Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 11
Mikið vona ég nú að sem allra flestir séu komnir í jólaskapið. Ætli það sé því ekki við hæfi að hripa litla hugleiðingu niður á blað í tilefni hátíðanna. Reyndar held ég að allir séu orðnir frekar þreyttir á hjalinu um hvað okkur beri að vera þakklát fyrir það sem við höf- um um jólin. Hvernig þessi hátíð er orðin eitt stórt neyslufyllirí og hvernig þjóðinni hefur tekist að gleyma rauða þræðinum í þessu öllu saman, sjálfum kristsburðinum o.s.frv. Slíkar lesningar geta orðið þreytandi. Hins vegar finn ég mig knúinn til að setja nokkur orð á blað um þær fréttir sem mér blöskraði við að lesa í vikunni. Einhverjir ofdekraðir og vanþakklátir stafsmenn fyrirtækis gerðu úr því fjölmiðlafár að jóla- gjöf þeirra frá fyrirtækinu hefði ekki verið nógu veg- leg þetta árið. Þeir fengu sem sagt sjópoka að gjöf. Slíkir pokar eru framleiddir með sjómenn í huga en gagnast okkur landkröbbunum í útilegum og öðrum ferðalögum. Þess má einnig geta að sjópokar kosta að jafnaði tugi þúsunda króna. En þetta þótti alveg fyrir neðan allar hellur og því var vaðið í alla fjölmiðla og fyrirtækið gagnrýnt harð- lega fyrir að gera ekki nógu vel við starfsmenn sína. Ein efnishyggju-dekurrófan lét m.a.s. hafa eftir sér: „Þetta er bara mjög niðurlægjandi jólagjöf og starfsfólki finnst það niðurlægt.“ Ég vil bara fá að taka mér það bessaleyfi að svara fyrir hönd þjóðarinnar: „Þú, kæri starfsmaður, hefur niðurlægt fyrirtækið þitt og ekki nóg með það heldur líka sjálfa jólahátíðina. Vin- samlegast farðu bara burt.“ Svo vil ég fá að varpa fram spurningunni: Hvurslags fjöl- miðlar birta slíkar „fréttir“ gagnrýn- islaust og án þess að leita annarra viðbragða? Þá er eflaust rétt að velta því fyrir sér til hvers fyr- irtæki gefa starfsmönnum sínum jólagjafir. Í formlegum skilningi teljast þær ekki til hlunninda. Það undir- ritar enginn starfssamning þar sem kveðið er á um „launakjör, veglegar jólagjafir og önnur hlunnindi“. Forsvarsmenn fyrirtækja taka þá ákvörðun að gefa starfsmönnum jólagjafir af því að fyrirtækið saman- stendur af fólki sem deilir menningar- og trúarlegum gildum. Kannski er ég bara einfaldur en ég hef alltaf skilið þetta svona. Með jólagjöfum er fyrirtækið ein- faldlega að óska starfsmönnum sínum gleðilegra jóla og gefa það til kynna að fyrir sér er starfsmaðurinn það mikilvægur að ef fyrirtækið væri eiginleg persóna myndi það gefa starfsmanninum jólagjöf. Til að undirstrika þessa húrrandi efnishyggju og vanþakklæti starfsmanna er auðveldlega hægt að taka lítið dæmi. Það hafa allir fengið geisladisk sem þeir eiga nú þegar eða ljóta vettlinga frá einhverjum ættingja sínum í jólagjöf. Engu að síður dytti engum til hugar að kalla gjafirnar „niðurlægjandi“ í næsta fjölskylduboði. Eða hvað þætti fjölskyldu manns um það? Ætti viðkomandi skilið að fá jólagjafir framvegis? Og mikið ótrúlega hlyti við- komandi ættingja að líða illa. Það er einfaldlega þann- ig með gjafir að það ristir djúpt ef þeim er mætt með vanþakklæti. Svo, til að hámarka jólaklisjuna, vona ég bara að þessir freku og ofdekr- uðu starfsmenn sjái að sér þegar hin helga hátíð geng- ur í garð. Hugsi e.t.v. til þeirra fjölmörgu fjölskyldna sem af sárri nauðsyn biðu fyrir utan Fjölskylduhjálp til að geta haft eitthvað á borðum í kvöld. Ég óska samstarfsmönnum mínum og öllum öðrum góðra og gleðilegra jóla. jonasmargeir@mbl.is »Einhverjir ofdekraðir og vanþakklátirstafsmenn fyrirtækis gerðu úr því fjöl- miðlafár að jólagjöf þeirra frá fyrirtækinu hafi ekki verið nógu vegleg þetta árið. Jólaheimur Jónasar Margeirssig í drasl“ Morgunblaðið/Ernir Siðprúð Gillz og Tobba Marinós voru jólaleg á Austurvelli í gær. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2010 Kaupfélag Skagfirðinga óskar starfsfólki, félagsmönnum, viðskiptavinum svo og landsmönnum öllum gleðilegra jóla. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Kaupfélag Skagfirðinga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.