Morgunblaðið - 21.01.2011, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2011
Segja má að vel hafi farið á því aðupplýst hafi verið um lokaða
leynisölu eins ríkisbanka á Sjóvá á
sama tíma og umræður stóðu yfir á
Alþingi um lokaða leynisölu annars
ríkisbanka í Vestia-málinu í fyrra-
dag.
Ríkisleyndarmálin eru orðin svoviðamikil og teygja anga sína
svo víða að engan undrar að þessi
staða hafi
komið upp.
Og þó aðein-
kennilega
hafi verið að hlutunum staðið í
Vestia-málinu af hálfu ríkisvaldsins
er atburðarásin þó hálfu ein-
kennilegri í Sjóvár-málinu.
Þar byrjaði Seðlabankinn á aðýta þátttakendum í opnu sölu-
ferli frá borðinu en seldi skömmu
síðar í kirfilega lokuðu og leynilegu
söluferli. Jafnvel Glitnir, sem á for-
kaupsrétt að hinum selda hlut,
hafði ekki hugmynd um söluna.
Svo var í góðu samræmi við ann-að á þessum tímum leynimakks
og pukurs að heitar umræður urðu
á Alþingi í gær um nýjasta leyni-
makk stjórnvalda.
Þar kom fram að ekki hafði veriðupplýst um sterkar grunsemd-
ir um að njósnir hefðu verið stund-
aðar á Alþingi. Stjórnvöld hefðu án
efa pukrast áfram með það mál ef
Morgunblaðið hefði ekki upplýst
um það í gærmorgun.
Hvernig stendur á því að ríkis-stjórnin pukrast svona með
alla hluti? Er það eingöngu gert til
að hægt sé að svíkja margítrekuð
fyrirheit um gagnsæi í stjórnarsátt-
málanum, eða býr fleira að baki?
Nú er pukrast
sem aldrei fyrr
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 20.1., kl. 18.00
Reykjavík 1 snjóél
Bolungarvík 0 hagl
Akureyri 1 snjókoma
Egilsstaðir 2 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 2 rigning
Nuuk -8 léttskýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló -7 heiðskírt
Kaupmannahöfn 0 heiðskírt
Stokkhólmur -2 skýjað
Helsinki -5 snjókoma
Lúxemborg 1 skýjað
Brussel 2 léttskýjað
Dublin 3 léttskýjað
Glasgow 2 skýjað
London 5 léttskýjað
París 3 léttskýjað
Amsterdam 3 léttskýjað
Hamborg 0 skýjað
Berlín 1 skýjað
Vín 2 skýjað
Moskva -12 snjókoma
Algarve 17 skýjað
Madríd 11 léttskýjað
Barcelona 11 léttskýjað
Mallorca 11 léttskýjað
Róm 7 skúrir
Aþena 11 skýjað
Winnipeg -28 léttskýjað
Montreal -11 skafrenningur
New York 0 heiðskírt
Chicago -7 alskýjað
Orlando 20 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:41 16:38
ÍSAFJÖRÐUR 11:08 16:20
SIGLUFJÖRÐUR 10:52 16:02
DJÚPIVOGUR 10:16 16:02
BAKSVIÐ
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Margir hafa lýst yfir mikilli
óánægju með fráveitugjald Orku-
veitu Reykjavíkur. Bent hefur ver-
ið á að meðaltalstölur séu ekkert
annað en blekking með tölum og
einn eldri borgari vísar til þess að
í þremur mismunandi eignum sín-
um sé hækkunin 14,5% upp í 45%.
„Ég hefði talið eðlilegra að miða
gjaldið við vatnsnotkun en fer-
metrafjölda,“ segir hann.
Viðkomandi ellilífeyrisþegi vill
ekki koma fram undir nafni.
„Ástandið er orðið þannig að fólk
er nánast beitt ofsóknum leyfi það
sér að tala, en það er ekki í lagi
þegar stjórnvöld leyfa sér að
hækka alla þjónustu án takmark-
ana,“ segir hann. „Það er vísvit-
andi verið að níðast á fólki.“
Dýrasta vatn heims?
Fyrir skömmu var lesið af
vatnsmæli fyrir „leikstofu“ manns-
ins eins og hann kallar 125 fer-
metra geymsluhúsnæði sitt þar
sem hann dundar sér af og til við
hitt og þetta, smíðar og fleira.
Notkunin var um 200 l árið
2010 enda vatnið aðeins notað
til að sturta því niður í sal-
ernið og þvo sér um hend-
urnar. „Þeir láta mig
borga 27 þúsund krónur
fyrir þetta. Ég hef aldrei
heyrt um svona dýrt
vatn,“ segir hann og
bætir við að það sé út í
hött að hann þurfi að
borga jafnmikið og
vatnsfrekur iðn-
aður í ámóta
stóru húsnæði.
„Það er bara
verið að búa til
tölur til þess að
komast ofan í vasa
manns,“ segir hann og
gefur lítið fyrir skýringar
um að vatnsfrekur iðnaður
sé með mæla. „Ég er líka með
mæli og notkunin er mæld.“
Viðkomandi borgari segir að
hækkun fráveitugjalda á 20 ára 63
fermetra íbúð sinni sé 20,43% og
14,5% á um 430 fermetra húsi
sínu. Hann áréttar að þegar hús sé
byggt borgi eigandi fyrir vatns-
lögnina og notkunin sé síðan ætluð
til viðhalds hjá Orkuveitunni.
Í mörg ár segist umræddur
maður hafa séð um vatnsmál fyrir
stóra sumarhúsabyggð í Borgar-
firði en í fyrra hafi komið til tals
að fá Orkuveituna til þess að ann-
ast umsýsluna. Lágmarksgjaldið
hafi verið 18.500 kr. á sumarhús.
„Ég hef séð um þessi mál í 13 ár
og samkvæmt útreikningum Orku-
veitunnar hefði hún tekið 21 millj-
ón fyrir viðvikið á sama tíma en
kostnaður fólksins var 1,3 millj-
ónir. Það munar um 20 milljónum.
Þetta er ekkert annað en fjár-
plógsstarfsemi. Fyrirgefðu orð-
bragðið en maður má greinilega
eiga von á öllum fjandanum úr
þessari átt. Samt held ég að sveit-
arfélög megi ekki samkvæmt lög-
um reka þjónustu öðruvísi en á
kostnaðarverði.“
Maðurinn lét setja niður fjórar
1.800 lítra rotþrær í sumarhúsa-
byggðinni en þegar kom að hreins-
un sveitarfélagsins var hann rukk-
aður fyrir hreinsun á fjórum 3.000
l rotþróm. „Alls staðar er reynt að
hafa af manni eins mikið fé og
hægt er.“
Kostar 27 þús. að sturta niður
Eldri borgari segir eðlilegra að miða fráveitugjaldið við vatnsnotkun en fermetrafjölda
Íbúar greiddu samtals um 1,3 milljónir fyrir það sem Orkuveitan vildi fá 21 milljón fyrir
Breyting á frárennslisgjöldum í Reykjavík
39.554 kr.
57.356 kr.
2010 2011
11.760 kr.
17.132 kr.
2010 2011
40.622 kr.
50.022 kr.
2010 2011
36.769 kr.
45.283 kr.
2010 2011
125 m2 geymsluhúsnæði 63 m2 íbúð 225,8 m2 íbúð í tvíbýli 178,5 m2 íbúð í tvíbýli
Elli- og örorkulífeyrisþegar með allt að 2.460.000 kr.
laun (hjón með tekjur allt að 3.440.000 kr.) fá 100%
lækkun á fasteignagjöldum Reykjavíkurborgar í ár.
Lækkunin er 80% hjá einstaklingum með tekjur á bilinu
2.460.000-2.830.000 kr. (3.440.000-3.840.000 kr. hjá
hjónum) og 50% miðað við laun á bilinu 2.830.000-
3.290.000 kr. (3.840.000-4.580.000 kr. hjá hjónum).
Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitu
Reykjavíkur, segir að með lögum um fráveitur sé þessi
starfsemi færð í svipað umhverfi og önnur veitu-
starfsemi. „Veiturnar innheimta þjónustugjöld og af
þeim er ekki gefinn afsláttur. Litið er á það sem hlut-
verk hins opinbera – ríkis og sveitarfélaga – að ívilna
eða íþyngja tilteknum þjóðfélagshópum og þá með
skattfé.“
Ekki afsláttur hjá OR
HOLRÆSAMÁL