Morgunblaðið - 13.05.2010, Side 24
24 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010
✝ Kristjana Jóns-dóttir Bilson
(Jana) fæddist á Ísa-
firði 28. júní 1920.
Hún lést á Landspít-
alanum 20. apríl síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Jóna
Helga Valdimars-
dóttir, f. í Hnífsdal
26. febrúar 1890, d.
31. mars 1977, og
Jón Barðason, skip-
stjóri, f. á Siglufirði
31. ágúst 1890,
drukknaði 27. októ-
ber 1935. Systkini Jönu eru: Björg,
f. 25. janúar 1918, d. 5. desember
1954, Ingibjörg Halldóra, f. 2. júní
1919, d. 3. júlí 1957, Jón Jónsson
Barðason, f. 12. maí 1922, d. 21.
Kristjana Bilson, f. 1984, og b)
Jack Denis Bilson, f. 1988. Har-
aldur býr nú í Reykjavík og er í
sambúð með Kristínu Krist-
insdóttur, verslunareiganda. 2)
John Bilson, hagfræðingur, f. í
London 29. maí 1954, kvæntur El-
isabet Bilson. Börn þeirra: a)
Henry Bilson, f. 7. apríl 1990, og b)
Olivia Bilson, f. 25. febrúar 1993.
Auk þess að vera húsmóðir í
London starfaði Jana við sauma-
skap með vinnustofu á heimili sínu
Florence Nightingale House við
Clephane Road 25. Jana flutti frá
London til Reykjavíkur fyrir
nokkrum árum og leigði íbúð í ná-
grenni Grundar þar sem hún naut
þjónustu.
Jaðrarför Kristjönu fór fram frá
Fossvogskapellu 29. apríl sl.
apríl 1981, Valdimar,
f. 23. maí 1923, d. 14.
ágúst 1969, Barði
Guðmundur, f. 15.
júlí 1925, d. 1. janúar
2002, og Jóna Helga,
f. 4. júlí 1928. Hálf-
systir samfeðra Jóna
Ingibjörg, f. 1913, d.
1992.
Jana giftist 17. jan-
úar 1942 Jack Willi-
am Bilson, trygg-
ingafræðingi. Börn
þeirra eru: 1) Har-
aldur Michael
(Harry) Bilson, listmálari, f. í
Reykjavík 21. janúar 1948, en
fluttist til London 5 ára gamall,
kvæntur Barböru Bilson. Þau
skildu. Börn þeirra: a) Charlotte
Kristjana dvaldi í æsku sinni á Ís-
landi en meiri hluta ævi sinnar bjó
hún erlendis. 1940 lærði hin 19 ára
Kristjana tannsmíðar í Danmörku.
Nasistar lögðu Danmörku undir sig
og Kristjana ásamt tveimur vinkon-
um sínum slapp naumlega við skot-
hríð í Kaupmannahöfn þegar þær
hjóluðu um göturnar innrásardag-
inn.
Vegna hlutleysis Íslands komst
hún til Svíþjóðar og þaðan um Finn-
land í skipalest til Íslands. Þegar
heim kom var Ísland undir breskri
herstjórn. Þar hitti hún og giftist
Jack William Bilson, sem var bresk-
ur hermaður. Þetta hjónaband entist
í 62 ár og endaði við dauða Jacks
2004.
Vegna hjúskaparins varð hún að
flytja til Bretlands, þar sem hún
vann við framleiðslu svifflugvéla fyr-
ir breska herinn. Í London þar sem
hún bjó var heimili hennar sprengt
tvisvar í loftárásum. Hún minntist
þess oft að hún hefði skaðast á heyrn
og sjón og hvernig henni tókst að
bjarga brúðargjöf úr rústunum, olíu-
málverki frá systkinum sínum.
Hún ferðaðist oft til Íslands og yf-
ir Atlantshafið til Bandaríkjanna til
að heimsækja fjölskyldu sína.
Lengst bjó hún í Islington í Norður-
London þar til eiginmaður hennar
lést. Á hinum erfiðu eftirstríðsárum í
London vann hún við tannsmíði,
fatagerð og hönnun. Hún saumaði
föt fyrir fremstu og virtustu kven-
fatamerki í London. 1978, þegar hún
var 58 ára, var hún í heimsókn hjá
Helgu systur sinni í Bandaríkjunum.
Þá uppgötvaðist æðagúll í heila. Sem
betur fer hjaðnaði þessi meinsemd.
„Hefði hann brostið hefði ég breyst í
spínat,“ sagði hún á sinn kaldhæðna
hátt.
Kristjana var þekkt fyrir fegurð
sína, eldmóð, sköpunargleði og lífs-
kraft.
Winnie Aston, írsk vinkona Krist-
jönu, sem þoldi loftárásirnar með
henni í London, líkti skopskyni
hennar við Carole Lombard og há-
stemmdri frásagnarlist hennar við
Susan Hayward. Hún var stælt og
stolt til dauðadags og mjög dáð fyrir
fagrar hannyrðir og „græna fingur“.
Hún var mjög elskuð bæði í London
og Reykjavík. Margir í báðum þess-
um borgum sakna hennar og votta
fjölskyldunni samúð sína.
John Bilson.
Jana frænka hefði orðið níræð 28.
júní næstkomandi, en hún lést þann
20. apríl s.l. hér heima eftir að hafa
búið sextíu ár í London. Hulda, móð-
ir mín, og hún voru systkinabörn,
aldar upp í Hnífsdal og áttu síðar eft-
ir að standa saman í blíðu og stríðu,
m.a. sem starfsstúlkur um sumar-
tíma á Hotel d́Angleterre Kaup-
mannahöfn. Hulda slapp heim fyrir
stríð en Jana varð innlyksa í Dan-
mörku, kom með Petsamó-ferðinni
1940. Hún hafði verið álitin þýskur
njósnari! Við skipshlið í Reykjavík-
urhöfn tók á móti henni breskur her-
maður, Jack Bilson, verðandi eigin-
maður hennar. Hulda frænka
hennar hitti mannsefni sitt í Hnífs-
dal, föður minn, Samuel Richie, hann
hafði verið sendur í þessa heima-
byggð hennar af breska sjóhernum
til að verja Ísland fyrir Þjóðverjum!
Hún bjó um tíma í Glasgow og heim-
sótti Jönu til London þá og síðar,
þær höfðu fylgt mönnum sínum á
ófriðarárunum úr landi ósmeykar
eða blindar á hættuna (taldi pabbi).
Meðan Jack var í landhernum
bjuggu þær frænkur saman á heimili
þeirra Jönu í London, hvor annarri
til trausts og halds.
Þau hjónin enn barnslaus. Þaðan
var styttra til Portsmouth, hafnar-
borgar þar sem Sam var staðsettur.
Á þeim tíma var hús Jönu sprengt í
loft upp. Áður höfðu þær heyrt sír-
enuvæl og forðað sér í neðanjarðar-
byrgi. Fátt var uppistandandi þegar
að var komið annað en veggjarbrot
og á því málverk af Þingvöllum.
Þetta mun ekki hafa verið eina skipt-
ið sem heimili Jönu varð fyrir
sprengjuárás. Eftir styrjöldina hafði
hún skaddast á heyrn og sjón af
sprengjugnýnum.
Jana var alin upp í stórum systk-
inahóp í Hnífsdal. Hún var mikil
pabbastelpa en missti föður sinn
þegar hún var á þrettánda ári. Móðir
hennar kom hópnum öllum til manns
án aðstoðar frá því opinbera og erf-
iðið hefur líklega mótað Jönu. Hún
var óhemju dugleg og ósérhlífinn
alla tíð.
Meðan synirnir gengu í einkaskóla
vann hún við saumaskap fyrir stór-
markaði, verzlunarkeðjur. Maður
hennar vann á skrifstofu sem sá um
öryggisgæslu. Synirnir eru báðir á
lífi: Harold – Harry – Bilson mynd-
listamaður, sem búsettur hefur verið
á Íslandi um nokkurra ára skeið og
John í London, hagfræðimenntaður.
Barnabörnin fjögur eiga öll heim-
kynni í Bretlandi.
Ég minnist margra ánægjustunda
með Jönu frænku, svo sem þeirra
fyrir seinustu jól, á fæðingardegi
Huldu heitinnar (22. desember) sem
við afkomendur hennar höldum upp
á sameiginlega og Jana kom í boðið
sem leynigestur! Seinast þegar við
sáumst var hún farin að búa sig und-
ir níræðisafmælið í júní 2010. – Ætt-
ingjum öllum, sérstaklega Harry og
John, barna-, systkinabörnum og
eftirlifandi systur, Helgu í Ameríku,
vottum við samúð okkar. Minning
Jönu lifir.
Norma frænka og fjölskylda.
Þegar ég var nýfæddur fékk ég
mislinga. Ekki var hægt að setja mig
kornabarnið í farsóttarhúsið í Þing-
holtsstræti. Sett var upp sérstök
sóttkví heima. Ung stúlka, 15 ára
dóttir Jónu móðursystur minnar, var
lokuð inni hjá mér í sóttkvínni til að
annast mig í veikindunum. Þessi
unga stúlka var Kristjana Jónsdótt-
ir.
Jana eins og hún var kölluð fór til
Kaupmannahafnar og lærði tann-
smíði eins og Björg frænka hennar
en varð innlyksa vegna stríðsins.
Hún kom heim með M/S Esju frá
Petsamo, en þá voru Englendingar
búnir að hernema Ísland og tóku á
móti henni er til Reykjavíkur kom.
Þeirra á meðal var Jack Bilson sem
varð yfir sig hrifinn af hinni ungu og
fögru Kristjönu.
Þau giftu sig og þá varð hún ensk-
ur ríkisborgari. Eftir enskum
reglum hermannafjölskyldu varð
hún að búa á heimili þeirra í London
í sprengjuregni Þjóðverja á meðan
hermaðurinn eiginmaður hennar
dvaldi í friði og spekt á Íslandi.
Eftir stríðið sá ég hana stundum
er hún heimsótti fjölskyldu sína og
dáðist alltaf jafnmikið að því hversu
falleg hún var. Seinna á lífsleiðinni
hittumst við oftar hér og í London,
einkum eftir að sonur hennar Har-
aldur Bilson fór að selja málverk sín
hér á landi.
Fyrir nokkrum árum fluttist hún
alkomin til Íslands og gerðist aftur
íslenskur ríkisborgari.
Í byrjun verndaði hún líf mitt inn í
þennan heim. Nú fylgi ég henni síð-
asta spölinn úr þessum heimi.
Ég er henni alltaf þakklátur.
Jóhann J. Ólafsson.
Kristjana Jónsdóttir Bilson
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
HULDA L. INGVARSDÓTTIR,
Garðaflöt 17,
Garðabæ,
lést sunnudaginn 2. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Þökkum hlýhug og auðsýnda samúð.
Ingvar J. Rögnvaldsson, Auður Hauksdóttir,
Kristín og Haukur Ingvarsbörn,
Guðný Dóra Rögnvaldsdóttir Gurstad,
Espen og Gøran Gurstad,
Hulda Guðný, Linda Bára og Elfa Dögg Finnbogadætur
og fjölskyldur.
✝
Ástkær móðir okkar og amma,
KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Súluholti,
Aflagranda 40,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum miðvikudaginn 5. maí,
verður jarðsungin frá Neskirkju mánudaginn
17. maí kl. 15.00.
Þórkatla Mjöll Halldórsdóttir,
Vildís Halldórsdóttir
og barnabörn.
✝
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
AÐALHEIÐUR SIGURÐARDÓTTIR,
lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, sunnudaginn 9. maí.
Útför hennar fer fram frá Neskirkju föstudaginn
21. maí kl. 13.00.
Haraldur Þorsteinsson,
Sigurður Haraldsson, Jóna Guðjónsdóttir,
Þorsteinn Haraldsson, Lára V. Júlíusdóttir,
Ingibjörg Haraldsdóttir, Sturla Þorsteinsson,
Ástráður Haraldsson, Eyrún Finnbogadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
SÓLVEIGAR ÓLAFSDÓTTUR
frá Norður-Fossi í Mýrdal,
sem lést á dvalarheimilinu Sólvöllum, Eyrarbakka,
miðvikudaginn 5. maí, fer fram frá Reyniskirkju í
Mýrdal laugardaginn 15. maí kl. 14.00.
Ólafur Sigursveinsson, Ólöf Karlsdóttir,
Jóhanna Sigursveinsdóttir, Ólafur Þorsteinn Jónsson,
Sveinn Sigursveinsson,
Sigurður Sigursveinsson, Kristín Sigurmarsdóttir,
Runólfur Sigursveinsson, Ragnheiður Thorlacius
og fjölskyldur.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
INGIBJÖRG JÓHANNESDÓTTIR,
Hlaðhamri,
lést á Sjúkrahúsinu Akranesi mánudaginn 10. maí.
Útförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kjartan Ólafsson,
Jóhannes Kjartansson, Sveinbjörg Guðmundsdóttir,
Jón Kjartansson, Gyða Eyjólfsdóttir,
Sigurður Kjartansson, Olivia Weaving
og barnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ELÍSABET JÓNSDÓTTIR,
Árskógum 8,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 11. maí.
Útförin fer fram frá Seljakirkju miðvikudaginn
19. maí kl. 13.00.
Jón Guðmundsson, Marta Kjartansdóttir,
Björg Guðmundsdóttir,
Gunnar Kr. Guðmundsson, Ása Dóra Konráðsdóttir,
Örn Guðmundsson, Ragnhildur Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.