum að öku- menn eigi að vera með óskerta athygli við aksturinn og því megi segja að bannað sé að vera með hund í fanginu meðan á akstri stendur. „Dýrin skulu höfð í sérstökum ör- yggisbeltum eða búrum sem hvort tveggja má fá í gæludýrabúðum,“ segir Umferðarstofan og Víkverji tekur undir það. Upplögð jólagjöf fyrir ferfætlinga. x x x Annars er þetta eitt af því semVíkverji á erfitt með að skilja. Þegar hallar á konur í umræðunni er oft sagt að þær hafi það fram yfir karla að geta gert margt í einu en þeir geti bara gert eitt í einu, ef það. Sé það rétt brjóta konur umferð- arlögin frekar en karlar, að minnsta kosti lögin um akstur og dýrahald. Karlar geta ekki bæði ekið og haldið hund á sama tíma en konur fara létt með það. Ekki er víst að konur vilji sitja undir því að brjóta lög og hvað þá í ríkari mæli en karlar. Því verður fróðlegt að fylgjast með umferð- armenningunni um jólin og sjá hverjir sitja undir hverjum. x x x Að svo mæltu óskar Víkverji les-endum gleðilegra jóla og vonar að allir eigi dýrlega hátíð. Líka þeir sem eru úti að aka. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 gróf, 4 spákona, 7 fórn, 8 kvæði, 9 ungviði, 11 mjög, 13 ránfuglar, 14 esp- ar, 15 klár, 17 slæmt, 20 bol, 22 ófrjáls maður, 23 sjófugl- inn, 24 orðasenna, 25 skjóða. Lóðrétt | 1 lota, 2 slétta, 3 gaffal, 4 makræði, 5 ber, 6 peningar, 10 húsgögn, 12 drif, 13 örn, 15 konungur, 16 þreyttum, 18 nárinn, 19 áma, 20 ker, 21 glatt. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 handbolti, 8 vænir, 9 gufan, 10 ata, 11 rósar, 13 remma, 15 hross, 8 hræða, 21 tær, 22 riðla, 23 okinn, 24 hrekklaus. Lóðrétt: 2 annes, 3 dárar, 4 orgar, 5 tófum, 6 svar, 7 snúa, 12 als, 14 err, 15 horf, 16 orður, 17 stakk, 18 hroll, 19 ætinu, 20 agns. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rf3 Bg7 4. g3 d5 5. cxd5 Rxd5 6. Bg2 Rb6 7. Rc3 Rc6 8. e3 0-0 9. 0-0 He8 10. He1 a5 11. De2 Be6 12. Hd1 Bc4 13. Dc2 a4 14. Db1 Rb4 15. e4 c5 16. d5 a3 17. h4 Ba6 18. h5 axb2 19. Bxb2 Rc4 20. Bf1 Rxb2 21. Dxb2 Bxf1 22. Kxf1 Db6 23. Dd2 Staðan kom upp í opnum flokki á Ól- ympíumótinu í skák sem fór fram í Khanty-Mansiysk í Rússlandi og lauk sl. október. Armenski stórmeistarinn Levon Aronjan (2.783) hafði svart gegn tyrkneska alþjóðlega meist- aranum Baris Esen (2538). 23. … Df6! svartur vinnur nú mann. 24. Kg2 Dxc3 25. Df4 Rd3 26. Hxd3 Dxd3 27. Hh1 e5 og hvítur gafst upp. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Nákvæm litaríferð. S-AV. Norður ♠Á105 ♥G62 ♦1087 ♣G873 Vestur Austur ♠8432 ♠976 ♥10987 ♥543 ♦Á432 ♦965 ♣9 ♣K652 Suður ♠KDG ♥ÁKD ♦KDG ♣ÁD10 Suður spilar 6G. Með 27 hápunkta opnar suður á al- kröfu, 2♣. Norður hlerar með 2♦ og suður hoppar í 4G til að sýna öll ósköp- in. Sögnin lýsir 27-28 punktum og þær fréttir duga norðri til að segja 6G. Út- spilið er ♥10. Yfirleitt er það ávísun á samgangs- vandræði þegar kóngafólkið safnast saman á einum stað. Laufkóngur þarf að liggja fyrir svíningu, en vandinn er sá að spaðaásinn er eina innkoma blinds. Þá innkomu þarf að nota vel. Til að byrja með borgar sig að fara af stað með laufgosann, frekar en lítið lauf, enda sennilegra að austur sé með ♣Kxx en kónginn blankan. Þetta er nokkuð augljóst. Hitt leynir á sér að best sé að láta tíuna heima undir gos- ann! Með því móti má halda innkom- unni lengur ef vestur reynist eiga lauf- níuna blanka. 24. desember 1899 Hátíðasöngvar séra Bjarna Þorsteinssonar tónskálds voru fluttir í fyrsta sinn við aftan- söng í Dómkirkjunni í Reykja- vík, en bók með söngvunum kom út um sumarið. Áður höfðu hátíðasöngvarnir verið fluttir í kirkjunni á Siglufirði og í Eyrarbakka- og Stokks- eyrarkirkjum. 24. desember 1930 Útvarpað var frá aftansöng í Dómkirkjunni í Reykjavík í fyrsta sinn. Prestur var séra Bjarni Jónsson. Þessi hefð hef- ur haldist og einnig það að hafa hlé á undan. 24. desember 1932 Lestur jólakveðja hófst í Rík- isútvarpinu. Kveðjurnar voru „til almennings og einstakra manna“. Á Þorláksmessu árið eftir var gefinn kostur á kveðj- um fluttum „af sjálfum þeim er senda“. Í jólakveðjunum máttu þá vera, auk jólaóska, „stuttar frásagnir um heim- ilishag og aðra einkahagi“. 24. desember 1967 Ljóðið „Ó, helga nótt“ eftir Sigurð Björnsson verkfræðing var frumflutt við aftansöng í Garðakirkju á Álftanesi. Ljóð Sigurðar við lag Adams hefur á síðustu árum orðið einn vin- sælasti jólasálmurinn. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … „Það er bara ótrúlega skemmtilegt að eiga afmæli á aðfangadag. Þannig vill til að ég á bróður sem á afmæli 20. desember og því var alltaf haldið upp á afmælin okkar saman á þeim degi,“ segir Þórdís Birna Eyjólfsdóttir leikskólakennari, aðspurð hvernig það hafi verið í gegnum tíðina að eiga af- mæli á aðfangadag, en hún fagnar 55 ára afmæli sínu í dag. Þá hafi móðir hennar átt afmæli 29. desember. „Við vorum fimm manna fjölskylda, tveir áttu afmæli í nóvember og þrír í desember,“ segir Þórdís. Þessu til viðbótar hafi elsti sonur hennar og tengdadótt- ir gefið henni bestu afmælisgjöf sem hún hafi fengið á ævinni þegar þau hafieignast barn á aðfangadag fyrir níu árum. Desember hafi þannig alltaf verið sérstaklega mikill hátíðamánuður í hennar fjöl- skyldu og sé enn. „Seinni árin eftir að ég varð fullorðin hef ég alltaf haldið upp á af- mælið mitt klukkan eitt á aðfangadag. Það er bara fastur liður hjá vinum mínum að koma við þegar þeir keyra út jólapakka,“ segir Þór- dís. Þannig komi alltaf um 30 manns í heimsókn á aðfangadag. „Mér finnst aðalatriðið að njóta þess að vera til og vera ánægð með fjöl- skylduna mína,“ segir Þórdís að lokum. Þórdís Birna Eyjólfsdóttir leikskólakennari Afmælisveisla á aðfangadag Demantsbrúðkaup  Hjónin Guðbjörg Ágústsdóttir og Ólafur Ingimundarson eiga sextíu ára brúðkaupsafmæli á annan dag jóla, 26. desember. Flóðogfjara 24. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 2.01 0,4 8.13 4,2 14.36 0,4 20.40 3,8 11.24 15.32 Ísafjörður 4.06 0,3 10.07 2,4 16.44 0,3 22.35 2,0 12.10 14.55 Siglufjörður 0.42 1,2 6.16 0,3 12.32 1,4 18.55 0,1 11.55 14.36 Djúpivogur 5.27 2,3 11.44 0,4 17.38 2,0 23.51 0,3 11.02 14.52 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Enginn gefur þér tíma fyrir sjálfa/n þig, þess vegna skaltu búa þér hann til. Láttu stríðni annarra sem vind um eyru þjóta. (20. apríl - 20. maí)  Naut Umhverfið hefur áhrif á þig. Sýndu dugnað og samviskusemi í starfi og þá er allt í lagi að slá á létta strengi þegar við á. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú ert eitthvað utan við þig og get- ur hæglega týnt sjálfum þér ef þú ert ekki á verði. Brettu upp ermarnar. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú ert ekki viss um hvernig þú eigir að taka á málunum í vinnunni. Gefðu þér tíma til að sinna þér líka. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Heppnin virðist vera með þér núna og þú munt áður en langt um líður uppskera vel. Stundum borgar það sig að hafa fyrir hlut- unum þó að það taki ómældan tíma. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Gefstu ekki upp á því að leggja góðum málstað lið þótt baráttan sé hörð og þér finn- ist lítið miða. Mundu að áhyggjur taka bæði tíma og orku en skila engum árangri. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú ættir að fara þér hægar í að dæma fólk. Það er alltaf einhver sár reynsla bak við biturð. Samband nokkurt er byggt á sandi, innst inni veistu það. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Kynntu þér vandlega alla mála- vexti áður en þú kveður upp úr um skoðun þína. Haltu þig út af fyrir þig meðan þú ert að vinna úr þínum málum. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Trú þín á sjálfa/n sig laðar aðra að þér. Treystu víðsýnum félaga fyrir við- kvæmu málefni sem þú þarft að ræða. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Dagurinn er með því sniði að allt eins líklegt er að þú fallir fyrir einhverjum ókunnugum. Farsælast er að finna sköp- uninni jákvæðan farveg og hefjast svo handa. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þér er illa við breytingar, einkum þær sem þú hefur ekki séð fyrir. Reyndu að skoða málin út frá heildarmyndinni. Ef þú vilt halda sambandi áfram þarftu að sýna þol- inmæði og sveigjanleika. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Atburðir dagsins eru fyllilega til marks um innri baráttu þeirra sem í kringum þig eru. Þú færð tilboð sem þú getur ekki hafnað. Stjörnuspá Hjónin Edda Ingibjörg Margeirs- dóttir og Sveinn Pálsson eiga sextíu ára brúðkaupsafmæli á morgun, jóladag. Þau eignuðust fimm börn, 17 barnabörn og barnabarnabörnin eru orðin sjö. Þau dvelja um þessar mundir hjá dóttur sinni í Þýskalandi. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.