Morgunblaðið - 08.01.2011, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 08.01.2011, Qupperneq 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2011 Framtakssjóður Ís- lands (í eigu 16 af stærstu lífeyrissjóð- unum) á í viðræðum um að selja Icelandic Group (IG). Þótt við- ræðurnar gangi út á það af hálfu sjóðsins, að selja hluta fyrirtæk- isins (verksmiðjur er- lendis), skal þó sá var- nagli sleginn, að ekkert hefur enn verið ákveðið um það hve stór hluti verði seldur. Sjóðurinn eignaðist 81 prósent í IG þegar hann keypti Vestia af Lands- bankanum. Bankinn heldur eftir 19 prósenta hlut, sem sjóðurinn á kaup- rétt að. Strax lá fyrir að a.m.k. 30 pró- senta hlutur yrði seldur. Margir áhugasamir Margir hafa lýst áhuga á IG, þar á meðal kaupendur sem vilja kaupa fyrirtækið að fullu. Teknar voru upp viðræður við fjárfestingarsjóðinn Tri- ton, en hann er að mestu í eigu evr- ópskra lífeyrissjóða. Ákveðið var að þær viðræður yrðu leiddar til lykta, áður en rætt yrði við aðra áhuga- sama. Það er eðlilegt að viðræður fari fram af fullum heilindum beggja vegna borðsins. Vonir standa til að viðræðum ljúki í þessum mánuði. Ákvörðunin byggist að sjálfsögðu á að verðhugmyndir Triton voru áhugaverðar. Nú hafa verið birtar fréttir um að eitt þeirra áhugasömu fyrirtækja, sem vilji kaupa IG, sé ameríska stórfyrirtækið High Liner Foods Inc. (HLF), frá Nova Scotia í Kanada. Þetta er eitt stærsta fyrir- tækið á sviði sjávarafurða, fram- leiðslu og sölu á þeim, í Norður- Ameríku. Fyrir Framtakssjóðinn og lífeyrissjóðina er ánægjulegt að fá staðfestingar á því hve eftirsókn- arvert þykir að eignast Icelandic Group eins og áhugi allmargra hugs- anlegra kaupenda sýnir. Fyrirtækið er vel þekkt á heimsvísu, vel kynnt og er eitt af stærstu fyrirtækjum sinnar tegundar í heiminum. Mikil eftir- spurn eftir að eignast Icelandic Group styrkir stöðu Framtakssjóðs- ins við söluna. Háar fjárhæðir Í fréttum á miðvikudag, 5. janúar, var þess getið að HLF hefði boðið um það bil jafnhátt verð fyrir IG eins og Triton hefði boðið og rætt um 52 milljarða króna, en óljóst hvort átt væri við allt fyrirtækið eða hluta þess. Í einhverjum fréttum var gefið í skyn að Framtakssjóðurinn hefði ekki virt HLF svars við tilboðinu og að forsvarsmenn þess fyrirtækis væru undrandi á því. Í tilkynningu á vef HLF er greint frá tilboðinu og tekið fram að það hafi verið sent óum- beðið (eins og oft er gert) til eiganda IG. Greint er frá því að tilboðs- fjárhæðin sé 340 milljónir evra, sem er nokkuð nærri því að vera 52 millj- arðar króna. Í tilkynningunni á vef HLF er fjallað um hve mjög kaupin á IG, verði af þeim, muni styrkja félag- ið og efla það á norðuramerískum markaði. Þar er einnig tekið fram að HLF sé vel ljóst að Framtakssjóður ræði ekki við aðra áhugasama um kaup á IG fyrr en niðurstaða liggi fyr- ir í viðræðunum við Triton. Ekki er gerð athugasemd við það. Ennfremur að þótt HLF fái á þessu stigi ekki keypt IG nema að hluta hafi félagið áhuga á að semja um frekari kaup síðar og gera í framhaldi af kaupum samninga við birgja IG á Íslandi. Ekki verður annað ráðið af vef HLF, en að fyrirtækið líti svo á að viðræð- urnar við Triton séu í eðlilegum far- vegi. Af sjálfu leiðir, að af hálfu Framtakssjóðsins er með öllu ómögulegt og fullkomlega óábyrgt að gefa út nokkurt mat á tilboðum, eins og því sen HLF hefur sent, áður en þau eru skoðuð og áður en viðræður fara fram á milli aðila. Í slíkum við- skiptum er jafnan gerður fyrirvari um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og hefur hann oft áhrif á endanlegt verð. Framtakssjóðurinn stendur við samkomulag sitt við Triton um að ljúka við- ræðum við hann áður en rætt verði við aðra. Ástæða til bjartsýni Í Morgunblaðinu í gær var grein eftir sjálfskipaðan álitsgjafa og fylgdi mynd af hon- um þungbúnum á svip. Hafði sá allt á hornum sér varðandi Framtaks- sjóðinn, lífeyrissjóði og þátttöku þeirra í hluta- fjárútboði Icelandair. Komið hefur fram að félagið nýtur góðrar afkomu og er fyrsta íslenska stórfyrirtækið sem snúið hefur vörn í sókn með aðkomu Framtakssjóðsins og eigenda hans. Öllum öðrum er ljóst að góðir hlutir eru að gerast og ekki síst fyrir almenning, sjóðsfélag- ana. Það eru þeir sem munu njóta árangurs Framtakssjóðsins. Þessi tvö verkefni, Icelandair og Icelandic, eru svo stór og álitleg að ástæða er til bjartsýni. Lífeyrissjóðunum er að heppnast ætlunarverk sitt. Annar sjálfskipaður álitsgjafi, ámóta böl- sýnn, birti pistil á pressan.is í gær. Hann sér leynipukur og stórbokka- skap í forsvarsmönnum Framtaks- sjóðsins og óttast að verið sé að selja eignir almennings á undirverði til vildarvina. Ég ritaði grein stuttu fyrir jól um það hvernig kreppa og þung- lyndi haldast í hendur og geta orðið að vítahring, ef almenningur lætur neikvæðni grípa sig. Bæði forsetinn og forsætisráðherrann vöruðu við neikvæðninni í sínum ræðum um ára- mótin. Að lokum má geta þess að tak- ist Framtakssjóðnum að selja verk- smiðjur Icelandic fylgja þeim verulegar skuldir úr landi og ámóta greiðsla í gjaldeyri inn í landið. Þetta eru svo háar fjárhæðir að um getur munað, gangi þetta eftir. Við skulum því ekki leggja eyrun við neikvæðni og bölmóði. Það er nú þegar tekið að rofa til. Áhugaverð verkefni Framtakssjóðsins Eftir Ragnar Önundarson » Takist Framtaks- sjóðnum að selja verksmiðjur Icelandic fylgja þeim verulegar skuldir úr landi og ámóta greiðsla í gjald- eyri inn í landið Ragnar Önundarson Höfundur er viðskiptafræðingur og er varaformaður stjórnar Framtaks- sjóðsins. HEIMASÍMI Í HEIMASÍMA GSM ÓHÁÐ KERFI INTERNET GÓÐAR FRÉTTIR FYRIR ÞÁ SEM VILJA STJÓRNA ÚTGJÖLDUM SÍNUM. GERÐU OKKUR TILBOÐ. MINNI ÓVISSA. MEIRA TAL. KOMDU Á TAL.IS, HAFÐU SAMBAND Í 1817 EÐA KÍKTU Í KAFFI Í NÆSTU VERSLUN OG SEGÐU OKKUR HVERNIG ÞJÓNUSTU ÞÚ ÞARFT OG HVAÐ ÞÚ VILT BORGA. ÞÚ RÆÐUR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.