Morgunblaðið - 13.05.2010, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Sértilboð á El Griego Mar
Heimsferðir bjóða frábært tilboð í 14 nátta
ferð til Costa del Sol í sumar. Í boði er frábært
sértilboð á El Griego með allt innifalið. Ath.
mjög takmarkaður fjöldi herbergja í boði á
þessum kjörum. Fyrstur kemur, fyrstur fær!
Gríptu þetta frábæra tækifæri og njóttu lífsins
í vor á Costa del Sol á ótrúlegum kjörum.
8. júní – í 2. vikur
Verð frá 144.900
Costa del Sol
Verð kr. 144.900
Allt innifalið. Ótrúlegt
verð.
Netverð á mann, m.v. flug
og gistingu fyrir tvo ful-
lorðna með eitt barn á El
Griego Mar, allt innifalið í
14 nætur.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Því miður er það ekki svo að besti vinur manns-
ins nái alltaf fermingaraldri og ósagt skal látið
hvort hundurinn sem starði athugull út um
glugga verslunar við Strandgötu í Hafnarfirði í
gær hafi aldur til að fermast. En svo virðist þó
sem fermingarmyndir séu teknar í húsi hundsins
líkt og auglýsing fyrir utan búðina gaf sterklega
til kynna. En kannski skiptir það litlu, hundar
láta sig yfirleitt trúmál litlu varða en hugsanlega
gleðst hvutti við að sjá að þótt engin sé ferming-
armyndin hafi hans fríða andlit þó í það minnsta
birst á mynd í Morgunblaðinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Beðið eftir myndatöku
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Sigurður Einarsson, fyrrverandi
stjórnarformaður Kaupþings, tjáði
Morgunblaðinu í gær að honum hefði
ekki tekist að fá það gefið upp á
hverju hin alþjóðlega handtökuskip-
un, sem gefin hefði verið út á hendur
honum, byggðist.
Að öðru leyti veitti hann ekki
viðtal en lét hafa eftir sér hjá sænska
blaðinu Dagens Industri að íslensk
stjórnvöld svöruðu ekki í símann
þegar lögmaður hans reyndi að
hringja og afla upplýsinga um málið.
Handtökutilskipunin væri áróðurs-
verk, gert í þeim tilgangi að búa til
fyrirsagnir í fjölmiðlum. Kvaðst
hann hafa boðist til að mæta í yf-
irheyrslur gegn því skilyrði að hann
fengi að fara aftur til Bretlands að
því loknu. „Slík skilyrði eru alvana-
leg í aðstæðum sem þessum,“ sagði
hann við sænska blaðið. Sagðist
hann vera heima hjá sér í Chelsea og
ekkert leynimakk væri í kringum
staðsetningu hans. Rannsóknin og
yfirheyrslurnar héldu áfram í gær.
Ekki voru fleiri handtökur.
Ekki laus allra mála
Hermt var í fréttum Ríkissjón-
varpsins í gær að lögregluyfirvöld í
Bretlandi hefðu hafnað beiðni um
framsal Sigurðar til Íslands. Þetta
fékkst ekki staðfest í gær og hafði
dómsmálaráðuneytið ekki upplýs-
ingar um þetta. Ráðuneytið mun
hafa sett sig í samband við þarlend
yfirvöld til að fá upplýsingar.
Íslendingar eru ekki aðilar að
evrópsku handtökutilskipuninni en
unnið er að frumvarpi um innleið-
ingu hennar hér á landi. Sigurður er
þó ekki endilega laus allra mála. „Þá
verður bara gripið til frekari ráðstaf-
ana,“ tjáði einn viðmælandi blaða-
manni í gær. Enda mælir tilskipunin
fyrst og fremst fyrir um einfaldari
málsmeðferð en nú er í gildi.
Bæði Ísland og Bretland eru að-
ilar að Evrópusamningnum um
framsal sakamanna frá 1957 með síð-
ari viðbótum. Hvorki Ísland né Bret-
land hefur sett slíka fyrirvara við
samninginn að framsalið sé ómögu-
legt. Hins vegar gæti þurft að fá úr-
skurð ensks dómara.
Ástæður fyrir synjun margar
Samkvæmt samningnum geta
bresk yfirvöld neitað að framselja
Sigurð á ýmsum forsendum, svo sem
ef sök er fyrnd, ef endanlegur dómur
hefur verið kveðinn upp í sama máli
þar í landi, ef meint brot Sigurðar
hafa verið framin á bresku land-
svæði að hluta til eða öllu leyti, eða ef
yfirvöld þar í landi hafa sjálf sett í
gang rannsókn á sömu meintu brot-
um hans.
Segir skilyrði sín vera alvanaleg
Áframhaldandi yfirheyrslur en ekki fleiri handteknir í gær vegna efnahagsbrota innan Kaupþings
Sigurður er ekki laus allra mála þótt bresk lögregluyfirvöld hafni beinu og milliliðalausu framsali
Eftirlýstur Sigurður Einarsson,
fyrrverandi forstjóri Kaupþings.
Aðrir í haldi
» Hreiðar Már Sigurðsson,
fyrrverandi forstjóri, er í
gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni.
Sömuleiðis er Magnús Guð-
mundsson, fyrrv. forstjóri
Kaupþings í Lúxemborg, þar.
» Ingólfur Helgason, fyrrv.
forstjóri á Kaupþings á Íslandi,
er einnig í gæsluvarðhaldi.
Kæra hans verður tekin fyrir í
Hæstarétti á föstudag.
» Steingrímur P. Kárason er
í farbanni og hefur sömuleiðis
kært þann úrskurð.
„Þetta er gríðarlegrt viðbótarálag á
okkar starfsemi, við klárum okkur
en það er ekki meira en svo,“ segir
Hjalti Sæmundsson, aðalvarðstjóri í
stjórnstöð Landhelgisgæslunnar.
Strandveiðar hófust að nýju hinn
10. maí og hafa samtals 409 bátar
fengið leyfi frá Fiskistofu. Landhelg-
isgæslan tekur við tilkynningum frá
hverjum bát við upphaf og lok veiði-
ferðar og ber að fylgjast með ferðum
þeirra og bregðast við ef eitthvað
kemur upp á, s.s. ef fjareftirlitsbún-
aður þeirra bilar sem Hjalti segir að
sé nokkuð algengt enda ástand bát-
anna misgott. Hann segir afar erfitt
að hafa yfirsýn yfir umferðina og
sinna allri annarri öryggisþjónustu
um leið því starfsemin sé margþætt.
„Það geta tugir báta kallað á sama
tíma og um leið þurfum við að vera
sérstaklega vel á verði gagnvart öllu
öðru. Við höfum áhyggjur af því að
einhver sem er í vandræðum eða
jafnvel hættu og reynir að kalla á
okkur geti drukknað í öllu þessu
flóði. Þetta er mjög stressandi.“
Í öllu amstrinu getur einnig gerst
að kerfin bili og það gerðist einmitt í
gær. „Það varð stór kerfisbilun
þannig að við höfðum mjög slæma
yfirsýn stóran hluta dagsins. Í
augnablikinu er þetta þokkalegt, en
ástandið er mjög viðkvæmt og það
má ekkert út af bera.“
Ástandið hefur því lítið skánað frá
því í fyrrasumar og ekki hefur feng-
ist heimild til að bæta við starfs-
mönnum. Gæslan gerði heiðarlega
tilraun til þess en það verður að segj-
ast að niðurstaðan af því var mjög lé-
leg. Við höfum ekki fengið mannskap
nema rétt til að grynnka á afleys-
ingum,“ segir Hjalti.
Hann segir þó bót í máli að fleiri
bátaeigendur hafi uppfært fjareftir-
litsbúnað sinn, úr hinu gamla STK-
kerfi í hið nýja AIS-kerfi sem sé öfl-
ugra og skilvirkara. Landhelgis-
gæslan hvetur útgerðarmenn til að
endurnýja kerfin strax til að auka ör-
yggi sitt. una@mbl.is
Álagið á Gæslunni gríðar-
legt vegna strandveiða
Hundruð báta og
skipa í misgóðu
ástandi á miðunum
„Þú getur ímyndað
þér ef flugstjórn
myndi missa út
alla skynjara til að
fylgjast með flugi“
Lögreglunni á Akureyri barst á
fjórða tímanum í gær tilkynning
um vinnuslys í Flutningamiðstöð
Norðurlands.
Þar var verið að afferma bif-
reið þegar ker datt á starfsmann
með þeim afleiðingum að hann
handleggsbrotnaði.
Maðurinn var fluttur á Sjúkra-
húsið á Akureyri til aðhlynn-
ingar.
Vinnuslys varð
á Akureyri
Maðurinn sem lést, er svifvængur
hrapaði með hann í hlíðar Ingólfs-
fjalls um miðjan dag á mánudag hét
Grzegorz Czeslaw Rynkowski.
Hann fæddist í Póllandi 13. mars
1976, en var búsettur á höfuðborg-
arsvæðinu. Hann lætur eftir sig
sambýliskonu. Rannsókn atviksins
miðar vel, að sögn lögreglu á Sel-
fossi.
Lést þegar svif-
vængur hrapaði
Bifreið var ekið á sjö ára dreng á
Akurvöllum í Hafnarfirði um hálf-
níuleytið í gærkvöldi.
Að sögn lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu slapp drengurinn
mun betur en á horfðist í fyrstu, en
meiðsli hans reyndust vera minni-
háttar og því þurfti ekki að flytja
hann á slysadeild.
Ekið á dreng