Morgunblaðið - 08.01.2011, Síða 35

Morgunblaðið - 08.01.2011, Síða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2011 an sig upp sem sterkan einstakling á leið sinni um lífsins braut frá ströndu til strandar. Þetta göfuga starf hans þekkjum við prestarnir sem höfum þjónað á Siglufirði. „Jæja, vinur minn,“ voru ávarps- orðin hans Kjartans síðast er við hitt- umst en ég var svo lánsamur að hitta hann á heimili þeirra Brynju í nóv- ember síðastliðnum. Af miklu æðru- leysi, en það hugtak var honum afar kært, ræddi hann við mig um stund um veikindi sín en fljótt var hann kominn út í pólitíkina. Kjartan var svo sannarlega framsóknarmaður í húð og hár. Þrátt fyrir veikindin gat hann gleymt sér í pólitíkinni. Hann var ávallt í beinum tengslum við flokkinn sinn og nú síðast hélt þing- maðurinn hans, hann Birkir Jón, honum vel við efnið eins og hann orð- aði það sjálfur. Auk margháttaðra félagsmála- starfa, sem ekki er hægt að rifja upp í stuttri minningargrein, tók Kjartan virkan þátt í hinni göfugu og fornu Frímúrarareglu. Starfið þar átti hug hans allan, um það ræddum við heil- mikið í okkar síðasta samtali. Hann Kjartan vissi svo sannarlega hvert lífið stefndi. Hann vissi að kveðjustund lífsins væri nærri. Hann leit sáttur og þakklátur yfir farinn veg, til eiginkonunnar, dætranna þriggja og fjölskyldna þeirra en þau öll hafa staðið sig svo vel í lífinu. Ástvinamissir felur í sér skil. Við Elín biðjum þann sem brúaði heim- ana, hinn sýnilega og hinn ósýnilega, þann sem kemur til okkar á jólum að styrkja þig, elsku Brynja, og fjöl- skylduna alla. Hjálp Guðs hefur brotist inn í heim mannanna. Ljós Guðs lýsir veginn sem kristallast í hinu eilífa lífi. Með blessunaróskum, Vigfús Þór Árnason. Við upphaf nýs árs kvaddi góður félagi þetta jarðneska líf eftir erfiða baráttu við illvígan sjúkdóm. Á ung- lingsárunum man ég eftir honum; reffilegur og þrekvaxinn maður sem var skrifstofustjóri á skattstofunni og þá hvarflaði ekki að mér að þessi maður yrði einn af mínum traustustu félögum síðar meir. Hann setti sterk- an svip á sitt samfélag um áratuga- skeið þar sem hann sinnti ýmsum fé- lagsmálum og var þar treyst til ábyrgðastarfa. Siglfirskt samfélag verður fátækara eftir fráfall hans enda var það hluti af hinu daglega lífi að hitta Kjartan á förnum vegi og fara yfir málefni líðandi stundar en hann bar hag Siglfirðinga og sam- félagsins heima mjög fyrir brjósti. Kjartan var einn af lykilmönnum Framsóknarflokksins á Siglufirði um áratugaskeið. Þau hjónin lögðu þar margt gott til og voru með virkustu félagsmönnum í Framsóknarfélagi Siglufjarðar. Eftir að afskipti mín af stjórnmálum hófust hafa þau hjónin reynst mér traustir vinir sem seint verður fullþakkað fyrir. Árið 2006 voru haldnar sveitar- stjórnarkosningar í Fjallabyggð. Margt benti til þess að róðurinn yrði þungur en Kjartan tók þó að sér að halda utan um kosningaskrifstofu Framsóknarflokksins á Siglufirði. Eftir að hann tók þar við stjórnar- taumunum varð okkur félagsmönn- um ljóst að sú barátta var í góðum höndum. Af hógværð vann hann sín störf með framúrskarandi hætti og hafði góð áhrif á þann baráttuanda sem leiddi til þess að framboðið í sameinuðu sveitarfélagi fékk þá sína bestu kosningu í sögunni. Þegar ljóst var að hinn illvígi sjúk- dómur myndi hafa betur að lokum, áttum við mörg samtöl þar sem farið var yfir lífið og tilveruna. Öllum var ljóst að hverju stefndi en Kjartan var æðrulaus og tók þannig á móti sam- ferðafólki sínu síðustu vikurnar. Í veikindabaráttu sinni naut Kjartan styrkrar aðstoðar eiginkonu sinnar Brynju og fjölskyldunnar, sú um- hyggja sem honum hlotnaðist af fjöl- skyldu sinni og vinum sýnir best hvaða mann Kjartan hafði að geyma. Ég votta Brynju, dætrum, tengdasonum og barnabörnum inni- lega samúð við fráfall þessa sóma- manns. Með þökk fyrir gott samstarf og vináttu. Guð blessi minningu Kjartans Sölva Einarssonar. Birkir Jón Jónsson. Hver maður er einstæður. Í hans innra ljósi birtist honum lífið og til- veran. Þess vegna á hver maður sinn heim, sína veröld. Hún skiptir sífellt um blæ og tekur breytingum. Stund- um er bjart og leiðin auðrötuð, en svo kann skynið að daprast, þá skyggir í veröld hans. Kjartan fór ekki varhluta af hverf- ulum ljósbrigðum lífsins. Um tíð var sem svart myrkrið hefði umlukið sálu hans. En hjartalag hans og mannkostir greiddu honum leið að lítilli skímu sem svo varð að skæru ljósi. Og hann naut birtunnar í auð- mýkt. Hann barst ekki á. Hann lagði gott til allra manna. Hann vissi að ekkert er ókeypis – og það sem er dýrmætast fæst ekki keypt. Hann var ríkur maður í hjarta sínu og lifði samkvæmt því. Rósin fölnar, ísinn bráðnar og nóttin tekur við er birta dagsins dvín. Okkur er kennt að allt hafi sinn tíma og allt hafi sinn tilgang. Einlæg trú gerir þannig tilveruna skiljan- legri og kveðjustundina bærilegri. Nýtt ár heilsaði en lífið kvaddi. Sárþjáður háði Kjartan sitt dauða- stríð af þolinmæði og þrautseigju og þegar kallið kom var það honum líkn. Veri Kjartan Sölvi kært kvaddur. Megi hinn hæsti höfuðsmiður veita honum verðskuldaða hvíld og bless- un. Ég bið almættið að líkna Brynju frænku minni, Herdísi, Kristrúnu, Ásu Fríðu og öðrum ástvinum. Stefán Skjaldarson og fjölskylda, Akranesi. Það var harðsnúinn hópur heilbrigðis- starfsmanna á besta aldri sem kom að stofnun Heilsugæslustöðvar í Mjódd í Neðra Breiðholti vorið 1991. Þrír hjúkrunarfræðingar við ungbarnaeftirlitið í Efra Breiðholti tengdust þegar stöðinni og fengu fullnaðaraðstöðu þar þegar stöðin tók til starfa í nýju húsnæði haustið 1992. Allar höfðu þær aflað sér framhaldsmenntunar við almenna heilsuvernd og barnaeftirlit. Ein þessara kvenna var Edda Braga- dóttir, sem nú er kvödd. Edda var áhugasöm um afdrif skjólstæðinga sinna og lét sér annt um þá. Hún fylgdi því vel eftir, sem hún taldi betur mega fara og deildi gjarnan áhyggjum foreldra ef því var að skipta. Hún var hvetjandi og um- hyggjusöm við reynslulitla og gerði sér glögga grein fyrir að enginn verður fullnuma foreldri með fyrsta barni. Edda vann vel með öðrum og var jafnan áhugasöm um að taka þátt í öllum þeim verkum, sem til falla á stórri heilsugæslustöð. Edda var glaðlynd og góður félagi. Hún hafði gjarnan athyglina í hópi starfs- manna; hún var fróð og kunni vel að segja frá og draga fram spaugilega þætti tilverunnar. Hlífði hún þá hvorki sjálfri sér né öðrum. Hún var hispurslaus og stundum hvatvís en það voru ómissandi eðlisþættir, sem gerðu hana að þeim sjarm- erandi karakter sem hún var. Þegar Edda hætti hér á stöðinni vegna aldurs og sneri sér að annarri Edda Bragadóttir ✝ Svanhildur EddaBragadóttir hjúkrunarfræðingur fæddist á Siglufirði 21. mars 1943. Hún lést á Landspít- alanum 26. desember 2010. Útför Eddu var gerð frá Fossvogs- kirkju 5. janúar 2011. hjúkrun varð að sam- komulagi að hún myndi koma og hugsa um okkur á kaffistof- unni í sjálfboðavinnu þegar um hægðist. Því miður getur ekki orðið af því. En við munum án efa minn- ast Eddu oft þegar glatt verður á hjalla í okkar hópi og sakna vinar í stað. Við send- um börnum hennar og öðrum ástvinum sam- úðarkveðjur og tökum þátt í sorg þeirra. F.h. starfsfólks Heilsugæslunnar Mjódd, Sigurbjörn Sveinsson. Um leið og við tökum á móti nýju ári kveðjum við Eddu, kæra vin- konu okkar. Eddu kynntumst við á starfsár- um okkar á Heilsugæslustöðinni í Mjódd þegar við unnum þar sem læknaritarar fyrir allnokkrum ár- um. Tókst strax góður vinskapur við Eddu sem hélst alla tíð síðan þó við hyrfum til annarra starfa. Með sínum einstaka hressleika leiðbeindi Edda okkur ungu kon- unum um ýmislegt sem nauðsynlegt væri að vita til að takast á við í lífs- ins ólgusjó. Aldrei var komið að tómum kofunum hjá Eddu og gilti þar einu hvort hún miðlaði af reynslu sinni sem hjúkrunarfræð- ingur, gaf ráð varðandi elda- mennsku, enda Edda með eindæm- um góður kokkur, eða segði okkur hvernig færi nú best á því að við klæddum okkur. Allt var þetta bara eitt af átján eins og Edda orðaði það gjarnan. Ófáar stundir áttum við þar sem gleðin var við völd og þar fór Edda á kostum með hnyttnu orðalagi og skemmtilegum gaman- sögum. Í byrjun desember, aðeins stuttu eftir að ljóst var að Edda átti við al- varleg veikindi að stríða, áttum við yndislega stund með henni og Aðal- björgu vinkonu hennar. Þar var Edda í essinu sínu, búin að draga fram lax og rauðvínstár og við gát- um hlegið eins og í gamla daga og rætt um gamla og nýja tíma. Við einsettum okkur að hittast aftur og eiga fleiri gleðistundir á meðan Edda hefði heilsu til. Flutninga Eddu til annarra heimkynna bar hinsvegar brátt að og hún hefur kvatt. Með þakklæti í hjarta fyrir allar góðu stundirnar kveðjum við þessa frábæru og stórskemmtilegu konu sem gladdi okkur og studdi. Við vottum börnum Eddu, barna- börnum og öðrum ástvinum okkar dýpstu samúð. Minningin um góða vinkonu lifir. Hildur Sigurðardóttir og Unnur Ingibjörg Gísladóttir. Það eina vísa í þessu jarðlífi er að því lýkur fyrr eða síðar, en þegar að því kemur þá erum við oftar en ekki óviðbúin. Það á við um ótímabært andlát Eddu Bragadóttur hjúkrun- arfræðings, hollsystur okkar, sem lést eftir stutta en harða glímu við krabbamein. Í veikindunum sýndi hún ótrúlegan kjark og æðruleysi eins og hún gerði ávallt er hún tókst á við erfiðleika í lífinu. Við vorum ungar að árum þegar við hófum nám við Hjúkrunarskóla Ís- lands og myndaðist þar vinátta sem haldið hefur okkur saman í gleði og sorg. Hópurinn kynntist sorginni snemma því við höfðum ekki lokið náminu er sú fyrsta úr hópnum féll frá. Nú Edda, sú fjórða úr hópnum. Edda var sterkur persónuleiki, víðlesin og mikill gleðigjafi og í minningunni finnst okkur við oft hafa grátið af hlátri og kátínu yfir snilld hennar í frásögnum og við- brögðum. Hún átti farsælan feril sem hjúkrunarfræðingur og vann um margra ára skeið við heilsu- gæsluna. Með sorg í hjarta kveðjum við Eddu. Börnum hennar og öðr- um ástvinum vottum við innilega hluttekningu. F.h. Hollsystra, Svandís, Guðrún Eygló og Bergdís. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, RAGNAR KRISTJÁNSSON kennari, Hjarðarhaga 28, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 3. janúar. Útförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 11. janúar kl. 13.00. Arndís Eyjólfsdóttir, Kristín Margrét Ragnarsdóttir, Birgir Gunnsteinsson, Oddbjörg Ragnarsdóttir, Kristján Hjálmar Ragnarsson, Björgólfur Kristjánsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall bróður okkar, JÓNS S. HALLGRÍMSSONAR, Sæviðarsundi 11, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Karitas og líknardeilda Landspítalans í Kópavogi og á Landakoti. Þórarinn Hallgrímsson, Helgi Hallgrímsson og fjölskyldur. ✝ Ástkær kona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ERLA KOLBRÚN VALDIMARSDÓTTIR sjúkraliði, Sléttuvegi 17, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 3. janúar. Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 10. janúar kl. 13.00. Guðmundur Stefánsson, Örn Eysteinsson, Margrét Sverrisdóttir, Björn Eysteinsson, Guðbjörg B. Guðmundsdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir, Þorsteinn Jóhannsson og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐLAUG SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR fv. borðstofuráðskona á Landspítala, Sléttuvegi 13, Reykjavík, er látin. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 10. janúar kl. 15.00. Jón Sigurjónsson, Kristrún Sigurðardóttir, Svala Sigurjónsdóttir, Lárus Örn Óskarsson, Björn Ágúst Sigurjónsson,Vilborg Anna Jóhannesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elsku litli sonur okkar, barnabarn, systursonur og frændi, SEBASTIAN HELGI MILOMIR GLUSCEVIC, sem lést mánudaginn 27. desember, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju mánudaginn 10. janúar kl. 13.00. Sigríður Gluscevic, Goran Gluscevic, Jón Helgi Björnsson, Dagbjört Sveinsdóttir, Borga Harðardóttir, Bogi Sigurðsson, Sigurður Héðinn Harðarson, Guðrún Bryndís Harðardóttir, Pétur Jónsson og frændsystkini.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.