Morgunblaðið - 08.01.2011, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 08.01.2011, Blaðsíða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2011 Furðuverk Starfsmenn Orkuversins í Svartsengi settu litaðar plötur fyrir útikastaralýsingu til að skapa gufustróka og byggingar í öllum regnbogans litum yfir hátíðirnar. Ómar Smári Í áramótaávarpi sínu sagði Jóhanna Sigurð- ardóttur forsætisráð- herra meðal annars: „Auðlindir sjávar, ork- an í iðrum jarðar og þau verðmæti sem fólgin eru í vatninu, jafnt heitu sem köldu, eiga að vera sameign þjóðarinnar og þannig þarf að ganga frá mál- um að arðurinn renni með sanngjarnari hætti en verið hef- ur til allra Íslendinga.“ Þetta eru eftirtektarverð ummæli sem hafa kallað á nokkrar umræður. Það sem vekur sérstaka athygli er að forsætisráðherra kallar á að nýt- ingarrétti orkuauðlinda og fisk- veiðiauðlindarinnar sé skipað með sambærilegum hætti. Þetta hljóta að teljast nokkur tíðindi. Þessi orð for- sætisráðherra eru í samræmi við þá stefnumörkun sem unnið hefur verið eftir varðandi vatns- og jarðhitarétt- indi í eigu ríkisins og þá eindregnu niðurstöðu sem varð í starfshópi sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra um endurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða. Það er fagnaðarefni að ráðherrann skuli kveða upp úr um að fylgt skuli sömu leikreglum við auðlindanýtingu orkuauðlinda og fiskveiðiauðlindarinnar. Tillögur um nýtingu orkuauðlinda Samkvæmt ákvæðum í lögum um breytingu á nokkrum lögum á auð- linda- og orkusviði var ákveðið að forsætisráðherra skipaði nefnd til að fjalla um fyrirkomulag varðandi leigu á vatns- og jarðhitaréttindum í eigu ríkisins. Nefndin skilaði áliti sínu í mars á síðasta ári. Almenn sátt virðist vera um þá niðurstöðu sem þar er kynnt. Í sem skemmstu máli má segja að nið- urstöður nefndarinnar séu eftirfarandi: 1. Eignarréttur rík- isins á þessum auðlind- um er skýr. 2. Rétt- inum til nýtingar megi ráðstafa með tíma- bundnum hætti og greiði sá sem nýting- arréttinn tiltekið afgjald til eigand- ans. 3. Þennan nýtingarrétt ber að framlengja tímabundið, hafi menn farið að þeim skilyrðum sem sett voru við nýtingu auðlindarinnar. 4. Um þessi mál eiga að gilda gagn- sæjar reglur. 5. Réttarstaða þeirra sem nýtingarréttinn hafa verður bundin með formlegri hætti en áður. 6. Áhersla er lögð á að afnotahafi auðlindarinnar þurfi að uppfylla til- tekin skilyrði og fái forgang til áframhaldandi afnota hafi hann upp- fyllt þau skilyrði. 7. Sé um að ræða ráðstöfun á nýjum orkukostum verði þeim ráðstafað á grundvelli tveggja þrepa útboðs, þar sem á síðara þrep- inu verði valið á milli umsækjenda með uppboði, séu þeir tveir eða fleiri. Þetta er skýr niðurstaða. Eignar- réttur ríkisins er afmarkaður og sömuleiðis afnota- og nýtingarréttur þeirra sem í hlut eiga. Jafnframt að eigandi auðlindarinnar hirði af henni arð, í samræmi við tilteknar reglur. Leitað fyrirmynda Í nefndinni um endurskoðun fisk- veiðistjórnarkerfisins sat stór hóp- ur, með ólíka sýn á viðfangsefnið. Okkur sem í nefndinni sátum var ljóst að mikilvægt væri að freista þess að ná sem víðtækastri sam- stöðu um niðurstöðuna. Til þess að slíkt væri unnt blasti auðvitað við að menn yrðu að slá af sínum ýtrustu kröfum og taka tillit til mismunandi sjónarmiða. Í því skyni skoðaði nefndin meðal annars rækilega þá leið sem mótuð hefur verið varðandi nýtingu orkuauðlinda og taldi eðli- legt, líkt og forsætisráðherra, að þar yrði samræmi á milli. Fyrirfram var sú niðurstaða ekki gefin. Þeim mun gleðilegra var það að mjög vel tókst til um að móta nær sameiginlega niðurstöðu um málið. Að þeirri nið- urstöðu stóðu fulltrúar beggja stjórnarflokkanna, Samfylkingar og Vinstri grænna, einnig Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks, sem og allra sjómannasamtakanna, útgerð- armanna minni og stærri báta, sam- taka fiskvinnslustöðva, sveitarfélaga og eigenda sjávarjarða. Einvörð- ungu fulltrúar Hreyfingarinnar og samtaka fiskframleiðenda og útflytj- enda vildu fara aðra leið. Með öðrum orðum, niðurstaðan var mjög afgerandi og víðtæk. Nær allir nefndarmenn vildu fara sam- bærilega leið við nýtingu fiskveiði- auðlindarinnar og orkuauðlind- arinnar. Það er sú leið sem við kölluðum samningaleið. Þetta varð niðurstaðan Þessu er svo lýst í tillögum okkar: „Meirihluti starfshópsins telur að með tilliti til settra markmiða og kröfu um jafnræði og meðalhóf sé rétt að endurskoða fiskveiðistjórn- unarkerfið með sjálfstæðri löggjöf sem hafi hliðsjón af auðlindastefnu almennt er byggist á hugmyndum um samningaleið. Meirihluti starfs- hópsins telur rétt að gerðir verði samningar um nýtingu aflaheimilda og þannig gengið formlega frá því að auðlindinni sé ráðstafað af ríkinu gegn gjaldi og að eignarréttur rík- isins sé skýr. Samningarnir skulu m.a. fela í sér ákvæði um réttindi og skyldur samningsaðila, kröfur til þeirra sem fá slíka samninga, tíma- lengd og framlengingu samninga, gjaldtöku, aðilaskipti, ráðstöfun aflahlutdeilda sem ekki eru nýttar, meðferð sjávarafla o.fl. Mismunandi skoðanir voru innan hópsins um út- færslu á einstökum atriðum slíkra samninga. Meirihluti starfshópsins er sam- mála um að mæla með að aflaheim- ildum verði skipt í „potta“ þar sem annars vegar eru aflahlutdeildir og hins vegar bætur og ívilnanir, s.s. byggðakvóti, strandveiðar og aðrar sérstakar ráðstafanir. Gæta skal jafnræðis við úthlutun nýrra afla- heimilda eða heimilda sem komi til endurúthlutunar með opinberum markaði. Meirihluti starfshópsins telur að þær tillögur sem hópurinn gerir nú til breytinga og endurskoðunar á lögum um stjórn fiskveiða sé grunn- ur að lausn þeirra stóru ágreinings- efna sem verið hafa uppi hér á landi um langt skeið.“ Skýr niðurstaða á grundvelli víðtæks samráðs Forsætisráðherra er augljóslega að lýsa ofangreindri samningaleið í áramótaræðu sinni. Því ber að fagna. Þetta ætti heldur varla að koma á óvart. Forsætisráðherra hefur hvatt mjög til samstöðu og samráðs í hin- um stærri málum á viðsjárverðum tímum. Það voru stjórnvöld sem á grundvelli eigin stjórnarsáttmála, höguðu svo málum að stór hópur fólks með mismunandi sjónarmið lagðist yfir það mikla verk að endur- skoða hina umdeildu fiskveiðilög- gjöf, undir forystu tveggja öflugra þingmanna stjórnarflokkanna. Nefndin tók til þess verks ríflega ár og skilaði miklu verki, byggðu á fræðilegum úttektum og sjálfstæðu mati nefndarinnar. Á þeim grund- velli komst nefndin að nær einróma niðurstöðu um meginlínurnar. Hér birtist okkur gildi og gagn af samráði í veigamiklu, viðkvæmu og umdeildu máli, þar sem hið ólíklega gerðist; skýr niðurstaða fékkst, sem stjórnmálamenn og hagsmunaaðilar voru reiðubúnir að standa að. Þess vegna verður því einfaldlega ekki trúað að stjórnvöld ætli að virða þetta álit að vettugi. Enda blasir þá við að enginn muni framar treysta vilja stjórnvalda til samráðs í veiga- miklum málum. Sporin munu hræða. Vilji forsætisráðherra hefur nú komið í ljós. Hún vill að farin verði samningaleið í sjávarútveginum, leið- in sem fulltrúar stjórnarflokkanna og við flest önnur í endurskoð- unarnefndinni um fiskveiðilöggjöf- ina, sögðum að „sé grunnur að lausn þeirra stóru ágreiningsefna sem ver- ið hafa uppi hér á landi um langt skeið“. Eftir Einar K. Guðfinnsson » Það sem vekur sér- staka athygli er að forsætisráðherra kallar á að nýtingarrétti orku- auðlinda og fiskveiði- auðlindarinnar sé skip- að með sambærilegum hætti. Einar K. Guðfinnsson Höfundur er alþingismaður. Forsætisráðherra boðar samningaleið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.