Morgunblaðið - 13.05.2010, Blaðsíða 40
FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 133. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Glitnir: „Skýstróks-áætlunin“
2. Slitastjórn með blaðamannafund
3. Ætlar ekki að verjast
4.Segir Steinunni misnota dómstóla
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónlistarmennirnir Pétur Þór Bene-
diktsson, Pétur Ben, og Einar Töns-
berg, Eberg, vinna nú saman að
plötu. Platan er enn nafnlaus en þeir
stefna að útgáfu öðruhvorumegin við
áramót. »32
Pétur Ben og Eberg
vinna saman að plötu
Stuttmynd Sig-
ríðar Soffíu Níels-
dóttur, Uniform
Sierra, verður
sýnd á Reeldance-
tvíæringnum í
Ástralíu í sumar,
en kvikmyndahá-
tíðin fer fram í 13
borgum þar í landi
og endar svo á Nýja-Sjálandi. Myndin
var tekin upp á Snæfellsnesi og í
henni dansa Sigríður Soffía og Ben-
jamin Khan. Er hún partur af alþjóð-
legum hluta hátíðarinnar, sem er virt-
asta dansmyndahátíð Ástralíu.
Uniform Sierra sýnd
á Reeldance í Ástralíu
Í kvöld kl. 20.30 fara fram tón-
leikar til styrktar Margréti Andr-
ésdóttur, búsettri á Egilsstöðum,
sem hefur allt síðan 2004 barist
við erfiðan langvarandi sjúkdóm
sem veikir hjá henni ónæmiskerfið.
Tónleikarnir fara fram á Spot í
Kópavogi og fram
koma m.a: Greif-
arnir, Haffi Haff, Al-
exander Aron, Friðrik
Dór, Einar Ágúst
og Nanna Ims-
land. Miða-
verð er
1.500 kr.
Haffi Haff á styrkt-
artónleikum á Spot
Á föstudag Austan- og norðaustan 8-13 m/s, en hægari suðvestanlands. Væta í flestum
landshlutum, einkum þó austan til. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast suðvestanlands.
Á laugardag og sunnudag Norðaustan 5-13 með skúrum eða slydduéljum, en skýjað
með köflum og smáskúrir suðvestan- og vestanlands. Heldur kólnandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 8-13 m/s, en hægari sunnan- og austanlands. Rigning
norðanlands, bjart með köflum suðvestanlands. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast sunnanlands.
VEÐUR
Spjótkastarinn Ásdís
Hjálmsdóttir úr Ármanni
keppir á fyrsta dem-
antamóti ársins á morgun
kl. 16:40. Góður árangur þar
mun stuðla að því að hún
komist á fleiri slík mót en
vonast er til að henni verði
boðið á þrjú til viðbótar í
sumar. Með þátttöku á
morgun hefur
Ásdís þegar
tryggt sér 1.000
dali í verðlaunafé. »1
Fleiri demanta-
mót í sigtinu
Arnar Sveinn Geirsson er átján ára
gamall, sonur Geirs Sveinssonar,
fyrrverandi landsliðsfyrirliða Íslands
í handbolta. Arnar hefur verið í
fremstu röð í tveimur greinum
og valdi fótboltann. Hann
sló í gegn í leik Vals og FH í
fyrstu umferð Ís-
landsmótsins
og kveðst fá
góð ráð frá
föður sín-
um. »4
Arnar fær góð ráð
frá pabba sínum
Frjálsíþróttakonan Helga Margrét
Þorsteinsdóttir mun að öllum lík-
indum ekki taka þátt í hinu sterka
fjölþrautamóti í Götzis sem fram fer í
lok mánaðarins. Ástæðan er meiðsli
sem hún hefur glímt við upp á síð-
kastið. Stefán Jóhannsson, þjálfari
Hrútfirðingsins, gerir ráð fyrir að hún
keppi þess í stað á sterku móti í
Kladno í Tékklandi. »1
Helga Margrét fer lík-
lega ekki til Götzis
ÍÞRÓTTIR
Morgunblaðið/G.Rúnar
„Ég held að bæjarfélögunum finnist
gott að við séum til en það eru ekki
nema þrjú sem greiða fyrir dýrin í
sjö daga, hin bæjarfélögin greiða
ekki neitt,“ segir Sigríður Heið-
berg, forstöðumaður Kattholts.
Um 100 flækingskettir eru að
jafnaði í Kattholti þar sem Katta-
vinafélag Íslands hefur veitt flæk-
ingsköttum húsaskjól í hátt í 20 ár.
Róðurinn hefur hins vegar
þyngst verulega, ekki síst eftir
bankahrun, og nú segir Sigríður að
vegna hækkandi fóðurverðs og him-
inhárra fasteignagjalda á húsnæð-
inu sé tvísýnt um starfsemina. „Til
lengdar held ég að þetta gangi ekki
nema til einhverra breytinga komi.
Ég get ekki séð að það séu neinar
skyndilausnir, það þarf bara að
taka sig saman og ákveða, vill fólk
að Kattholt starfi áfram og bjargi
dýrum eða ekki?“
Sigríður vonast til þess að bæjar-
félögin vilji koma með öflugri hætti
til móts við starfsemina sem haldi
köttum í skefjum um allt höf-
uðborgarsvæðið. »4
Kattholt í vanda
Útséð um reksturinn nema hjálp berist
„Það ræðst ekki við neitt í fjárhús-
unum þegar lömbin eldast. Þau fara
um allt. Þetta fer í tóma vitleysu.
Svo dugar ekki mjólkin og þau
verða að fá eitthvað til að éta,“ seg-
ir Gísli Halldór Magnússon, bóndi í
Ytri-Ásum í Skaftártungu. Hann og
Ásta Sverrisdóttir eru að basla við
sauðburð í öskufalli frá Eyjafjalla-
jökli. Fjölskyldan hjálpar til og í
gær var Elva Dögg Valsdóttir,
tengdadóttir þeirra, að aðstoða.
Halldór segir að kominn sé næg-
ur hagi og vont að geta ekki nýtt
hann af öryggi. „Það virðist enginn
vita hvort óhætt er að setja út fé,
hvort grasið tekur flúorinn í gegn-
um ræturnar eða hvort hann
skolast af grösunum eins og hver
önnur mengun. Mér finnst þetta
svolítið óljóst.“
„Það er ekki annað að gera en að
þvæla þessu í gerðum heima við en
það verður ekki hægt lengi,“ segir
Halldór um úrræði á sauðburði.
Hann bætir því við að hætta sé á
sjúkdómum í fénu þegar það geti
ekki dreift úr sér. »14
„Þetta fer í tóma vitleysu“
Bóndinn í Ytri-
Ásum segir að lömb-
in verði að fara út
Morgunblaðið/RAX
Á sauðburði Gísli Halldór Magnússon í Ytri-Ásum og Elva Dögg Valsdóttir, tengdadóttir hans, hafa áhyggjur af
lambfénu. Fé sem var úti í fyrrinótt var grátt og kleprað eftir öskufall og rigningu um morguninn.
Fjöldi manns reyndi að brjóta sér
leið inn í dómsal Héraðsdóms
Reykjavíkur í gær er fyrirtaka fór
fram í máli ákæruvaldsins gegn
níu einstaklingum sem ákærðir
eru m.a. fyrir brot gegn vald-
stjórninni vegna atburða við Al-
þingishúsið í desember 2008. Hiti
færðist í mannskapinn er lög-
reglan mætti á vettvang til að
hindra að fleiri færu inn í dómsal
en sæti voru fyrir.
Björn Valur Gíslason, þingmað-
ur VG, lagði fram tillögu á Alþingi
í gær um að ákærurnar yrðu látn-
ar niður falla. » 8
Reyndu að brjóta
sér leið inn í salinn