Morgunblaðið - 08.01.2011, Side 18

Morgunblaðið - 08.01.2011, Side 18
ÚR BÆJARLÍFINU Kristín Ágústdóttir Neskaupstaður Hinn ungi og efnilegi knatt- spyrnumaður Sveinn Fannar Sæ- mundsson er íþróttamaður Þróttar í Neskaupstað og íþróttamaður Fjarðabyggðar. Sveinn Fannar var fyrirliði í 2. flokki Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar sem varð Íslands- meistari í sinni deild í sumar. Jafn- framt er hann í 25 manna hópi ung- lingalandsliðs karla 19 ára og yngri.    Methafinn Börkur var fengsæll á nýliðnu ári. Skipið landaði 55 þús- und tonnum að verðmæti ríflega 1900 milljónir króna. Það er 570 milljónum króna meira en árið 2009, sem þó var líka metár. Mest var veitt af norsk- íslenskri síld, kolmunna og loðnu. Börkur og Beitir bíða þess nú að veðrinu sloti svo hægt sé að leita loðnu.    Rekstur félagsheimilisins Egils- búðar er laus til umsóknar. Fyrir- tækið sem rak Egilsbúð er gjald- þrota. Enginn rekstur hefur verið í félagsheimilinu frá nóvember. Nú er óskað er eftir að umsækjendur skili inn tillögum að því hvernig hægt sé að nýta húsið á sem fjölbreytileg- astan máta fyrir samfélagið á Norð- firði og í Fjarðabyggð.    Rauða torgið – skemmtistaður og bar tók til starfa um svipað leyti og rekstri var hætt í Egilsbúð. Rauða torgið er til húsa í gömlu Bakkabúð og ætla rekstraraðilar að hrista ær- lega upp í skemmtanalífi Norðfirð- inga. Anna Hlíf Árnadóttir er fram- kvæmdastjóri og rekstraraðili, ásamt systkinum sínum og mökum þeirra. Hún segist að aðsóknin hafi verið mjög góð: „Það hefur verið ótrúlega mikið að gera og allt gengið mjög vel. Það var greinilega mikil þörf fyrir þetta, sérstaklega fyrir jólin þar sem nýbúið var að loka Egilsbúð og fólk var að koma heim í frí“.    Fyrsta barn ársins sem fæddist á Austurlandi kom ekki í heiminn fyrr en á þrettándanum. Það var myndar- legur drengur, sonur Elísabetar Arn- finnsdóttur og Sigurðar Hjörvars Sigurðssonar frá Reyðarfirði.    Blótsspenna er komin í Norð- firðinga. Ekki dugar minna en tvö blót: Kommablótið og Sveitablótið, enda alkunna að sveitamenn geta ekki verið kommar og að kommar geti ekki verið sveitamenn. Góð mæt- ing hefur verið á bæði blótin og er nú talað um að takmarka fjölda gesta á sveitablótið. Kommar eru ekki sveitamenn Góð fyrirmynd Sveinn Fannar Sæmundsson, íþróttamaður Þróttar og Fjarðabyggðar 2010, tekur hér við bikar úr hendi Jóhanns Ragnars Bene- diktssonar íþróttamanns Fjarðabyggðar 2009. Ljósmynd/Fjarðabyggð 18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2011 FJALLAHLAUP OG FJÖRUPÚL FJALLAHLAUP FM957 Vertu með í skemmtilegri líkamsrækt í náttúrulegu umhverfi. Fjallahlaup og fjörupúl þrisvar í viku í þrjá mánuði, 13. janúar – 11. apríl. Fjörupúl á mánudögum og fimmtudögum kl. 18. Hlaupaæfingar, hlaupaleikir, sprettir og stöðuæfingar. Mæting ávallt á bílastæðinu við Nauthól kl 17.50, en allar hlaupaæfingar verða í fjörunni við Nauthólsvík. Fjallahlaup á laugardögum kl. 10.30. Hlaupið á létt fjöll í nágrenni Reykjavíkur, Úlfarsfell, Helgafell, Mosfell, Grímarsfell og Keili. Umsjónarmenn eru margreynt fjallafólk og íþrótta- kennarar. Hver æfing tekur 60 – 75 mín. Verkefnið hefst fimmtudaginn 13. janúar með fjöruhlaupi við Nauthól. Mæting í hlaupagalla við bílastæðið í Nauthólsvík kl. 17.50. Fyrsta fjalla- hlaupið er laugardaginn 15. janúar þegar hlaupið er á Úlfarsfell. Mæting í hlaupagallanum við bílastæði ofan við byggðina í Úlfarsárdal. Þátttakendur í verkefninu fá fjölda góðra tilboða frá ýmsum aðilum tengdum útivist og heilsu meðan á verkefninu stendur. Verð kr. 30.000. Skráning á fjallahlaup@fjallakofinn.is Sö gu m ið lu n eh f Helga Sigurjóns- dóttir kennari lést á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 5. janúar, 74 ára að aldri. Helga fæddist hinn 13. september árið 1936 í Vatnsholti í Flóa í Árnessýslu. Foreldrar hennar voru Herdís Jóns- dóttir húsmóðir og bóndi frá Kampholti í Flóa og Sigurjón Gestsson leigubíls- stjóri frá Staðar- bakka í Helgafellssveit á Snæ- fellsnesi og síðar bóndi. Eftirlifandi eiginmaður Helgu er Þórir Gíslason tannlæknir. Saman eignuðust þau þrjú börn, þau Brynjólf, Herdísi og Gísla Friðrik en hann lést árið 2004. Helga lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík ár- ið 1956 og hlaut kennarapróf frá Kennaraskóla Íslands ári síðar. Árið 1979 lauk hún BA-prófi í ís- lensku og sálfræði við Háskóla Íslands. Þar að auki stundaði hún nám við Háskólann í Gauta- borg árin 1980-1981 og meistara- nám í málfræði við HÍ 1992-1993. Sama ár og hún hlaut kennara- próf hóf Helga að kenna við Kópavogsskóla og starfaði hún þar til ársins 1972. Auk þess vann hún sem blaða- maður á Þjóðviljanum og bæjar- blaði Kópavogs á ár- unum 1975-1981. Þá kenndi hún við Víg- hólaskóla frá 1977- 1982 þegar hún færði sig um set til Mennta- skólans í Kópavogi. Þar kenndi hún í sautján ár eða til árs- ins 1999. Eftir að Helga hætti kennslu við MK stofnaði hún Lestrar- skóla Helgu Sigur- jónsdóttur sem hún starfrækti allt fram á síðasta ár. Auk kennarastarfsins var Helga virk í málefnum Kópa- vogsbæjar. Þannig var hún bæj- arfulltrúi fyrir Alþýðubandalagið árin 1974-1979 og sat í félags- málaráði bæjarins sömu ár og var formaður þess síðasta árið. Þá var hún forseti bæjarstjórnar frá 1978-1979. Helga átti frumkvæði að stofn- un jafnréttisnefndar í Kópavogi í tilefni Kvennaárs Sameinuðu þjóðanna árið 1975 og átti sæti í nefndinni til 1978 en hún var sú fyrsta sinnar tegundar á landinu. Árin 1994-1995 var Helga bæj- arfulltrúi Kvennalistans í Kópa- vogi en frá 1995-1998 sat hún sem óháður bæjarfulltrúi. Hún var formaður stjórnar Kvenfélags Kópavogs 1994-1996 og var einn af stofnendum Rauð- sokkahreyfingarinnar árið 1970. Andlát Helga Sigurjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.