Morgunblaðið - 13.05.2010, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010
Robert Downey Jr.,
Samuel L. Jackson,
Gwyneth Paltrow,
Scarlett Johansson,
Don Cheadle og Mick-
ey Rourke eru mætt
í fyrstu STÓRMYND
SUMARSINS
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA
Stærsta opnun á Íslandi árið 2010
Frábær ný teiknimynd fyrir alla fjölskylduna SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
HHHH
„Iron Man 2 setur viðmið sem eru
gulls ígildi fyrir framhaldsmyndir
þökk sé leiknum hans Roberts
Downey Jr. sem Stark“
- New York Daily News
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
Hörku hasargrínmynd
með Bruce Willis, Tracy
Morgan (30 Rock) og
Sean William Scott
sem kemur öllum í
gott skap.
Þegar harðnaglinn Bruce
Willis fær vitleysing sem
félaga neyðist hann til að
taka til sinna ráða.
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
Vinsælasta
myndin á Íslandi
tvær vikur í röð
ROBIN HOOD kl. 5 - 8 - 10:50 (Powersýning) 12
OFURSTRÁKURINN kl. 4 m. ísl. tali L
SHE'S OUT OF MY LEAGUE kl. 5:50 - 8 L
IRON MAN 2 kl. 10:10 12
IRON MAN 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
OFURSTRÁKURINN kl. 6 m. ísl. tali L
KICK-ASS kl. 8 - 10:10 14
ROBIN HOOD kl. 5 - 8 - 10:50 (Powersýning) 12
IRON MAN 2 kl. 8 - 10:30 12
OFURSTRÁKURINN kl. 4 m. ísl. tali L
AÐ TEMJA DREKANN SINN kl. 6 m. ísl. tali L
/ KEFLAVÍK / SELFOSSI/ AKUREYRI
Hljómsveitin Nada Surf
var stofnuð fyrir átján ár-
um. Þeir hafa gefið út
plötur með reglulegu
millibili, en If I had a hi-fi
er sjötta hljóðversplata
þeirra. Á plötunni er þó
ekkert frumsamið efni, hún samanstendur af
tólf slögurum sem hljómsveitin segir hafa
haft áhrif á sig í gegnum árin. Á plötunni
tekst þeim vel að flytja lög eftir hljómsveitir
á borð við Depeche mode, Spoon og Moody
Blues. Þeir bæta þó engu sérstöku við og í
fljótu bragði virðast upprunalegu lögin
betri. Platan flæðir vel og er áhugaverð, en
bætir litlu við langan og farsælan feril
hljómsveitarinnar.
Ofboðslega
ásættanlegt
Nada Surf – If I had a hi-fi
bbbnn
Jónas Margeir Ingólfsson
Head First er fimmta
breiðskífa Alison Gold-
frapp og Will Gregory. Á
henni má finna skemmti-
legt gleðiskotið danspopp
undir sterkum eitís-
áhrifum. Platan er frem-
ur stutt, aðeins átta lög, en þau eru öll í
djammvænu tempói og tónlistin er ein-
staklega bjartsýnisleg og eins og ýmsir
gagnrýnendur hafa bent á er ákveðinn fant-
asíu/ævintýrablær yfir henni. Fyrsta lagið,
„Rocket,“ hefur þegar náð nokkrum vin-
sældum og er með betri lögum plötunnar, en
næstu tvö, „Beliver“ og „Alive“ gefa lítið eft-
ir. Upplífgandi og skemmtileg tónlist til að
spila við djammupphitun og heimilisstörfin.
Glaðlegt og kúl
retro-popp
Goldfrapp – Head First
bbbbn
Hólmfríður Gísladóttir
Helstu talsmenn kannabisneyslu í tónlistar-
sögunni, félagarnir í Cypress Hill, slógu í
gegn í upphafi 10. áratugarins með mjög svo
grípandi rapplögum, klassíkerum á borð við
„Insane in the Brain“ og „When the Shit
Goes Down“. Nú er loks komin plata frá
þeim eftir sex ára hlé (og væntanlega
gegndarlausar vatnspípureykingar), Rise
Up. Cypress Hill er við
sama heygarðshornið í
yrkisefnum, en hinir og
þessir tónlistarmenn
koma fram með sveitinni,
m.a. Tom Morello úr
Rage Against the Mach-
ine í titillaginu sem er bráðgott. Þetta er
sæmilegasta plata en fá grípandi lög.
Helgi Snær Sigurðsson
Fölnandi kýprusviður
Cypress Hill – Rise Up bbmnn
Kvikmyndaritið Hollywood Reporter gefur
kvikmyndinni Prince of Persia: The Sands of
Time, sem Gísli Örn Garðarsson fer með hlut-
verk í, prýðilega gagnrýni. Í henni segir að
myndin líti vel út og að henni sé einkum ætlað
að höfða til ungra áhorfenda, hraðinn sé mikill
í henni en þó vanti upp á, hún sé ekki stór-
brotin.
Í dóminum segir að kvikmyndaáhugamenn
gætu haft gaman af myndinni þar sem margt í
henni minni á gamla tíð, hetjuleik Douglas Fa-
irbanks og Errols Flynn og líklegt að myndin
muni ganga vel í miðasölu, þó svo að vart megi
vænta metsölu. Myndin reiði sig á persónutöfra
aðalleikarans, Jakes Gyllenhaal, sem sé í fanta-
formi en lítið sé um neista milli hans og aðal-
leikkonunnar, Gemmu Arterton. Þá geri aðrar
stjörnur mikið fyrir myndina, þeir Ben Kings-
ley og Alfred Molina. Ekki er minnst á frammi-
stöðu Gísla Arnar enda er hann ekki í einu af
aðalhlutverkunum.
Eins og Þjófurinn í Bagdad
Variety hefur einnig gagnrýnt myndina og
segir hana áferðarfallega en auðgleymanlega.
Myndin muni líklega höfða einna helst til ungra
karlmanna og vanti tilfinnanlega í hana grín og
hnyttni. Ef tæknibrellurnar væru fjarlægðar
myndi kvikmyndin líta út eins og The Thief of
Bagdad með Douglas Fairbanks (en Hollywood
Reporter vísar einnig í þann leikara). Meta-
critic reiknast svo til að myndin fái 50 stig af
100 mögulegum hjá Variety og 70 af 100 hjá
Hollywood Reporter.
Fín afþreying en
þó ekki stórbrotin
Gyllenhaal Er í fantaformi í myndinni.
Þjófurinn í Bagdad Fairbanks í hlutverki sínu.