Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2010 ✝ Bjarki ÞorvaldurBaldursson fædd- ist á Sólborgarhóli í Glæsibæjarhreppi 5. júní 1936. Hann lést á Gjörgæsludeild Fjórðungssjúkrahúss- ins á Akureyri 9. des- ember 2010. For- eldrar hans voru Sigríður Ásgeirs- dóttir, f. 3. júlí 1908, d. 16. júlí 1983, og Baldur Stefánsson, f. 24. ágúst 1914, d. 24. febrúar 1973. 8. ágúst 1959 kvæntist Bjarki Sigríði Benediktsdóttur frá Ytra- Dalsgerði í Eyjafjarðarsveit. Hún er dóttir hjónanna Vilhelmínu S. Kristinsdóttur, f. 7. janúar 1918, d. 21. janúar 1938, og Benedikts Bergssonar, f. 18. október 1913, d. 19. desember 1943. Þau slitu sam- vistum 1988. Börn þeirra eru: 1) Pétur, f. 1979, sambýliskona Harpa Thoroddsen, f. 1979. Synir þeirra eru Hilmir, f. 2006, og Emil, f. 2009, c) Vilhelm Berg, f. 1985, sambýliskona Elín Ásta Bjarna- dóttir, f. 1991. Sonur þeirra er Hafsteinn Bjarni, f. 2008. d) Stefán, f. 1993. 3) Heiðrún Edda, f. 1960. Sonur hennar Bjarki Þorvaldur, f. 1984, sambýliskona Kolbjörg Lilja Benediktsdóttir, f.1988. 4) Bjarki Þór, f. 1964, sambýliskona Ingi- björg Ingibergsdóttir, f. 1968. Syn- ir þeirra eru: a) Aron Ingi, f. 1988, b) Davíð Freyr, f. 1988, c) Arnar Geir, f. 1995, d) Alex, f. 2001. Bjarki lærði rafvirkjun og vann lengst af við þá iðn. Bjarki flutti frá Akureyri til Reykjavíkur árið 1978 og bjó þar til ársins 2003, en þá flutti hann aftur til Akureyrar í kjölfar veikinda. Útför Bjarka Þorvaldar fór fram í kyrrþey frá Höfðakapellu 20. des- ember 2010. Anna Guðrún, f. 1956, fyrrverandi eiginmaður Jóhann F. Stefánsson, f. 9. maí 1952. Synir þeirra eru: a) Baldur Hólm, f. 1973, sam- býliskona Oddný Zophoníasdóttir, f. 1974. Börn þeirra eru Breki Hólm, f. 2005, og Bríet Hólm, f. 2006. b) Stefán Freyr, f. 1975, kvænt- ur Indíönu Ásu Hreinsdóttur, f. 1977. Dætur þeirra eru Marsibil og Ísa- bel, f. 2008. 2) Sigríður Hrönn, f. 1957, kvænt Hafsteini Péturssyni, f. 1953. Synir þeirra eru: a) Bene- dikt Kaster, f. 1974, kvæntur Höllu Guðmundsdóttur, f.1981, sonur þeirra er Viktor Berg, f. 2005, dóttir Benedikts frá fyrra sam- bandi er Alma Dögg, f. 1995. b) Elsku pabbi. Ég vil þakka þér með þessu ljóði: Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Hafðu þakkir fyrir allt elsku pabbi minn. Þín dóttir, Sigríður (Sísa). Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. Ó, elsku pabbi, ég enn þá er aðeins barn, sem vill fylgja þér. Þú heldur í höndina mína. Til starfanna gekkstu með glaðri lund, þú gleymdir ei skyldunum eina stund, að annast um ástvini þína. Þú farinn ert þangað á undan inn. Á eftir komum við, pabbi minn. Það huggar á harmastundum. Þótt hjörtun titri af trega og þrá, við trúum, að þig við hittum þá í alsælu á grónum grundum. Þú þreyttur varst orðinn og þrekið smátt, um þrautir og baráttu ræddir fátt og kveiðst ekki komandi degi. (Hugrún.) Takk fyrir allt, elsku pabbi. Heiðrún. Elsku afi. Á miðvikudegi frétti ég að þú værir mikið veikur og ættir líklega ekki mikið eftir. Eftir stutta baráttu var ljóst að ólíklegt væri að þú hefðir það af sem varð og raunin á fimmtudags- morgni. Nú þegar ég horfi aftur og minnist þess sem við gerðum saman og þú fyrir mig er margs að minnast. Fyrstu minningarnar eru að öllum líkindum allar þær stundir sem ég átti með þér og ömmu í sumarbú- staðnum. Þið fóruð oft í bústaðinn og oft var dröslast með mig og fleiri barnabörn með. Í sumarbústaðnum var margt gert til dægrastyttingar, helst man ég eftir því að hafa grillað banana, gróðursett tré og þegar þú sýndir mér hvernig maður ætti að raka sig. Þú kunnir það jú betur en flestir enda alltaf snyrtilega rakaður. Þegar þú bjóst í Reykásnum var ég einu sinni í pössun hjá þér í nokkra daga og ég man vel eftir þeim tíma. Við vöknuðum alltaf saman á morgnana og drifum okkur í sund. Þegar við vorum búnir í sundi fór ég með þér í vinnuna á Skjóli þar sem þú vannst í mörg ár. Ég dröslaðist með þér í vinnunni og man að ég hafði sér- staklega gaman af lampanum sem var á vinnuborðinu þínu, með stækk- unarglerinu. Þegar mér var farið að leiðast var ekki djúpt á lausninni því þá var grafin upp litabók sem ég lék mér með tímunum saman. Kaffitíma- rnir á Skjólinu voru svo í miklu uppá- haldi hjá mér, enda nóg af bakkelsi með kaffinu og það leiddist mér ekki. Á fermingardaginn minn varst þú hjá okkur mömmu og varst að hjálpa mér að hafa mig til fyrir stóra dag- inn. Það var gott að hafa þig á staðn- um fyrir margar sakir, meðal annars kunni enginn bindishnút á heimilinu, þú reddaðir því vitanlega með bros á vör og kenndir mér um leið að binda bindishnút sem ég nota enn þann dag í dag. Þetta eru bara nokkrar minningar sem koma upp í hugann þegar ég hugsa til þeirra stunda sem ég átti með þér. Minning þín lifir með mér. Þó í okkar feðrafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (Bjarni Jónsson frá Gröf) Elsku afi, hvíldu í friði og hafðu þökk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Þinn nafni, Bjarki Þorvaldur. Bjarki Þorvaldur Baldursson ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem heiðruðu minningu og sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, systurdóttur, mágkonu og vinkonu, INGIBJARGAR R. GUÐMUNDSDÓTTUR formanns Landssambands ísl. verzlunarmanna. Sérstakar þakkir fyrir hlýju og góða umönnun færum við starfsfólki og læknum deildar 11G á Landspítalanum við Hringbraut. Bjarni Jónsson, Jenný N. Sigurðardóttir, Andrés Jón Esrason, Jón Eiríksson, Timothy David Creighton, Ruth Barnett Creighton, Irina S. Ogurtsova. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR ÁGÚSTSSON frá Vík, Tjarnarási 9a, Stykkishólmi, lést á St. Franciskusspítala í Stykkishólmi miðvikudaginn 22. desember. Elín Guðrún Sigurðardóttir, Magdalena Sigurðardóttir, Alfreð S. Jóhannsson, Þór Sigurðsson, Hallfríður Guðrún Einarsdóttir, Oddný Sigurðardóttir, Eiríkur Jónsson, Dagný Sigurðardóttir, Þorvaldur Jónsson, Þorgerður Sigurðardóttir, Kristján Már Unnarsson, Sigríður Sigurðardóttir, Ingjaldur Arnþórsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug við andlát föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÓLAFS HAFÞÓRS GUÐJÓNSSONAR, Brúnavegi 5, Reykjavík. Sérstakar þakkir viljum við færa Karitas heimahjúkrun, Securitas og deild 11 E Landspítalanum við Hringbraut fyrir góða umönnun. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól. Björg Ólafsdóttir, Magnús Magnússon, Daníel Ólafsson, Guðjón Hafþór Ólafsson, Þuríður Edda Skúladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartanlega þökkum við samúð og vinarhug sem okkur var sýndur við andlát og jarðarför móður okkar, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR, Skógarbæ, áður á Langholtsvegi 8, Reykjavík. Læknum og hjúkrunarfólki á 32C á Landspítala og starfsmönnum og vistfólki Skógarbæjar færum við hugheilar þakkir. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól og gott komandi ár. Jón Valur Jensson, Karitas Jensdóttir, Kolbrún Jensdóttir, Katrín Jónsdóttir, Þorlákur Jónsson, Ísak Jónsson, Sóley Kristín Jónsdóttir, Axel Viðar Egilsson, Pétur Már Egilsson Chinyere Elínborg Uzo. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR A. FÆRSETH, Sautjándajúnítorgi 7, áður Smáraflöt 40, Garðabæ, andaðist á líknardeild Landakots sunnudaginn 28. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til Heimahlynningar krabba- meinssjúkra og líknardeildar Landakots. Þökkum auðsýnda samúð. Börn og aðstandendur hins látna. Mig langar að skrifa nokkur orð sem að ein- hverju leyti gætu lýst honum karli föður mínum og lífs- hlaupi hans, en síðustu daga hefur eðlilega margt farið í gegnum hug- ann. Sem gutti man ég pabba minn sem flutningabílstjórann sem gat verið að heiman dögum saman. Því í þá daga var ekki óalgengt að heil vika færi í hverja ferð. Þetta gat verið sérlega hvimleitt á veturna þegar leiðinni á milli Akureyrar og Reykjavíkur var aðeins haldið opinni tvisvar í viku, ef veður leyfði. Því man ég vel dimm kvöld í norðanstórhríð, Laxárvirkjun e.t.v. dottin út og pabbi ekki enn kom- inn. Þá gat síminn hringt og hann sagst vera veðurtepptur í Forna- hvammi eða á Blönduósi. Þetta var á sjötta og sjöunda áratugnum eða fyr- Hermann Stefánsson ✝ Hermann Stef-ánsson fæddist í Ásgarði á Svalbarðs- strönd 30. október 1926. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 29. nóvember síðastliðinn. Útför Hermanns fór fram frá Akur- eyrarkirkju 10. des- ember 2010. ir daga vökvastýrisins og þegar varla varð hjá því komist að fá a.m.k. eina punkteringu í hverri ferð. Þannig man ég fyrstu ferðina mína með honum, þeg- ar brýr voru jafn breið- ar bílunum og ekið var í gegnum hlaðið á nokkrum bæjum í Langadalnum. Fyrstu suðurferð pabba mundi hann hins vegar fyrir þá sök að hafa fest bílinn í aurpytti sem var á veginum. Fyrir utan veðrið og færðina á vet- urna gat aðeins hans helsta áhugamál raskað áætluninni. En það var söng- urinn og að komast á söngæfingu hjá Karlakór Akureyrar og hitta fé- lagana. Stundum stóð svo tæpt að hann rétt náði að skipta um föt áður en hann var þotinn á æfingu. Við krakkarnir vorum ekki alltaf dús við þetta framferði eftir að hafa e.t.v. beðið hans í marga daga. Því gleymist ekki að um það leyti er hann var fer- tugur gaf hann okkur eins konar vil- yrði fyrir því að vera í mesta lagi tvö til þrjú ár til viðbótar í kórnum og hætta svo. En þegar kórinn var lagð- ur niður nokkrum áratugum seinna, söðlaði hann um og fór yfir í Rúnakór frímúrara og söng með þeim á meðan heilsan leyfði. Söngæfingarnar gáfu pabba líka annað og miklu meira en bara sönginn, því þar hitti hann einn- ig vinina og alla kunningjana sem hann eignaðist í gegnum þetta stóra áhugamál sitt. Það væri ekki sanngjarnt að segja að pabbi hafi átt erfitt með að kynn- ast fólki. Nær væri að segja að fólk hafi ekki komist hjá því er hann var nálægur. Það stafaði af almennum áhuga hans á fólki og öllum högum þess. Því var oftar en ekki viðkvæðið að segja manni frá einhverjum sem hann hafði nýlega rekið garnirnar úr, og hvort ég myndi nú ekki eftir hon- um. Þegar þessi áhugi hans á „hverra manna ertu“ blandaðist síðan því hversu sérstakur hann gat verið í til- svörum gátu komið upp einkennileg- ar aðstæður – hjá óvönum. Það staf- aði af góðlátri glettni sem hann átti til að blanda ríkri þörf á að setja hluti í annað ljós en viðkomandi gat búist við. Fólk átti þá til að stara tómum augum og vita ekki hvort um grín eða alvöru var að ræða. Það skal tekið fram að betri helmingurinn hafði ekki mikinn skilning á þessu uppátæki hans. Sérstaklega ekki ef hún var með honum innan um prúðbúið fólk … þá þurfti hún stundum að minna hann á að vera nú ekki með neina bölvaða vitleysu eins og hún kallaði það. Ég kveð minn kæra föður með miklum söknuði. Atli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.