Morgunblaðið - 08.01.2011, Page 46

Morgunblaðið - 08.01.2011, Page 46
46 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2011 Orð dagsins: Hver, sem gjörir vilja Guðs, sá er bróðir minn, systir og móð- ir. (Mk. 3, 35.) Að kljást við íslenskt mál geturverið áskorun en tungumálið okkar er í stöðugri þróun og er það vel. Nýyrðasmíði er viðurkennd dægradvöl á landinu okkar litla, sum lifa, önnur ekki. En stundum taka stofnanir, fyrir- tæki og stjórnmálamenn upp ný orð í þeim eina tilgangi að reyna að fegra hlutina, breyta ímynd þeirra (og bæta sína eigin í leiðinni). Oft misheppnast þetta herfilega og um það eru mörg dæmi. Það besta er ef til vill orðið „nýbúi“ sem var farið að nota yfir innflytjendur. Það síðar- nefnda þótti bera merki um fordóma en það nýja átti að stuðla að upp- byggilegri umræðu um þennan þjóð- félagshóp. En svo gerðist það að „nýbúi“ varð skammaryrði og enn var skipt um orð: Nú skyldu innflytj- endur verða „nýir Íslendingar“. x x x Víkverji hefur undanfarið rekist ánokkur dæmi um þetta skemmtilega daður við tungumálið. Til dæmis vill Kristján Möller, fyrr- verandi samgönguráðherra, ekki kalla vegatolla „vegatolla“ heldur „notendagjöld“. Þá hefur um nokk- urt skeið færst í vöxt að sjúklingar eru sagðir „notendur“ heilbrigðis- þjónustunnar. x x x Um daginn skipti fyrirtækið Intr-um um nafn og í fréttatilkynn- ingu sagði að Motus, sem er nýja nafn þess, væri „leiðandi aðili á Ís- landi á sviði kröfustjórnunar“. Fyrirtækið sinnir auðvitað inn- heimtu en það hugtak hefur líklega of harkalegan blæ yfir sér á þessum síðustu og verstu tímum og „kröfu- stjórnun“ er væntanlega mýkra og mildara að einhverra mati. x x x En dæmin eru mun skemmtilegri.Nýlega sá Víkverji auglýsta byltingu í „öldrunarvörnum“. Í aug- lýsingunni segir að um sé að ræða vöru með algerlega nýrri nálgun í vörnum gegn öldrun líkamans. Ein- mitt. Að vinna í eigin öldrunarvörn- um gæti orðið útbreidd iðja fólks á næstu áratugum. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 tilkynnir, 8 úrræð- is, 9 bræði, 10 ungviði, 11 staði, 13 út, 15 ósoðið, 18 reik, 21 máttur, 22 rifa, 23 grenjar, 24 glaðvær. . Lóðrétt | 2 fiskar, 3 nirf- ilslegi, 4 hlífði, 5 sívinnandi, 6 reitur, 7 sigra, 12 op, 14 pinni, 15 ræma, 16 dögg, 17 skánin, 18 herskipamergð, 19 graman, 20 groms. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 glæta, 4 hlýri, 7 tuddi, 8 ristu, 9 næm, 11 nóri, 13 hrun, 14 neita, 15 görn, 17 lund, 20 egg, 22 lifur, 23 ryðja, 24 sorti, 25 temja. Lóðrétt: 1 gætin, 2 ældir, 3 alin, 4 harm, 5 ýmsir, 6 Iðunn, 10 æfing, 12 inn, 13 hal, 15 gulls, 16 ræfur, 18 urðum, 19 draga, 20 ergi, 21 grút 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Þetta gerðist … 8. janúar 1686 Svo mikið snjóaði á Suður- nesjum á tveimur dögum að snjórinn „tók meðalmanni yfir mitti á sléttu“, eins og sagði í Kjósarannál. 8. janúar 1873 Eldgos hófst í Vatnajökli og stóð fram á vor. Annáll nítjándu aldar sagði að á Suð- austurlandi hefði ekki verið „ratbjart bæja á millum“. 8. janúar 1895 Framsókn, fyrsta kvennablað á Íslandi, hóf göngu sína á Seyðisfirði. „Aðaltilgangur Framsóknar er sá að hlynna að menntun og sjálfstæði ís- lenskra kvenna.“ Rúmum mánuði síðar hófst útgáfa Kvennablaðsins í Reykjavík. Framsókn kom út til ársloka 1903. 8. janúar 1965 Sigríður Sigurðardóttir hand- knattleikskona var kosin íþróttamaður ársins, fyrst kvenna. Hún hafði verið fyrir- liði íslenska landsliðsins sem sigraði sumarið áður á Norð- urlandamóti kvenna í útihand- knattleik. 8. janúar 1999 Þyrping hf. keypti byggingar Hótels Loftleiða og Hótels Esju af Flugleiðum hf. fyrir um tvo milljarða króna. 8. janúar 2004 Atlantsolía hóf bensínsölu við Kópavogsbraut. Á öðrum bensínstöðvum lækkaði verð á lítra um tvær til þrjár krónur. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson „Ég hélt hressilega upp á fimmtugsafmælið þann- ig að ég ætla bara að hafa það huggulegt með fjöl- skyldunni í kvöld,“ segir Ari Skúlason, hagfræð- ingur og framkvæmdastjóri Landsvaka, sem verður 55 ára í dag. „Allir í kringum mig hafa reynt að telja mér trú um að þetta sé eitthvert stórafmæli í dag en ég er ekki sammála því. Að vísu ber það upp á laugardegi en ég verð bara með ljúft matarboð fyrir mína nánustu,“ segir Ari, sem að eigin sögn er býsna duglegur í eldhúsinu og ætlar að elda spænskan eða portúgalskan saltfisk- rétt. Fjölskyldan má því eiga von á kræsingum. Þegar afmælisdagurinn var hermdur upp á Ara sagði hann mörg stórmenni eiga afmæli 8. janúar og nefndi fyrst poppgoðin Elvis Aar- on Presley og David Bowie, að ógleymdum Kim Jong-il og Þorgrími Þráinssyni. Presley eða Bowie hafa ekki verið í sérstöku uppáhaldi hjá Ara, hann segist frekar hafa heillast af rokksveitum á borð við King Crimson eða Emerson, Lake & Palmer. Ólíklegt er þó að hann fái að setja þær á fóninn í kvöld þar sem fáir í fjölskyldunni deila þeim tónlistarsmekk. „Ætli menn kjósi ekki frekar Presley eða Bowie, þeir eru léttari,“ segir afmælisbarnið að endingu. bjb@mbl.is Ari Skúlason hagfræðingur 55 ára Saltfiskur og Presley (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Vinkona þín getur veitt þér mikil- vægan stuðning í dag. Kallaðu sem flesta út því margar hendur vinna létt verk. Þú þarft að halda áfram í ræktinni ekki satt? (20. apríl - 20. maí)  Naut Samskipti þín við samstarfsmenn þína krefjast óvenjumikillar þolinmæði í dag. Nýttu þér styrkleika þinn, þú ert seigari en allt sem seigt er. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Einhver mun sýna á sér nýja og skemmtilega hlið, sem fær þig til að eyða meiri tíma fyrir framan spegilinn. Ef þú sérð tækifæri skaltu grípa það. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Gættu þess að blanda þér ekki um of í málefni annarra því það gæti orðið til þess að þér verði kennt um annarra mistök. Talaðu hreint út. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Það gengur ekki í augun á öllum að spreða fé á báða bóga. Láttu aðra um þau verk sem þú þarft ekki að sinna. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Skipulagning er allt sem þarf til að þú getir klárað þau verkefni sem bíða þín. Vinur lendir í vanda og þú veist hvað þú þarft að gera. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Aukaorka brennur innra með þér. Þú ert með stöðu þína á hreinu. Hver getur verið á móti þér? Enginn nema þú sjálf/ur. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Stundum ertu uppfull/ur af hug- myndum og vinnur verkið létt. Láttu ekkert fara fram hjá þér framvegis. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það er um að gera að leita eftir samstarfi við þá, sem þér finnst geta aukið við hugmyndir þínar. Sýndu þolinmæði og láttu ekki skapið hlaupa með þig í gönur. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Aukin ábyrgð tengd börnum er ein ástæða þess að þú veltir framamöguleikum talsvert fyrir þér núna. Athugaðu vandlega þinn gang áður en þú festir fé þitt í einhverju. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Vanalega hefurðu beittan húmor, en hann gæti nú virst torskilinn. Eitthvað kemur á óvart í dag. Matarboð er framundan. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú vilt daðra og lyfta þér upp í dag. Einkalífið batnar, því þú veist loksins hvað þú vilt. Einhver sýnir þér áhuga. Stjörnuspá Sudoku Frumstig 4 5 8 5 8 7 1 6 5 1 6 2 5 8 5 3 7 2 7 6 6 3 2 4 3 7 4 9 1 3 8 9 7 5 8 1 3 5 3 7 4 1 8 2 5 8 2 5 3 9 1 4 8 8 9 3 7 1 1 7 2 4 2 6 5 7 1 6 9 2 7 8 9 6 5 5 3 9 1 4 2 8 6 7 6 1 2 9 7 8 4 5 3 7 4 8 6 5 3 1 2 9 8 5 7 3 9 1 2 4 6 4 9 6 8 2 5 7 3 1 1 2 3 7 6 4 5 9 8 9 7 5 4 1 6 3 8 2 2 8 1 5 3 9 6 7 4 3 6 4 2 8 7 9 1 5 2 3 6 8 7 1 9 4 5 5 4 1 2 9 3 6 8 7 9 7 8 6 4 5 1 3 2 4 9 7 1 2 6 8 5 3 1 5 2 3 8 7 4 9 6 8 6 3 4 5 9 2 7 1 7 1 4 5 6 8 3 2 9 6 8 9 7 3 2 5 1 4 3 2 5 9 1 4 7 6 8 5 3 9 6 4 8 2 7 1 7 6 2 1 5 9 8 3 4 4 8 1 2 7 3 5 6 9 9 1 3 8 2 7 4 5 6 2 4 8 9 6 5 3 1 7 6 5 7 3 1 4 9 8 2 8 7 6 5 9 2 1 4 3 1 2 5 4 3 6 7 9 8 3 9 4 7 8 1 6 2 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 8. janúar, 8. dag- ur ársins 2011 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Bg5 c5 5. d5 d6 6. e3 h6 7. Bh4 Bxc3+ 8. bxc3 De7 9. Rf3 e5 10. Dc2 g5 11. Bg3 Rh5 12. Bd3 Rg7 13. Rd2 f5 14. f3 h5 15. Bf2 Kd8 16. h3 Df7 17. O-O-O Kc7 18. g4 e4 19. fxe4 fxg4 20. Bg3 h4 21. hxg4 De7 Staðan kom upp í fyrstu deild Ís- landsmóts skákfélaga en fyrri hluti mótsins fór fram í Rimaskóla sl. októ- ber. Sverrir Örn Björnsson (2161) hafði hvítt gegn stórmeistaranum Hannesi Hlífari Stefánssyni (2585). 22. e5! dxe5 23. Re4! Kd8 24. Dh2 Bxg4 25. Bxe5 Rd7 26. Bd6 og svartur gafst upp. KORNAX-mótið, Skákþing Reykjavíkur, hefst á morgun, sunnu- daginn 9. janúar. Nánari upplýsingar um mótið má finna á www.skak.is. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Póker. N-NS. Norður ♠K103 ♥KDG10 ♦DG9 ♣Á74 Vestur Austur ♠74 ♠ÁG982 ♥Á932 ♥865 ♦1063 ♦K87 ♣G1065 ♣83 Suður ♠D65 ♥74 ♦Á542 ♣KD92 Suður spilar 3G. Norður opnar á sterku laufi, austur skýtur inn spaðasögn, suður segir 1G og norður lyftir í 3G. Spaðasjöan kem- ur út og sagnhafi setur upp kónginn í borði. Hvar liggur nú veðfé lesandans, hjá sagnhafa eða vörninni? Svo er að sjá sem hinn klóki leikur sagnhafa í fyrsta slag hafi tekið allt bit úr vörninni. Austur getur ekki sótt spaðann áfram og ekki þjónar neinum tilgangi að dúkka ♠K. En þegar brids- inn bregst tekur pókerinn við: Austur drepur á ♠Á og spilar ♦8 í öðrum slag! Jú, jú – sagnhafi vinnur einhvern helling ef hann svínar, en það gerir hann auðvitað ekki. Hann spilar upp á ♦K í vestur og ♥Á í austur. Drepur sem sagt á ♦Á og spilar hjarta. Aldeilis óvænt kemst vestur inn á ♥Á til að spila spaða í gegnum tíu blinds. Nýirborgarar Reykjavík Húni Georg Douglas Valgeirsson fæddist 19. október kl. 3.31. Hann vó 4.000 g og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Anna Ellen Douglas og Valgeir Valgeirsson. Flóðogfjara 8. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 0.05 3,4 6.16 1,1 12.28 3,2 18.44 1,1 11.10 15.59 Ísafjörður 2.19 1,9 8.27 0,7 14.28 1,9 21.00 0,7 11.47 15.32 Siglufjörður 4.39 1,1 10.36 0,3 17.03 1,1 23.15 0,4 11.32 15.14 Djúpivogur 3.19 0,6 9.23 1,7 15.32 0,6 22.08 1,8 10.47 15.21 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.