Morgunblaðið - 13.05.2010, Blaðsíða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010
FRÉTTASKÝRING
Hlynur Orri Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
„Þetta var mikil réttarbót,“ segir
Stefán Skjaldarson, settur skatt-
rannsóknarstjóri, um lög sem Al-
þingi samþykkti í lok mars sl. og
heimila að krafist sé kyrrsetningar
eigna þeirra sem sæta rannsókn
vegna gruns um skattalagabrot.
Eins og fram hefur komið hafa
ýmsar eignir Hannesar Smárason-
ar og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar
verið kyrrsettar vegna rannsóknar
á skattskilum FL Group, en fyrir
samþykkt áðurnefndra laga hefði
ekki verið hægt að kyrrsetja eign-
irnar.
Stefán segir úrræðinu hafa
verið beitt í fjölmörgum
skattrannsóknarmálum síðan lögin
voru samþykkt, enda auðveldi það
mjög vinnu skattayfirvalda. Hins
vegar geti hann ekki tjáð sig um
einstök mál og staðfestir því ekki
að kyrrsetningar hafi verið krafist
á eignum Jóns Ásgeirs og Hann-
esar.
Geta krafist
gjaldþrotaskipta
Kyrrsetning vegna skattrann-
sókna fer þannig fram að skatt-
rannsóknarstjóri áætlar þá skatt-
kröfu sem talið er að muni lenda á
þeim sem er til rannsóknar, og fer
þess á leit við tollstjóra að hann
kyrrsetji eignir sem nemur þeirri
upphæð. Ef viðkomandi reynist
ekki eiga eignir sem nema áætlaðri
skattkröfu, er að sögn Stefáns
hægt að krefjast gjaldþrota-
meðferðar yfir honum.
Í Viðskiptablaðinu var í gær
greint frá því að samkvæmt heim-
ildum blaðsins væru miklar líkur á
að gjaldþrotaskipta yrði krafist yfir
Jóni Ásgeiri og Hannesi. Farið var
fram á að eignir að verðmæti 250
milljónir yrðu kyrrsettar í tilfelli
Jóns Ásgeirs en 150 milljónir í til-
felli Hannesar. Í báðum tilfellum
tókst einungis að kyrrsetja eignir
fyrir hluta þeirra upphæða sem
krafist var.
Geta stjórnað
félögum sínum
Eins og fram hefur komið fór
skilanefnd Glitnis einnig fram á
kyrrsetningu eigna nokkurra fyrr-
verandi eigenda og stjórnenda
bankans. Samkvæmt upplýsingum
frá embættum sýslumanna á Ak-
ureyri og í Hafnarfirði getur ein-
staklingur áfram stjórnað félagi
eða fyrirtæki sem hann á þótt allar
eignir hans hafi verið kyrrsettar.
Eins sé þess gætt að félagið hljóti
ekki skaða af.
Lög um kyrrsetningu
koma að góðum notum
Geta stjórnað félögum þrátt fyrir kyrrsetningu eigna
100 milljóna króna húseign Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar hefur ver-
ið kyrrsett að beiðni skattayfir-
valda, og önnur í Bláskógabyggð
að verðmæti 10 milljónir. Þá hefur
verið kyrrsett jörð í Skagafirði
sem metin er á 14 milljónir króna.
Kyrrsettu 100
milljóna króna hús
Skattrannsóknarstjóri fór einnig fram á að
Range Rover, Hummer, Mini Cooper og
Bentley í eigu Jóns Ásgeirs væru kyrrsettir.
Bílarnir eru samtals metnir á 24 milljónir.
Einnig voru kyrrsettir Range Rover og Lin-
coln Navigator í eigu Hannesar Smárasonar
sem saman eru metnir á átta milljónir.
Bílar kyrrsettir fyrir
tugi milljóna króna
Loks voru að beiðni
skattrannsóknarstjóra frystar
bankainnistæður hjá þeim fé-
lögum. Námu innistæðurnar
3,6 milljónum í tilviki Jóns Ás-
geirs en 3,4 milljónum í tilviki
Hannesar.
Frystu innistæður
fyrir sjö milljónir
Peningaeign getur verið undanþegin kyrrsetningu, sé hún nauðsyn-
leg til að standa straum af kostnaði um skamman tíma af fram-
færslu gerðarþola og þeirra sem hann er framfærsluskyldur við.
Bankainnistæður eru eins og fram hefur komið meðal þeirra eigna
Hannesar og Jóns Ásgeirs sem kyrrsettar hafa verið. Samkvæmt
upplýsingum frá sýslumanninum í Reykjavík er þetta m.a. metið út
frá greinargerð með 41. gr. laga 90/1989, en þar segir að miða eigi
við fjárhæð sem hæfileg er talin til daglegra framfærsluútgjalda þar
til gerðarþoli fær næst útborgað. „Að auki yrði rétt að taka tillit í
þessum efnum til væntanlegra útgjalda gerðarþola á tímabilinu af
greiðslu húsaleigu, orkukostnaðar og annars sambærilegs, sem telja
verður að gerðarþoli þurfi að eiga fyrir til að fyrirbyggja tilfinnanleg
velferðarspjöll.“
Fyrirbyggja „velferðarspjöll“
SKILJA EFTIR ÞAÐ SEM NAUÐSYNLEGT ER TIL FRAMFÆRSLU
Stefna skilanefndar Glitnis á hend-
ur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og
tengdum aðilum vegna meintra
stórfelldra bankasvika er ekki eina
málið sem nú er til meðferðar þar
sem hann er málsaðili.
Þannig kemur Jón Ásgeir við
sögu í þeirri ákvörðun skiptastjóra
þrotabús Baugs Group að rifta sölu
á Högum til 1998 ehf. en Gaumur,
félag sem Jón Ásgeir er hluthafi í,
er þar á meðal eigenda. Frestur til
að skila greinargerðum rennur út
um næstu mánaðamót og má vænta
þess að málið verði tekið fyrir í
Héraðsdómi Reykjavíkur í sumar,
að sögn Erlends Gíslason hæsta-
réttarlögmanns.
Þá hefur skilanefnd Glitnis lagt
fram stefnu á hendur fyrri eig-
endum og starfsmönnum bankans
en í stefnunni er þess krafist að Jón
Ásgeir, Pálmi Haraldsson, Lárus
Welding, fv. forstjóri Glitnis, og
þrír aðrir starfsmenn bankans
greiði skilanefnd Glitnis 6 milljarða
króna í skaðabætur fyrir fjártjón,
sem bankinn hafi orðið fyrir þegar
hann veitti félaginu FS38, sem var
dótturfélag fjárfestingarfélagsins
Fons, lán í júlí 2008.
Loks má geta þess að höfðað hef-
ur verið skaðabótamál gegn Jóni
Ásgeiri og konu hans, Ingibjörgu
Pálmadóttur, í New York fyrir að
hafa innréttað eldhús lúxusíbúðar
sem er í þeirra eigu með vörum frá
Ikea á Gramercy Park Hotel í New
York. Kváðust leigjendur íbúðar-
innar skammast sín fyrir eldhúsið.
Jón Ásgeir kemur við sögu í
fjórum yfirstandandi stefnum
„Stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar skulu
vera lögráða, fjár síns ráðandi og mega ekki á
síðustu þremur árum hafa í tengslum við at-
vinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan
verknað samkvæmt almennum hegningarlögum
eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bók-
hald, ársreikninga, gjaldþrot eða opinber gjöld.“
Svo hljóðar 66. grein laga um hlutafélög sem
aðgengileg er á vef Alþingis, www.althingi.is.
Eins og rifjað er upp í stefnu skilanefndar
Glitnis á hendur Jóni Ásgeiri og tengdum að-
ilum var hann fundinn sekur í Héraðsdómi
Reykjavíkur 3. maí 2007 og dæmdur í skilorðs-
bundið fangelsi í 3 mánuði fyrir að hafa látið gefa út tilefnislausan reikning
frá Nordica, fyrirtæki Jóns Geralds Sullenbergers. Nokkrum vikum síðar,
eða í júní, hætti Jón Ásgeir sem forstjóri Baugs en Hæstiréttur staðfesti nið-
urstöðu héraðsdóms 5. júní 2008.
Það er frá þessum degi sem þriggja ára bann við stjórnarsetu gildir enda
frestuðust réttaráhrif héraðsdóms meðan á áfrýjun málsins stóð, eins og
einn heimildarmaður blaðsins orðaði það.
Bannið við stjórnarsetu
gildir til júní á næsta ári
Baugsmál í Héraðsdómi.
Fjármálaeftirlitið getur ekki gefið
upplýsingar um hversu margar
kærur skilanefndir stóru bankanna
þriggja hafa sent til FME vegna
meintra brota sem komið hafa fram
við störf skilanefndanna.
Fram hefur komið að Fjármála-
eftirlitið hefur sent 33 mál til sér-
staks saksóknara og mörg mál eru
enn ókláruð hjá stofnuninni.
Upplýsingar ekki á einum stað
Sigurður Valgeirsson, upplýs-
ingafulltrúi Fjármálaeftirlitsins,
segir í skriflegu svari við fyrir-
spurn Morgunblaðsins að vinnu
Fjármálaeftirlitsins hafi ekki verið
háttað þannig að safnað hafi verið
saman á einn stað upplýsingum um
fjölda kæra/ábendinga til Fjár-
málaeftirlitsins frá slitastjórnum
eða skilanefndum stóru bankanna
þriggja. „Til þess að gera það þyrfti
að leggja í umtalsverða vinnu sem
við sjáum okkur ekki fært að inna
af hendi vegna þessarar fyr-
irspurnar.
Væru þessar upplýsingar til-
tækar á einum stað myndi Fjár-
málaeftirlitið, vegna bankaleyndar,
ekki gefa þær sundurliðaðar eftir
bankastofnunum.“
FME telur ekki kærurnar frá
skilanefndum föllnu bankanna
Jón Ásgeir Jóhannesson Um eftirmiðdaginn í gær tjáði Jón
Ásgeir Jóhannesson sig um stefnu slitastjórnar Glitnis í sam-
tali við Bloomberg-fréttaveituna en þar lýsti hann því yfir að
hann ætlaði ekki að taka til varna vegna kyrrsetning-
arúrskurðar, sem kveðinn hefur verið upp í Bretlandi og nær
til allra eigna Jóns Ásgeirs hvar sem er í heiminum, þ.á m. til
tveggja íbúða sem hann á í New York.
„Það er lítið hægt að hreyfa sig,“ hafði Bloomberg eftir
Jóni Ásgeiri. „Þeir hafa náð markmiðum sínum. Þetta er
hræðilegt.“
Staðfestingarmál vegna úrskurðarins verður tekið fyrir í
breskum rétti 28. maí en Jón Ásgeir hafði eftir
bandarískum lögmanni sínum, að kostnaður við að
taka til varna í málinu yrði allt að sem
svarar 300 milljónum.
„Það er ekki mögulegt að verjast í
þessu máli. Þeir unnu. Þetta er kallað
vinstri krókur í hnefaleikum,“ sagði
Jón Ásgeir sem lét þessi orð falla á
vef Pressunnar: „Steinunn [Guð-
bjartsdóttir, formaður slitastjórnar]
getur átt yfir höfði sér tíu ára fang-
elsi fyrir að misnota bandaríska
dómstóla með þessum
hætti […] Rang-
færslurnar og vit-
leysurnar í stefn-
unni eru ótrú-
legar.“
PricewaterhouseCoopers Endurskoðunar-
fyrirtækið PricewaterhouseCoopers hf. seg-
ist standa við áritun sína á reikningsskil
Glitnis banka hf. og aðrar staðfestingar sem
unnar voru vegna bankans.
Slitastjórn Glitnis hefur stefnt PWC fyrir
rétti í New York „fyrir að greiða fyrir og
taka þátt í að dylja þau sviksamlegu við-
skipti sem Jón Ásgeir [Jóhannesson] og fé-
lagar komu í kring og sem að endingu leiddu
til falls bankans í október 2008“, eins og
segir í tilkynningu slitastjórnarinnar í gær.
„Í tilefni af stefnu slitastjórnar og skila-
nefndar Glitnis banka hf. á hendur tilteknum
aðilum, og umfjöllun um Pricewaterhouse-
Coopers hf. í því samhengi, viljum við árétta
að áritanir sem vitnað er til byggðust á
framlögðum gögnum og þeim upplýsingum
sem PricewaterhouseCoopers hf. hafði að-
gang að á þeim tíma. Pricewaterhouse-
Coopers hf. stendur við áritun sína á reikn-
ingsskil Glitnis banka hf. og aðrar
staðfestingar sem unnar voru vegna bank-
ans,“ segir í yfirlýsingu Pricewaterhouse-
Coopers.
Vignir Rafn Gíslason, stjórnarformaður
PWC, vildi að öðru leyti ekki tjá sig um mál-
ið að svo stöddu.
Pálmi Haraldsson „Hvað á maður að segja í sjálfu sér? Þetta
er bara galið,“ sagði Pálmi Haraldsson, gjarnan kenndur
við Fons, aðspurður um stefnuna á hendur honum vegna
meintrar sviksemi í rekstri Glitnis. „Það getur hver maður
sagt sér það sjálfur. Það þarf nú ekki annað en að lesa
stefnuna.“
Pálmi kveðst aðspurður ekki hafa ákveðið hvernig hann
muni bregðast við stefnunni.
„Það er bara absúrd að ég hafi komið nálægt rekstri
þessara banka. Þetta er varla svaravert einu sinni,“ sagði
Pálmi og vísaði til þess að hann væri skilgreindur sem
stjórnarmaður í Glitni í stefnu skilanefndarinnar.
Þá áréttaði Pálmi að hann hefði aldrei verið stjórn-
armaður í FS38 né stjórnarformaður
Fons. Ennfremur hefði hann aldrei set-
ið aðalfund Glitnis né verið í stjórn
bankans.
Pálmi gagnrýndi þetta í yfirlýsingu
og sá nefndin ástæðu til að senda frá
sér endurskoðaða frétta-
tilkynningu þar sem leið-
rétt var að hann hefði
verið fv. stjórnarmaður
í Glitni og var hann í
staðinn sagður fv.
varaformaður
stjórnar FL
Group.
„Hvað á maður að segja?“