Morgunblaðið - 13.05.2010, Page 11
eða Magnús Stephensen. Þetta voru
embættismenn og því má gera ráð
fyrir að mikill gestagangur hafi verið
hjá þeim. Þeir héldu heljarinnar
veislur fyrir heldri borgara þessa
lands sem og fínt fólk sem kom hing-
að frá útlöndum. Til dæmis kom
breski landkönnuðurinn Sir. Joseph
Banks hingað til lands árið 1772 en
hann lýsir á mörgum blaðsíðum í
ferðabók sinni gríðarlegri veislu sem
hann sat í Viðey. Heimildir greina
einnig frá svæsinni átveislu sem Jör-
undur hundadagakonungur sat úti í
Viðey.“
Kúmengangan vinsælust
Á opnunarhátíðinni á laug-
ardaginn verður m.a. boðið upp á
djasstónleika þar sem fram koma
Ómar og Óskar Guðjónssynir, Scott
McLemore trommuleikari og Krist-
jana Stefánsdóttir.
„Viðburðadagatalið verður svo
notað í framhaldi af því. Í byrjun júní
er Hátíð hafsins og svo rekur hver
viðburðurinn annan. Viðeyjarhátíðin
er 20. júní en sú helgi verður dásam-
leg, því 19. júní er kvennahlaup ÍSÍ
úti í Viðey en hún er orðin formlegur
hlaupastaður. Fastir liðir í sum-
ardagskránni eru svo þriðjudags-
göngur sem eru orðnar mjög vinsæl-
ar. Í hverri göngu er nýtt þema og þá
verða sérfræðingar með í för. Til
dæmis verður fuglafræðingur í fugla-
göngunni, jarðfræðingur í jarðfræði-
göngunni og svo framvegis. Í einni
göngunni verður fræðst um gróð-
urfar og ræktun úti í Viðey, eitt
þriðjudagskvöldið ætlum við að fara
á reiðhjólum og svo verður stafa-
göngukennsla, jógakennsla og svo
mætti lengi telja,“ segir Guðlaug og
bætir við að kúmengangan í ágúst sé
orðin gríðarlega vinsæl. „Þá koma á
milli þrjú og fjögur hundruð manns
en það vex mjög mikið af kúmeni í
Viðey og fólk sækir sér það í lok sum-
ars til að eiga fyrir veturinn.“
Hægt að dvelja heilan dag
Guðlaug segir þeim gestum sem
koma út í Viðey á sumrin sífellt fara
fjölgandi.
„Viðeyjarnaustið er öllum opið á
þeim tíma sem ferjan siglir, en það er
þjónustuhús sem stendur niðri við
vesturströnd eyjarinnar. Allir geta
notfært sér það en þarna er aðstaða
til að grilla og skemmta sér enda
dvelja stundum heilu fjölskyldurnar
þar allan daginn, leika sér, fara í fjör-
una, göngutúra og borða saman. Svo
verðum við líka með hesta úti í Viðey
í allt sumar til að geta boðið fólki að
fara á bak,“ segir Guðlaug og bætir
við að kaffihúsið sé opið alla daga.
„Fjölmargar veislur verða í Við-
eyjarstofu, bæði í tengslum við brúð-
kaup í kirkjunni og önnur einka-
samkvæmi enda er umhverfið þarna
dásamlegt til veisluhalda. Í Viðeyj-
arstofu er ævinlega lögð áhersla á að
veitingar séu í anda þess viðburðar
þeim sem er í gangi í eyjunni hverju
sinni.“
Ferjan gengur milli lands og
eyjar á klukkutíma fresti frá kl. 11.15
á morgnana en á opnunarhátíðinni á
laugardaginn verður byrjað að ferja
gesti yfir kl. 18.30 frá Skarfabakka.
Morgunblaðið/Ernir
Friðgeir Eldar að gömlum sið.
Daglegt líf 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010
TR I X I
Vandaður og léttur bakpoki fyrir börnin.
barnabakpoki
Verð: 28.800 kr.Verð: 17.200 kr.Verð: 8.500 kr.
TONGA
Uppdraganlegt handfang og á hjólum.
rúllutaska
TACORA
Vatnsheld yfirbreiðsla fylgir.
bakpoki
Stærð: 8 L Stærð: 60 LStærð: 20+4 L
Einnig
fáanleg í
85 L.
Nú þegar vorið er komið, sauðburður
í hámarki og lömbin skjótast úr kind-
unum um allt land, er ekki úr vegi að
kynna sér íslensku sauðkindina og
alla hennar kosti.
Inni á vef Kenn-
araháskóla Íslands
getur verið gaman
að skoða hinar
ýmsu greinar og
verkefni sem nem-
endur hafa unnið
og ein af þeim er
grein eftir Völu
Kristínu Ófeigs-
dóttur sem heitir
einfaldlega Ís-
lenska sauðkindin.
Þar má meðal ann-
ars lesa sér til um
uppruna íslensku
sauðkindarinnar,
um hið séríslenska fyrirbæri for-
ystufé, sem er einstaklega veður-
glöggt og kjarkmikið, einnig er
fjallað um sauðburð, nýtingu sauð-
kindarinnar og þjóðtrú henni tengda,
svo eitthvað sé nefnt.
Þar segir að talið sé að íslenska
sauðkindin hafi komið hingað til
lands með fyrstu landnámsmönn-
unum og er það af stuttrófukyni sem
ættað er frá Skandinavíu.
Skemmtileg er þjóðtrú þessi sem
Vala Kristín segir
frá:
„Margir bænd-
ur trúðu því hér
áður fyrr að ef
jörð væri hvít um
fengitímann yrðu
flestöll lömbin
hvít að vori; ef
hún er rauð,
verða þau mörg
dökkleit, en ef
jörð er flekkótt
koma mörg lömb
mislit. Einnig áttu
hrútlömb að
verða fleiri, ef
norðanátt væri
um fengitímann, en gimbrarlömb, ef
sunnanátt væri. Það var talið áreið-
anlegt ráð til að fá hrútlömb að
binda fyrir vinstra eistað í hrútnum,
og hið hægra, ef gimbrar áttu að
fæðast. Til að fá hrúta mátti gefa án-
um silungsroð og öl um fengitím-
ann.“
Vefsíðan: www.wiki.khi.is/index.php/Íslenska_sauðkindin
Sauðburður og annar fróðleikur
Nú eru síðustu forvöð að sjá vinsæl-
ustu kvikmyndirnar sem voru sýndar
nýlega á hátíðinni Bíódögum 2010,
sem Græna ljósið stóð fyrir. Þrettán
þær mest sóttu hafa verið sýndar
áfram eftir að hátíðinni lauk en það
verður aðeins í nokkra daga í viðbót
svo nú er um að gera að stökkva til
að sjá á breiðtjaldi einhvern af þess-
um gullmolum sem koma frá hinum
ýmsu löndum. Óhætt er að mæla með
myndinni Fantastic Mr. Fox sem er
stórskemmtileg brúðumynd, en brúð-
unum ljá raddir ekki minni menn en
m.a. George Clooney og Meryl
Streep. Vert er að geta þess að hinn
frábæri rithöfundur Roald Dahl er
höfundur handritsins.
Myndin Crazy Heart er einnig ein
af þeim sem sýnd er áfram en þar fer
Jeff Bridges á kostum sem drykk-
felldur kántrýsöngvari. Athygliverð er
einnig Nowhere Boy, leikin mynd um
æsku Johns Lennons.
www.graenaljosid.is
Endilega …
… látið ekki síðustu daga Græna
ljóssins fram hjá ykkur fara
Kúmen er annað vinsælasta krydd heims, næst á eftir svörtum pipar.
Það er vinsælt í matargerð á Indlandi, í Pakistan, Norður-Afríku, Mið-
Austurlöndum, á Srí Lanka og Kúbu.
Á miðöldum var því trúað að kúmen gæti komið í veg fyrir að hænsn og elsk-
hugar tækju upp á því að ráfa að heiman.
Einnig var því trúað að hamingjuríkt líf væri tryggt brúðhjónum sem tækist
að bera á sér kúmenfræ í gegnum alla hjónavígsluathöfnina.
Fróðleiksmolar um kúmen
Kúmen Alveg dásamlega gott!
Kúmen kemur í veg fyrir strok