Morgunblaðið - 13.05.2010, Side 9
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar lýs-
ir yfir þungum áhyggjum vegna
fréttar í Morgunblaðinu 11. maí, þar
sem fram kemur að forráðamenn
Hvals hf. sjá öll tormerki á að skipu-
leggja veiðar og vinnslu í sumar
vegna framkomins frumvarps um
hvalveiðar. Sveitarstjórnin skorar á
Alþingi, í ljósi hinnar erfiðu stöðu í
atvinnumálum, að afturkalla strax
frumvarpið.
Þá hefur VM – Félag vélstjóra og
málmtæknimanna mótmælt frum-
varpinu harðlega enda setji það
hvalveiðar í hættu.
Hvalafrumvarp
verði afturkallað
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Veggverk er líklega óvenjuleg-
asta gallerí landsins; hvítur hús-
veggur á gömlu húsi á mótum Gler-
árgötu og Strandgötu. Þar var sett
upp auglýsing frá VG en eftir að at-
hugasemd var gerð við það var henni
breytt í listaverk. Eða ég held
það …
Það er gaman að loks varð vart
við smákosningaskjálfta. Oddur
Helgi Halldórsson, bæjarfulltrúi L-
listans, spurði á fundi bæjarráðs í
gærmorgun „um auglýsingu á hús-
næði bæjarins á horni Strandgötu
og Glerárgötu. Óskar hann eftir að
auglýsing sem er á veggnum, sem
vera átti undir listaverk, verði fjar-
lægð,“ segir í fundargerð, enda telji
hann þetta í andstöðu við skilta-
reglugerð Akureyrarkaupstaðar.
Um kvöldmatarleytið í gær var
auglýsingin fjarlægð; allur texti
skorinn burt og eftir voru sex list-
ræn andlit. Eins og fyrir einskæra
tilviljun eru það sex efstu menn á
lista VG fyrir bæjarstjórnarkosning-
arnar.
Síðasti sögulegi söngfuglinn
þetta vorið flögrar um Samkomu-
húsið í kvöld. Leik- og söngkonan
Jana María Guðmundsdóttir fjallar
um líf og starf Ellýjar Vilhjálms og
syngur lög sem hún gerði vinsæl.
Áður hefur Jana María fjallað um
Helenu Eyjólfsdóttur og Ingibjörgu
Þorbergs. Valmar Väljaots leikur
undir.
Alls bárust 150 umsóknir um
fjögur störf í menningarhúsinu Hofi
sem auglýst voru nýlega. Nú hefur
verið ráðið í störfin; Magnús Viðar
Arnarsson verður t.d. umsjón-
armaður fasteignarinnar, en hann
hefur lengi starfað hjá Slökkviliði
Akureyrar. Tæknistjóri var ráðinn
Einar Karl Valmundsson og mark-
aðsfulltrúi Heiðrún Grétarsdóttir.
Lög bandarísku sveitarinnar
Creedence Clearwater Revival
hljóma á Græna hattinum í kvöld;
það er níu manna ábreiðusveit frá
Egilsstöðum, Creedence Travell-
in’Band, sem flytur.
Anna Richards dansgjörninga-
listakona hefur oft komið skemmti-
lega á óvart. Á laugardag frumsýnir
hún í samstarfi við aðra, í Verk-
smiðjunni á Hjalteyri, verkið Slát-
urhús hjartans sem er eftir hana og
Sigurbjörgu Eiðsdóttur.
Listrænt VG-fólkið á Veggverkinu.
Vinstri grænt listaverk
Fréttir 9
STUTT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010
Aðalfundur
HAMPIÐJUNNAR
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn í nýjum
húsakynnum félagsins að Skarfagörðum 4,
Reykjavík, föstudaginn 21. maí 2010 og hefst kl. 16:00.
Á dagskrá fundarins verða:
Stjórn Hampiðjunnar hf.
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á
eigin hlutum skv. 55. gr. hlutafélagalaga.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningur
félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins,
hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á
fundarstað.
Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm
virkum dögum fyrir upphaf aðalfundar.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu
hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti eigi
síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa
umboð, þurfa að gera það skriflega.
Iðnaðarráðuneytið mun næstu tvö árin hafa
afnot af nýjum fjögurra manna MiEV-rafbíl
frá Mitsubishi, og var Katrínu Júlíusdóttur
iðnaðarráðherra afhentur bíllinn í gær.
Orkuveita Reykjavíkur og Landsvirkjun
fengu annan bíl til umráða og verða báðir bíl-
arnir nýttir til ýmissa rannsóknarverkefna
hjá fyrirtækjunum á vegum Orkuseturs og Ís-
lenskrar NýOrku.
Iðnaðarráðherra var jafnframt afhentur
lykill að nýjum orkupósti sem settur hefur
verið upp framan við ráðuneytið á Lind-
argötu.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar er kveðið
á um sérstaka áætlun um að auka hlut inn-
lends visthæfs eldsneytis í samgöngum á
Skref fram á við í áætlun
um visthæft eldsneyti
kostnað innflutts jarðefnaeldsneytis. Móttaka
rafbílsins í gær og notkun hans markar að
sögn ráðherra aðeins eitt skref af mörgum í
þeirri áætlun, en ráðuneytið vinnur að því að
draga fram undir einu merki þau fjölbreyttu
verkefni sem tengjast orkuskiptum í sam-
göngum.
Rafbílar raunhæfur kostur
Viðamiklar rannsóknir hafa farið fram
hérlendis á visthæfum bílum. Metanbílum
hefur verið fjölgað talsvert á undanförnum
árum og hefur þróun rafbíla einnig verið
hröð og er því spáð að innan nokkurra ára
verði rafbílar raunhæfur kostur fyrir al-
menning.
Í fyrradag var undirritaður nýr
samningur milli ríkisins og Akur-
eyrarbæjar um fjármögnun og
uppbyggingu 45 hjúkrunarrýma
sem koma í stað rýma í Kjarna-
lundi.
Í samningnum er kveðið á um
að Akureyrarbær láti hanna og
byggja nýtt hjúkrunarheimili. Há-
marksstærð rýmis er 75 fermetrar
fyrir einstakling eða samtals 3.375
fermetrar.
Áætlaður heildarkostnaður er
um 1,6 milljarðar. Akureyrarbæ
stendur til boða allt að 100% lán
frá íbúðalánasjóði til 40 ára fyrir
framkvæmdinni en félags- og
tryggingamálaráðuneytið mun
greiða Akureyrarbæ leigu næstu
40 árin fyrir u.þ.b. 85% af fram-
kvæmda- og fjármagnskostnaði.
Handtak Ráðherra og bæjarstjóri.
Hjúkrunarheimili
verður reist
Um 70% Reyk-
víkinga telja að
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
hafi staðið sig
vel í starfi
borgarstjóra.
Þetta kemur
fram í könnun
Markaðs- og
miðlarannsókna.
Könnunin var
gerð 4.-10. maí og 816 borgarbúar
á aldrinum 18-67 ára tóku þátt í
henni. 26,4% sögðu Hönnu Birnu
standa sig mjög vel, 44,1% frekar
vel, 17,7% frekar illa og 11,8%
mjög illa. Vikmörkin voru 2,5-
3,8%.
70% telja Hönnu
Birnu standa sig vel
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Atvinnumiðstöð Hafnarfjarðar var
opnuð í fyrradag í Strandgötu 4.
Þar verður sinnt svæðisbundinni
vinnumiðlun, ráðgjöf og annarri
þjónustu við atvinnuleitendur í
Hafnarfirði. Markmið verkefnisins
er að efla þjónustu við unga at-
vinnuleitendur og fólk sem hefur
verið án atvinnu um langt skeið.
Atvinnumiðstöð
opnuð í Firðinum
Á laugardag nk. kl. 13-16 stendur
Hugarafl fyrir málþingi í Bellatrix-
salnum í húsnæði Háskólans í
Reykjavík í Nauthólsvík.
Frummælandi á málþinginu er
dr. Daniel Fisher, geðlæknir við
Riverside-geðheilsumiðstöðina í
Wakefield, Massachusetts. Daniel
náði bata af geðklofa. Áður en hann
varð geðlæknir lagðist hann nokkr-
um sinnum inn á geðsjúkrahús.
Hann er einn fárra geðlækna í
Bandaríkjunum sem ræða opin-
berlega um hvernig þeim hefur
batnað af geðsjúkdómi.
Aðgangur ókeypis og öllum op-
inn en tilkynna þarf þátttöku til
hugarafl@hugarafl.is.
Geðraskanir