Morgunblaðið - 13.05.2010, Blaðsíða 31
Menning 31FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010
Kvartett Maríu Magnúsdóttur
heldur tónleika í Kaffihúsinu í
Skrúðgarðinum á Akranesi í
kvöld kl. 21. Á dagskrá tón-
leikanna eru ballöður og djass-
lög sem Billie Holiday og Ella
Fitzgerald fluttu annars vegar
og hins vegar nýrri tónlist Sus-
ana Baca og hinnar nýlátnu
Lhasa de Sela. Tónlist þessara
fjögurra kvenna fer um víðan
völl, allt frá svingi og ballöðum
til þjóðlagatónlistar. Mörg laganna eru á spænsku
en ljóðin verða flutt á íslensku inni á milli. Kvart-
ettinn skipa María Magnúsdóttir sem syngur,
Rafn Emilsson á gítar, Birgir Bragason á bassa
og Scott McLemore á trommur.
Tónlist
Djass og þjóðlög í
Skrúðgarðinum
María
Magnúsdóttir
Á morgun, föstudag, kl. 18:00
verður innsetningin Volcanic
bedroom eftir Ingu Sólveigu
Friðjónsdóttur afhjúpuð í
gluggum Auga fyrir auga á
Hverfisgötu 35, á horni Klapp-
arstígs og Hverfisgötu. Eins og
titillinn gefur til kynna er lista-
maðurinn undir áhrifum eld-
gosa og einnig er drepið á til-
finningaleg eldgos og eldgos
sem krauma undir niðri og ná
ekki að brjótast út.
Inga Sólveig stundaði nám við San Francisco
Art Institute og útskrifaðist þaðan 1987. Síðan
hefur hún haldið fjölda einkasýninga, bæði á Ís-
landi og erlendis, auk þátttöku í samsýningum.
Myndlist
Innsetning í glugg-
um Auga fyrir auga
Inga Sólveig
Friðjónsdóttir
Finnski ljósmyndarinn Harri
Pälviranta flytur fyrirlestur í
Þjóðminjasafni Íslands á
morgun kl. 12:15. Í fyrirlestr-
inum fjallar hann um ljós-
myndaröðina Barinn (Batter-
ed) sem má sjá á sýningunni
Núna – The Present is Now í
Norræna húsinu á dagskrá
Listhahátíðar 2010. Fyrirlest-
urinn, sem fer fram á ensku og
er öllum opinn, er unninn í
samstarfi við Félag íslenskra samtímaljósmynd-
ara. Helstu viðfangsefni Harris eru samfélagslegs
eðlis svo sem ofbeldi og karlmaðurinn.
Léttar veitingar verða í boði Finnska sendi-
ráðsins.
Myndlist
Fyrirlestur Harri
Pälviranta
Harri
Pälviranta
Ef vel gekk að
mynda fór hann í
sinn eigin heim, varð hluti
af myndavélinni 34
»
Árlega úthlutar Söngmenntasjóð-
ur Marinós Péturssonar styrk til
efnilegra söngnema til framhalds-
söngnáms erlendis. Að þessu sinni
hlaut Andri Björn Hróbjartsson
styrk að fjárhæð 700.000 kr. Af-
hendingin fór fram í Íslensku
óperunni í vikunni og afhenti
Haukur Björnsson styrkinn fyrir
hönd sjóðsins.
Marinó Pétursson, sem Söng-
menntasjóðurinn fær nafn sitt af,
var mikill áhugamaður um tónlist,
en ævistarf hans varð heildsala ut-
an síðustu æviárin sem hann stund-
aði sjóróðra frá Bakkafirði. Hann
mælti svo fyrir að allar eigur hans
skyldu renna í söngmenntasjóð eft-
ir sinn dag og er Söngmenntasjóð-
ur Marinós Péturssonar einn öfl-
ugasti sjóður landsins til styrktar
framhaldsmenntun í söng.
Efnilegur Haukur Björnsson og
Andri Björn Hróbjartsson.
Styrkur til
efnilegs
söngnema
Úthlutað úr Söng-
menntasjóði
Ásgerður Júlíusdóttir
asgerdur@mbl.is
Katrín Elvarsdóttir hefur haldið
fjölda einkasýninga bæði hér heima
fyrir sem og erlendis. Í dag kl. 17
opnar hún sýninguna Equivocal:
The Sequel í Galleríi Ágúst. Eins og
titillinn ber með sér er hún eins
konar framhald af annarri sýningu.
„Ég byrjaði á þessu verkefni
fyrir um þremur árum og hélt fyrri
sýningu Equivocal árið 2008 einnig
í Galleríi Ágúst. Þær fimmtán
myndir sem ég sýndi þá voru byrj-
unin á þessari hugmynd. Mér
fannst ég geta haldið áfram með
hana og víkkað út og myndirnar eru
allt í allt um 42 í þessari röð. Það
tók bara þetta langan tíma að fá
myndirnar sem ég var ánægð með“.
Katrín segir að í raun allt hafi
byrjað með mynd sem hún tók árið
2007. „Konseptið í kringum röðina
kom þegar ég stóð inni og horfði út
og það var eins og að laufblöðin á
trjánum fyrir utan væru komin inn.
Pælingin er því bæði að horfa út
þegar maður er inni og eins að
horfa inn þegar maður er úti – að
búa til einhvern óráðinn heim sem
þú áttar þig ekki á alveg á hvar er.“
Katrín notar oftast uppstill-
ingar fyrir myndir sínar og staðina
velur hún með það í huga að þeir
hafi einhverja sögu að segja eða
skapi stemningu. „Ég tek mynd-
irnar úti um allan heim en ég reyni
að láta líta út fyrir að þær séu tekn-
ar á samskonar stað hvort sem ég
tek myndirnar í Póllandi, Ítalíu eða
á Íslandi.“ Katrín segir að mynd-
irnar opni heim fyrir áhorfandanum
sem getur sjálfur ímyndað sér sögu
í kringum hverja mynd. „Mynd-
irnar skapa líka heild þar sem ég
vinn með ákveðna liti, en í þessu til-
viki nota ég mikið rauðan. Það
koma ákveðnir karakterar fyrir í
myndunum og kallast á við fyrri
sýningu og því er ég líka að leika
mér að tímarammanum.“
Katrín Elvarsdóttir
Framhald Ein mynda Katrínar Elvarsdóttur á sýningunni Equivocal: The Sequel sem hún opnar í Gallerí Ágúst í
dag. Katrín segir að myndirnar opni heim fyrir áhorfandanum sem getur sjálfur ímyndað sér sögu í kringum þær.
Horft inn og út í dularfullan heim
Katrín Elvarsdóttir opnar sýningu í Galleríi Ágúst Sjálfstætt framhald sýn-
ingar á sama stað fyrir tveimur árum Allt byrjaði með mynd sem hún tók 2007
Í dag heldur strengjakvartett þeirra
Helgu Þórarinsdóttur víóluleikara,
Sigrúnar Eðvaldsdóttur fiðluleikara,
Sifjar Tulinius fiðluleikara og Bryn-
dísar Höllu Gylfadóttur sellóleikara
í víking vestur um haf. Þar ætla þær
stöllur að spila á tvennum tón-
leikum, annars vegar fyrir American
Scandinavian Foundation á Man-
hattan á föstudagskvöldið og svo á
tónleikaröð í S. Huntington á Long
Island á sunnudag.
Kvartettinn hefur ekki fengið
neitt nafn sem skýrist af því, að sögn
Helgu Þórarinsdóttur, að þó þær
séu spila saman í á annan áratug
finnist þeim þær vera að staðfesta
eitthvað ákveðið ef þær velji sér
heiti. „Það er eiginlega bara of mikil
skuldbunding fyrir okkur því við
höfum allar of mikið að gera til þess
að vera að stofna til alvarlegra sam-
bands“
Helga segir að Ameríkuferðin hafi
komið til fyrir um ári, „en þá fór ég
og spilaði í þessari tónleikaröð í S.
Huntington á Long Island með
bandarískri vinkonu minni frá náms-
árunum í Boston. Konan sem sér um
tónleikaröðina bað mig í framhald-
inu um að koma aftur með íslenska
kammergrúppu. Ég sendi henni
upptöku af tónleikum og hún hringdi
strax í mig, upprifin af sprengikrafti
okkar. Ég hafði svo samband við
American Scandinavian Foundation
í New York í kjölfarið til þess að
þetta yrðu tvennir tónleikar.“
Strengjakvartettinn mun flytja
verk eftir Brahms, Dvorak og Jón
Nordal en Helga segist vera sérlega
spennt fyrir viðbrögðum áheyrenda
við verki Jóns. „Þetta er alveg ein-
staklega fallegt verk eftir Jón frá
1996. Það heitir Frá draumi til
draums en fyrsti parturinn er voða
blúslegur og rímar vel við Dvorák.
Það er sérlega gaman geta boðið
áheyrendum vestanhafs að hlusta á
þetta meistarastykki.“
Jákvæður sprengikraftur
Ferðalag Strengjakvartettinn nafnlausi skipaður þeim Helgu Þórarins-
dóttur, Sif Tulinius, Sigrúnu Eðvaldsdóttur og Bryndísi Höllu Gylfadóttur.
Tríó Blik flytur lög eftir Ása í Bæ og
Oddgeir Kristjánsson í Norræna
húsinu í dag kl. 17:00. Á dagskránni
eru meðal annars lög Ása í Bæ sem
ekki hafa heyrst áður sem fundust á
gamalli upptöku.
Tónleikarnir eru haldnir í tilefni
af útgáfu tríósins á geisladisknum
Kviðu, sem nýkominn er út hér á
landi. Tríóið Blik skipa Hanna Dóra
Sturludóttir, söngur, Freyja Gunn-
laugsdóttir á klarínettu og Daníela
Hlinkova á píanó.
Á efnisskrá tónleikanna eru lög
eftir þá Ása í Bæ og Oddgeir Krist-
jánsson í nýjum útsetningum Atla
Heimis Sveinssonar. Blik hljóðritar
nú geisladisk með þessari efnisskrá.
Ási í Bæ, Oddgeir
og Atli Heimir
Sjaldheyrt Tríóið Blik, Hanna Dóra Sturludóttir, Freyja Gunnlaugsdóttir
og Daníela Hlinkova, heldur tónleika í Norræna húsinu í dag kl. 17:00.
Í frásögn af sýningu Gary Schneider
var rangt farið með hvenær hún er
opin. Rétt er að sýning hans í Lista-
safni Reykjavíkur Hafnarhúsi, Nekt,
verður opnuð næstkomandi laugar-
dag kl. 15 en ekki á sunnudag eins og
missagt var. Fyrirlestur hans verður
í hádeginu á föstudag.
Leiðrétt