Morgunblaðið - 08.01.2011, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.01.2011, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2011 Svanhildur Eiríksdóttur „Dvölin hér hefur stækkað mig. Það sem er sér- stakt við Ísland er að náttúran er svo lifandi og svo nálægt manni,“ sagði listamaðurinn Clay Apenouvon í samtali við blaðamann. Clay fannst mögnuð upplifun á gamlárskvöld þegar hann uppgötvaði að flugeldarnir á himninum voru speglun við listaverk hans „Plastic attack“. Listaveislan „Ferskir vindar í Garði“ var sett á fimmtudag. Listahópurinn sem dvalið hefur í Garði frá því í byrjun desember og notað upplifunina af staðnum og landinu til túlkunar í listaverkum sínum undir yfirskriftinni „Ferskir vindar í Garði“ lætur vel af dvöl sinni í Garði. Það er ekki síður ánægt með íbúana, náttúruna og landslagið og þeir fersku vindar sem blása um sveitarfélagið hafa reynst ný upplifun fyrir marga. Clay Apenouvon frá Indlandi fékk sér göngutúr í rokinu og kuldanum ber að ofan, af því að hann varð að prófa það. Honum varð ekki meint af en er reynslunni ríkari. Hann hefur hannað boli með hinum ýmsu slagorðum og sá sem hann skartaði við opnun listaveislunnar á fimmtudag tjáði „insideisinside outsideisout“. Hann hefur einnig hannað dýr úr steinum á ber- svæði í útgarðinum, þar sem honum fannst of fá dýr í sveitarfélaginu. „Börnin mega snerta þessi dýr og leika á þeim,“ sagði Clay í samtali við blaðamann. Hann var uppnuminn af reynslu sinni af verunni á Íslandi. Plastárás Ekki síður heillaður var Clay Apenonouvon, en hann var að taka þátt í svona listaveislu í fyrsta sinn og sagðist vera Mireyu Samper afar þakklátur fyrir að hafa boðið sér. Clay er frá Lome í Tógo en er búsettur í París og til Íslands kom hann með litskrúðuga franska plastpoka í farteskinu til að túlka í listaverki á Íslandi. „Í París er mikið af viðvörunum unnum í plast. Það eru alls staðar plastskilti með hinum og þessum aðvörunum og ekki lengur pláss fyrir listamenn til að koma list sinni á framfæri. Ég mála mikið og nota sterka liti, ekki ósvipaða þeim sem eru í plastpokunum. Þetta eru litir sem gleðja mig og þá vildi ég sprengja út í Garðinum. Hugmyndin með verkinu „Plastic attack“ er að fara úr ein- hverju sem er negatíft í pósitíft,“ sagði Clay í samtali við blaðamann. Honum fannst magnað að upplifa gamlárskvöld með ljósadýrðinni á himnum og sá að það rímaði við listaverkið hans. „Dvölin hér mun verða eins og ævin- týri í mínum huga. Ég er hér í hvítra manna landi í fyrsta sinn og mér líður af- skaplega vel. Ég finn enga truflun þó ég sé öðruvísi á litinn.“ Draumur Clay er að halda svona menningarveislu í Afríkuríkinu Tógó og blaðamanni heyrðist hann og Mireya vera komin áleiðis með skipulagið. Blaðamaður hitti að síðustu fyrir japönsku listakonuna Tei Kobayashi sem notaði íslenska hestinn og ís- lenska þjóðmenningu í verk sitt, sem hún kallaði „Eldorado range“ eða „Goldin elf range“ og er þar að leika sér með nafn gullframleiðandans Eldo- rado. Tei hefur tekið þátt í mörgum listaveislum og unnið með flestum þeim sem taka þátt í lista- veislunni í Garði, enda bæði þekkt og hátt skrif- uð listakona. Listaverk sitt vann hún úr vír, ís- lensku hrosshári og vaxi og tók skýrt fram við blaðamann að hún hefði fengið leyfi hjá hest- unum, sem hún heimsótti, fyrir hárunum. „Þetta eru álfahestar og álfatorfbæir. Sérðu ekki álfana að leik,“ sagði hún kímin við blaða- mann. Innblásturinn sótti hún í álfastíg við sjáv- arsíðuna í Garði og sagðist langa til að koma verkinu fyrir þar til framtíðar. „Hestana þarf ég þá að gera stærri og verklegri svo þeir þoli ágang sjávar.“ Torfbæirnir eru gerðir úr reka- við sem hún brenndi og bar á bývax til verndar. Um veruna og upplifunina á Íslandi sagði Tei landið fallegt og óvægið. Hún sagði fólkið ljúft með fallega sál og því þætti allt vera gerlegt. „Hér segir enginn nei, allt er mögulegt.“ Tei vill meina að Íslendingar hafi gaman af lífinu og að sá eiginleiki sé komin frá írsku rótunum. Einstök lífsreynsla við nýjar aðstæður túlkaðar í listsköpun Stjórinn Mireya Samper listakona og verk- efnisstjóri Ferskra vinda í Garði. Verk Áhugasamur gestur á opnunarhátíðinni virðir fyrir sér verk listamannsins Clays Apenouvon sem kemur alla leið frá Tógó. Íslenskt Tei Kobayashi notaði bæði íslenska hestinn og þjóðmenningu í túlkun sinni. Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Vindur Listaverk Klaus Pfeiffer vakti athygli á opnuninni enda bréfpokar með einum lítra af grískum norðanvindi, austanvindi, sunnanvindi og vestanvindi spennandi viðfangsefni. Árás Clay Apenouvon við plastárás sína sem er búin til úr litskrúðugum, frönskum plastpokum. Í dag og á morgun hefjast sýningarnar klukkan 13 í sýningarsölum að Sunnubraut 4 og í framhaldi verður boðið upp á rútu- ferðir um sveitarfélagið þar sem gestum gefst kostur á að upplifa fjölbreytta list- viðburði. Fjölmörg listaverk eru staðsett víðsvegar um sveitarfélagið og munu varðveitast um aldur og ævi. Íbúar Garðs eru því ekki bara reynslunni ríkari heldur auðugir af fjöl- þjóðlegri list. Undirtónn Ferskra vinda í Garði eru norð- urljósin en Mireya Samper verkefnis- og sýningarstjóri sagði merkilegt að í þær 6 vikur sem listahópurinn hefur dvalið í Garði hefði ekkert bólað á norður- ljósum. Ljós eru hins vegar mjög áberandi í verkum listamannanna. „Capture the light/Northern lights/moonlight/the light within ourself“ heitir listaverk Mireyu Samper í listasalnum við Sunnu- braut og er það gert úr rekavið og silfri. Upplýsingar um verkefnið, listamennina og atburði fram- undan má nálgast á heimasíðu þess www.fresh-winds.com. Það stendur til 29. janúar n.k. Listaveislan víða FERSKIR VINDAR Í GARÐI  Listaveislan „Ferskir vindar í Garði“ var sett síðasta fimmtudag Uday Singh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.