Morgunblaðið - 21.01.2011, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 21.01.2011, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2011 kreditkort.is Hafðu samband. Við hjálpum þér að velja rétta kortið. MASTERCARD OG FÁÐU RÉTTA KORTIÐ FYRIR ÞIG LEITAÐU TIL OKKAR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. ESB kannar réttarstöðuna  Lögfræðingar sambandsins kanna svigrúm til frekari aðgerða í makríldeilunni Baldur Arnarson baldura@mbl.is Lögfræðingar Evrópusambandsins kanna nú svigrúm sambandsins til aðgerða gegn íslenskum stjórnvöldum í makríldeilunni og er niðurstöðu að vænta á næstunni. Verður í kjölfarið hugsanlega gripið til frekari aðgerða gegn íslenskum stjórn- völdum en ESB hefur þegar samþykkt bann við löndun makríls frá Íslandi í höfnum ESB-ríkja. Þetta kemur fram í svari Olivers Drewes, tals- manns Mariu Damanaki, sjávarútvegsstjóra Evrópusambandsins, við fyrirspurn Morgun- blaðsins en hann gaf kost á símaviðtali í gær. Drewes er orðvar þegar hann er inntur eftir lagaheimildum ESB og vísar þegar gengið er á hann á starf lögfræðinga sem skili áliti á næstunni. Hann kvaðst jafnframt ekki vera í aðstöðu til að tjá sig um það hvort aðgerðirnar verði útvíkkaðar þannig að þær nái til allra afurða úr makríl. Hann lætur þó hafa eftir sér að unnið sé hratt. Haft var eftir Össuri Skarphéðinssyni utan- ríkisráðherra hér í blaðinu á laugardag að það sem haft hefði verið eftir Drewes um bannið stangaðist „algjörlega á við það sem kom fram á fundi sam- eiginlegu EES-nefndarinnar“ 15. janúar. Kom skýrt fram á fundinum Drewes lítur öðrum augum á fundinn. „Eina markmið fundarins var að gera aðildar- ríkjum EES-samningsins grein fyrir aðgerðunum. Þetta var stuttur fundur, um 10-15 mínútna lang- ur,“ segir Drewes og vísar til undirbúnings lönd- unarbanns en umræddan fund sátu fulltrúar ESB og stjórnvalda í Noregi, Íslandi og Liechtenstein. „Eina markmið fundarins var að gera […] grein fyrir aðgerðunum.“ Oliver Drewes Um miðjan þennan mánuð höfðu þrettán skip landað rækju á fisk- veiðiárinu. Á sama tíma í fyrravetur, þ.e. frá 1. september til 15. janúar, höfðu sjö skip landað rækjuafla og voru þau ýmist með rækjukvóta eða höfðu leigt til sín. Á þessu ári eru veiðar á úthafsrækju hins vegar frjálsar, þ.e. ekkert aflamark er á rækjunni. Rækjuaflinn var alls orðinn tæp- lega 1.370 tonn 15. janúar, en á sama tíma í fyrra var aflinn tæplega 60 tonnum minni. Múlaberg SI 22, skip Ramma hf., hefur bæði árin verið með mestan afla, en skipið verður við bolfiskveiðar fyrir vinnslu Rammans í Þorlákshöfn fyrstu 2-3 mánuði ársins. Eftir það fer skipið aftur á rækjuveiðar frá Siglufirði. Fjögur önnur skip landa nú rækju hjá Ramma á Siglufirði. Á síðasta fiskveiðiári veiddust yfir sjö þúsund tonn af rækju og var það meiri afli en árin þar á undan. Útgef- inn rækjukvóti var sjö þúsund tonn sem var í samræmi við ráðgjöf Haf- rannsóknastofnunar. aij@mbl.is Fleiri skip á rækju og meiri afli Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að 17 ára piltur sæti gæsluvarðhaldi og einangrun til dagsins í dag vegna innbrots í íbúðarhús í Mosfellsbæ sl. föstudagskvöld. Í fyrradag staðfesti Hæstiréttur úrskurð héraðsdóms um að annar 17 ára piltur skyldi sæta gæsluvarðhaldi vegna málsins. Þriðji maðurinn var einnig hand- tekinn og úrskurðaður í gæslu- varðhald til dagsins í dag. Hann kærði ekki þann úrskurð. Fram kemur að báðir hafa pilt- arnir komið við sögu lögreglu í tengslum við innbrot og þjófnað þrátt fyrir ungan aldur. Telur lög- reglan ekki útilokað að þeir og fé- lagar þeirra tengist fleiri innbrotum í heimahús á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum vikum og mánuðum. 17 ára piltar í varðhaldi Jóhanna Sigurðardóttir var meðal þeirra forsætisráð- herra sem sóttu leiðtogafund Norðurlanda, Eystra- saltsríkja og Bretlands í London í gær og fyrradag. Markmið fundarins var að styrkja efnahagsleg- og fé- lagsleg tengsl Breta við þessi ríki. Samkvæmt Financial Times var mikil áhersla lögð á hlutverk Norðursjávar sem uppsprettu vindorku og sagði David Cameron, forsætisráðherra Breta, að ráð- herrar iðnaðar- og orkumála myndu vinna að áætl- unum um að flytja græna orku milli landa í gegnum of- ur-raforkunet og frá vindorkubúum á sjó gegnum raforkukapla á sjávarbotni. Á vef tímaritsins The Economist er vitnað í Jóhönnu þegar hún var spurð um það hvað Ísland gæti kennt landi eins og Bretlandi. Hún sagðist vita að Cameron hefði eignast barn í ágúst síðastliðnum. „Nú,“ svaraði hún, „ef Cameron væri íslenskur væri hann um þessar mundir að byrja í feðraorlofi. Í þrjá mánuði.“ Cameron fengi feðraorlof Reuters Banaslys varð um klukkan 17.10 í gær rétt sunnan við bæinn Litla- Hvamm við Eyjafjarðarbraut vestri í Eyjafjarðarsveit skammt sunnan Akureyrar. Karlmaður sem var að skokka á veginum varð fyrir fólksbifreið og lést. Lögreglan á Akureyri rannsak- ar málið en gat ekki gefið frekari upplýsingar í gærkvöldi. Banaslys á Eyjafjarð- arbraut Karli og konu, sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna alvarlegrar líkamsárásar fyrir utan skemmti- staðinn Players í Kópavogi aðfara- nótt 16. janúar, hefur verið sleppt úr haldi. Ekki var talið nauðsyn- legt að halda þeim lengur og telst málið upplýst að sögn lögreglunn- ar á höfuðborgarsvæðinu. Karlmaður var laminn fyrir utan skemmtistaðinn um klukkan þrjú um nóttina og þegar hann féll í götuna var sparkað í höfuð hans en hann var fluttur á gjörgæslu- deild Landspítalans með alvarlega höfuðáverka. Fólkið, sem er á þrítugsaldri, var úrskurðað í gæsluvarðhald þangað til á morgun. Fyrr í vik- unni voru þrír karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri handteknir í tengslum við rannsókn lögreglunn- ar á árásinni. Sleppt úr gæslu- varðhaldi Gísli Baldur Gíslason gislibaldur@mbl.is Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokks, segir of snemmt að tjá sig um það hvort rannsókn á meintum njósnum á störfum Alþingis hafi verið ábótavant. „Við eigum eftir að fá meiri upplýs- ingar næstu daga. Maður spyr sig að sjálfsögðu, ef rannsaka átti málið frá öllum hliðum, hvers vegna var ekki rætt við þá sem starfa í næsta ná- grenni við þennan stað þar sem þessi grunsamlega tölva fannst og þeir til dæmis spurðir um mannaferðir í að- draganda þess að tölvan fannst,“ seg- ir Bjarni. Hann segir að þegar hafi komið fram að mannleg mistök hafi verið gerð þegar slökkt var á tölvunni, eftir að hún fannst. „Það sem ég geri athugasemd við á þessum tímapunkti er að jafnalvar- legt mál hafi ekki verið kunngert á Al- þingi,“ segir formaðurinn. „Það sem þingmenn eins og ég eru almennt að upplifa er að þeim þykir sem þeir hafi búið við falskt öryggi.“ Bjarni segir að hann hafi fyrst heyrt af rannsókninni í gærmorgun, rétt eins og aðrir þingmenn, að Ástu Ragnheiði undanskilinni. Þuríður Backman, þingmaður Vinstri grænna og annar varaforseti Alþingis, heyrði fyrst af málinu í fjölmiðlum í gær- morgun. Þarf að reyna með öllum ráðum að upplýsa málið Hvorki Bjarni né Þuríður vildu leggja dóm á störf Ástu Ragnheiðar eða annarra sem komu að málinu. „Ég held að maður eigi ekki að vera með sleggjudóma, nornaveiðar eða neitt annað en taka málið alvarlega og fara í þá vinnu sem þarf að vinna – og það er að reyna með öllum ráðum að upplýsa málið,“ segir Þuríður. Búið við falskt öryggi  „Hvers vegna var ekki rætt við þá sem starfa í næsta nágrenni við þennan stað,“ spyr Bjarni Benediktsson Bjarni Benediktsson Þuríður Backman

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.